Morgunblaðið - 07.01.1986, Side 34

Morgunblaðið - 07.01.1986, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR1986 AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMAÐIL INNLAUSNARVERÐ* 10.000 GKR. SKÍRTEINI 1972-1. fl. 25.01.86 kr. 24.360,86 1973-2. fl. 25.01.86-25.01.87 kr. 13.498,99 1975-1. fl. 10.01.86-10.01.87 kr. 7.006,46 1975-2. fl. 25.01.86-25.01.87 kr. 5.288,55 1976-1. fl. 10.03.86-10.03.87 kr. 5.037,69 1976-2. fl. 25.01.86-25.01.87 kr. 3.935,91 1977-1. fl. 25.03.86-25.03.87 kr. 3.673,52 1978-1 fl. 25.03.86-25.03.87 kr. 2.490,85 1979-1. fl. 25.02.86-25.02.87 kr. 1.646,98 FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1981 -1. fl. 25.01.86-25.01.87 kr. 717,78 ‘Innlausnarverö er höfuöstóll, vextir, vaxtavextir og veröbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóös ferfram í afgreiöslu Seðlabanka (slands, Hafnarstræti 10, og liggja þarjafnframtframmi nánari upplýsingar um skírteinin. Athygli skal vakin á lokagjalddaga 1. flokks 1972, sem er25. janúarn.k. Reykjavík, janúar 1986 SEÐLABANKIÍSLANDS ’i EINARSNESl 4 101 REYiqMK SlMl:M136 ER OÐRUVLSI Minnisbók Bókrúnar er ööruvísi en hinar full af skemmtilegum og fræöandi upplýsingum um konur Og kvunnuhuriiim Hljómplata Ólafs frá Mosfelli eftirHörð A rinbjarnarson Ég undirritaður er ekki í hópi atvinnugagnrýnenda á tónlist, en þeir sem til mín þekkja vita vel hver smekkur minn og mat er á tónlist og túlkun hennar. Því sé ég ástæðu að láta þessar línur frá mér fara. Mér barst í hendur hljómplata Ólafs Magnússonar frá Mosfelli með und- irleik Jónasar Ingimundarsonar. Við miðaldra og eldri Reykvíkingar þekkjum Ólaf af hans kærleiksstarfi við Heilsuverndarstöðina í Reykja- vík, og söngvagleði áhugamannsins. Mér er ókunnugt um námsferil Ólafs í söng. Ólafur hefur alltaf verið skoðaður sem „amatör" söngvari af hinum. Við útkomu þessarar hljóm- plötu hefur hins vegar komið í ljós hve óspilltur hreinn og þéttur „ama- törinn" getur verið. Ljóðasöngur er talinn erfiðasta braut atvinnusöng- mannsins, hvað snertir nám, tækni og þroska. Nægir þar að nefna þau ljón ljóðasöngsins, Dieskau, Souzay og Hans Hotter. Sá síðastnefndi söng fram á efri ár, og þótti ávallt bæta sig, þó röddin eltist. Ólafur sýnir á þessari plötu hve vel er hægt að varðveita þrótt radd- arinnar, en ekki hvað síst hve and- legur þroski vex óspilltur fram á efri ár. Án efa stæðist þessi útgáfa ekki samanburð faglegustu atvinnu- manna í tækni, en listrænt kærleiks- skyn er með því besta sem ég hef í langan tíma heyrt. Með þessari útgáfu hefur íslensk- ur ljóðasöngur þessarar aldar eign- ast dýran minnisVarða. Höfundur er kaupmaður. Morgunbladið/óiarur K. Magnússon. Myndin var tekin á blaðamannafiindi er haldinn var til kynningar á starfi samtakanna Educational Experience Europe. Þátttakendur í íslandsförinni eru klæddir hvítum bolum en í efri röð fyrir miðju standa Pétur Kjartansson frá Fiskafurðum hf. — útflutningsfyrirtæki sem skiptir mikið við LUbbert, Peter-Carlo Lehrell leiðangursstjóri og Helga Guðrún Jónasdóttir fulltrúi samtakanna á íslandi. Ungir Evrópu- búar á Islandi - Þýska fisksölufyrirtækið Lubert kostaði ferðina TUTTUGU manna hópur ungs fólks kom hingað til lands 27. desember sl. á vegum samtaka er kalla sig Educational Experience Europe (Námsreynsla Evrópa), og er ferð þeirra hingað kostuð af fisksölufyrir- tækinu LUbbert, sem aðsetur hefúr og er íslendingum vel kunnugt. Þetta eru fulltrúar hinna ýmsu Evrópulanda sem dvelja munu hér til 20. janúar. Hópnum er skipt í smærri einingar og hefur hver um sig það verkefni að gera úttekt á tilteknu sviði íslensks menningar- og þjóðlífs. Leiðangursstjóri er 21 árs gamall Þjóðvetji, Peter-Carlo Lehrell, en formaður samtakanna og sérstakur leiðbeinandi leiðang- ursins er Peter Willey, sem er gamalreyndur breskur könnuður, fomleifa- og sagnfræðingur. Sam- tökin hófu starfsemi sína árið 1983 og er þessi leiðangur til íslands annar leiðangurinn sem þau skipu- leggja. í byijun október sl. hélt 50 manna hópur, þar á meðal ein íslensk stúlka, Guðrún Högnadóttir, til Afríku og mun dvelja þar í sex mánuði við hin ýmsu störf. Afríku- leiðangur starfar samhliða Rauða krossinum, World Wildlife Fund, UNICEF og öðram samtökum, sem hafa látið til sín taka í Afríku. Hugmyndin að baki honum er þó fyrst og fremst að samvinna að ýmsum menningar- og mannúðar- málum stofni til kynna ungra Afr- íku- og Evrópubúa. Aðalstöðvar samtakanna eru í Þýskalandi en skrifstofur eru reknar á vegum þeirra víðs vegar, m.a. í Bretlandi, Frakklandi og írlandi. Þetta eru samtök ungra Evrópubúa á aldrinum 18 til 25 ára og er markmið þeirra að vekja ungt fólk til vitundar um tilvist hins evrópska samfélags, uppræta fordóma, efla samvinnu fólks af ólíku þjóðerni og treysta vináttubönd landa á milli, að sögn Helgu Guðrúnar Jónasdótt- ur, fulltrúa samtakanna hér á landi. Hún sagði að ef leiðangurinn til íslands heppnaðist vel, væri ætlunin í Bremerhaven í Vestur-Þýskalandi að hann verði árlegur viðburður hér. Nú er verið að skipuleggja leiðangra til Pakistans og Japans og geta allir þeir sem eru innan aldursmarkanna sótt um. Samtökin vinna meðal annars að því að koma á laggimar menningar- og málvísindaskóla í írska lýðveld- inu. Þau skipuleggja ungmenna- skipti og leiðangra ungra Evr- ópubúa, standa fyrir fyrirlestrum sem sérfróðir menn flytja. Samtökin eru rekin án gróðasjónarmiða og án tengsla við aðrar hreyfingar. Þau fjármagna starfsemi sína eingöngu með ftjálsum framlögum einstakl- inga og fyrirtækja, stuðningi ríkis- og menntastofnana og þeirra ann- arra sem vilja leggja málstaðnum lið. Lehrell sagði í samtali við blaða- menn að allar úttektir og niðurstöður hópsins hér á landi sem annars staðar yrðu gefnar út og hagnýttar við kennslu og hvaðeina það sem Íiarfnast afmarkaðra upplýsinga um sland. Ennfremur verður gerð heim- ildamynd um leiðangrana báða til sýningar í sjónvarpinu. Hann sagði jafnframt að ýmsir íslenskir aðilar og fyrirtæki hefðu veitt margvíslega aðstoð, sem væri ómetanleg. Fisksölufyrirtækið Lúbbert, sem kostaði ferð ungmennanna hingað til lands, hefur haft mikil samskipti við Islendinga og er eitt helsta fyrir- tæki sem selur íslenskan togarafisk í Þýskalandi. Fyrirtækið hefur 45 manns í þjónustu sinni og er með yfír 1700 milljónir íslenskra króna í ársveltu og hefur verið meira en 60 ár í fiskviðskiptum. Því til við- bótar annast Lúbbert umboðssölu á alls kyns vélum og aðföngum til þýska fiskiðnaðarins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.