Morgunblaðið - 01.02.1986, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
26. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986 Prentsmiðja Morgfunblaðsins
Challenger-slysið:
Er áhafnarklefinn
heill á hafsbotni?
Kanaveralhöfða, 31. janúar. AP.
Reagan, Bandaríkjaforseti,
segir nokkur huggunarorð við
Alison Smith, dóttur flug-
manns geimferjunnar Chall-
engers, Michaels Smith.
Myndin var tekin í Houston í
Texas við minningarathöfn
um geimfarana sjö, sem fór-
ust þegar Challenger sprakk
skömmu eftir flugtak á
þriðjudag. T.h. á myndinni er
systir Alison, Erin.
AP/Símamynd
LITLUM kafbáti var i dag hleypt af stokkunum til að rannsaka stór-
an málmhlut, sem fannst á hafsbotni undan Kanaveralhöfða með
hjálp hljóðbylgjutækis. Verið getur að málmhluturinn sé sá hluti
geimfeijunnar Challengers, sem stjórnklefi og vinnusvæði áhafnar-
innar voru í. Hafi þessi hluti komist óskaddaður frá sprengingunni
er jarðneskar leifar áhafnarinnar þar að finna.
I dag var haldin minningarathöfn
um geimfarana sjö, sem fórust
þegar geimfeijan Challenger
sprakk á þriðjudag. Ronald Reagan,
Bandaríkjaforseti, og kona hans,
Nancy, voru viðstödd athöfnina og
flutti Reagan ávarp. 10 þúsund
manns sóttu minningarathöfnina,
þar á meðal ættingjar og vinir hinna
látnu.
Bandaríska geimvísindastofnun-
in NASA gaf út yfírlýsingu í dag
þess efnis að ekkert yrði látið uppi
um það hvort fundist hefðu per-
sónulegir munir eða lik geimfar-
anna af tillitssemi við fjölskyldur
þeirra.
Sterkir hafstraumar komu í veg
fyrir að kafarar gætu farið til að
skoða málmhlutinn, sem fannst á
botni Atlantshafsins, að sögn Char-
les Redmonds, talsmanns NASA.
Aftur á móti væri lítill ómannaður
kafbátur að störfum neðansjávar
og annar stærri á leiðinni.
Þótt áður umgetinn hluti feijunn-
ar sé sá rammgerasti að allri bygg-
ingu töldu verkfræðingar að hann
gæti hafa sprungið og lík geim-
faranna myndu aldrei finnast.
Talsmaður bandarísku strand-
gæslunnar, James Simpson, varar
þó við of mikilli bjartsýni og ekki
þurfí að vera um áhafnarklefann
að ræða: „Þetta gæti verið rækju-
bátur, sem sökk fyrir tuttugu árum
eða þijúhundruð ára gömul spænsk
galeiða."
Um þijú þúsund kg úr flaki feij-
unnar hefur nú verið skipað á land
Amin á leið
til Uganda
Manama, Bahrain, 31. janúar. AP.
IDI AMIN, fyrrum forseti
Uganda, hringdi i dag í frétta-
stofu AP í Bahrain og til-
kynnti að hann væri i þann
veginn að fara yfir landamæri
Súdan til Uganda.
Amin kvaðst hafa heitið nýju
stjóminni í
stuðningi.
„Ég býst
Kampala á
sagði Amin.
Kampala fullum
við að koma til
laugardagskvöld,"
í höfninni á Kanaveralhöfða. Þar á
meðal er framendi feijunnar, dyr
farmrýmisins og hlutar úr stéli og
vængjum Challengers.
Sérfræðingar rannsökuðu í dag
fímm stærstu brotin úr skrokki
geimfeijunnar og veltu fyrir sér
hvort mögulegt væri að eldblossi
frá annarri hjálparflauginni hefði
hleypt af stað sprengingunni, sem
grandaði geimfeijunni og áhöfn
hennar. Sjá nánar á bls. 20.
Brak úr geimfeijunni, sem áhöfn
skips bandarísku strandgæslunn-
ar veiddi úr hafi á fimmtudag.
AP/Símamynd
Neyðarástandi hefur
verið lýst yfir á Haiti
Port au Prince, Haiti, 31. janúar. AP. Wr_, .
l.janúar.
FREGNIR um það hver færi með
völdin á Haiti voru mjög á reiki
í dag. Um miðjan dag barst til-
kynning frá Larry Speakes, tals-
manni Bandaríkjaforseta, þess
efnis að Jean-CIaude Duvalier,
forseti Haiti, hefði flúið land og
stjórnin væri fallin, en þessar
fregnir voru síðar dregnar til
baka.
í Miami á Flóridaskaga þustu
flóttamenn frá Haiti út á götur til
að fagna því að Duvalier hefði verið
steypt af stóli, en fagnaðarlætin
umbreyttust í blóðugar óeirðir
þegar maður nokkur ók bifreið á
fullri ferð inn í manníjöldann. Ein
kona og lögreglumaður biðu bana
og tugur manna særðist.
Sjónarvottar í Port au Prince,
höfuðborg Haiti, greindu frá því að
Til átaka kom í Miami á Flóridaskaga þegar fagnandi mannfjöldi
tók skyndilega hamskiptum. Kviknaði í bílum og einn lögreglumaður
var skotinn til bana. Ein kona lét lífið og tugur manna særðist.
Duvalier forseti hefði ekið um götur
borgarinnar f herfylgd.
Duvalier sagði í útvarpsútsend-
ingu í dag að hann hefði neyðst til
að sýna sig opinberlega til að stað-
festa að hann væri enn við völd.
Ekki hefur fengist staðfest hvort
hér var um beina útsendingu eða
upptöku að ræða.
Mótmælendur létu ófriðlega á
götum Port au Prince í dag og
reistu götuvígi. Lögreglan skaut á
mannfjöldann og yfír hann. Engar
fregnir hafa borist um manntjón.
Duvalier lýsti í dag yfír neyðar-
ástandi í landinu og stendur það í
þijátíu daga. Yfírlýsingin var lesin
í sjónvarpi og útvarpi á hádegi og
siglir hún í kjölfar mestu óeirða
gegn stjóminni á Haiti frá því að
Francois Duvalier, faðir Jeans-
Claudes, komsttil valda 1957.
Sex manns hafa beðið bana og
a.m.k. 30 særst síðan óeirðimar
hófust sl. sunnudag í Cap Haitien,
Sjá nánar á bls. 21.