Morgunblaðið - 31.12.1985, Blaðsíða 1
294. tbl. 72. árg.
STOFNAÐ1913
80 SÍÐUR B/C
ÞRIÐJUDAGUR 31.DESEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gledilegt nýár!
Morgunbladið/Snorri Snorrason
Árásimar í Róm og Vín:
Palestínumenn óttast
hefndarárás ísraela
Ætluðu hryðjuverkamennirnir í Vín til ísraels?
Kóm, 30. desember. AP.
SIMON Peres, torsætisráðherra
ísraels, sagði í dag að miðstöð
hryðjuverkastarfsemi í heiminum
væri í Líbýu undir forystu Moamm-
ars Kadafy og sagði að fsraelar
myndu berjast gegn hryðjuverka-
mönnum um allan heim. Yfirlýsing
Peres undirstrikar fyrri hótanir
ísraela um að þeir ætluðu að refsa
þeim, sem bæru ábyrgð á árásunum
á flugvellina í Róm og Vín á föstu-
dag. Rannsóknarlögreglan á ftalíu
og í Austurríki sagði í gær að
hryðjuverkamennirnir, sem gerðu
árásirnar, hefðu, ef að líkum lætur,
fengið sovésk vopn sín frá sam-
starfsmönnum í höfuðborgunum
tveimur og áætlað hefði verið að
taka gísla í Vín og fljúga með þá til
Tel Aviv.
„Hryðjuverkamennirnir ætluðu
að skapa ringulreið í brottfarar-
salnum með því að kasta hand-
sprengjum og taka síðan gísla,“
sagði Karl Blecha, innanríkisráð-
herra Austurríkis, í dag. „Með því
að hóta að aflífa gíslana ætluðu
hryðjuverkamennirnir að neyða
austurrísk yfirvöld til að hleypa
þeim úr landi.
Blecha sagði að hryðjuverka-
mennirnir tveir, sem í haldi eru í
Austurríki, kvæðust tilheyra A1
Asifa, klofningssamtökum úr
Frelsissamtökum Palestínu, undir
forystu Abus Nidals, eins helsta
andstæðings Yassers Arafat.
Starfsmaður dórnsmálaráðu-
neytisins í Vín, þar sem tveir menn
voru myrtir og 45 særðir, sagði að
einhver í Austurríki hefði að því
er virtist birgt hryðjuverkamenn-
ina upp með vopnum.
ítalska rannsóknarlögreglan
segir að hryðjuverkamennirnir
fjórir, sem myrtu tólf manns og
særðu rúmlega áttatíu, hafi án efa
fengið aðstoð og talið að þar hafi
sömu menn áður komið við sögu í
hryðjuverkum. Þrír hryðjuverka-
mannanna biðu bana í átökum við
ítölsk yfirvöld, en einn þeirra náð-
ist á lífi og er hann nú í yfir-
heyrslum. ítölsk yfirvöld segja að
hryðjuverkamennirnir hafi verið
að leita hefnda fyrir árás ísraela
á höfuðstöðvar Frelsissamtaka
Palestínu í Túnis í október, þótt
samtök Arafats hafi svarið af sér
alla ábyrgð á verknaðinum.
„Það er augljóst að miðstöð
hryðjuverka í heiminum í dag er
Líbýa undir Kadafy og í þeim
herstöðvum tíðkast skefjalaust
ofbeldi og tilgangurinn helgar
meðalið," sagði Simon Peres á póli-
tískum fundi í dag. Að sögn vest-
ur-þýska dagblaðsins Bild hefur
Kadafy ákveðið að greiða Abu
Nidal 12,7 milljóna Bandaríkja-
dollara í styrk til hryðjuverka ár-
lega.
ísraelskir hernaðarsérfræðing-
ar segja aftur á móti að ekki verði
auðhlaupið að því að láta til skarar
skríða gegn huldusamtökum Abus
Nidals.
Líbýska fréttastofan JANA lof-
aði á sunnudag morðárásirnar í
Róm og Vín og kallaði hetjudáð.
Frelsissamtök Palestínu lýstu
yfir því í dag að skæruliðar þeirra
í Norður- og Suður-Jemen væru í
viðbragðsstöðu ef ísraelar skyldu
gera árás í hefndarskyni fyrir
blóðbaðið í Róm og Vín.
Einhugur
um örugga
framtíð
Seattle, 30. desember. AP.
Friður og framtíð án ótta við
kjarnorkustyrjöld voru þau mál,
sem bandarískir og sovéskir
borgarar voru einhuga um í sjón-
varpsþætti, sem haldinn var
samtímis í Leningrad og Seattle
og varpað á mitli.
„Hvað getur ríkisstjórn yðar
gert til að draga úr hættunni
á kjarnorkustyrjöld?" spurði
einn bandarísku þáttakend-
anna og einn Sovétmannanna
svaraði að bragði og sagði, að
hún hefði lagt til, að tilraunum
með kjarnorkuvopn yrði hætt
og kjarnorkuvopnum fækkað.
„Hvað hefur bandaríska ríkis-
stjórnin gert í þágu friðarins?"
spurði Sovétmaðurinn og fékk
það svar, að hún væri sama
sinnis og Sovétstjórnin en að
ágreiningurinn stæði hins veg-
ar um raunverulegt eftirlit með
framkvæmdinni.