Morgunblaðið - 28.01.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.01.1986, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR1986 + Ríkisrekstur er hjákát- legnr í nútímaþjóðfélagi eftir Steingrím Sigurgeirsson Hvers vegna á ríkið að reka fyrir- tæki, stundum í beinni samkeppni við einkaaðila? Spumingin á fylli- lega rétt á sér þar sem ríkisfyrir- tæki eru sett upp fyrir almannafé og oft á tíðum á pólitískum forsend- um. Afskipti ríkisins af efnahagslíf- inu er nær undantekningarlaust af pólitískum toga spunnin, verið er að koma til móts við kröfur þiýsti- hópa oft undir yfirskyni svokallaðr- ar byggðastefnu. Hrein fjárfesting- armistök eru því miður alltof algeng og ríkisfyrirtæki því oftar en önnur í íjárhagskröggum. En ólíkt einka- fyrirtækjum er ekki bera sig geta ríkisfyrirtæki ávallt leitað undir fald stóra bróður sem hleypur undir bagga með þeim. Með þessar stað- reyndir í huga hljóma röksemdir á borð við þær að „ríkið eigi nú líka að fá að hagnast á fyrirtækja- rekstri" hjákátlega. Skattgreiðend- ur bera ekkert annað úr býtum á rekstri ríkisfyrirtækja en hærri skatta. Samkeppni ríkisins við einkarekstur Ekki er heldur hægt að líta fram hjá þeirri meinsemd í efnahagslífinu sem ríkisfyrirtæki í beinni sam- keppni við einkaaðila eru. Það hlýt- ur að vera mjög óæskilegt ef við viljum samkeppni í raun að allir aðilar lúti ekki sömu lögmálum annarra fyrirtælq'a, þurfí að haga rekstri sínum á þann hátt að það beri sig án utanaðkomandi hjálpar. Dæmi um fyrirtæki er falla undir þetta eru aðilar eins og Ferðaskrif- stofa ríkisins, LyQaverslun ríkisins, Umferðarmiðstöðin, Söludeild Pósts og Sfma, Lyfjabúð Háskólans, Rfk- isprentsmiðjan Gutenberg og Jarð- boranir Rfkisins. Það hlýtur að telj- ast æskilegt að eðlileg viðskipta- sjónarmið ráði rekstri þessara fyrir- tækja og að mínu mati eru ekki neinar sjáaniegar ástæður fyrir því að ríkið skuli hafa rekstur þeirra með höndum. Þjónustu þá sem rík- isfyrirtæki þessi veita er þegar að finna í einkarekstrinum og því ekkert eðlilegra en að þau verði færð þangað ef þau á annað borð standast samkeppni. Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli, mötuneyti og þvottahús ríkisstofnana eru góð dæmi um stofnanir er æskilegt væri að bjóða út reksturinn á. Þar gildir einnig að eðlileg viðskipta- sjónarmið eiga að ráða og væri það báðum aðilum, skattgreiðendum og atvinnulífínu, til góðs. Óeðlileg fyrirgreiðsla Stærstu fyrirtækin á vegum rík- isins eru ríkisverksmiðjumar tvær, Sementsverksmiðj a ríkisins og Áburðarverksmiðjan. Verksmiðjum þessum var komið upp á þeim for- sendum að framleiðsla þeirra væri æskileg útfrá þjóðhagslegu sjónar- miði en sökum stærðar þeirra væri það ófært einstaklingum að koma þeim á stofn. Verksmiðjur þessar hafa notið margvíslegrar fyrir- greiðslu af hálfu ríkisins, s.s. óhóf- lega lágs orkuverðs og vemd gegn innflutningi. Áðumefnd rök geta ekki talist eiga við lengur. Meðal bænda hefur t.d. orðið vart vaxandi gagnrýni á óhóflega háu áburðar- verði. Það hlýtur því að teljast æskilegt að verksmiðjur þessar verði gerðar að hlutafélögum sam- hliða því sem viðskipti þessi verði opnuð sem mest. Það er út í hött að halda því fram að það sé „þjóð- hagslega æskilegt" að íslendingar standi að framleiðslu sem er langt fyrir ofan heimsmarkaðsverð. Við eigum að einbeita okkur að fram- leiðslu er staðist getur samkeppni, þegar framleiðslan er orðin dýrari Steingrímur Sigurgeirsson „Það er frumskilyrði þess að lifvænlegt verði hér á landi eftir nokkur ár að horfið verði frá núverandi hentistefnu í fjárfesting-ar- og pen- ingamálum. Ekki er lengur hægt að halda uppi óhófseyðslu at- kvæðasafnara á þingi með erlendum lántök- um er næstu kynslóðir þurfa að greiða.“ í framleiðslu en innkaupum, þ.e. við emm farin að greiða méð henni, hlýtur eitthvað vera að. Oftast er það einfaldlega það að einstakar atvinnugreinar hafi hlotið óeðlilega vemd, af ríkinu, og þar með ekki þurft að lúta lögmálum markaðar- ins eins og æskilegt væri. Það er því nauðsynlegt, ef við viljum heil- brigt efnahagslíf, hagvöxt og batn- andi lífskjör í framtíðinni að við reynum <ið gera atvinnulífið sem óháðast ríkisvaldinu, bæði með því að selja ríkisfyrirtæki og með því að afnema óeðlilega vemd ríkisins til að halda einstökum atvinnu- greinum, s.s. innflutningshöft, toll- múra og niðurgreiðslur. Lögbundin einokunar starfsemi Annar þáttur er sá er snýr að þeim greinum er ríkið hefur lög- bundna einokunaraðstöðu og má í því tilliti nefna póstútburð, rekstur símakerfis og til skamms tíma einn- ig útvarps og sjónvarpsQölmiðlun- ar. Ég get ekki séð að brýn nauðsyn sé til þess að með lögum sé fólki bannað svo mikið sem spreyta sig á þessum sviðum. Oft er því slegið fram að einkaaðilar ráði ekki við rekstur af þessu tagi sökum um- fangs hans og kostnaðar, einnig að með því að aðrir en ríkið spreyti á þessu sviði muni sú þjónusta er við hljótum verða verri. Verið getur að rekstur t.d. sima- kefis sé einstaklingum ofviða en hvemig getum við fullyrt það án nokkurrar reynslu af þvf. Síma- tækninni fleygir fram og gerir rekstur símakerfis bæði einfaldari og ódýrari. Nauðsynlegt er að bæði opna dymar fyrir öðmm og í þeim tilvikum þar sem ekki er hægt að koma á samkeppni, stofna almenn- ingshlutafélög um reksturinn. Gerspillt bankakerf i Bankakerfið er nauðsynlegt að kryfja til mergjar. Við sáum það nú síðast f Hafskipsmálinu að ríkis- bankamir em reknir útfrá öðm en viðskiptasjónarmiðum. Þetta er einfaldlega hlutur sem við verðum hvert og eitt að gera upp við okkur. Viljum við bankakerfi þar sem sparifé er varið til arðbærra hluta? Þar sem þau fyrirtæki, sem lánað er, verða að geta sýnt fram á að fjárfestingar þær sem em að leggja út í séu líklegar til að verða til góðs og fá þá samfara því uppbyggingu blómstrandi atvinnulífs. Eða viljum við bankakerfí þar sem pólitíkusar láta takmarkað lánsfjármagnið streyma til gæðinga sinna án nokk- urs tillits til þess hvað æskilegt gæti talist út frá efnahagslegu sjón- armiði. Við hljótum að krefjast þess að ríkisbönkunum verði breytt í hlutafélög og þeir síðan seldir samhliða kmfningi á bankalögun- um þar sem leitast verði við að gera sjálfstæði bankanna frá ríki og Seðlabanka sem mest. Hvergi í þeim löndum sem við bemm okkur hvað oftast saman við em afskipti ríkisins af bankastarfsemi jafn umfangsmikil og hér. Ríki og sveitafélög Verkaskipting ríkis og sveitarfé- laga er seinasta atriðið er drepið verður á í þessari grein. Yfirfærsla verkefna og ákvarðanatöku frá ríki til sveitarfélaga er valddreifing í reynd. Eftir því sem við fæmm yfirráð yfir þjónustunni til þeirra er hennar njóta í ríkara mæli, t.d. f sambandi við rafmagnsnotkun. Við teljum æskilegt að Rafmagn- sveitur ríkisins verði færðar í hend- ur þeirra er þjónustu veitanna njóta. Þannig em meiri líkur á því að eftirspum eftir rafmagni og fram- kvæmdum taki meiri mið af kostn- aði en verið hefur. Það er fmmskilyrði þess að líf- vænlegt verði hér á landi eftir nokkur ár að horfið verði frá núver- andi hentistefnu í fjárfestingar- og peningamálum. Ekki er lengur hægt að halda uppi óhófseyðslu atkvæðasafnara á þingi með erlend- um lántökum er næstu kynslóðir þurfa að greiða. Nauðsynlegt er að leita nýrra leiða til lausnar vandan- Höfundur aitur í starfshóp á veg- um Heimdnllar um nýjar leiðir i þjóðmálum. Hugleiðingar um kj ötinn- fhitning vamarliðsins eftir Ólaf Jónsson Fyrir skömmu kváðu þrír lögfræð- ingar, tilkvaddir af forsætisráð- herra, upp þann úrskurð að vamar- samningurinn milli fslands og Bandaríkjanna frá árinu 1951 hefði lagagildi hér á landi og væri inn- flutningur á hrámeti til vamarliðs- ins því löglegur. Forsaga þessa máls er alþjóð kunn og hygg ég að fæstum hafi komið niðurstaðan á óvart. Enginn efast heldur um ágæti þessara lögfræðinga þó svo að ýjað hafi verið að því að úti í bæ finnist jafnokar þeirra í lögum sem komist hafi að annarri niður- stöðu. Sá tími er liðinn á íslandi að mönnum séu lesin lög árlega og hefur því tapast nokkuð kunnátta íslendinga í þeim fræðum. Enda kannski vonlegt þar sem geðþótta ákvarðanir virðast oftlega ráða því hvort dómsmálayfirvöld hreyfi mál- um litla mannsins nema hann eigi sér stærri menn að. En nú átti hann ekki í útistöðum við kerfið í þessu tilviki enda málum hraðað sem mest mátti verða. Ég sem elska friðinn og tel honum helst borgið með varanlegu vamarsamstarfí við vestrænar þjóðir hrökk óneitanlega við. Ekki síst þegar Geir Hallgríms- son, sem allajafna vill ekki hafa hátt um málefni vamarliðsins tók upp vamir fyrir allt og alla I þessu máli og lýsti sig sekan. Þá fyrst tapaði ég öllum áttum. En þegar í villur rekur skal setjast að og bíða þess að birti. Ég er starfandi dýralæknir og er mér skylt samkvæmt lögum að vinna að bættu heilsufari búpenings í landinu og vera á verði gegn því að einstaklingar eða þjóðin I heild bíði tjón af völdum búfjársjúkdóma. Til mikils er ætlast. En við íslenskir dýralæknar njótum þess sem og þjóðin öll að Island er eyja í miðju Atlantshafi, vel varin frá náttúr- unnar hendi gegn bráðum smitsjúk- dómum f búfé. Þó höfum við orðið fyrir þungum búsifjum af völdum innflutnings á búfé og er óþarft að rekja þá sögu hér. Eins emm við blessunarlega laus við slíka vágesti sem hundaæði, sem sækir jafnt á menn sem skepnur, kvalarfullur og ólæknandi sjúkdómur. Við þurfum þó ekki lengra en til Danmerkur til að komast í návígi við hundaæði. Við þurfum heldur ekki lengra en til Danmerkur til þess að kynnast áhrífum gin- og klaufaveiki, en hún herjaði þar síðast árið 1982 eins og flestum er eflaust f fersku minni. Sama ár út ekki skrifaðist ég frá Dýralæknaháskólanum í Osló og gat séð í raun áhrif þessarar veiki á allt þjóðlíf í Danmörku. Þar mátti sjá áhrif veðurs og vinda á út- Ólafur Jónsson „Þaö er ekki heldur til að létta störf þeirra né til að auka virðingu almennings fyrir þess- um lögum að leyfður skuli innflutningur á hrámeti til varnarliðs- ins.“ breiðslu veikinnar, einangrun sveitabýla og bændafiölskyldur sem komust hvergi og þurftu að horfa upp á skepnumar sínar skotnar niður, eina af annarri, í fiöldagrafir. Kúna Skjöldu, hestinn Blesa og hundinn Tiygg. Til þess að bæta gráu ofan á svart snem helstu viðskipta- og vinaþjóðir Dana við þeim bakinu á þessum tfma. Banda- ríkin sögðu nei takk við dönsku svínakjöti sem og Bretar og Japan- ir. Norðurlöndin fóm eins að og gott betur; nú vom danskir bændur ekki lengur velkomnir í norsk eða sænsk fjós þótt þeir hafi kennt Norðmönnum og Svfum að búa. Á íslandi var danskt kom ekki lengur nauðsynlegt. Elsta og helsta út- flutningsgrein Dana var á heljar- þröm og gömul bræðra- og vamar- bönd stoðuðu lítið. Það er því ekki að ófyrirsynju að sett vom lög á íslandi til vamar gin- og klaufaveiki árið 1928. Þá þegar var mönnum kunnugt um ógnir hennar. Þessum lögum fylgir síðan ýtarleg reglugerð sem gefur heimild til þess að hneppa menn f stofufangelsi með því að einangra sveitabýli, loka vegum, banna samkomur og fundi og skerða ferðafrelsi Qölda manns, ef vakna skyldu gmnsemdir dýralæknis um gin- og klaufaveiki. Sfðan leyfa menn sér að ásaka Albert Guð- mundsson um að honum gangi það eitt til að brigsla lifandi sem liðnum merkismönnum um landráð ef honum þykir skorta á að þessum lögum sé fylgt í hvívetna. Daglega verða borgarar þessa lands að hlfta þessum lögum sam- tfmis sem tollgæslumenn og aðrir embættismenn sem málið varðar, verða fyrir óþægindum við fram- kvæmd téðra laga. Það er heldur ekki til að létta störf þeirra né til að auka virðingu almennings fyrir þessum lögum að leyfður skuli innflutningur á hrámeti til vamar- liðsins. Þar koma að litlu gagni reglugerðarákvæði um meðferð matarleifa frá vamarliðinu, enda efa ég stórlega að þeim sé fylgt. Hér skortir stjómmálamenn póli- tískt þor og dýralæknayfírvöld vilja til að hrófla við þessu máli. Verst finnst mér þó til þess að vita að íslenskir bændur skuli láta þetta viðgangast sem flestir sætta sig við lög sem banna allan innflutning á búfé. Slíkt bann skerðir stórkost- lega möguleika þeirra til að kyn- bæta bústofn sinn og um leið möguleika til að ná sem mestum afurðum. Fomstugrein Morgunblaðsins 19. þ.m. er þó til að gera allt þetta mál hlægilegt. Islenskur landbún- aður, framvörður íslenskrar menn- ingar, skal ekki verða Aronskunni að bráð. En samtímis gleymist að það kjördæmi landsins þar sem fólk- inu fjölgar hvað mest á kostnað dreifbýlisins, er í næsta nábýli við vamarliðið. Sfðan er fslenskum landbúnaði ætlað það hlutskipti að viðhalda jafnri búsetu f landinu. Öll slfk skrif verða Iíka kostulegri f ljósi tiirauna utanríkisráðherra til að fá bandarísku ríkisstjómina til I +

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.