Morgunblaðið - 07.01.1986, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986
Áskorun starfsmanna LIN:
Embættisfærsla
menntamálaráð-
herra verði könnuð
STARFSMENN Lánasjóðs íslenskra námsmanna héldu fund í gær og
samþykktu ályktun þar sem skorað er á Steingrím Hermannsson
forsætisráðherra að láta rannsaka embættisfærslu Sverris Hermanns-
sonar menntamálaráðherra varðandi brottvikningu Siguijóns Valdi-
marssonar.
I ályktuninni segir að samkvæmt
lögum sé stjóm LIN ætlað að annast
fjárhags- og greiðsluáætlun sjóðsins.
I brottvikningarbréfi menntamála-
ráðherra til Sigurjóns Valdimarsson-
ar framkvæmdastjóra LÍN er hann
sakaður um vanræksiu í starfí og
þá fyrst og fremst fyrir það að áæti-
anagerð sjóðsins fyrir árið 1985
hafí ekki staðist. Í ályktuninni segir
að af lögum og reglugerð LÍN sé
hins vegar ljóst að stjórn sjóðsins
sé ábyrg fyrir þeirri „vanrækslu"
sem menntamálaráðherra sakar
Siguijón um.
Þá segir að það sé mat undirrit-
aðra starfsmanna LÍN að ákvörðun
menntamálaráðherra sé ólögleg og
stangist auk þess á við lög um rétt-
indi og skyldur opinberra starfs-
manna. Starfsmenn segja einnig að
þeim hafí borist þau tíðindi að meiri-
hluti stjómar LÍN hafí neitað að
taka á sig ábyrgð á fjárreiðum sjóðs-
ins.
Starfsmennimir segjast í kjölfar
þessa vera knúnir til að skora á
forsætisráðherra að láta þegar í stað
rannsaka í fyrsta lagi embættis-
færslu Sverris Hermannssonar
menntamálaráðherra varðandi
Flugleiðir
leigjaþotutil
Air Paraguay
FLUGLEIÐIR hafa leigt DC-8-þotu
til Air Paraguay í tæpan mánuð í
febrúar. Með vélinni fara 12 flug-
raerni og 2-3 flugvirkjar að auki.
Átta manna samninganefnd frá Air
Paraguay er hér á landi og var gengið
frá samningi um leigu þotunnar í gær.
Fyrir nefndinni fer forstjóri flugfélags-
ins, sem jafnframt er varavamarmála-
ráðherra Paraguay. Að sögn Sigfúsar
Erlingssonar framkvæmdastjóra mark-
aðssviðs Flugleiða hefur þotan flug á
flugleiðum Air Paraguay 3. febrúar og
verður aðallega í áætlunarflugi á milli
Asuncion í Paraguay og Flórida en
einnig á milli Asuncion og Frankfurt.
Vélin verður leigð til 27. febrúar og
er gert ráð fyrir að hún verði notuð I
200 flugstundir á þeim tíma.
Umrædd vél er nú í innanlandsflugi
í Svíþjóð fyrir SAS og lýkur því verk-
efni í lok janúar. Sigfús sagði að eftir
Paraguay-verkefnið færi þotan í skoð-
un og síðan settar á hana hljóðdeyfar.
Bjóst hann við að hún færi að þvl loknu
inn í áætlunarflug hjá Flugleiðum.
Selfoss:
Kveikt bál á
Ölfusárbrú
JOLIN voru kvödd í gær, á
þrettándanum. Víða um land var
gengið um bæina með blys að
brennum þar sem var álfadans
og söngur. Sumsstaðar voru
dansleikir á eftir.
Samkomur þessar fóru vel fram,
eftir því sem Morgunblaðið hafi
spumir af í gærkvöldi, líka í Hafn-
arfirði og Selfossi þar sem ungling-
ar hafa stundum verið með ólæti
þetta kvöld. Um miðnættið út-
bjuggu unglingar á Selfossi þó
bálköst á Ölfusárbrú og kveiktu í.
Unglingadansleikur var í Selfoss-
bíói. í Hafnarfírði var mikill mann-
söfnuður á þrettándabrennunni, og
unglingadansleikur á eftir.
brottvikningu Siguijóns Valdimars-
sonar, sérstaklega með tilliti til þess
hvort honum hafí ekki verið vikið
frá störfum á röngum forsendum, í
öðru lagi hvort ásakanir mennta-
málaráðherra um vanrækslu Sigur-
jóns í starfi stangist ekki á við 108.
gr. almennra hegningarlaga. I þeirri
grein segir orðrétt: „Hver, sem hefur
í frammi skammaryrði, aðrar móðg-
anir í orðum eða athöfnum eða
ærumeiðandi aðdróttanir við opin-
beran starfsmann, þegar hann er
að gegna skyldustarfí sínu, eða við
hann eða um hann út af því, skal
sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi
allt að 3 árum. Aðdróttun, þótt
sönnuð sé, varðar sektum, ef hún
er borin fram á ótilhlýðilegan hátt.“
I þriðja lagi skora starfsmenn LIN
á forsætisráðherra að láta rannsaka
hvort samþykkt meirihluta stjómar
LÍN sé ekki þess eðlis að full ástæða
sé til að leysa þann meirihluta þegar
í stað frá stjómarstörfum.
I lok ályktunarinnar árétta starfs-
menn LÍN þá skoðun sína að Sigur-
jón Valdimarsson hafí sinnt starfí
sínu af fullri trúmennsku og heiðar-
leika og að það sé ósk þeirra og
vilji að hann komi til starfa á ný.
Stjórn LÍN boðaði til fundar í
gærmorgun með Hrafni Sigurðssyni
nýsettum framkvæmdastjóra LIN.
Hrafn var boðinn velkominn til
starfa og einnig Reynir Kristinsson
hjá Hagvangi sem ráðinn hefur verið
til að gera úttekt á rekstri sjóðsins.
Stjóm LÍN óskaði eftir að góð
samvinna næðist milli stjómar,
framkvæmdastjóra og annarra
starfsmanna sjóðsins og lýsti sig
tilbúna til að greiða fyrir þeim mál-
um sem tryggt geta að þjónusta
sjóðsins við námsmenn verði eins
góð og kostur er. Eftir stjórnarfund-
inn var haldinn fundur með starfs-
mönnum sjóðsins þar sem skipst var
á skoðunum um brottvikningu Sig-
uijóns Valdimarssonar úr starfí
framkvæmdastjóra.
Morgunblaðið/RAX
D. Bruce Merrifield (yzt til hægri) á fundi með fréttamönnum í gær. Fyrir miðju er Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra, og yzt til vinstri á myndinni er Nicholas Ruwe, sendiherra Bandaríkj-
anna á Islandi.
Nýtæknin skapar áð-
ur óþekkt tækifæri
D. Bruce Merrifield, aðstoðarefiiahagsmála-
ráðherra Bandaríkjanna, heimsækir Island
D. Bruce Merrifield, aðstoðarráðherra i Bandaríkjastjórn, átti í
gær viðræður við íslenzka ráðamenn, sem fóru fram í Reykjavík.
A fundi með fi-éttamönnum síðdegis sagði Merrifield, sem er sér-
fræðingur í nýsköpun í efiiahagsmálum: „Það, sem máli skiptir,
er að gera sér grein iyrir þeim miklu breytingaöflum, sem nú eru
að verki í heiminum og eru sem óðast að gerbreyta honum.“
Nú er um ár síðan Merrifíeld
var skipaður aðstoðarefnahags-
málaráðherra í Bandaríkjastjóm
og hefur nýsköpun í atvinnu- og
efnahagslífi verið sérsvið hans.
Hann hefur m.a. haft það að verk-
efni að auka samstarf milli Banda-
ríkjamanna og annarra þjóða um
allan heim varðandi þróun nýjunga
í atvinnulífí. Mörg lönd hafa sýnt
þessu starfí hans mikinn áhuga,
svo sem Frakkland og nú er hann
á leið til Noregs til þess að gera
stjómvöldum þar grein fyrir hug-
myndum sínum.
Merrifield sat í gærmorgun fund
með forsætisráðherra og utanríkis-
ráðherra íslands og eftir hádegið
ræddi hann við stjóm Þróunarfé-
lags fslands hf. og Verzlunarráðs-
ins. Síðdegis átti hann hringborðs-
viðræður með all íjölmennum hópi
athafnamanna og vísindamanna.
„Tækniþekkingin í heiminum
hefur tvöfaldazt á sl. 30 árum og
það má búast við því, að hún tvö-
faldist á ný á næstu 15 árum. Með
þessu hafa skapazt áður óþekkt
tækifæri fyrir þjóðir heims til þess
að breyta lífí sínu til hins betra,
en skilyrði fyrir því er þó, að þær
hagnýti sér þessa nýju tækniþekk-
ingu í sameiningu,“ sagði Merri-
fíeld.
Þetta yrði bezt gert með stofnun
smárra fyrirtækja og það er ein-
mitt það, sem gerzt hefði í Banda-
ríkjunum. Þar væra nú stofnuð um
600.000 smáfyrirtæki á hveiju ári,
sem skapað hefðu 10 millj. ný störf
þar í landi á síðustu þremur áram.
Bandaríkjamenn hefðu nú
áhuga á að færa þessa starfsemi
út, þannig að aðrar þjóðir gætu
hagnýtt sér hana. Hún gæti vissu-
lega komið Islendingum að gagni,
því að markmið þeirra hlyti að
vera að skapa meiri fjölbreytni í
atvinnu- og efnahagslífí sínu frá
því sem verið hefur, svo að þeir
yrðu ekki eins háðir hagsveiflum
og áður.
*
Bjanii Guðnason formaður dómnefiidar um lektorsstöðu í Hl:
Dómnefiidín mæltí sérstak-
lega með Helgu og Matthíasi
„ÞETTA kom mér mjög á óvart, ég vissi ekki að þetta stæði
til fyrr en nú um áramótin, en starfið leggst ágætlega í mig
þó það sé einhver hávaði í kringum þetta,“ sagði Matthías Viðar
Sæmundsson nýskipaður lektor í íslenskum bókmenntum við
HÍ í samtali við Morgunblaðið í gær. Meðal umsækjenda var
Helga Kress bókmenntafræðingur og dósent í almennri bók-
menntafræði en dómnefnd mælti sérstaklega með henni og
Matthíasi i þessa stöðu en af þeim tveim var þó meir mælt með
Helgu. Þá fékk Helga einnig flest atkvæði á deildaríundi heim-
spekideildar.
Bjarni Guðnason sagði að dóm-
néfndin, en hana skipa auk hans
Njörður P. Njarðvík og Davíð
Erlingsson, hefði mælt sérstak-
lega með Helgu og Matthíasi, og
af þeim tveim hefði hún mælt
með Helgu. Á deildarfundi fékk
Helga flest atkvæði eða 26, þá
Örn Ólafsson sem fékk 7 og í
þriðja sæti var Matthías Viðar
Sæmundsson með fjögur atkvæði.
Páll Skúlason deildarforseti sagði
að það hefði ekki gerst oft áður
að ráðherra fari ekki eftir tillögum
deilda í sambandi við stöðuveit-
ingar.
„Helga skar sig mjög úr, bæði
hvað varðaði mat dómnefndar og
atkvæðagreiðslu deildarfundar,"
sagði Páll.
„Ég kannaði þetta mál mjög
rækilega," sagði Sverrir Her-
mannsson menntamálaráðherra í
samtali við Morgunblaðið, „og
skoðaði mig vel um bekki, þetta
er staða sem er laus til bráða-
birgða, í tæp þijú ár, meðan Vé-
steinn Ólason hefur frí frá störf-
um. Háskólinn nýtur starfskrafta
Helgu Kress, hún er dósent í
almennum bókmenntum, en ég tel
fullkomna ástæðu til að Háskólinn
njóti einnig starfskrafta Matt-
híasar Viðars Sæmundssonar.
Þessi tvö vora greinilega í nokkr-
um sérflokki að mati dómnefndar.
Helga var langhæst í atkvæða-
greiðslunni, en mér er allsendis
ókunnugt um hvað liggur til
grundvallar þegar endilöng heim-
s[>ekideild er að greiða atkvæði
um slíkt og ef ég hefði veitt Helgu
þetta sem vafalaust er alls góðs
makleg, þá hefði þurft að auglýsa
það embætti sem hún er í, enn-
fremur kemur að því að Vésteinn
kemur aftur til starfa. Þetta var
að mínum dómi niðurstaðan í
þessu máli og það kemur mér á
óvart ef þarf að verða eitthvert
upphlaup þess vegna, ég verð að
segja það eins og er.“
Helga Kress sagði í samtali við
blaðið að stöðuveitingin hefði ekki
komið sér á óvart, hún væri í
samræmi við kynjamisrétti hér á
landi og talandi dæmi um vald-
níðslu. Hún sagðist vera tilbúin
til að leggja fram kæra til Jafn-
réttjsráðs vegna þessa.
„Mér sýnist þessi starfsveiting
ekki taka tillit til starfsmenntun-
ar, starfsaldurs eða vjjja heim-
spekideildar," sagði dr. Öm Ólafs-
son. „Þetta er ekki veiting frá
faglegu sjónarmiði heldur geð-
þóttaákvörðun ráðherra. Slíkar
ákvarðanir eru slæmar fyrir and-
legt líf í landinu og engum til
sóma.“
Umsækjendur vora 6 talsins,
þau Helga Kress, Matthías, Sig-
rún Davíðsdóttir og Ásdís Egils-
dóttir eru cand. mag. í íslenskum
bókmenntum en dr. Árni Sigur-
jónsson og dr. Öm Ólafsson eru
bókmenntafræðingar, en dr. Örn
er auk þess cand. mag. í íslenskum
hókmenntum.