Morgunblaðið - 02.02.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR1986
21
726 gjald-
þrotabeiðn-
ir til borg'ar-
fógeta 1985
Á síðastliðnu ári bárust emb-
ætti borgarfógeta 762 gjald-
þrotabeiðnir, þar af 191 beiðni
vegna félaga og 571 vegna ein-
staklinga. Árið 1984 bárust
embættinu 527 beiðnir, 246 árið
1983, 210 árið 1982 og 195 árið
1981.
Á síðastliðnu ári voru kveðnir upp
211 gjaldþrotaúrskurðir hjá emb-
ætti borgarfógeta — 32 úrskurðir
yfir félögum og 179 yfir einstakl-
ingum. Árið 1984 voru kveðnir upp
167 gjaldþrotaúrskurðir, 120 yfir
einstaklingum og 47 yfir félögum.
Ársrit Úti-
vistar 1985
ÁRSRIT Útivistar fyrir árið 1985:
er komið út og er það hið ellefta
í röðinni.
Stærsta grein ritsins er afmælis-
grein rituð af Sigurþór Þorgilssyni1
í tilefni 10 ára afmælis Útivistar,
sem var á liðnu ári. Er þar rakin
saga félagsins frá upphafi. Jón
Jónsson jarðfræðingur heldur
áfram þáttaröð sinni, Eyjaijalla-
pistlar, og ritar auk þess grein um
Mýrdalsfjöllin. Nanna Kaaber segir
frá ferð á Homstrandir. Leifur
Jónsson segir frá eftirminniiegri
landmælingaferði í KerlingarQöll
árið 1956 og Einar Haukur Krist-
jánsson ritar hugleiðingar um öm-
efni í landslagi og kallar greinina
Dægradvöl á ferðalögum. Þá eru í
ritinu tvö kvæði eftir Hallgrím Jóns-
son og ársskýrsla Útivistar fyrir
árið 1984.
Ritstjóri þessa rits var Ingibjörg
S. Ásgeirsdóttir. Ársrit 1986 er
væntanlegt f maí og hefur Sig-
hvatur Blöndal tekið að sér ritstjóm
þess segir í fréttatilkynningu frá
Útivist.
Rís stór lax-
eldisstöð við
V atnsley suvík?
Vogum, 31. janúar.
ÞAÐ ERU að hefjast rannsóknir
á möguleikum á því að reisa stóra
laxeldisstöð í landi Vatnsleysu-
bæja, við Vatnsleysuvík á Vatns-
leysuströnd, en í þeirra landi er
háhitasvæðið við Trölladyngju.
Stofnað hefur verið undirbún-
ingsfélag „Lindarlax hf.“ en hlut-
hafar eru landeigendumir Sæ-
mundur Þórðarson, Stóm-Vatns-
leysu, og Þorvaldur Guðmundsson,
Minni-Vatnsleysu, ásamt bömum
sínum. Fisktækni hf. og norska
fyrirtækið Dragsnes Áleborg, sem
á 49% hlutaíjár. Stjómarformaður
er Eiríkur Tómasson.
Sæmundur Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði í
samtali við fréttaritara Morgun-
blaðsins, að hlutverk undirbúnings
félagsins væri að kanna og rann-
saka aðstæður og þá möguleika sem
landið hefur upp á að bjóða. Þessum
rannsóknum á að vera lokið fyrir
1. maí nk. Á þeim niðurstöðum er
þá liggja fyrir verða ákvarðanir um
laxeldisstöð teknar.
Hugmyndir eru um stóra stöð,
en þar fari fram seiðaeldi, eldi í
kerjum og hafbeit.
EG.
I aðalhlutverki:
Mjólk
Næringarefni fæðunnar gegna hvert um sig ákveðnu
hlutverki í líkamsstarfseminni. Hlutverkin eru
misjafnlega mikilvæg, en öll verða þau að vera vel
skipuð eigir þú að halda heilsu.
• Ef t.d. A-vitamín vantar i fæðuna verða ýmsar
sjúklegar breytingar á húð, í augum og slímhúð.
• B-vítamínskorturá háu stigigetur valdið alvarlegum
truflunum á taugakerfi.
• Ef kalk vantar í fæðuna eykst stórlega hætta á
beinþynningu, og þar með beinsjúkdómum og
beinbrotum.
• Ef kalíum, magníum og kalk vantar í fæðuna eykst
jafnframt hættan á of háum blóðþrýstingi (háþrýstingi).
Öll þessi efni verða að vera í fæðu okkar. Og það er
einfalt í framkvæmd: Mjólk er rík af öllum þessum
efnum og ein af mikilvægustu uppsprettum þeirra í
daglegri fæðu okkar.
Edda Heiðrún Backman leikkona veit sitt af hverju um
hlutverkaskipan. Hún veit t.d. að með því að drekka
u.þ.b. 2 mjólkurglös á dag eru nokkur af lykilhlutverkum
daglegs mataræðis vel skipuð.
Edda Heiðrún drekkur mjólk á hverjum degi - ískalda,
frískandi mjólk, fulla af næringarefnum. Fá þú þér líka!
MJÚLKURDAGSNEFND
Mjólk er nýmjólk, léttmjólk og undanrenna.
Mjólk fyrir alla
eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson
Fáar ef nokkrar algengar fæöutegundir eru eins góðar
uppsprettur fyrir bætiefni og mjólk. Hún er í flokki
örfárra alhliða næringarefnagjafa, og yfirburðafæða t.d.
fyrir bein, tennur, húð, hár og taugakerfi.
Börn og unglingar ættu að nota allan mjólkurmat eftir
því sem smekkur þeirra býður.
Fullorðnir ættu á hinn bóginn að halda sig við fituminni
mjólkurmat, raunar við magra fæðu yfirleitt. 2
miólkurglös á dag eru hæfilegur lágmarksskammtur á
dag ævilangt. Mundu að hugtakið mjólk nær yfir
léttrrúólk, undanrennu og nýmjólk.
Askriftarsíminn er 83033
596 jb — vis/NvisnNOWvoNisjnonv E)