Morgunblaðið - 01.02.1986, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 01.02.1986, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR1986 37 John Travolta í hlutverki Howard Hughes Sú saga gengnr nú fjöllunum hærra aö John Travolta eigi aö fara moð hlutverk milljóna- mæringsins Howard Hughes í kvikmynd sem er í undirbúningi. En nú er bara að bíöa og sjá, hvort rétt reynist. Audrey Hepburn og sonurinn Sean Ferrer. 'Eldri sonur Audrey Hepburn genginn í hnapphelduna E, Isti sonur Audrey Hepbum gekk i það heilaga á dögunum. Hann heitir SeanFerrer, ér 26 ára og giftist Marinu Spendaflorer. ^ Audrey mætti að sjálfsögðu til athafnarinnar með syni sínum og fylgisveini, Hollendingnum Robert Wolders. Faðir Sean er Mel Ferrer, en hann hefur löngum verið viðriðinn kvikmyndaiðnaðinn, sem kunnugt er. Audrey á annan son, sá er 16 ára og heitir Luca. Faðir hans er ítalski leikarinn Andrea Dotti. Er kominn á samning hjá ríkisóperunni í Hamborg „Gaman að geta ein- beitt sér eingöngu að söngnum og fyrir þokkaleg laun“ | — sagði Þorgeir J. Andrésson Þ að er draumur margra áhugamanna í söng eins og öðru að geta stundað hann eingöngu fyrir þokkaleg launakjör sagði Þorgeir J. Andrés- son sem heldur til Hamborgar í aprfl þar sem hann mun starfa við ríkisóperuna. „Það var auglýst eftir íýrstu tenórum í kór óperunnar í erlendu fagtímariti og ég sendi inn umsókn. Til baka fékk ég þær upplýsingar að inntökupróf yrði í London í nóvember og þangað dreif ég mig og söng. Samningar tókust strax og þar sem ég gat ekki byijað samstundis var ákveðið að ég mætti til starfa 15. aprfl næstkomandi og yrði samningsbundinn fram i ágúst 1987. Þetta er elsta starfandi óperan ( Þýskalandi, var stofnsett árið 1678 og húsið sem óperan hefur yfír að ráða er annað stærsta sinnar tegundar þar í landi. Ég fæ launalaust leyfí frá vinnu héma heima en ég er verkfræðingur og hef unnið áralangt hjá Lands- virkjun. Þetta verður eflaust strangt og mikil vinna, en fríin eru líka góð þess á milli." — Er langt síðan þú byijaðir að læra söng? „Nei, það eru fímm ár síðan og það var aðallega fyrir tilstuðlan systur minnar sem er söngkennari að ég byrjaði á því. Hún var að leiðbeina mér af og til og benti mér svo á að fara að taka þetta alvarlega. Ég hef notið leiðsagnar þeirra Garðars Cortes og Guðrúnar A. Kristinsdóttur, þau hafa verið aðal- kennaramir mínir í Söngskólanum. Áttunda stigs prófí lauk ég síðast- liðið vor og hef verið í einsöngvara- deildinni siðan í haust. Ég hef að vísu aðeins getað sinnt söngnum í frístundum og verið þessvegna að því um kvöld og helg- ar. Það em einmitt strangir dagar hjá mér núna því við erum nokkrir nemendur úr Söngskólanum að æfa Ástardrykkinn eftir Donizetti undir stjóm Garðars Cortes og ætlum að frumflytja það verk í byijun mars." — Hyggstu koma heim og snúa þér að verkfræðinni að loknu samn- ingstímabili úti? „Það er aldrei að vita. Það var auðfundið að þeir hjá óperunni voru að íeita sér að söngfólki til frambúð- ar en þetta verður bara allt að koma Þorgeir Andrésson í ljós með tið og tima .. í Mosfellssveit bjóöa skíðafólk velkomið Á leiðinni uppí fjöllin er tilvalið að koma við í WESTERN FRIED í Mosfellssveit og fá sér góm- < sæta kjúklingabita frá ÍSFUGL í nesti. Þeir eru í umbúðum sem halda á þeim hita. Nú eða koma við í heimleiðinni eftirvel heppnaða skíðaferð og borða kvöldmatinn hjá okkur, eða taka hann með heim. ísfugl Mosfellssveit Auglysingtstoft SOB

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.