Morgunblaðið - 07.01.1986, Síða 30

Morgunblaðið - 07.01.1986, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986 Leikendur á sviðinu í Bæjarleikhúsinu eftir fnimsýninguna. Vestmannaeyjar: Frábærar undirtektir á ftnmsýningu Oklahoma Leikendur í Oklahoma Vestmannaeyjum, 28. desember. LEIKFÉLAG Vestmannaeyja frumsýndi söngleikinn Oklahoma eftir Rogers og Hammerstein í Bæjarleikhúsinu á annan í jólum við hreint frábærar undirtektir leikhússgesta. Þetta er lang- stærsta verkið sem LV hefúr ráð- ist í að setja á svið en félagið er 75 ára á þessu ári. Þótti því við hæfí að hugsa stórt og fram- kvæma í tilefhi þessara merku tímamóta í sögu félagsins. í sýn- ingarlok á frumsýningunni risu leikhúsgestir úr sætum sínum og hylltu leikhópinn með langvinnu lófaklappi. Sigurður Jónsson for- seti bæjarstjórnar kvaddi sér hljóðs og þakkaði LV fyrir frá- bæra sýningu og bað síðan leik- húsgesti um að hrópa ferfalt húrra fyrir LV. Stemmningin í Bæjarleikhúsinu á þessari frum- sýningu var ólýsanleg. Ekki var laust við að ýmsum þætti í mikið ráðist þegar fréttist um þau áform LV að setja á svið söngleikinn Oklahoma og margir voru vantrúaðir á að félaginu tækist að manna svo umfangsmikla sýningu þar sem mikið reynir á söng og dansa. Hlutverk eru 12 og auk þess koma mikið við sögu söngvarar, dansarar og hljóðfæraleik- arar. Alls um 70 manns standa að þessari sýningu LV á einn eða annan hátt. Langflestir í sýningunni voru þama að stíga sín fyrstu spor á leik- sviði, ungt og hressilegt fólk sem hefur greinilega geislandi ánægju af því sem það er að gera. Leikfélagsfólkið hefur svift á brott öllum hrakspám og sett fram vandaða og velflutta sýningu sem til fulls uppfyllir það sem af henni er ætlast, að veita áhorfendum góða skemmtun kvöldstund í skammdeginu. Leikfélag Vestmannaeyja hefur með þessari uppsetningu á Oklahoma unnið mikinn sigur. Vestmanneyingar og gestkomandi í Eyjum verða ekki fyrir vonbrigðum með heimsókn í Bæjar- leikhúsið. Með hlutverk í sýningunni fara Hávarður Bemharðsson, Hanna Björk Guðjónsdóttir, en hún hljóp í skarðið með skömmum fyrirvara vegna for- falla Elvu Kolbeinsdóttur þijár fyrstu sýningamar, Þráinn Óskarsson, Heiða Björk Scheving, Kolbrún Hálfdánar- dóttir, Ólafur Viðar Birgisson, Ástþór Jónsson, Runólfur Dagbjartsson, Garðar Tryggvason, Svanur Gísli Þorkelsson, Asgeir Karlsson og Berg- lind H. Halldórsdóttir. Leikstjóri er Guðjón Ingi Sigurðsson. Tónlist, söng- ur og dansar spila vissulega stóra rullu í þessu verki og hefur þar sérlega vel til tekist. Ólafur Gaukur útsetti alla tónlistina sérstaklega fyrir þessa sýningu og stjórnaði hljómsveitinni á frumsýningunni. Ingveldur Gyða Kristinsdóttir samdi og æfði dansat- riðin og Guðni Guðmundsson annaðist söng- og hljómsveitaræfingar. Þá er sérstök ástæða að geta um frábæra sviðsmynd sem er verk Jóhanns Jóns- sonar, fmmraun hans í gerð leikmynd- ar. Láms Bjömsson annast lýsingu. Um frammistöðu einstakra leikenda treysti ég mér ekki að fjalla um hér enda (sem betur fer) hæfileikasnauður gagnrýnandi. Sá er þetta festir á blað hefur einfaldan smekk fyrir leikhús- verkum, fer í leikhús til þess að láta aðra skemmta sér. Á sýningu LV á Oklahoma var skemmtunin vel útilát- in. Eg óska Leikfélagi Vestmannaeyja til hamingju með þessa ánægjulegu ogvel heppnuðu sýningu. - hkj. Snjóléttur vetur — en svalt sumar VETURINN 1985 var snjóléttur, lítið um storma og tíðarfar almennt talið gott, að því er fram kemur í yfirliti frá Veðurstofu íslands yfir tíðarfar í landinu á síðasta ári. Þar kemur enn- fremur fram, að þrátt fyrir sólríka sumartíð sunnanlands var hiti undir meðallagi um allt land. Fyrrihluta janúar var hlýindatíð en síðan gerði frostakafla sem stóð fram í febrúarbyrjun en meginhluta ess mánaðar var hiti yfir meðallagi. mars gerði tvo frostakafla. Þann mánuð varð hiti rösklega 1° undir meðallagi, en í febrúar var tæplega einu stigi hlýrra en í meðalári. í janúar var heldur hlýrra en í meðal- ári sunnanlands og vestan en á norð- ur- og austurlandi var hitinn undir meðallagi. Úrkoma var víðast minni en venja er til þessa þrjá mánuði. Vorið var gott þrátt fyrir hvíta- sunnuhret seint í maí. Um miðjan maí var óvenjuhlýtt og komst hiti víða í 15°-20°. Meðalhitinn var um 'A° yfir meðallagi báða mánuðina. Úrkoma var minni en í meðalári sunnanlands og vestan, en á norður- og austurlandi var hún meiri en venja er til. f apríl var heldur sólar- lítið, en í maí var sólríkt sunnanlands og vestan og einnig mældust fleiri sólskinsstundir en venja er til á austurlandi. Júní var fremur sólarlítill um allt land og hiti lítið eitt undir meðallagi. Úrkoma var undir meðallagi nema á nokkrum stöðvum norðanlands. í júlí og ágúst var óþurrkatíð norðanlands og austan, en á suður- og vesturlandi var sólríkt og góð sumartíð. Júlí var kaldur um allt land, rösklega 1° kaldari en í meðal- ári. f ágúst var áfram kalt norðan- lands og austan en suðvestantil á landinu var hlýrra en hiti þó undir meðallagi. Septemberhitinn var síð- an 2°-3° undir meðallagi og úrkoma lítil. Sumarið, júní-september, er hið Selfoss: Útboð í ný- byggingn Fjöl- brautaskólans Selfossi, 6. janúar. I desember sl. var boðið út lím- trésburðarvirki í suðurhlið 1. áfanga nýbyggingar Fjölbrauta- skóla Suðurlands. I dag, 6. janúar, verður boðin út smíði hurða og glugga í allt húsið. Suðurhlið hússins er að mestu úr gleri sem hvílir á burðarbitum úr límtré. í þessum glervegg verður þrefalt gler. í innstu rúðunni verður sérstakt öryggisgler, venjulegt gler í miðjunni og ysta rúðan á að þola meira álag en venjulegt gler. 28. janúar verður lögð fram ná- kvæm framkvæmda- og kostnaðar- áætlun sem miðar að því að flýta framkvæmdum við skólann og að kennsla geti hafist þar á þessu ári í stað næsta árs. sig. Jóns. þurrasta í Reykjavík frá 1958. Alla sumarmánuðina var sólskin undir meðallagi á Akureyri, samtals vant- aði 67 klst. upp á meðaltalið og sól- skinsstundirnar urðu aðeins 440 allt sumarið. f Reykjavík voru sólskins- stundir lítið eitt undir meðallagi í júní, en mánuðina júlí til september samtals 117 umfram meðallag, og hafa þessir 3 mánuðir ekki verið jafnsólríkir í Reykjavík frá 1974. Október var óvenju hlýr, hiti um 2° yfir meðallagi. Á Akureyri hefur ekki orðið jafnhlýtt í október í 20 ár og í Reykjavík í 10 ár. Um miðjan mánuð gerði stórrigningar um vest- an- og norðvestanvert landið. Harð- an frostakafla gerði 1 byrjun nóv- ember og mánuðurinn varð í heild kaldur, hiti 2°-3° undir meðallagi. Um miðjan mánuð gengu stórviðri af suðaustri og suðri yfir landið. Úrkoma var með minna móti. Haust- mánuðina október og nóvember var snjólétt um allt land. Desember hefur verið kaldur en veður stillt og úrkoma undir meðallagi. Árshitinn í Reykjavík verður um 4‘/4° sem er 'Æ° kaldara en á árunum 1931-60 og sem næst sami hiti og var að meðaltali árin 1951-80. Á Ákur- eyri verður árshitinn 3° sem er tæplega 1° minna en á tímabilinu 1931-60 ogum ‘/4° kaldaraen 1951-80. Sólskinsstundir verða rösklega 1400 í Reykjavík eða rúmlega 150 umfram meðallag og er þetta sólríkasta ár þar frá 1979. Frá 1950 hefur sólskin aðeins átta sinnum farið yfir 1400 klst. Á Akureyri verða sólskins- stundir um 980, sem er um 20 klst. meira en árin 1931-60, en hins vegar um 50 klst minna en til jafnaðar á árunum 1951-80. Ársúrkoman verður væntanlega innan við 700 mm í Reykjavík eða um 85% af meðalúrkomu, en mjög nálægt meðalúrkomu á Akureyri sem er 474 mm. Morgunblaðíð/Sigurgeir Bergvin Oddsson útgerðarmaður og skipstjóri á Glófaxa VE hefúr orð fyrir gefendum. Vestmaiinaeyjar; Leggja fram fé til kaupa Fjölbrautaskóli Suðurlands: Lágmarkskostnaður 50 milljónir við að gera nýbyggingnna kennsluhæfa fyrir 1. sept. skólanefnd tekur ákvörðun í málinu 28. jan, Selfossi, 5. janúar. LÖGÐ hefur verið fram fram- kvæmdaáætlun fyrir byggingu Fjölbrautaskóla Suðurlands þar sem miðað er að því að kennsla hefjist í hinu nýja húsnæði 1. . ' september á þessu ári. Uppsteypu 1. áfanga hússins er lokið og gert ráð fyrir að það kosti 70 milljónir að gera það kennsluhæft. Þó er gert ráð fyrir að komast megi af með 50 milljónir með því að fresta framkvæmd nokkurra verka fram yfír l.september. ** Skólanefnd Pjölbrautaskólans samþykkti á fundi 3. janúar að vinna eftir framkvæmdaáætlun bygginga- nefndar hússins til 28. janúar, en þá er gert ráð fyrir að fyrir liggi nákvæm kostnaðar- og fram- kvæmdaáætlun. Einnig eiga þá að liggja fyrir möguleikar á fjármögn- un. Áætlunin sem lögð verður fram 28. janúar á að miða að því að unnt verði að hefja kennslu í húsnæðinu 1. september með sem minnstum kostnaði, er þá gert ráð fyrir að fresta megi framkvæmd nokkurra verkþátta fram yfir 1. september. Má þar nefna frágang lóðar, hluta lausra innréttinga, lyftu, frágang stjómunarálmu, frágang á stigum o.fl. Með því að framkvæma eingöngu það allra brýnasta er gert ráð fyrir að það kosti um 50 milljónir að gera húsið kennsluhæft en frágangur alls hússins er áætlað að kosti 70 milljón- ir. I þeim hluta sem stefnt er að því að ljúka fyrir 1. september eru 12 kennslustofur á annarri og þriðju hæð, anddyri á 1. hæð og stjórnunar og kennaraaðstaða. Framkvæmd áætlunarinnar um að komast inn í skólann hefur verið og verður unnin í nánu samráði við skólameistara og skólastjórn. Framlag til byggingarinnar á fjár- lögum ríkisins 1986 er 10 milljónir. Á móti kemur framlag heimaaðila, um 7 milljónir. Til að brúa bilið svo he§a megi kennslu í húsinu 1. sept- ember á þessu ári eru uppi hug- myndir um lántökur. Á fundi skólanefndar 3. janúar voru þrír menn kosnir í nefnd til að leita leiða um fjármögnun. Þeir eru bæjarstjórinn á Selfossi, sýslumaður Árnessýslu og fjármálastjóri skól- ans. Þeir eiga að skila niðurstöðum á fundi skólanefndar 28. janúar og þá verður tekin endanleg ákvörðun um framgang byggingarinnar, hvort unnt verður að hefj'a kennslu í húsinu á þessu ári eða því næsta. í skólanum eru um 400 nemendur og kennsla fer nú fram á sex stöðum í kaup- staðnum. Síg.jóns. á nætursjónauka Vestmannaeyjum, 3. janúar. NOKKRIR útgerðarmenn í Vest- mannaeyjum brugðust skjótt við eftir að frétt hafði birst í sjónvarpinu á næstsíðasta degi liðins árs um mjög fúllkominn sjónauka til notkunar í myrkri sem slysavarnameun í Reykja- vík höfðu eignast. Vöktu notkunar- möguleikar þessa kostagrips mikla athygli hér sem eflaust víðar og eftir að þetta hafði borist í tal útgerðar- manna Glófaxa VE., Gandí VE. og Valdimars Sveinssonar VE. ákváðu útgerðarmenn þessara báta að leggja frani stofnframlag til kaupa á slikum nætursjónauka fyrir Björgunarfclag Vestmannaeyja. Útgerðarmennimir afhentu framlag sitt í Básum á gamlársdag og þá um leið bættust útgerðarmenn Vestmannaeyjar VE., Smáeyjar VE. og Bergeyjar VE. í hópinn. Opnuð hefur verið bankabók í Útvegsbankanum og er vænst frekari framlaga því gripurinn er dýr, kostar um 300 þús. kr. Sjómenn og útgerðarmenn í Eyjum hafa ávallt verið vakandi og velviljaðir þegar slysavama- og björgun- armál eru annarsvegar og því ekki að efa að vel verður tekið undir þetta góða framtak áðurnefndra útgerðarmanna. - hkj.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.