Morgunblaðið - 07.01.1986, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986
Kína:
48 manns fórust
er stífla brast
Hong Kong, 6. janúar. AP.
48 verkamenn fórust í síðasta
mánuði, þegar stífla brast í Suð-
ur-Kína, svo að mikið aur- og-
vatnsflóð hlaust af, að þvi er
dagblaðið Wen Wei Po í Hong
Kong greindi frá í dag.
Blaðið sagði, að 55 verkamenn
hefðu unnið að skurðgrefti, er stífl-
an, sem var í byggingu í Guangxi-
héraði, brast hinn 24. desember sl.
Að sögn blaðsins var sjö mann-
anna bjargað, en alls voru það um
7000 rúmmetrar af vatni og leðju,
sem runnu fram.
Sl. laugardag höfðu 46 lík verið
grafin úr eðjunni og var þá tveggja
manna enn saknað. Þeir eru báðir
taldir af.
Norðmenn og Fær-
eyingar semja um
fískveiðiréttindi
NORÐMENN og Færeyingar hafa
gert með sér samkomulag um
gagnkvæm fiskveiðiréttindi.
Samkomulagið felur í sér, að
Norðmenn fá að veiða um 65.000
tonn af kolmunna í færeyskri fisk-
veiðilögsögu á árinu 1986, auk
þess sem þeir mega veiða 7000
tonn af makríl og 6000 tonn af
botnfiski. I staðinn £á Færeyingar
að veiða 3000 tonn af þorski, 7000
tonn af makríl og allt að 5000
tonn af kolmunna í norskri fisk-
veiðilögsögu.
Samninganefndir landanna hafa
komið sér saman um að skiptast á
listum yfir þau veiðiskip, sem taka
munu þátt í þessum veiðum.
Fyrsta myndin af nýjum sovéskum kafbáti
Talið er að þetta sé fyrsta myndin, sem tekin hefur verið af nýja Delta IY-kafbátnum, sovéska, sem
sérsmíðaður er til að flytja og skjóta stýriflaugum, og birt hefur verið á Vesturlöndum.
Myndin birtist í tímaritinu Jane’s Defence Weekly fyrri hluta desembermánaðar. Hver Delta IV-
kafbátur er vopnaður sextán stýriflaugum, sem skjóta má á skotmark í allt að 7.240 km fjarlægð.
Flaugarnar eru geymdar í kryppu bátsins.
3JA MÁNAÐA
NÁMSKEIÐ
í JAZZBALLETT,
MODERNJAZZJEYGJU
0G ÞREKÆFINGUM
HEFJAST
MIÐVIKUDAGINN
15. JANÚAR
Síðast komust færri að en vildu.
Námskeiðin eru fyrir framhaldsnema
jafnt sem byrjendur frá 7 ára aldri.
Innritun hefst þriðjudaginn 7. jan.
milli kl. 13 og 17. Afhending
skírteina verður laugardaginn
11. janúar frá kl. 13-17. 2 tímar í
viku í 3 mánuði kosta kr. 4.500.
Þeir nemendur sem ætla að taka góð
og áhyggjulaus spor í vetur verða
að vera búnir að ganga frá
skírteinunum eigi síðar en
15. janúar næstkomandi.
Visa Eurocard.
V '
SÓLEY JAR '%
Sigtúni 9, sími 687701.
Kólombía:
Auknar hræringar
í Nevado del Ruiz
valda vatnagangi
Bogota, Kólumbíu, 6.janúar. AP.
HRÆRINGAR jukust i eldfjallimi
Nevado del Ruiz á sunnudag og
flutu stór ísflykki niður ámar i
Armero-dalnum. Stjórnvöld
ákváðu þá að framlengja ráðstaf-
anir vegna neyðarástandsins á
svæðinu.
Þúsundir manna, flestir úr hópi
búandfólks, urðu að dveljast á fjöll-
um uppi um helgina og leita skjóls
í hellum þar efra vegna gífurlegs
vatnagangs niðri í dalnum.
Á laugardag skipuðu stjómvöld
íbúunum að yfírgefa heimkynni sín,
eftir að brennisteinsmettaðri ösku
frá eldfjallinu hafði rignt yfir ná-
grennið, í fyrsta sinn frá stórgosinu
13.nóvember.
Á laugardag gaf lögreglan íbúun-
um, um 15.000 manns, merki með
sírenuflautum, útbýtti ábreiðum og
matvælum meðal fólksins og hvatti
það til að halda til fjalla.
Um 70 jarðvísindamenn hafa
fylgst með Nevado del Ruiz, frá
því að hið örlagaríka gos átti sér
stað í nóvember sl.
Brasilía:
Alræmdur glæpa-
maður notar þyrlu
til að flýja fangelsi
Rio de Janeiro, 6. janúar. AP.
LOGREGLAN í Brasilíu leitar nú
eins alræmdasta glæpamanns
landsins, Jose Carlos Dos Reis,
eftir ótrúlegan flótta hans úr
fanganýlendunni Candido Mendes
á eyju 160 km suður af Rio de
Janeiro á gamlársdag.
Reis átti að sitja af sér þijátíu ára
fangelsisdóm fyrir eiturlyfjasölu og
vopnað rán.
Það var klukkan fjögur á þriðjudag
að þyrla flaug yfir veggi heimsóknar-
garðsins í Candido Mendes fanganý-
lendunni og hafði með sér Reis og
konu, sem kominn var til að heim-
sækja hann.
Flóttinn tók aðeins nokkrar mínút-
ur og var ekki hleypt af skoti. „Flótt-
inn var einstaklega vel skipulagður,"
segir Vivaldo Barbosa, dómsmálaráð-
herra Rio de Janeiro-ríkis.
Flugmaður þyrlunnar kom í leitim-
ar á fimmtudag og sagði hann í yfir-
heyrslu að maður nokkur hefði leigt
þyrluna og skömmu eftir flugtak
hefði hann tekið fram skammbyssu
og sagt sér að fljúga til fanganýlend-
unnar. „Maðurinn varaði mig við: Ef
þú opnar munninn þá drep ég þig,
sagði hann, og ég átti ekki annars
kost en að hlýða," sagði flugmaður
þyrlunnar, Marco Gonzales Maia, í
viðtali.
í augum íbúa fátækrahverfanna
norður af Rio er Reis hálfgerður
Hrói Höttur. Þar rak Reis viðamikinn
eiturlyfjahring. Reis lét fyrir fé sitt
reisa skóla í fátækrahverfinu, hann
lét dreifa matvælum ókeypis og lán-
aði fátækum peninga.
íbúar fátækrahverfísins hafa
margoft brotið á bak aftur tilraunir
lögreglu til að hafa hendur í hári
Reis og þegar hann var handtekinn
í febrúar gekk yfir mótmælaalda.