Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.01.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1986 19 Sorg og gleði ríkti í gær er „gamli, góði Verzló“ var kvaddur Gleði, sorg og samhugur ríkti allt í senn er nemendur, kennarar og annað starfs- fólk Verslunarskóla Islands flutti búferlum úr gamla skólahúsnæðinu við Grund- arstíg í nýrisið hús við Ofan- leiti 1 í hinum svokallaða nýja miðbæ Reykjavíkur í gær. Óhætt er að tala um blendnar tilfínningar að- standenda skólans er komið var að kveðjustund „gamla góða Versló“, sem svo lengi hefúr gegnt starfí sínu dyggilega og menntað ófáa atorkumenn í gegnum tíð- ina. Menn voru óneitanlega í hátíðar- skapi við flutningana í gær. Nem- endur árdegisbekkja mættu með léttar skólatöskur sínar í skólahúsið við Grundarstíg rúmlega átta. Ár- degis var bifreiðakostur nemenda og kennara fluttur að Ofanleiti og þeim lagt sunnan við húsið þar sem aðalinngangurinn er. Á hádegi mættu síðdegisbekkirnir einnig í gamla skólahúsið í síðasta sinn. Kennarar útskýrðu fyrirkomulag flutninga, úthlutuðu nýjum kennslu- stofum og þar næst voru gömlu skólahúsin kvödd með virktum. Hver bekkur fór { stofuna sína þar sem haldnir voru litlir ræðustúfar, nokkr- ir tóku til við kveðjusöngva og aðrir vottuðu gömlu húsakynnunum virð- ingu með mínútu þögn - sitjandi sáttir í þröngum kennslustofunum. Þrátt fyrir þrengsli hefur félags- andinn verið mikill í Verslunarskóla Islands í gegnum árin og voru nemendur að velta vöngum yfir því hvort sá góði „Versló-andi“ væri nú tilbúinn í að færa sig um set í hina nýju byggingu. „Eigum við ekki að koma inn á kennarastofu og tárast svolítið með hinum,“ sagði einn kennarinn við sambræður sína er hímdu úti í vetr- arkuldanum fyrir framan gömlu húsin á Grundarstígnum og biðu þess að gamla skólabjallan hringdi út úr síðustu kennslustundinni. Nemendur voru að vonum ánægðir eins og myndin ber með sér er hafist var handa við flutningana. Nú var loksins séð fyrir endann á þrengslum skólans þó svo að flestir hefðu áfram viljað vera í mið- bænum. Ekki er þó á allt kosið. Reyndar er hlutverki þeirrar skóla- bjöllu ekki enn lokið þar sem hún prýðir nú anddyri nýju húsakynn- anna. Ekki stóð á skólabjöllunni og því næst þustu nemendur og kennarar út úr stofunum með stóla sína og borð - út í eina fimmtán flutninga- bíla er lagt höfðu á Laufásveginum. Eftir hálftíma lagði síðan flutninga- lestin af stað til nýrra heimkynna. Klukkuberar fóru fyrstir, þá skóla- stjóri, skólanefnd, kennarar og nemendur. Nemendur skólans eru um 800 talsins og kennarar og annað starfsfólk um 70. Gangan var fjöl- menn þó svo að allir hafi ekki tekið þátt í henni. Fýrst var marseraður Laufásvegurinn, þá Hringbrautin, Miklabrautin, Eskihlíð, Hamrahlíð, Listabraut og sem leið lá í Ofanleitið undir lögreglufylgd og stöðvuðu Verslingar umferð víðsvegar en létu það lítið á sig fá enda langþráðum áfanga náð. I nýja húsið var komið kl. 13.30 og sáu nemendur þá einnig um að afferma bílana og koma sætum sínum rétt fyrir í viðkomandi stofum. Teknir eru nú í notkun 4.700 fermetrar kennsluhúsnæðis, stjórn- unarálma, nemendaverslun' og hús- næði fyrir félagslíf nemenda. Al- mennar kennslustofur verða átján, fimm sérkennslustofur, níu vinnu- herbergi kennara, skrifstofa, kenn- arastofa, skólabúð, skáli, salur, aðstaða fyrir félagslíf nemenda, og tvö stigahús af þremur. Vonir standa til að smíði hússins, að undanteknu íþróttahúsi og tilheyrandi aðstöðu, verði lokið fyrir næsta haust. Ýmis fyrirtæki hafa greitt kostn- aðarverð kennslustofanna - 500.000. á hveija stofu. Hver kennslustofa mun því heita eftir því fyrirtæki og eru heitin m.a. Eimskip, Hafskip, Flugleiðir, Hagkaup, Heimilistæki, Hekla, H. Benediktson, Nathan & Olsen, O. Johnson & Kaaber, Saltsal- an, SH, SÍF, VR, Þýsk-íslenska o.s.frv. Einn kennaranna hafði það á orði að eiginlega væri nú tími til kominn að skipta um klæðaburð þar sem fínheitin væm slík sem raun ber vitni. Þorvarður Elíasson, skóla- stjóri, ávarpaði nemendur sína eftir flutningana og sagði þá: „Hér emm við komin eftir langa göngu og aftur verður ekki snúið úr þessu. Héðan í frá verður þetta hús hinn eini og sanni Verslunarskóli Islands." Hann sagðist ekki hafa miklar áhyggjur af skólaandanum. Skóla- bragurinn þyrfti alls ekki að breytast þrátt fyrir flutningana svo framar- lega sem nemendur legðust á eitt um að halda honum innan veggja nýja skólans. Að máli skólastjórans loknu, báuð skólanefndin upp á veit- ingar og sungin var skólasöngurinn undir stjórn Valdimars Hergeirsson- ar, yfirkennara. Klukkan 15.00 heyrðist í gömlu skólabjöllunni þar sem hún var komin á sinn stað í nýja húsinu. Nemendur höfðu hver og einn fundið sína vemstaði. Verið var að hringja inn í fyrstu kennslustund- ina í hinum nýja Verslunarskóla Is- lands. Attunda húsnæðið frá stofnun skólans VERSLUNARSKÓLI íslands flytur nú í áttunda húsnæði sitt frá stofh- un skólans árið 1905. Skólinn hóf starfsemi sina í Vinaminni, Mjóstræti 3, með 47 nemendur. Næsta ár var skólinn í Melsteðshúsi, sem var milli Lækjartorgs og Hafnarstrætis, og árin 1907-1912 í Smithshúsi no. 19 við Hafnarstræti. Að Vesturgötu 10 starfaði skólinn frá 1912- 1931 og við Grundarstíg 24 frá 1931 til þessa dags. Skólinn hefur því áður búið á sjö stöðum. fyrir bygginguna. Hann sagði: „Þótt okkur hafi öllum liðið vel við Gmndar- stíginn og enda þótt við hljótum að sakna gömlu veggjanna og nálægðar- innar við miðbæinn, þá var svo komið að vinnuaðstaða bæði kennara og nemenda var orðin með öllu óviðun- andi sökum þrengsla." Þorvarður sagði að það hefði verið skemmtilegt fyrir sig að hafa mátt taka þátt í framkvæmdunum að vissu leyti. „Ég hef fengið tækifæri til að taka þátt í nýstárlegri og vel hepp- naðri fjáröflun, bæði með almennri fjársöfnun og verðbréfasölu og ég færi þeim mönnum sem ég hef verið svo lánsamur að starfa með, sérstak- ar þakkir fyrir ánægjulegt og árang- ursríkt samstarf, jafnt giimlum félög- um úr stjórn Verslunarráðsins sem nýjum samherjum í þeim fjármála- stofnunum sem hér eiga hlut að máli. Ég get ekki látið hjá líða að minnast hér á störf fjáröflunarnefnd- ar Verslunarráðs íslands og öflugan stuðning stjórnar ráðsins og félags- manna þess. Þar hafa margir unnið frábær störf. Ég verð jafnframt að biðja afsökunnar á að hafa ekki getað sinnt störfum mínum fyrir fjáröflun- arnefndina með þeim hætti sem ég hefði viljað nú síðustu mánuðina, vegna anna við að eyða peningun- um,“ sagði Þorvarður. Kauþ hússins við Grundarstíg var stórt átak á sínum tíma og það nægði fyrir allt að 100 nemendur. í dag eru í því og húsunum við Þing- holtsstræti og Hellusund tæplega 800 nemendur og 70 kennarar og starfsfólk. Byggingarsaga nýja hússins hófst er skólanefndin ákvað að gera átak í húsnæðismálum skól- ans í tilefni af 75 ára afmæli skól- ans, en þrengsli höfðu lengi staðið í vegi fyrir þróun hans. Skólinn hefur löngum verið tvísetinn en nú opnast nýir möguleikar þar sem almennri kennslu hinna hefðbundnu bekkja lýkur kl. 15.00 á daginn. Þoivarður Elíasson, skólastjóri, sagði að ráðgert væri að reka full- orðinskennslu í skólanum. „Núver- andi starfsnám verður eflt og lögð verður aukin áhersla á að bjóða fyrirtækjum upp á margvísleg nám- skeið fyrir starfsfólk sitt. Til gi'eina kemur að reka innan verslunarskól- ans ýmsa sérskóla eða námskeið fyrir fyrirtæki sem hafa þörf fyrir vel þjálfað og menntað skrifstofu- og verslunarfólk. Tryggingarfélög, ferðaskrifstofur, bankar, stórmark- aðir og sérverslanir ættu að geta fengið fræðsluþjónustu auk þess sem ákjósanlegt er að koma upp í skólan- um sérmenntun í tölvufræðum, stjórnun, sölumennsku, útflutningi oginnflutningi.“ Texti: Jóhanna Ingvarsdóttir. Myndir: Árni Sæberg. ■ : _______■:.r^ Bladburóarfólk óskast! Austurbær Ingólfsstræti Bergstaöastræti Leifsgata Barónsstígur Hverfisgata 63—120 Vonarstræti Kirkjustræti Grettisgata 64—98 Vitastígur 11 —17 Þingholtsstræti Vesturbær Hagamelur 14—40 Grafarvogur Fannarfold Kópavogur Ásbraut Skerjafjörður Gnitanes Úthverfi Blesugróf Nökkvavogur lambamerki ELTEX lambamerkin eru gerö úr þunnri álplötu, með bognum járnpinna, sem stungið er í eyrað og lokað. ELTEX merkin fástáletruð (2X4 stafir) með tölustöfum og/eða bókstöfum. Við höfum selt þessi merki við góðan orðstýr í mörg undanfarin ár, og verðum með á lager merkjaraöir 1—1000. FÁST ÍLIT Ef óskað er eftir sérstimpluðum merkjum, vinsamlega leggið inn pantanir á varahlutalager okkar sem fyrst, og ekki seinna en 15. janúar n.k. BUNADARDEILD ÁRMÚLA3 REVKJAVI'K StMI 38900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.