Morgunblaðið - 01.02.1986, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR1986
37
John
Travolta
í hlutverki
Howard
Hughes
Sú saga gengnr nú
fjöllunum hærra aö
John Travolta eigi aö fara
moð hlutverk milljóna-
mæringsins Howard
Hughes í kvikmynd sem
er í undirbúningi. En nú
er bara að bíöa og sjá,
hvort rétt reynist.
Audrey Hepburn og sonurinn Sean Ferrer.
'Eldri sonur Audrey Hepburn
genginn í hnapphelduna
E, Isti sonur Audrey Hepbum gekk i það heilaga á dögunum. Hann heitir
SeanFerrer, ér 26 ára og giftist Marinu Spendaflorer. ^
Audrey mætti að sjálfsögðu til athafnarinnar með syni sínum og fylgisveini,
Hollendingnum Robert Wolders. Faðir Sean er Mel Ferrer, en hann hefur
löngum verið viðriðinn kvikmyndaiðnaðinn, sem kunnugt er. Audrey á annan
son, sá er 16 ára og heitir Luca. Faðir hans er ítalski leikarinn Andrea Dotti.
Er kominn á samning
hjá ríkisóperunni í Hamborg
„Gaman að geta ein-
beitt sér eingöngu
að söngnum og fyrir
þokkaleg laun“
|
— sagði Þorgeir J. Andrésson
Þ að er draumur margra áhugamanna í söng eins og öðru að geta
stundað hann eingöngu fyrir þokkaleg launakjör sagði Þorgeir J. Andrés-
son sem heldur til Hamborgar í aprfl þar sem hann mun starfa við
ríkisóperuna. „Það var auglýst eftir íýrstu tenórum í kór óperunnar
í erlendu fagtímariti og ég sendi inn umsókn. Til baka fékk ég þær
upplýsingar að inntökupróf yrði í London í nóvember og þangað
dreif ég mig og söng. Samningar tókust strax og þar sem ég
gat ekki byijað samstundis var ákveðið að ég mætti til starfa
15. aprfl næstkomandi og yrði samningsbundinn fram i ágúst
1987.
Þetta er elsta starfandi óperan ( Þýskalandi, var stofnsett
árið 1678 og húsið sem óperan hefur yfír að ráða er
annað stærsta sinnar tegundar þar í landi.
Ég fæ launalaust leyfí frá vinnu héma heima en ég
er verkfræðingur og hef unnið áralangt hjá Lands-
virkjun.
Þetta verður eflaust strangt og mikil vinna, en
fríin eru líka góð þess á milli."
— Er langt síðan þú byijaðir að læra söng?
„Nei, það eru fímm ár síðan og það var
aðallega fyrir tilstuðlan systur minnar
sem er söngkennari að ég byrjaði á því.
Hún var að leiðbeina mér af og til og
benti mér svo á að fara að taka
þetta alvarlega.
Ég hef notið leiðsagnar þeirra
Garðars Cortes og Guðrúnar A.
Kristinsdóttur, þau hafa verið aðal-
kennaramir mínir í Söngskólanum.
Áttunda stigs prófí lauk ég síðast-
liðið vor og hef verið í einsöngvara-
deildinni siðan í haust.
Ég hef að vísu aðeins getað sinnt
söngnum í frístundum og verið
þessvegna að því um kvöld og helg-
ar. Það em einmitt strangir dagar
hjá mér núna því við erum nokkrir
nemendur úr Söngskólanum að æfa
Ástardrykkinn eftir Donizetti undir
stjóm Garðars Cortes og ætlum að
frumflytja það verk í byijun mars."
— Hyggstu koma heim og snúa
þér að verkfræðinni að loknu samn-
ingstímabili úti?
„Það er aldrei að vita. Það var
auðfundið að þeir hjá óperunni voru
að íeita sér að söngfólki til frambúð-
ar en þetta verður bara allt að koma
Þorgeir Andrésson í ljós með tið og tima ..
í Mosfellssveit
bjóöa skíðafólk velkomið
Á leiðinni uppí fjöllin er tilvalið að koma við í
WESTERN FRIED í Mosfellssveit og fá sér góm- <
sæta kjúklingabita frá ÍSFUGL í nesti.
Þeir eru í umbúðum sem halda á þeim hita. Nú eða
koma við í heimleiðinni eftirvel heppnaða skíðaferð
og borða kvöldmatinn hjá okkur, eða taka hann
með heim.
ísfugl
Mosfellssveit
Auglysingtstoft SOB