Morgunblaðið - 07.01.1986, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 07.01.1986, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1986 7 Davíð Oddsson, borgarstjóri, leikur fyrsta leikinn fyrir Guðlaugn Þorsteinsdóttur. Skákþing Reykjavíkur: Davíð Oddsson lék fyrsta leikinn SKÁKÞING Reykjavíkur hófst á sunnudag. Að þessu sinni taka um 90 skákmenn þátt í mótinu, þar af þijár konur. Davíð Oddsson, borgarstjóri, lék fyrsta leikinn fyrir Guðlaugu Þorsteinsdóttur, fyrrum Norðurlandameistara í skák. Sigrún Andrewsdóttir, ný- kjörinn formaður Taflfélags Reykjavíkur, setti mótið með stuttu ávarpi, en þingið i ár er hið 55. í röðinni. „Skákþing Reykjavíkur skipar veglegan sess í skáklífí landsmanna. í ár vantar að vísu okkar sterkustu skákmenn, en á þinginu tefla ungir skákmenn framtíðarinnar," sagði Sigi-ún í stuttu spjalli við Morgun- blaðið. „Ég hef hug á að efla ungl- ingastarf innan TR. Það hefur verið öflugt og gott að byggja á því starfi. Jafnframt vil ég hvetja konur til meiri þátttöku í skák. Samhliða Sigrún Andrewsdóttir, nýkjörin formaður TR, setti mótið. þessu er mikilvægt, að styðja við bakið á öflugustu skákmönnum TR,“ sagði Sigrún ennfremur. Neytendasamtökin: Mótmæla hækkun á brauði og kökum Neytendasamtökin vekja at- hygli á þeirri ákvörðun sljórnar Landssambands bakarameistara, að skora á félaga sína að hætta framleiðslu svonefndra vísitölu- brauða (þ.e. seydd rúgbrauð, heil- hveitibrauð, franskbrauð, sigti- brauð og maltbrauð). Þessi ákvörðun hefur nú þegar leitt til allt að 70% hækkunar áður- nefndra brauð í sumum bakaríum. Neytendasamtökin beina þeim ein- dregnu tilmælum til Landssambands bakarameistara að láta nú þegar af þessari ákvörðun sinni, enda bitnar þetta harðast á efnalitlum og barn- mörgum fjölskyldum. Jafnframt mótmæla Neytendasamtökin þeirri ákvörðun stjórnvalda að hækka verð á kökum um allt að fjórðung með álagningu vörugjalds. Fréttatilkynning Wterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! mææesmemmmmmuatBaiaummmBmœBSraam ■HHHBnBI 85.40

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.