Morgunblaðið - 22.02.1986, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.02.1986, Qupperneq 2
2 MÓRCUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR19ÍÍ6 * Utför Gunnlaugs Halldórssonar Pjölmenni var við útför Gunnlaugs Halldórssonar arkitekts sem gerð var frá Bessastaðakirkju í gær. Meðal viðstaddra var forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir. Séra Bragi Friðriksson jarðsöng. Vík í Mýrdal: Prj ónastofunni Kötlu lokað vegna gjaldþrots Vík I Mýrdal, 21. janóar. PRJÓNASTOFUNNI Kötlu var lokað í kvöld vegua gjald- þrots. Starfsfólkið kom til vinnu sinnar í morgun án þess að vita um þetta og vann sín störf í dag. Það var svo í lok vinnudags að starfsfólkinu var sagt frá fyrirhugaðri lokun. Dyr pijónastofunnar voru innsiglaðar í kvöld. Hjá Kötlu störfuðu 5 karlmenn í heilsdagsvinnu, 5 konur í heils- Sjálfstæðismenn á Akureyri: dagsvinnu og 20 konur í hálfs- dagsvinnu. Þetta er um 20-30% vinnufærs fólks í Vík. Erfíðleikar höfðu steðjað að prjónastofunni um nokkurt skeið, en heimamenn höfðu vonað að úr rættist. Pijónastofan Katla var sett á stofn fyrir u.þ.b. 15 árum. Þar voru aðallega framleiddar peysur fyrir erlendan markað. Prófkjör um helgina PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar í vor fer fram í dag og á morgun. Kosið er í skrifstofu Sjálfstæðis- flokksins í Kaupangi við Mýrarveg og er kjörstaðurinn opinn frá kl. 10.00 til kl. 20.00 báða dagana. Þeir hafa atkvæðisrétt í þessu próf- kjöri sem eru félagar í Sjálfstæðis- félögunum á Akureyri og hafa náð 16 ára aldri prófkjörsdagana. Þrettán manns taka þátt í próf- kjörinu. Þeir eru: Tómas Gunnars- son, Bjöm Jósef Amviðarson, Einar S. Bjamason, Gunnar Ragnars, Sturla Kristjánsson, Sigurður J. Sigurðsson, Jón Kr. Sólnes, Guð- finna Thorlacius, Bergljót Rafnar, Eiríkur Sveinsson, Bárður Halldórs- son, Steindór G. Steindórsson og Björg Þórðardóttir. UMFERÐARSLYS varð rétt fyr- ir klukkan sex í gær við bæinn Narfastaði í Viðvíkursveit. Bif- reið af Subaru-gerð fór út af veginum og valt. Konan sem ók bílnum skarst mikið i andliti og Nokkuð atvinnuleysi var fyrir í Vík. Kaupfélagið hafði nýlega sagt upp fólki. Nú eru sex tiltölulega ný hús til sölu í þorpinu. Eigendur þeirra höfðu hug á að flytjast á brott, en hafa ekki getað það vegna þess hve erfíðlega gengur að selja húsin. var flutt á Sjúkrahúsið á Sauðár- króki. Að sögn lögreglunnar var konan ein í bílnum og er ekki vitað með hvaða hætti slysið vildi til. Bíllinn er stórskemmdur eða jafnvel ónýtur. R.R. Bílvelta í Viðvíkursveit Svartur dagnr hjá íslensku stórmeisturunum NÍUNDA umferð var tefld á Reykjavíkurskákmótinu á Hótel Loftleiðum í gærkveldi. Mikill fjöldi áhorfenda fylgdist með spennandi skákum, sérstaklega viðureign Jóhanns Hjartar- sonar og Helga Ólafssonar og Tals og Hansens. Tal og Hansen tefldu flókna skák og reyndist „gamli maður- inn“ kunna betur við sig í flækjun- um. Hansen tapaði þar með sinni fyrstu skák í mótinu og mótið verður nú mjög jafnt og spenn- andi. Jóhann og Helgi tefldu sömu byijun og á Reykjavíkurskákmót- inu fyrir tveimur árum en nú skiptu þeir um liti. Jóhann vann öruggan sigur nú með hvítu eins ogHelgi gerði 1984. Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Helgi Ólafsson Katalónsk byrjun 1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3 - d5, 4. g3 — dxc4, 5. Bg2 — c5,6.0-0 — Rc6, 7. Da4 Hvítur leikur oft hér 7. Re5 en Jóhann býður Helga að endurtaka skák þeirra frá Reykjavíkurskák- mótinu 1984 en þá skák vann Helgi með hvítu. 7. — cxd4 Önnur leið er hér 7. — Bd7, en öllum á óvart endurtekur Helgi byrjun fyrmefndar skákar við Jóhann frá 1984. 8. Rxd4 — Dxd4, 9. Bxc6+ — Bd7, 10. Hdl - Dxdl+, 11. Dxdl - Bxc6,12. Rd2 - b5 í margnefndri skák, Helgi — Jóhann 1984 varð framhaldið 12. - c3, 13. bxc3 - 0-0-0, 14. Db3 - Bc5, 15. Rf3 - Re4, 16. Rd4 - Hxd4, 17. cxd4 - Bxd4, 18. Hbl - Bxf2+, 19. Kfl - h5, 20. Bf4 - g5, 21. Bxg5 - h4, 22. gxh4 — Bxh4, 23. Db2 — f6, 24. Bxh4 - Hxh4, 25. Hcl - Kc7, 26. Da3 - Rd6, 27. Dg3 - Hh5, 28. Hdl - Bd5, 29. Dg7+ - Kc6, 30. Hcl+ - Bc4, 31. Dg4 - Hf5+, 32. Kel - b5, 33. h4 - e5, 34. h5 - Hf4, 35. Dg2+ - Kb6, 36. h6 - Re4, 37. h7 - Hh4, 38. h8D og svartur gafst upp. 13. a4 — Be7, 14. axb5 — Bxb5, 15. Rxc4 -0-0 Betra en 15. — Bxc4, 16. Da4+ - Rd7,17. Dxc4 o.s.frv. 16. b3 - Hfc8 Eðlilegra er að taka d-línuna með 16. - Hfd8 17. Ba3 — Bxa3,18. Rxa3 — Ba6 Enn gat svartur leikið 18. — Hd8, og síðan 19. — Ba6 19. Rc2 - Bb7, 20. Re3 - h6, 21.f3 —Bd5 Svartur hefði leikið 21. — a6 ásamt — Hd8 ásamt — Hac8. 22. b4 - Hcb8,23. Dd4 Hvíta drottningin stendur mjög vel á d4. Svarta staðan er nú orðin erfíð. Hvítur hótar Hxa7 og g4, h4ogg5. 23. - Hb7, 24. g4 - Hab8, 25. Hxa7 ~ Hxbl Betra var 25. — Hxa7, 26. Dxa7 — Hxb4, 27. h4 og hvítur stendur betur en vöm svarts er auðveldari eftir hrókakaup. 26. Dc5 - Hb2,27. Kf2, - Hf8 Svartur hefði átt að leika 27. — H2b7 28. h4 — Ba8, 29. g5 — hxg5, 30. hxg5 - Rd4, 31. Da3 - Hbb8 Ekki 31. - Rxe3, 32. Hxa8 (ekki 32. Dxb2 — Rdl+) og allir menn svarts standa í dauðanum. 32. g6 - Bc6, 33. gxf7+ - Hxf7,34. Dd6 og svartur gafst upp því biskupinn á c6 og hrókurinn á b8 em báðir í dauðanum og eftir 34. — Hc8, 35. Dxe6 er svartur vamarlaus. Staðan á mótinu er nú mjög spennandi: 1,—6. Jóhann Hjartar- son, Tal, Hansen, Larsen, Salov og Gheorghiu, allir með 6 V* vinning, 7. Nikolic 6 v. og biðskák (jafnteflisleg). Urslit 9. umferðar í gærkvöldi Mikhail Tal — Curt Hansen 1—0 Florin Gherghiu — Bent Larsen >/2—V2 Anthony J. Miles — Predrag Nikolic Bið Jóhann Hjartarson — Helgi Ólafsson 1—0 Robert Byrne — Efim Geller V*—V* Seigey Kudrin — Valery Salov 0—1 Jón L. Ámason — Larry Christinansen 0— 1 Guðmundur Siguij.son — NickDeFirm. 0—1 Samuel Reshevsky — Lev Alburt 0—1 Miguel A. Quinteros — Michael Wilder Vt—*/t Karl Dehmelt — Joel Benjamin 1—0 Harry Schussler — Maxim Dlugh >/2—V2 Thomas Welin — Anatoly Lein 0—1 Kari Þorsteins — Margeir Pétursson 0— 1 Jouni Yijola —JohnP. Fedorowicz ‘/2—>/t Paul va der Sterren — John W. Donaldson 1—0 Utut Adianto — Yasser Seirawan Bið Antti Pyhala — Walter Browne Bið Gert Lighterink — Þorsteinn Þorst.son 1—0 Vitaly Zaltsman — Bragi Halldórsson 1 —0 Þröstur Þórhallsson — Carsten Hoi 1—0 Jens Kristiansen — Eric Schiller 0—1 Boris Kogan — Karl Burger l _o Davíð Ólafsson — Guðmundur Halld.son 1—0 Andrew Karklins — Björgvin Jónsson 0—1 Hannes H. Stefánsson — Hans Jung V2—V2 Sævar Bjamason — Ásgeir Þór Ámason 1—0 Ólafur Kristj.son — Larry A. Remlinger 0—1 Róbert Harðarson — Lárus Jóhannesson Bið Haukur Angantýsson — Dan Hansson V2—V2 Hilmar Karlsson — Jón G. Viðarsson V2—V2 Guðmundur Gíslas. — Benedikt Jónass. 0—1 Haraldur Haraldss. — Jóhannes Ágústss. 0—1 Juerg Herzog — Kristján Guðmundsson Bið Þröstur Ámason — Leifur Jósteinsson Bið Ámi Árm. Ámason — Áskell ö. Kárason 1—0 Halldór Gr. Einarsson — Tómas Bjömss. 0-1 67 tilboð bárust í „raðsmíðaskipin“ fjögur; Siglunes hf. bauð 190 miljónir í skipið hjá Þorgeiri og Ellert hf. HÆSTA tilboð sem barst í raðsmíðaskipin, sem í smíðum eru hjá Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi, Slippstöðinni hf. á Akureyri og Stálvík hf. í Garðabæ, var 190 milljónir króna. Það kom í skipið sem í smíðum er hjá Þorgeir og Ellert og var frá Siglunesi hf. í Grundarfirði. Tilboðin voru opnuð í gær. Alls bárust 62 tilboð í skipin fjögur og buðu ýmsir aðilar í fleiri en eitt skip. 19 tilboð bárust í nýsmíði númer 67 hjá Slippstöð- inni, sem er síðara skipið sem þar er í smíðum 17 tilboð voru gerð í skipið hjá Þorgeir og Ellert og 13 tilboð bárust í bæði Stálvíkur- skipið og nýsmíði númer 66 hjá Slippstöðinni. „Það eru ýmsir fyrirvarar á sumum tilboðum og einnig bárust fráviks tilboð sem þarf að skoða nánar. Þá eru mjög mismunandi greiðslur sem boðnar eru þannig að ekki er hægt að sjá strax hvaða tilboð eru hagstæðust," sagði Þorleifur Jónsson, framkvæmda- stjóri Landssambands iðnaðar- manna, í samtali við Morgun- blaðið í gær, en tilboðin voru opnuð á skrifstofu félagsins. Skip- in voru boðin út sem 38,7—38,9 metrar á lengd. Öll voru þau upphaflega 35 metrar en Slipp- stöðvarbátamir hafa verið lengdir og hinir bíða lengingar. Skipin em hugsuð sem rækjuskip og verða með frystibúnaði. Hæsta tilboð sem barst var 190 milljónir króna sem áður sagði, en það lægsta hljóðaði upp á 101 milljón. Hæstu tilboð í Slippstöðv- arbátana var 180 milljónir og 600 þúsund krónur og vom þau frá sama aðilanum, Sæbliki hf. á Kópaskeri. Hæsta tilboð í Stálvík- urskipið var 161 milljón króna frá Særúnu hf. á Blönduósi og fleirum. Þau tilboð sem bámst í skipin vom frá eftirtöldum aðilum og sumir buðu í fleiri en eitt skip eins og áður sagði: Vogur hf. Djúpavogi, ON Ólsen og rækju- vinnslan Vinaminni, ísafírði, ON Ólsen hf. og Gunnar Þórðarson, ísafírði, Skagstrendingur hf., Skagaströnd, Dögun hf., Sauðár- króki, Særún hf. og fleiri, Blöndu- ósi, KJ. Jónsson og Co. hf. Akur- eyri, Sigló hf., Siglufírði, Útgerð- arfélagið Barðinn, Kópavogi, Út- gerðarfélag Norður-Þingeyinga, Þórshöfn, Sæblik hf., Kópaskeri, Útgerðarfélag Kópaskers hf., Suðurvör hf., Þorlákshöfn, Út- gerðarfélagið Þór hf., Eskifírði, Arver hf. Arskógshreppi og Sval- barðsstrandarhreppur, Bragi Bjamason og fleiri, Höfn í Homa- fírði, Siguijón Óskarsson, Vest- mannaeyjum, Ljósavík sf., Þor- lákshöfn, Útvegsmiðstöðin hf., Keflavík, Hraðfrystihús Gmndar- fjarðar hf., Siglunes Hf., Gmndar- fírði, Hlutafélagið Hlír, Rifí, Ós hf., Vestmannaeyjum, Rækju- verksmiðjan Hnífsdal, Útgerðar- félagið Jarl hf. og fleiri, Keflavík, og íshaf sf. á Tálknafirði. Þorleifur Jónsson sagði stöðv- amar nú hafa tilboðin til umfjöll- unar hver um sig. „Síðan verður vafalaust rætt við stjómvöld. Út- boðið var gert í samráði við þau,“ sagði hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.