Morgunblaðið - 01.02.1986, Síða 2

Morgunblaðið - 01.02.1986, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986 Húsnæðisstofnun ríkisins: Fólk í greiðsluvand- ræðum fær 50—200 þúsund króna lán Félagsmálaráðherra hefur falið Húsnæðisstofnun ríkisins að veita húsbyggjendum og íbúð- areigendum i greiðsluerfiðleik- um lán úr Byggingarsjóði ríkis- ins. Ráðgjafarstöð Húsnæðis- stofnunar mun annast lánveiting- Leiklistar- skólinn fær inni í Land- smiðjunni SVERRIR Hermannsson menntamálaráðherra hefur ákveðið að Leiklistarskóli ís- lands fái inni í húsakynnum Landssmiðjunnar við Sölv- hólsgötu. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði tilbúið til notkunar fyrir skólann næsta haust en Nemendaleikhúsið verður fyrst um sinn til húsa í Lindarbæ. „Mér líst mjög vel á þetta húsnæði," ságði Helga Hjörvar skólastjóri Leiklistarskólans. „Undanfarin ár hefur skólinn verið á hrakhólum, verið á fimm til sex stöðum í bænum. F'yrir tveimur árum var skólanum sagt upp núverandi húsnæði við Lækjargötu 14a og það er ein- ungis fyrir velvilja borgaryfir- valda að við höfiim fengið að vera þar áfram. Skólinn fær hluta af tveimur efstu hæðun- um í húsi Landssmiðjunnar fyrir sig og þær munu nýtast honum vel. Það verður auðvitað ekki rúmt um okkur en þetta verður ágætt og mikil viðbrigði frá því sem nú er. Gert er ráð fyrir tveimur sölum á annarri hæð- inni þar sem er hærra til lofts en venja er og þar verður kennsla í leiktúlkun. Við höfum alltaf verið að leita eftir hús- næði með „rými“ og góðri loft- hæð, því við erum að þjálfa leikara, sem seinna eiga eftir að fylla „rými" Þjóðleikhússins og Borgarleikhússins. Þama verðum við líka með kennslu í líkamsþjálfun. Á efri hæð er gert ráð fyrir öðrum kennslu- stofum, skrifstofu skólans og bókasafni." Fjöldi nemenda við Leiklist- arskóla íslands er takmarkaður í lögum við átta nemendur í hveijum árgangi. arnar í samræmi við reglur sem settar hafa verið og með hliðsjón af tillögum milliþinganefndar um húsnæðismál frá því í desem- ber. Veitt verða lán að fjárhæð 50—200 þúsund kr. til 5—10 ára. Bankar og sparisjóðir hafa einnig fallist á tilmæli ríkisstjómarinnar um að skuldbreyta skammtíma- skuldum vegna húsbygginga eða -kaupa í samráði við Ráðgjafarstöð Húsnæðisstofnunar, eftir því sem segir í fréttatilkynningu frá félags- málaráðuneytinu. I reglum um lánveitingar Bygg- ingarsjóðs vegna greiðsluerfiðleika segir að umsækjandi geti því aðeins átt kost á láni ef fjárhagsvandi hans er til orðinn vegna fjármögn- unar íbúðarhúsnæðis af hóflegri stærð miðað við ijölskyldu hans og að aðrir lánamöguleikar hafi verið fullkannaðir og nýttir. Ráðgjafar- stöð Húsnæðisstofnunar skal meta greiðslugetu umsækjanda og hafa samráð við lánastofnanir um leng- ingu þeirra lána sem þar eru fyrir hendi. Fjárhæðir veittra lána geta verið frá 50 til 200 þúsund kr., láns- tími 5—10 ár, afborgunarlaus í 1 ár, en lánskjör að öðru leyti hin sömu og F-og G-lána Byggingar- sjóðs ríkisins. Birgir Engilberts „Upphitun“ frumsýnd í Þjóðleik- húsinu í gærkvöldi Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi nýtt íslenzkt leikrit, Upphitun eftir Birgi Engilberts í leikstjóm Þórhalls Sigurðssonar. Þjóðleikhúsið hefur áður sýnt nokkra einþáttunga eftir Birgi. Með aðalhlutverk í sýningunni fara þær Kristbjörg Kjeld og Þóra Friðriksdóttir, Helga Jónsdóttir og Guðrún Stephensen. Leiksýningunni í gærkvöldi var fagnað mjög vel af frumsýningargestum. Á myndinni er Kristbjörg Kjeld í hlutverki Þóreyjar. Pétur Eiríksson, forstjóri Álafoss: Ullariðnaðurinn rekinn með verulegnm halla Skipuð nefnd til að gera úttekt á ullariðnaðinum FLEST fyrirtæki i ullariðnaðinum eru rekin með verulegum halla, að sögn Péturs Eiríkssonar forstjóra Álafoss. Pétur kvaðst ekki hafa tölur um hallann en sagði að hann gæti verið á bilinu 5—10% af tekjum. Pétur á sæti í nefnd sem stjóm Félags íslenskra iðn- rekenda hefur ákveðið að skipa til að gera úttekt á rekstrarstöðu og horfum í ullariðnaði og setja fram tillögur um aðgerðir til að bæta stöðu greinarinnar. Pétur sagði að ástæða slæmrar stöðu ullariðnaðarins væri fyrst og fremst sú misvísun sem verið hefði í þróun dollarans og innlendra kostnaðarhækkana. Meirihluti tekna ullariðnaðarins eru miðaðar við dollara og sagði Pétur að þegar kostnaður hækkaði um 30% á sama tíma og dollarinn hækkaði aðeins um 3% gæti hver maður séð að í óefni væri komið. Þessa dagana væru menn að setja saman rekstr- aráætlanir fyrir árið og þá kæmu menn að þessu bili, sem virtist óbrú- Sala Fiskveiðasjóðs á Sigrirfara II: Viðræðum hætt við Hornfirðinga Viðræður við Harald Böðvarsson & Co. á döfinni STJÓRN Fiskveiðasjóðs hefur ákveðið að rifta viðræðum sínurn við Birai Bjarnason og fleiri á Höfn í Hornafirði um kaup á togaranum Sigurfara II. Hora- firðingarair buðu 190 milljónir króna í skipið. Næstbjóðandi var Haraldur Böðvarsson & Co. á Akranesi með 187,5 milljónir og mun Fiskveiðasjóður ræða næst við það fyrirtæki um kaup á skipinu. Bimir Bjamason, Höfn í Homa- firði, sagði í samtali við Morgun- biaðið að hann og félagar hans væru mjög óánægðir með þessa niðurstöðu stjómarinnar og sér virtist sem stjómarmenn hefðu til þessa verið að leita að tylliástæðu til að komast hjá því að seija þeim skipið, svo virtist sem það hefði aldrei mátt fara austur. Bimir sagði, að af hálfu sjóðsins hefðu ekki verið gerðar athuga- semdir við rekstraráætlun þeirra félaga við útgerð skipsins, en ætl- unin hefði verið að gera það út með frystingu um borð. Mikil samstaða hefði verið á Höfn um að ná skipinu og væntanlega ætti eftir að heyrast meir frá þeim félögum. Viðræður við Bílddælinga um kaup á Sölva Bjamasyni standa enn jrfír, en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins munu stjómendur Fiskveiðasjóðs telja að þörf sé frek- ari trygginga fyrir mögulegri greiðslu en í tilboðinu felast. anlegt. Ekki væri hægt að velta kostnaðarhækkunum yfir á mark- aðinn, hann tæki ekki við þeim og við bættist að tískan væri okkur frekar erfið og samkeppnin færi harðnandi. Aðspurður um horfumar sagðist Pétur ekki geta verið bjartsýnn, meðal annars vegna þess að látið væri að því liggja að reynt verði að halda genginu stöðugu. Fyrir- tækin þyrftu því að leggja aukna áherslu á hagræðingu og Evrópu- markað en verulegur árangur næðist ekki á skömmum tíma. Álafoss hefur farið meira út í tískuvaminginn og lagt minni áherslu á þjóðlega fatnaðinn til að rejma að fá betra verð fyrir fram- leiðsluna. Pétur sagði að þeir væru enn í þessu tilraunastarfi og of snemmt að segja til um árangurinn. Bjóst hann þó við að það skýrðist á þessu ári hvort þetta tækist hjá þeim eða ekki. „Við höfum kynnt okkar fatnað fyrir árið og hefur hann fengið mjög góðar viðtökur. Okkur virðist hafa tekist vel til í hönnun og útliti fatnaðarins. Síðan er eftir að sjá hvort markaðurinn tekur við því verði sem við setjum upp. Við erum þegar byrjaðir að fá pantanir en það er ekki fyrr en í mars að við sjáum hvort þetta gengur upp hjá okkur,“ sagði Pétur Eiríksson. Á síðastliðnu ári nam útflutning- ur ullarvöru 1.100 milljónum króna og starfa um 1.200 manns í grein- inni. í fréttatilkynningu frá Félagi íslenskra iðnrekenda um erfíða stöðu ullariðnaðarins segir að það skipti sköpum fyrir framtíð hans að fyrirtækin fái ráðrúm til að laga sig að þeim breytingum, sem stöð- ugt eiga sér stað á markaði fyrir þessar vörur. Mestu skipti að draga úr verðbólgunni. „Áframhaldandi verðbólga gæti hæglega kippt fót- unum undan rekstri ullariðnaðarins eins og reyndar fleiri atvinnu- greina," segir einnig í frétt iðn- rekenda. Fréttastofa sjónvarps: * Hallur og Olína ráð- in í afleysingastörf MARKÚS Örn Antonsson útvarps- stjóri kynnti á fundi útvarpsráðs í ær að þau Hallur Hallsson og lína Þorvarðardóttir séu ráðin í afleysingarstörf hjá fréttastofu sjónvarpsins, að ósk fréttastjóra sjónvarpsins. Útvarpsráð fjallar ekki um ráðningar f afleysingastörf. Ólafur hættir í stjórn LÍN „ÞAÐ er mikill misskilningur sem haldið hefur verið fram að Vaka hafi lýst yfir van- trausti á Ólaf Arnarson. Við töldum hins vegar rétt að hann segði sig úr stjóra Lána- sjóðsins, enda ætlaði hann sér aldrei að sitja þaraa lengi,“ sagði Stefán Kalmannsson formaður Vöku félags lýð- ræðissinnaðra stúdenta. Stefán sagði að Ólafur hefði farið fram á það að fá tíma til að afgreiða nokkur mál áður en hann segði sig úr stjóminni og óskaði eftir að sitja þar til á fimmtudaginn, 6. febrúar næstkomandi, sem Vaka sam- þykkti. „Það er á misskilningi byggt að Vaka hafi samþykkt vantraust á Ólaf. Við erum mjög ánægð með störf hans í stjóm Lánasjóðsins," sagði Stefán. MIBE?rrCK.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.