Morgunblaðið - 12.02.1986, Page 1
56 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
35. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR12. FEBRÚAR1986
Prentsmiðja Morgfunblaðsins
„Líkamann má hlekkja
en ekkí mannsandann“
Berlín,TelAviv, U.febrúar. AP.
SOVÉSKI andófsmaðurinn og
gyðingurinn Anatoly Shcharan-
sky gekk yfir Glienicke-brúnna
milli Vestur-Berlínar og Pots-
dam í Austur-Þýskalandi í dag
og hvert spor sem hann skildi
eftir á snævi þakinni jörðinni
markaði áfanga í freisisátt. Þar
með var endi bundinn á níu ára
fangelsisvist, sem varð eitt um-
talaðasta mannréttindamál í
heimi.
„Hann var frá sér numinn af
fögnuði yfir frelsinu. Hann hló og
gerði að gamni sínu," sagði sendi-
herra Bandaríkjanna í Vestur-
Þýskalandi, Richard Burt, eftir að
skiptin höfðu farið fram.
Átta klukkustundum eftir að
hann var látinn laus kom Shcharan-
sky til Israels. Við komuna þangað
sagði hann: „Ég á erfitt um mál
núna. Ekki aðeins vegna fákunn-
áttu minnar í hebresku heldur
vegna tilfinninga, sem engin orð fá
lýst.“ Þegar hann var spurður um
framtíðaráætlanir sínar svaraði
hann: „Mig langar til að lifa kyrr-
látu lífi með konu minni.“
Um Sovétmenn sagði Shcharan-
sky: „Ég veit ekki hvað hefur gerst
undanfama daga, en ég veit hvað
þeir hata okkur (andófsmenn af
gyðingaættum). Og ég veit að þeir
óska að þessi dagur hefði aldrei
risið.“
Shcharansky og Shimon Peres,
forsætisráðherra Israels, töluðu við
Reagan, Bandaríkjaforseta, í beinni
sjónvarpsútsendingu og óskaði
Reagan Shcharansky til hamingju.
Það er hægt að setja líkamann
í hlekki, en það er ekki hægt að
fangelsa mannsandann, sagði
Peres og kvað Shcharansky bera
því órækt vitni.
Skipt var á Shcharansky og
þremur njósnurum Austantjalds-
landanna annars vegar og fimm
njósnurum Vesturveldanna hins
vegar. Að ósk Bandaríkjamanna
gekk Shcharansky einn yfir brúna
Sovéski andóf smaðurinn Shcharansky kominn til ísraels
AP/Símamynd
Sovézki andófsmaðurinn Anatoly Shcharansky og Avital kona hans sjást hér brosandi og hamingjusöm
skömmu eftir komu þeirra til Ben Gurion-flugvallar í ísrael í gær.
líkur á því að Andrei Sakharov yrði
látinn laus ef viðbrögð Vesturveld-
anna við því að Shcharansky var
sleppt yrðu j ákvæð.
Eftir stutta töf á Tempelhof-
flugvelli í Vestur-Berlín flaug
Shcharansky til Frankfurt þar sem
fagnaðarfundir urðu með honum
og konu hans, Avital. Frú Shchar-
ansky kom til Frankfurt tæpum
tveimur klukkustundum á undan
manni sínum.
Að sögn Wolfgangs Schwalm,
talsmanns flugvallarstjóra, báðu
bæði bandarísk og ísraelsk yfírvöld
um að ekki yrði greint frá fundum
þeirra hjóna og sagði Schwalm
aðeins að þau hefðu heilsast.
Á flugvellinum í Frankfurt var
Shcharansky afhent ísraelskt vega-
bréf. Hann sótti um israelskan ríkis-
borgararétt 1974 og fékk hann um
hæi.
Frá Frankfurt héldu Shcharan-
sky-hjónin til Tel Aviv þar sem
höfðinglega var tekið á móti þeim.
Fangaskiptin tóku þrjá stundar-
fjórðunga. Hinir fangamir, sem
sleppt var til Vestur-Berlínar, flugu
til Munchen til yfirheyrslna hjá
vestur-þýsku leyniþjónustunni.
Sjá einnig „Fangaskiptin á
Glienicke-brú“ á siðum 24 og
25.
til að leggja áherslu á sérstöðu
hans í þessum skiptum.
Shcharansky hafði engan far-
angur meðferðis við komuna til
Vestur-Berlínar og hann fékk ekki
að vita fyrr en við komuna til
Austur-Berlínar að hann yrði látinn
laus. Andófsmaðurinn lét vel af sér
og kvartaði ekki undan heilsubresti.
Fregnir höfðu borist af því að heilsu
Shcharanskys hefði hrakað í fanga-
vistinni.
Þetta er fyrsta sinn, sem fjölmiðl-
ar hafa fengið að fylgjast með
fangaskiptum milli austurs og vest-
urs á Glienicke-brúnni.
Austur-þýski lögfræðingurinn
Wolfgang Vogel, sem skipulagði
brottför Shcharanskys, sagði góðar
Kosningarnar á Filippseyjum:
Talning tefst á þingi
enn ókyrrt í landinu
Manila, 11. febrúar. AP.
ÞJÓÐÞING Filippseyja gerði sig
i dag líklegt til að hefja talningu
atkvæða í forsetakosningunum á
föstudag. Hætt var við talning-
una áður en eitt einasta atkvæði
Shcharansky við komuna til Tel Aviv:
Gleymum ekki öllum
hinum sem eftir urðu
ÞETTA var mjög hátíðleg
stund og þrungin sterkum til-
finningum. Shcharansky var
klökkur við komuna, svo að
hann átti erfitt um mál í fyrstu.
En síðan brutust út mikil fagn-
aðarlæti og mannfjöldinn tók
að syngja hástöfum.
Þannig lýsti Björgólfur Gunn-
arsson í Tel Aviv komu Anatolys
Shcharanskys til Ben Gurion-
flugvallar þar, en hann kom þang-
að síðdegis i gær. Um 5.000
manns voru á flugvellinum til
þess að fagna Shcharansky,
þeirra á meðal Shimon Peres,
forsætisráðherra ísraels, og Yitz-
hak Shamir, utanríkisráðherra.
„Ég er innilega glaður yfír að
vera kominn," sagði Shcharansky,
en bætti síðan við með áherzlu
alvarlegur í bragði: „En gleymum
ekki öllum hinum, sem eftir urðu.“
Shcharansky lét ekki frá sér
fara neina yfirlýsingu á flugvellin-
um, en lét í ljósi þakklæti til þeirra
mörgu, sem barizt höfðu fyrir
frelsi hans, sagði Björgólfur
Gunnarsson að lokum.
hafði verið talið vegna þess að
meirihluti þingmanna var fjar-
verandi. Bandariska sendinefnd-
in, sem i gær sneri heim frá
Filippseyjum, greindi Reagan,
Bandarikjaforseta, frá ofbeldi
og kosningasvikum og sagði að
Marcos, forseti, væri greinilega
fær um að ráða úrslitum kosn-
inganna.
Corazon Aquino, mótframbjóð-
andi Marcosar, bað í dag „vini sína
erlendis" um að hjálpa sér að halda
sigri sínum og sagði að það yrðu
mistök að styðja „fallvaltan ein-
ræðisherra". Marcos sakaði Coraz-
on um að sýna „bamalegt bráð-
lyndi".
Kosningastjóri Corazon í Anti-
que-héraði, Evelio Javier, var í dag
skotinn til bana fyrir utan ráðhúsið
í héraðinu.
98 þingmenn þarf til að ákvörð-
unarbær meirihluti sé á þinginu í
Manila. Er leið á daginn hurfu
þingmenn stjómarandstöðunnar úr
þingsölum á fund Corazon og varð
að fresta talningu atkvæða þangað
til á morgun, miðvikudag.
Kosninganefnd ríkisstjómarinn-
ar, Comelec, segir nú að Marcos
hafí 52 prósent fylgi og Corazon
48 prósent eftir að talin hafí verið
atkvæði í 53 prósentum kjördæma.
Namfrel, samtök óháðra borgara,
sem beijast fyrir heiðarlegum kosn-
ingum, segja aftur á móti að Coraz-
on hafí hlotið 52 prósent atkvæða
og Marcos 48 prósent eftir að talin
hafí verið atkvæði í 64 prósentum
kjördæma.
Formenn bandarísku sendinefnd-
arinnar, sem fór til að fylgjast með
kosningunum á Filippseyjum, vildu
ekki ganga svo langt. að segja
kosningamar ómarktækar vegna
misferlis er þeir greindu Reagan
frá eftirlitsför sinni.
„Við ætlum ekki að segja neitt,
sem Marcos gæti fært sér í nyt til
að lýsa kosningamar ógildar," sagði
Richard Lugar, öldungadeildarþing-
maður og annar formanna sendi-
nefndarinnar.
Sjá einnig „Cory hefur vakið
okkur. . . “ á síðu 15.