Morgunblaðið - 07.01.1986, Page 12

Morgunblaðið - 07.01.1986, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986 Geim hjá þeim gömlu Kvikmyndir Árni Þórarinsson Bíóhöllin: Undrasteinninn - Cocoon ☆ ☆ ☆. Bandarísk. Árgerð 1985. Hand- rit: Tom Benedek. Leikstjóri: Ron Howard. Aðalhlutverk: Wilford Brimley, Don Ameche, Hume Cronyn, Brian Dennehy, Steve Guttenberg, Jessica Tandy, Maureen Stapleton, Jack Gilford. Cocoon er fyndin mynd og fal- leg og mettuð þeirri spennu sem á meira skylt við eftirvæntingu en hasai-. I henni er líka gott hjartalag. Það sem þó veldur mestu um hversu vel heppnaða skemmtun Cocoon býður upp á er að hún er mynd sem í fyrsta lagi byggir á góðri grunnhugmynd og í öðru lagi hefur innanborðs leikstjóra, handritshöfund og leik- ara sem vinna vel úr henni. Hugmyndin er ólíkindaleg. En Ron Howard leikstjóri hefur áður leitt ólíkindi inn í bandarískan hversdag og sannfært áhorfand- ann um líkindi þeirra á meðan myndin varði. í Splash gekk haf- Glímt við löngunina í eilíft líf - aldraðar söguhetjur Cocoon, Wilford Brimley, Hume Cronyn og Don Ameche. Ný keiluönn hefst mánudaginn 6. jarníar Veljiö fasta keilutíma á mánudögum til föstu- dagakl. 18 — 20, kl. 20—22 og kl. 22 — 00.30. Athugiö: Að leika keilu meö félögum sínum á föstum tímum er 30% ódýrara. Þeir sem fyrstir bóka fá hentugasta tímann. mey á land í New York og átti ástarævintýri með ungum borgara sem hafði grínaktugar afleiðingar. I Coeoon kemur annað framandi afl inn í bandarískt mannlíf og raskar ró þess. Þetta er geðþekkt fólk utan úr geimnum sem kemur að sækja nokkra meðbræður sína sem skildir voru eftir fyrir þúsund- um ára. Þeir eru í dvaía í orku- miklum hylkjum sem geimbúarnir flytja af hafsbotni yfir í sundlaug við lúxusvillu er þeir taka á leigu. Það sem setur strik í reikning þessara sérkennilegu þjóðflutn- inga er að þrír kátir félgar af elliheimili í grenndinni stelast til að fá sér sundsprett í lauginni og uppgötva að vatnið býr yfir undra- krafti sem eykur þeim lífsþrótt og hleypir æskufjöri í hrörnandi líkama. En um leið og hinir rosknu herramenn telja sig hafa fundið brunn eilífrar æsku stofna þeir lífi geimfólksins í hylkjunum í hættu. Af þeirri togstreitu sem þessi samskipti hafa í för með sér fyrir báða aðila, jarðarbúana rosknu og geimfólkið síunga, segir svo í Cocoon. Ólíkindaleg hugmynd að sönnu. Og hún býður heim væmni banda- rískra fjölskyldumynda jafnt sem ósmekklegum tæknifimleikum vísindaskáldskapar. En þessar gildrur forðast Howard eins og heitan eldinn en nýtir sér þess í stað húmorinn í handritinu og umfram allt hæfileika leikhópsins, þar sem hinir öldruðu öndvegis- leikarar Ameche, Brimley og Cronyn eru í fremstu víglínu. Erlendur gagnrýnandi hefur nefnt Cocoon að gamni sínu „Close Encounters On Golden Pond“ með skírskotun til ástarsambands stjörnukerfanna í mynd Spiel- bergs og saoðun á ellinni og brúun kynslóðabilsins í On Golden Pond. Þetta er óvitlaus samlíking. En Cocoon stendur alveg fyrir sínu, ein og óstudd af öðrum myndum. Hún er afþreying eins og hún getur best orðið. =MW>BORG=* Lækjargata 2 (Nýja Bíó-húainu) 5. hæö. S: 25590 - 21682 - 25398 Ath.: Opið virka daga frá kl. 10-19. Opið sunnudaga frá kl. 13-17. 2ja herd. Eyjabakkí. Mjög stór og falleg ib. Skipti mögul. á minni eign í Hraunbæ. V. 1750-1800 þús. Hamraborg. Góð lán áhvílandi. V. 1.700 þ. Grettísgata. V. 2,2 m. Blikahólar. 110 fm m. bílsk. V. 2,6 m. Kaldasel. 120 fm. V. 2,6 m. Fjörugrandí. 120 fm. Ný íb. m. bílskýli. V- 3,2 m.________ Stærri eignir Kórsnesbraut. 140 fm + bílsk. Skipti mögul. á minni eign. V. 3,4-3,5 m. Skipholt. 147 fm + stór bílsk. Glæsíl. eign. Laus strax. V. 4,4 m. Sérhæð Seltjn. 160 fm meö bílsk. Stórkostl. útsýni. V. 4,3 m. I byggingu ruml. Fiskakvísl. 220 fm raöh. fokhelt. Verð: tilboö. Rauðás. 280 fm raöhús + bílsk. Skilast fokhelt. V. 2,1 m. Annaö Myndbandaleiga á mjög góö- um staö í Breiðholti. Góö mán' aöarvelta. Ca. 1000 titlar. V. 1600 þús. Góö greiöslukjör. Vantar Sérhæð í Kóp. V. ca. 3,5-3,8 m. Einnig vantar lítið iðnfyrirtæki. Sverrir Hermannsson hs. 14632 Einar Pálmarson Brynjólfur Eyvindsson hdl. Guöni Haraldsson hdl. Lili Palmer og Michael Caine sem Holcroft-mæðginin í Blóðpeningum þess heillum horfna snillings Johns Frankenheimer. PENINGASPn, Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Regnboginn: Blóðpeningar - The Holcroft Covenant.^ Leikstjóri John Frankenheimer. Handrit George Axelrod, Edward Anhalt, John Hopkins. Kvik- myndataka Gerry Fisher. Tónlist Stanislas, Framleiðendur Edie og Ely Landau. Aðathlutverk Mic- hael Caine, Anthony Andrews, Victoria Tennant, Michael Lons- dale, Lili Palmer. Thorn-EMI 1985.112 inín. Sú staðreynd hefur ugglaust vald- ið mörgum kvikmyndaframleiðand- anum sálarkvölum að hinar heims- frægu metsölubækur Roberts Lud- lum eru illsnúanlegar á myndmál. Svo fullar eru þessar skemmtilegu spennusögur af ómissandi smáatrið- um, litríkum aukapersónum og nost- urslegum lýsingum á hugarástandi söguhetjanna. En erfiðasti hjallinn er hið undantekningarlausa víðfeðmi og margsnúningur söguþráðarins og langsóttar fléttur ævintýrabóka hans. The Holcroft Covenant er engin undantekning, enda myndin mislukkuð. I sem stystu máli fjallar Blóð- peningar um óvenju illkvittnislega hefndaráætlun þýsks hershöfðingja í garð sonar síns og eiginkonu, sem flúið hafa hann og þriðja ríkið. Karlinn skipuleggur ráðabruggið undir hrunadansi Berlínar en hin lævíslega hefnd á ekki að koma fram fyrr en fjörutíu árum síðar. Uppl. í sömu símum utan skrifstofutíma. 30 ára reynsla tryggir örugga þjónustu. 2ja herb. íbúðir Viö Maríubakka, Snorrabraut, Kleifar- sel, Nýbýlaveg (m. bílsk.), Álfaskeiö (ásamt bílsk.plötu). Kaplaskjólsv. — 3ja herb. 3ja herb. rúmgóö og falleg íb. á 1. hæö. Ákveöin sala. Flyðrugrandi — 3ja herb. 3ja herb. mjög falleg og vönduö íb. á 3. hæö. Mávahlíö — 3ja-4ra herb. 3ja-4ra herb. nýstandsett, falleg risíb. Ákveöin sala. Kambsvegur — sérhæö 5 herb. falleg íb. á 1. hasö í tvíb.húsi. Nýleg eldhúsinnr. Þvottaherb. í íb. Sér- hiti, sérinng., sérgaröur. Góöur bílskúr. Skipti möguleg á stærri íb. sem mætti vera bílskúrslaus. Laugalækur — raðhús Glæsil. 7 herb., 205 fm raöhús, kjallari og 2 hæöir ásamt rúmgóöum bílsk. Laust strax. Einbýlishús — Kóp. 280 fm glæsil. einb.hús á 2 hæöum, aö mestu fullgert, viö Grænatún. 45 fm innb. bflsk. fytgir. Skipti mögul. á minni eign. Þá er syni hans (Caine) tilkynnt að hann eigi að hafa yfirumsjón með 4 V2 milljarðs dala sjóði, sem faðir hans hafði komið undan á stríðsár- unum til ræktunar betri veröld. Minna mátti það ekki vera. Líkt og karl grunaði fær Caine ekki um frjálst höfuð strokið eftir að þessar eftirhreytur stríðsins koma uppá yfirborðið. En þáttur Caines er að- eins hluti áætlunar um ný heims- yfirráð. Leikurinn berst víða og margir eru kallaðir . . . Höfuðgallar myndarinnar felast í illa skrifuðu, óhemju langorðu og sundurlausu handriti, enda höfundar þess þrír. Slíkur fjöldi er ábending um ill-útstrikanleg vandamál. Reynt hefur verið að hressa uppá söguþráð- inn með hæpinni næringu líkt og blóðskömm, jafnframt hefur hann verið styttur - óhjákvæmilega - á kostnað heilsteypni verksins. Samt er hún alltof löng. Blóðpeningar er hins vegar gott efni í „mini-seríu“ fyrir sjónvarp og myndbandamark- aðinn. Það er ekki eftirsóknarvert að taka að sér hlutverk Holcrofts, vera burðarásinn í klúðrinu. Enda hafði sá ágæti leikari James Caan gefið það uppá bátinn eftir viku upptökur. I skarðið hljóp Michael Caine en það hefur margsýnt sig að þessi ágæti leikari (þegar svo ber undir, allar götur frá Alfie til Educating Rita) tekur við öllu sem að honum er rétt - ef launin eru freistandi. Leikur hans er ömuriegur, sem og annarra leikara í myndinni. Blópeningar eru frá upphafi til enda eitt glappaskot sem má skrifa á reikning handritshöfundanna, framleiðandans, sem mátti sjá í hendi sér að efnið yrði aldrei fram- bærileg kvikmynd, en þó fyrst og fremst leikstjórans, Johns Franken- heimer. Þessi forðum mikilsvirti leik- stjóri virðist því miður útbrunninn. í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBlRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.