Morgunblaðið - 07.01.1986, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1986
3
Hækkun flu g-
vallargjalds-
ins er ekki
stefiiubreyting
- segir Þorsteinn Pálsson
formaður Sjálfetæðis-
flokksins, en 1978 lögðust
þingmenn flokksins ein-
dregið gegn hækkun þess
VIÐ umræðu á Alþingi haustið
1978 um frumvarp þáverandi
vinstri rikisstjórnar um verulega
hækkun á flugvallargjaldi lögð-
ust þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins eindregið gegn samþykkt
þess. Þorsteinn Pálsson, núver-
andi fjármálaráðherra, sagði hins
vegar að með hækkun gjaldsins
nú hefði Sjálfstæðisflokkurinn
ekki breytt um stefnu. Aðilar í
ferðaþjónustu hafa margir gagn-
rýnt harðlega hækkunina.
Þorsteinn sagði: „í fyrsta lagi þá
gera fjárlögin ráð fyrir því að ýmsar
sértekjur ríkissjóðs hækki og þar á
meðal flugvallarskatturinn og þessi
ákvörðun byggist eingöngu á því
að fá inn þær tekur sem áætlaðar
eru. Það hefur alla tíð, þar á meðal
1978 verið stefna Sjálfstæðisflokks-
ins að það eigi að reka ríkissjóð án
halla og hækkunin er hluti af því
að ná þessu megin markmiði."
Þorsteinn sagði að hann teldi
ekki óeðlilegt að hækka gjaldið
þegar auka þurfi tekjur ríkissjóðs
við krappar aðstæður, þó auðvitað
megi færa rök að því að það og
ýmsir aðrir skattar þyrftu að vera
lægri: „En á meðan að útgjöld ríkis-
ins eru jafnmikil og raun ber vitni
þá þarf að afla tekna.
I umræðum á Alþingi seinni hluta
ársins 1978 um fyrrnefnt frumvarp
sagði Eyjólfur Konráð Jónsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins og
framsögumaður minnihlutaálits
fjárhags- og viðskiptanefndar efri
deildar, meðal annars að verið væri
„að leggja gífurlegar byrðar á fólkið
sem þarf að ferðast, - og auðvitað
kemur það verst við fátæka fólk-
ið...“
Matthías A. Mathiesen mælti
fyrir áliti minnihluta í neðri deild
og sagði: „Eins og fram kemur í
nefndaráliti minnihluta fjárhags- og
viðskiptanefndar munu sjálfstæðis-
menn ekki taka þátt í þeirri skatta-
áþján sem nú ríður yfir þjóðina, og
leggjum við til að þetta frumvarp
verði fellt."
INNLENT
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs:
morgunDiaoio/BKapu Hallgrimason
Cape Sambro, fyrsti kanadíski togarinn sem Slippstöðin breytti, í reynslusiglingu skammt utan at-
hafhasvæðis stöðvarinnar á sunnudaginn.
Bækur eftír Jón úr
Vör og Véstein Lúð-
víksson tilnefndar
íW
ELLEFU bækur hafa verið til-
nefndar til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs 1986, tvær
bækur frá Islandi, Danmörku,
Noregi, Sviþjóð og Finnlandi og
ein bók frá Færeyjum.
Bækurnar sem tilnefndar hafa
verið eru eftirfarandi: Frá íslandi
ljóðabókin Gott er að lifa eftir Jón
úr Vör og skáldsagan Maður og haf
eftir Véstein Lúðvíksson; frá Dan-
mörku skáldsagan Guldkuglen,
Fortælling om en 0, eftir Hanne
Marie Svendsen og ljóðabókin Hjert-
ets sale eftir Jess 0msbo; frá Noregi
ljóðabókin Nattápent eftir Rolf
Jacobsen og skáldsagan Stank av
mennesker eftir Kolbjorn Brekstad;
frá Svíþjóð skáldsagan Dykungens
dotter eftir Birgitta Trotzig og
skáldsagan Slaktarens hus eftir
Karl Rune Nordkvist; frá Finnlandi
skáldsagan Evakuerade för livet
eftir Eeva Kilpi og skáldsagan Hotell
för levande eftir Olli Jalonen og frá
Færeyjum Ijóðabókin Líkasum eftir
Rói Patursson.
A fundi sínum í Reykjavík þriðju-
daginn 21. janúar 1986 mun dóm-
nefnd Bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs ákveða hver hlýtur verð-
launin að þessu sinni. Niðurstaðan
verður síðan tilkynnt á blaðamanna-
fundi sem haldinn verður á Hótel
Holti sama dag.
Leitar þú hagkvæmrar
pökkunarlausnar?
Krumpuvélar.
Allt að 50% sparnaður við
pökkun.
Aukið geymsluþol og verðmaeti
matvöru.
Pokalokunarvélar.
Fró 6.500 kr. Fyrirstórar sem
smáar rekstrareiningar.
Plastprent selur fleira en plast.
Við bjóðum einnig úrval stórra og smárra pökkunarvéla sem
spara vinnu og auka verðmæti vörunnar. Notagildi vélanna er
næsta ótakmarkað. Yfir 50 fyrirtæki keyptu pökkunar-
vélar af okkur á síðasta ári, t.d.: Sól hf, Mjólkur-
samsalan hf, Vífilfell hf, Nói—Síríus hf, K. Jónsson &
Co hf, Kaupfélagið Fram, Síldarvinnslan Nesk , Vest-
firska harðfisksalan, Rækjuvinnslan Skagastr.,
Gunnarsbakarí Reyðarf., Valberg Ólafsf., Staðarskáli
Hrútaf., Hraðhreinsun Árbæjar, Broadway,
Júmbósamlokur. . .
Þú handleikur umbúðirnar okkar daglega.
I 26 ár höfum við jafnframt framleitt alls konar plastumbúðir úr
eigin filmu, með og án áprentunar. Við svörum síaukinni eftir
spurn eftir hagkvæmum umbúðum sem nýtast allt frá
framleiðanda til neytanda. Það er því engin tilviljun
að flestallir Islendingar meðhöndla daglega vörur
sem pakkað er í umbúðir frá okkur.
Plastpökkun er framtíðarlausn.
Plast sparar miðað við aðrar umbúðir, verndar vel
og uppfyllir auknar kröfur um geymsluþol og aug-
lýsingargildi. Forysta Plastprents byggist á tækni-
framförum, fjölhæfu starfsliði og mikilli reynslu. Þess vegna leys-
um við pökkunarvanda íslenskra fyrirtækja.
N
Plastprent hf.
Plastumbúðir, pökkunarvélar, ráðgjöf.
Höfðabakka 9. Sími 685600.
Brettavafningsvélar.
Brettapökkun í plast —
hagkvæm og hlífir vöru í flutn-
ingum.