Morgunblaðið - 01.02.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.02.1986, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 26. tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986 Prentsmiðja Morgfunblaðsins Challenger-slysið: Er áhafnarklefinn heill á hafsbotni? Kanaveralhöfða, 31. janúar. AP. Reagan, Bandaríkjaforseti, segir nokkur huggunarorð við Alison Smith, dóttur flug- manns geimferjunnar Chall- engers, Michaels Smith. Myndin var tekin í Houston í Texas við minningarathöfn um geimfarana sjö, sem fór- ust þegar Challenger sprakk skömmu eftir flugtak á þriðjudag. T.h. á myndinni er systir Alison, Erin. AP/Símamynd LITLUM kafbáti var i dag hleypt af stokkunum til að rannsaka stór- an málmhlut, sem fannst á hafsbotni undan Kanaveralhöfða með hjálp hljóðbylgjutækis. Verið getur að málmhluturinn sé sá hluti geimfeijunnar Challengers, sem stjórnklefi og vinnusvæði áhafnar- innar voru í. Hafi þessi hluti komist óskaddaður frá sprengingunni er jarðneskar leifar áhafnarinnar þar að finna. I dag var haldin minningarathöfn um geimfarana sjö, sem fórust þegar geimfeijan Challenger sprakk á þriðjudag. Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, og kona hans, Nancy, voru viðstödd athöfnina og flutti Reagan ávarp. 10 þúsund manns sóttu minningarathöfnina, þar á meðal ættingjar og vinir hinna látnu. Bandaríska geimvísindastofnun- in NASA gaf út yfírlýsingu í dag þess efnis að ekkert yrði látið uppi um það hvort fundist hefðu per- sónulegir munir eða lik geimfar- anna af tillitssemi við fjölskyldur þeirra. Sterkir hafstraumar komu í veg fyrir að kafarar gætu farið til að skoða málmhlutinn, sem fannst á botni Atlantshafsins, að sögn Char- les Redmonds, talsmanns NASA. Aftur á móti væri lítill ómannaður kafbátur að störfum neðansjávar og annar stærri á leiðinni. Þótt áður umgetinn hluti feijunn- ar sé sá rammgerasti að allri bygg- ingu töldu verkfræðingar að hann gæti hafa sprungið og lík geim- faranna myndu aldrei finnast. Talsmaður bandarísku strand- gæslunnar, James Simpson, varar þó við of mikilli bjartsýni og ekki þurfí að vera um áhafnarklefann að ræða: „Þetta gæti verið rækju- bátur, sem sökk fyrir tuttugu árum eða þijúhundruð ára gömul spænsk galeiða." Um þijú þúsund kg úr flaki feij- unnar hefur nú verið skipað á land Amin á leið til Uganda Manama, Bahrain, 31. janúar. AP. IDI AMIN, fyrrum forseti Uganda, hringdi i dag í frétta- stofu AP í Bahrain og til- kynnti að hann væri i þann veginn að fara yfir landamæri Súdan til Uganda. Amin kvaðst hafa heitið nýju stjóminni í stuðningi. „Ég býst Kampala á sagði Amin. Kampala fullum við að koma til laugardagskvöld," í höfninni á Kanaveralhöfða. Þar á meðal er framendi feijunnar, dyr farmrýmisins og hlutar úr stéli og vængjum Challengers. Sérfræðingar rannsökuðu í dag fímm stærstu brotin úr skrokki geimfeijunnar og veltu fyrir sér hvort mögulegt væri að eldblossi frá annarri hjálparflauginni hefði hleypt af stað sprengingunni, sem grandaði geimfeijunni og áhöfn hennar. Sjá nánar á bls. 20. Brak úr geimfeijunni, sem áhöfn skips bandarísku strandgæslunn- ar veiddi úr hafi á fimmtudag. AP/Símamynd Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Haiti Port au Prince, Haiti, 31. janúar. AP. Wr_, . l.janúar. FREGNIR um það hver færi með völdin á Haiti voru mjög á reiki í dag. Um miðjan dag barst til- kynning frá Larry Speakes, tals- manni Bandaríkjaforseta, þess efnis að Jean-CIaude Duvalier, forseti Haiti, hefði flúið land og stjórnin væri fallin, en þessar fregnir voru síðar dregnar til baka. í Miami á Flóridaskaga þustu flóttamenn frá Haiti út á götur til að fagna því að Duvalier hefði verið steypt af stóli, en fagnaðarlætin umbreyttust í blóðugar óeirðir þegar maður nokkur ók bifreið á fullri ferð inn í manníjöldann. Ein kona og lögreglumaður biðu bana og tugur manna særðist. Sjónarvottar í Port au Prince, höfuðborg Haiti, greindu frá því að Til átaka kom í Miami á Flóridaskaga þegar fagnandi mannfjöldi tók skyndilega hamskiptum. Kviknaði í bílum og einn lögreglumaður var skotinn til bana. Ein kona lét lífið og tugur manna særðist. Duvalier forseti hefði ekið um götur borgarinnar f herfylgd. Duvalier sagði í útvarpsútsend- ingu í dag að hann hefði neyðst til að sýna sig opinberlega til að stað- festa að hann væri enn við völd. Ekki hefur fengist staðfest hvort hér var um beina útsendingu eða upptöku að ræða. Mótmælendur létu ófriðlega á götum Port au Prince í dag og reistu götuvígi. Lögreglan skaut á mannfjöldann og yfír hann. Engar fregnir hafa borist um manntjón. Duvalier lýsti í dag yfír neyðar- ástandi í landinu og stendur það í þijátíu daga. Yfírlýsingin var lesin í sjónvarpi og útvarpi á hádegi og siglir hún í kjölfar mestu óeirða gegn stjóminni á Haiti frá því að Francois Duvalier, faðir Jeans- Claudes, komsttil valda 1957. Sex manns hafa beðið bana og a.m.k. 30 særst síðan óeirðimar hófust sl. sunnudag í Cap Haitien, Sjá nánar á bls. 21.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.