Morgunblaðið - 28.01.1986, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1986
39
hafa gjörbreyst við tilkomu flug-
báts, sem nú fer á milli eyjanna á
80 mínútum.
Dagheimili fyrir böm eru hér,
enda nauðsynleg vegna þess hve
mikið húsmæður vinna úti, þar eð
dýrtíðin er mikil.
Hér í jaðri bygginganna úti við
ströndina eru nokkrir fiskimanna-
kofar og leggja fískimennimir netin
sín hér við ströndina. Þeir fara
snemma á morgnana og leggja þau
og draga þau svo að landi eftir
nokkra klukkutíma. Fylgjast ferða-
menn grannt með störfum þeirra.
íslenskur skipstjóri í
14. ferðinni
Margir ferðamenn koma hingað
ár eftir ár. Eggert Gíslason skip-
stjóri og frú Regína kona hans eru
hér í 14. sinn.
Eggert er mikill vinur fiskimann-
anna og fer hann til þeirra daglega
og líta þeir mikið upp til hans. Það
er leitt að þeir skuli ekki geta notað
sér alla þá þekkingu sem hann
hefur. Eggert segir þá veiða sardín-
ur, makríl og allskonar smáfisk og
fái þeir gott verð fyrir aflann hjá
hótelunum og ferðamönnum. Hann
segir þá hafa fundið upp einfalda'
skreiðarverkun á þeim fiski sem
ekki selst daglega. Sömu vinnu-
brögðin em hjá fiskimönnunum og
fyrir hundmðum ára, aðeins komin
nylontaug í vörpuna í stað hampsins
sem þeir unnu úr tijágróðri.
Vörpuna draga þeir með hand-
afli. Mér finnst allir þessir menn
vera gamalmenni, en þetta em
menn á besta aldri. Það er löng
leið frá fiskimönnunum hér sem láta
binda á sig dráttartaugina eins og
múldýr til ungu glæsilegu sjomann-
anna á okkar glæsilegu fiskibátum.
Eggert segir þá vera byijaða
niðri í Las Palmas að láta mótor-
bátana veiða í frystitogara.
Hér á skrifstofum flugfélaganna
er afbragðs starfsfólk, sem ailra
vanda vill leysa og þó er ömgglega
margt erfitt. Hér er mikið ferðast
um eyjamar á vegum flugfélag-
anna. Einnig em á boðstólnum
ferðir til Gambíu og víðar í Afríku.
Fastar ferðir em niður í Las Palm-
as, þar em söfti og margir athyglis-
verðir staðir og svo auðvitað versl-
animar, sem ætfð freista kvenna.
Nýársdagur er liðinn, fegurri gat
hann ekki verið. Hér hefir verið
sumarblíða síðan við komum um
miðjan desember.
Við óskum landinu okkar gæfu
og gengis á nýja árinu og vonum
að sú birta og ylur sem hér er
berist heim til okkar með vorinu.
En hvar sem við emm þráum við
ætíð fagra kalda landið okkar.
Höfundur er fyrrverandi formað-
ur Thorvaldsenfélagsins og
Bandalags kvenna t Reykjavtk.
lega enn yfir mótun hinnar opinbem
utanríkisstefnu Sovétríkjanna.
í næstu grein sem jafnframt
verður hin síðasta f þessum greina-
flokki mun ég greina frá tildrögum
þess að Shevchenko ákvað að gerast
politískur flóttamaður og setjast að
á Vesturlöndum. Þá mnnu upp
viðsjárverðir tímar fyrir hann því
um tveggja og hálfs árs skeið vann
hann fyrir leyniþjónustu Bandarikj-
anna meðan hann gegndi stöðu
aðstoðar-aðalritara Sameinuðu
þjóðanna og lét þeim í té ýmsar
mikilvægar upplýsingar um ýmis-
legt er laut að Sovétrfkjunum,
stefnu þeirra og störfum. Hann átti
stöðugt á hættu að vera afhjúpaður
er hefði haft dauðann einn í för
með sér fyrir hann.
Helstu heimildin
Breaking with Moscow eftir A.N.
Shevchenko. A.F. Knopf, USA ’85.
Time Magazine, 12. og 18. febr.
1985.
Höfundur á sæti / utanrikismála-
nefnd Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna.
Gabriel
HÖGGDEYFAR
I MIKLU
ÚRVALI
7
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88
Hjördís og Hildur Sif.
Leiðrétting*
í FRÁSÖGN af íslendingunum sem
vom í Suður Jemen þegar byltingin
varð í landinu var villa í mynda-
texta. Myndin var af Hjördísi Þor-
steinsdóttur, konu Sigfúsar Thorar-
ensen og sagt að með henni væri
bamabam hennar. Litla stúlkan á
myndinni Hildur Sif er bamabam
Sigfúsar og fyrri konu hans. Þessari
leiðréttingu er hér með komið á
framfæri.
HUTSCHENREUTHER
GERMANY
(£>
DE PARIS
MAXIM’S
sameinar snilld listamannsins PIERRE CARDIN
og handbragð HUTSCHENREUTHER,
sem er eitt af virtustu framleiðendum postulíns í veröldinni.
MAXIM’S
hefur hlotið alþjóða lof fyrir frábæra hönnun
og einstaka framleiðslu.
Pess vegna hefur SILFURBÚÐIN
valið MAXIM’S frá HUTSCHENREUTHER
sem postulín fyrir þá vandlátu.
SILFURBUÐIN
LAUGAVEG 55 SÍMI 11066