Morgunblaðið - 01.02.1986, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986
Húsnæðisstofnun ríkisins:
Fólk í greiðsluvand-
ræðum fær 50—200
þúsund króna lán
Félagsmálaráðherra hefur
falið Húsnæðisstofnun ríkisins
að veita húsbyggjendum og íbúð-
areigendum i greiðsluerfiðleik-
um lán úr Byggingarsjóði ríkis-
ins. Ráðgjafarstöð Húsnæðis-
stofnunar mun annast lánveiting-
Leiklistar-
skólinn fær
inni í Land-
smiðjunni
SVERRIR Hermannsson
menntamálaráðherra hefur
ákveðið að Leiklistarskóli ís-
lands fái inni í húsakynnum
Landssmiðjunnar við Sölv-
hólsgötu. Gert er ráð fyrir
að húsnæðið verði tilbúið til
notkunar fyrir skólann næsta
haust en Nemendaleikhúsið
verður fyrst um sinn til húsa
í Lindarbæ.
„Mér líst mjög vel á þetta
húsnæði," ságði Helga Hjörvar
skólastjóri Leiklistarskólans.
„Undanfarin ár hefur skólinn
verið á hrakhólum, verið á fimm
til sex stöðum í bænum. F'yrir
tveimur árum var skólanum
sagt upp núverandi húsnæði við
Lækjargötu 14a og það er ein-
ungis fyrir velvilja borgaryfir-
valda að við höfiim fengið að
vera þar áfram. Skólinn fær
hluta af tveimur efstu hæðun-
um í húsi Landssmiðjunnar fyrir
sig og þær munu nýtast honum
vel. Það verður auðvitað ekki
rúmt um okkur en þetta verður
ágætt og mikil viðbrigði frá
því sem nú er. Gert er ráð fyrir
tveimur sölum á annarri hæð-
inni þar sem er hærra til lofts
en venja er og þar verður
kennsla í leiktúlkun. Við höfum
alltaf verið að leita eftir hús-
næði með „rými“ og góðri loft-
hæð, því við erum að þjálfa
leikara, sem seinna eiga eftir
að fylla „rými" Þjóðleikhússins
og Borgarleikhússins. Þama
verðum við líka með kennslu í
líkamsþjálfun. Á efri hæð er
gert ráð fyrir öðrum kennslu-
stofum, skrifstofu skólans og
bókasafni."
Fjöldi nemenda við Leiklist-
arskóla íslands er takmarkaður
í lögum við átta nemendur í
hveijum árgangi.
arnar í samræmi við reglur sem
settar hafa verið og með hliðsjón
af tillögum milliþinganefndar
um húsnæðismál frá því í desem-
ber. Veitt verða lán að fjárhæð
50—200 þúsund kr. til 5—10 ára.
Bankar og sparisjóðir hafa einnig
fallist á tilmæli ríkisstjómarinnar
um að skuldbreyta skammtíma-
skuldum vegna húsbygginga eða
-kaupa í samráði við Ráðgjafarstöð
Húsnæðisstofnunar, eftir því sem
segir í fréttatilkynningu frá félags-
málaráðuneytinu.
I reglum um lánveitingar Bygg-
ingarsjóðs vegna greiðsluerfiðleika
segir að umsækjandi geti því aðeins
átt kost á láni ef fjárhagsvandi
hans er til orðinn vegna fjármögn-
unar íbúðarhúsnæðis af hóflegri
stærð miðað við ijölskyldu hans og
að aðrir lánamöguleikar hafi verið
fullkannaðir og nýttir. Ráðgjafar-
stöð Húsnæðisstofnunar skal meta
greiðslugetu umsækjanda og hafa
samráð við lánastofnanir um leng-
ingu þeirra lána sem þar eru fyrir
hendi. Fjárhæðir veittra lána geta
verið frá 50 til 200 þúsund kr., láns-
tími 5—10 ár, afborgunarlaus í 1
ár, en lánskjör að öðru leyti hin
sömu og F-og G-lána Byggingar-
sjóðs ríkisins.
Birgir Engilberts
„Upphitun“
frumsýnd í
Þjóðleik-
húsinu í
gærkvöldi
Þjóðleikhúsið frumsýndi í
gærkvöldi nýtt íslenzkt
leikrit, Upphitun eftir
Birgi Engilberts í
leikstjóm Þórhalls
Sigurðssonar.
Þjóðleikhúsið hefur áður
sýnt nokkra einþáttunga
eftir Birgi. Með
aðalhlutverk í sýningunni
fara þær Kristbjörg Kjeld
og Þóra Friðriksdóttir,
Helga Jónsdóttir og
Guðrún Stephensen.
Leiksýningunni í
gærkvöldi var fagnað
mjög vel af
frumsýningargestum. Á
myndinni er Kristbjörg
Kjeld í hlutverki Þóreyjar.
Pétur Eiríksson, forstjóri Álafoss:
Ullariðnaðurinn rekinn
með verulegnm halla
Skipuð nefnd til að gera úttekt á ullariðnaðinum
FLEST fyrirtæki i ullariðnaðinum eru rekin með verulegum halla,
að sögn Péturs Eiríkssonar forstjóra Álafoss. Pétur kvaðst ekki
hafa tölur um hallann en sagði að hann gæti verið á bilinu 5—10%
af tekjum. Pétur á sæti í nefnd sem stjóm Félags íslenskra iðn-
rekenda hefur ákveðið að skipa til að gera úttekt á rekstrarstöðu
og horfum í ullariðnaði og setja fram tillögur um aðgerðir til að
bæta stöðu greinarinnar.
Pétur sagði að ástæða slæmrar
stöðu ullariðnaðarins væri fyrst og
fremst sú misvísun sem verið hefði
í þróun dollarans og innlendra
kostnaðarhækkana. Meirihluti
tekna ullariðnaðarins eru miðaðar
við dollara og sagði Pétur að þegar
kostnaður hækkaði um 30% á sama
tíma og dollarinn hækkaði aðeins
um 3% gæti hver maður séð að í
óefni væri komið. Þessa dagana
væru menn að setja saman rekstr-
aráætlanir fyrir árið og þá kæmu
menn að þessu bili, sem virtist óbrú-
Sala Fiskveiðasjóðs á Sigrirfara II:
Viðræðum hætt
við Hornfirðinga
Viðræður við Harald Böðvarsson & Co. á döfinni
STJÓRN Fiskveiðasjóðs hefur
ákveðið að rifta viðræðum sínurn
við Birai Bjarnason og fleiri á
Höfn í Hornafirði um kaup á
togaranum Sigurfara II. Hora-
firðingarair buðu 190 milljónir
króna í skipið. Næstbjóðandi var
Haraldur Böðvarsson & Co. á
Akranesi með 187,5 milljónir og
mun Fiskveiðasjóður ræða næst
við það fyrirtæki um kaup á
skipinu.
Bimir Bjamason, Höfn í Homa-
firði, sagði í samtali við Morgun-
biaðið að hann og félagar hans
væru mjög óánægðir með þessa
niðurstöðu stjómarinnar og sér
virtist sem stjómarmenn hefðu til
þessa verið að leita að tylliástæðu
til að komast hjá því að seija þeim
skipið, svo virtist sem það hefði
aldrei mátt fara austur.
Bimir sagði, að af hálfu sjóðsins
hefðu ekki verið gerðar athuga-
semdir við rekstraráætlun þeirra
félaga við útgerð skipsins, en ætl-
unin hefði verið að gera það út með
frystingu um borð. Mikil samstaða
hefði verið á Höfn um að ná skipinu
og væntanlega ætti eftir að heyrast
meir frá þeim félögum.
Viðræður við Bílddælinga um
kaup á Sölva Bjamasyni standa enn
jrfír, en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins munu stjómendur
Fiskveiðasjóðs telja að þörf sé frek-
ari trygginga fyrir mögulegri
greiðslu en í tilboðinu felast.
anlegt. Ekki væri hægt að velta
kostnaðarhækkunum yfir á mark-
aðinn, hann tæki ekki við þeim og
við bættist að tískan væri okkur
frekar erfið og samkeppnin færi
harðnandi.
Aðspurður um horfumar sagðist
Pétur ekki geta verið bjartsýnn,
meðal annars vegna þess að látið
væri að því liggja að reynt verði
að halda genginu stöðugu. Fyrir-
tækin þyrftu því að leggja aukna
áherslu á hagræðingu og Evrópu-
markað en verulegur árangur
næðist ekki á skömmum tíma.
Álafoss hefur farið meira út í
tískuvaminginn og lagt minni
áherslu á þjóðlega fatnaðinn til að
rejma að fá betra verð fyrir fram-
leiðsluna. Pétur sagði að þeir væru
enn í þessu tilraunastarfi og of
snemmt að segja til um árangurinn.
Bjóst hann þó við að það skýrðist
á þessu ári hvort þetta tækist hjá
þeim eða ekki.
„Við höfum kynnt okkar fatnað
fyrir árið og hefur hann fengið
mjög góðar viðtökur. Okkur virðist
hafa tekist vel til í hönnun og útliti
fatnaðarins. Síðan er eftir að sjá
hvort markaðurinn tekur við því
verði sem við setjum upp. Við erum
þegar byrjaðir að fá pantanir en
það er ekki fyrr en í mars að við
sjáum hvort þetta gengur upp hjá
okkur,“ sagði Pétur Eiríksson.
Á síðastliðnu ári nam útflutning-
ur ullarvöru 1.100 milljónum króna
og starfa um 1.200 manns í grein-
inni. í fréttatilkynningu frá Félagi
íslenskra iðnrekenda um erfíða
stöðu ullariðnaðarins segir að það
skipti sköpum fyrir framtíð hans
að fyrirtækin fái ráðrúm til að laga
sig að þeim breytingum, sem stöð-
ugt eiga sér stað á markaði fyrir
þessar vörur. Mestu skipti að draga
úr verðbólgunni. „Áframhaldandi
verðbólga gæti hæglega kippt fót-
unum undan rekstri ullariðnaðarins
eins og reyndar fleiri atvinnu-
greina," segir einnig í frétt iðn-
rekenda.
Fréttastofa sjónvarps:
*
Hallur og Olína ráð-
in í afleysingastörf
MARKÚS Örn Antonsson útvarps-
stjóri kynnti á fundi útvarpsráðs í
ær að þau Hallur Hallsson og
lína Þorvarðardóttir séu ráðin í
afleysingarstörf hjá fréttastofu
sjónvarpsins, að ósk fréttastjóra
sjónvarpsins. Útvarpsráð fjallar
ekki um ráðningar f afleysingastörf.
Ólafur hættir
í stjórn LÍN
„ÞAÐ er mikill misskilningur
sem haldið hefur verið fram
að Vaka hafi lýst yfir van-
trausti á Ólaf Arnarson. Við
töldum hins vegar rétt að
hann segði sig úr stjóra Lána-
sjóðsins, enda ætlaði hann sér
aldrei að sitja þaraa lengi,“
sagði Stefán Kalmannsson
formaður Vöku félags lýð-
ræðissinnaðra stúdenta.
Stefán sagði að Ólafur hefði
farið fram á það að fá tíma til
að afgreiða nokkur mál áður
en hann segði sig úr stjóminni
og óskaði eftir að sitja þar til
á fimmtudaginn, 6. febrúar
næstkomandi, sem Vaka sam-
þykkti. „Það er á misskilningi
byggt að Vaka hafi samþykkt
vantraust á Ólaf. Við erum
mjög ánægð með störf hans í
stjóm Lánasjóðsins," sagði
Stefán.
MIBE?rrCK.