Morgunblaðið - 22.02.1986, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.02.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1986 Hver er „fullvirðis- réttur“ bóndans? eftirHalldór Gunnarsson Þannig er spurt á nær hveiju sveitaheimili landsins um þessar mundir. Ástæðan er reglugerð um stjóm mjólkurframleiðslunnar verð- lagsárið 1985—1986, sem birt var 22.janúar sl. Þessi reglugerð er flókin í fram- setningu, enda mun ekki koma í ljós fyrr en í apríl—maí hver endan- legur framleiðsluréttur bóndans verður og má þá segja að sumarið sé eitt eftir til stjómunar á mjólkur- framleiðslunni, sem þýðir í raun fyrir bóndann að hann verður að skera niður nýbomar hámjólka kýr. Þeir sem í forsvari eru segja að þetta hafi mátt sjá fyrir og að allt sé betra en að framleiða verðlausa mjólk. Á þessu erfiða og viðkvæma máli eru þó fleiri fletir, sem nauðsynlegt er að hafa í huga: Búmark jarða var sett á 1979 eftir að tekið hafði verið tillit til framleiðslu á jörðum árin áður. Búmarkið var ákvarðað í ærgildis- afurðum og skipt upp í framleiðslu- rétt á mjólk, nautgripakjöti og sauðflárafurðum. Framleiðslunni átti síðan að stjóma eftir þessu búmarki með því að greiða aðeins fullt verð á framleiðslu innan bú- marks. Eins og vænta mátti tók mikill meirihluti bænda mark á þessum ráðstöfunum og minnkaði verulega við sig í framleiðslu. Hins vegar hefur komið á daginn að það gerðu ekki allir bændur og þegar þeir fengu nær fullt verð fýrir fram- leiðslu sína fóru aðrir bændur að auka við mjólkurframleiðsluna. Að auki opnuðu stjómvöld heimild þá- gildandi laga um rýmkun búmarks á jörðum þannig að búmarksréttur í mjólk fór úr um 120 milljónum lítra upp í um 140 milljónir lítra. Þessar varhugaverðu stjómunarað- gerðir á árunum frá 1980 til 1984 vom ekki bændum að kenna og kölluðu að auki á nýjar stjómunar- aðgerðir til að hindra aukningu mjólkurframleiðslunnar, eða álagn- ingu kjamfóðursskatts, sem varð enn til að. auka erfiðleika bænda við mjólkurframleiðsluna. í haust þegar forsvarsmenn boðuðu samdrátt í mjóikurfram- leiðslunni með nýjum reglum um svæðabúmark var rætt um nauðsyn 3—5% samdráttar frá síðasta verð- lagsári og eins að búmarksréttur í mjólkurframleiðslu myndi vera ná- lægt 75% á þessu verðlagsári. Bændur sem voru innan við þessi mörk töldu sig því geta aukið fram- leiðslu sína að þessu marki. Aðrir bændur gátu höfðað til fyrri ákvarðana um stjómun mjólkur- framleiðslunnar og ákveðið að taka ekki mark á nýju búmarki, sem héti nú fullvirðisréttur, til mjólkurfram- leiðslu á verðlagsárinu 1985/1986. Þá gátu einnig þeir bændur, sem fengu leyfi til að stofna til dýrra fjárfestinga á þessum árum, óhræddir haldið áfram að auka sína mjólkurframleiðslu. Þannig hefur mjólkurframleiðslan aukist vera- lega á þessu verðlagsári og einnig vegna góðra heyja, einkum á Suð- urlandi. Hver er þá raunveralegur full- virðisréttur bóndans í dag eða rétt- ara sagt mismunandi lækkun á búmarksrétti? Það veit í raun eng- inn, því stjórnin hefur farið úr böndum og bændur geta ekki leng- ur treyst á réttlæti búmarks eða fullvirðisréttar til framleiðslu. Veit ég vel, að reynt hefur verið að koma til móts við nær öll sjónarmið sem uppi hafa verið en þá getur stundum farið svo að maðurinn verði að bera asnann, eins og dæmisaga Esóps greindi frá. Að búa til nýja viðmiðun, svokall- aðan „þrífót" með möguleikum á „Bændur verða að treysta því að þeir fái að njóta „fullvirðisrétt- ar“ sem sjálfstæðir þegnar þessa lands, þar sem eignarrétturinn er virtur.“ enn frekari útjöfnun, kallar á sam- anburð bænda í nágrenni, miili hér- aða og milli landsfjórðunga, þar sem stutt kann að verða í mikinn ágreining eða átök, því ekkert minna en lífsviðurværi er í húfí, réttur einstaklingsins tii að lifa á sinni jörð og fá að lifa af sínum áunna búmarksrétti, sem á að vera lögvemdaður réttur, að því er best verður séð. Vegna þessarar framvindu horf- ast margir bændur nú í augu við verulega meiri skerðingu í fram- leiðslu á mjólk en Qailað hefur verið um, eða allt upp í 30—40% sem þýðir að þeir eiga ekkert að fá fyrir mjólkina sumarmánuðina þegar hún er ódýrust í framleiðslu. Bænd- ur hafa hlýtt kalli um að færa til gangmál kúnna og framleiða meiri mjólk að hausti og vetri. Þetta hefur verið til muna dýrara og er f dag ónýt fjárfesting eins og svo oft áður fyrir bóndann, sem hefur hlýtt kalli ráðunautaþjónustu og forsvars- manna. Þessi framvinda er útilokuð f framkvæmd. Þetta er ekki eins og að binda bát í höfn, sem hefur veitt upp í sinn kvóta. Bændur verða að geta treyst því að þeir fái að njóta „fullvirðisréttar" sem sjálfstæðir þegnar þessa lands, þar sem eignar- réttur er virtur. í þessari erfiðu stöðu verða bændur að koma saman og móta sínar tillögur til úrlausnar í þessum vanda. Ekki mega bændur ætla öðram það hlutverk. Ég vil leyfa mér að setja fram eftirfarandi atriði sem skoðist f leit að lausn vandans: 1. Þegar í staði verði boðað til aukafundar Stéttarsambands bænda, sem móti tillögur til stjóm- valda um úrlausn, þar sem f algjört óefni er komið. Skyrtur, bolir, peysur, galla- buxur, jakkar á dömur, herra og börn. Gæða- framleiðsla á góðu verði til heildsala. Upplýsingar í síma DK 90457122385. 2. Kannað verði hvort stjómvöld séu tilbúin til að taka þátt í veru- legri lækkun mjólkurafurða og bæta með því hag neytenda og lækka verðbólgu. Það verð sem bændur leggja fram gæti verið hluti verðmiðlunargjalds, allt að 50 millj- ónir á verðlagsárinu til þessarar lækkunar. Kjamfóðurgjald, sem nú innheimtist vegna framleiðslu í nautgriparækt, verði allt nýtt til lækkunarinnar. Einnig verði kann- að hvort ekki sé rétt að sameina Stofnlánadeild landbúnaðarins Búnaðarbankanum, þar sem hún þjónar ekki lengur neinum tilgangi umfram það sem aðrar bankastofn- anir geta gert og um leið leggja niður framlag mjólkurframleiðenda til Stofnlánadeildarinnar, sem myndi skila 80—100 milljónum í heild af nautgripaafurðum til þess- arar lækkunar. Á sama hátt verði athugað hvort ekki megi leggja niður Bjargráðasjóð landbúnaðar- ins, en í þess stað bjóða út trygging- ar fyrir landbúnaðinn, sem bændum væri frjálst að taka, og spara þann- ig ef til vill allt að helming þessa gjalds, sem nú er 0,60% af allri landbúnaðarframleiðsluni og leggja þennan sparnað í mjólkurfram- leiðslunni fram til lækkunar í verði til neytenda. Halldór Gunnarsson 3. Vegna lækkunar á verðmiðlun- argjaldi verði þeim bændum gefíinn kostur á búháttabreytingum með stuðningi Framleiðnisjóðs, sem þetta myndi koma harðast niður á. Kannað yrði hvort bændur á beztu markaðssvæðum mjólkurfram- leiðslunnar myndu vilja skipta á sauðfjárbúmarki og mjólkurbú- marki til að stuðla að þessum breyt- ingum. 4. Sérstök skoðun fari fram á bú- skap þeirra bænda sem hófu hefð- bundinn búskap eftir 1980 og þeim bændum, sem útilokað er að haldi áfram vegna § ármagnskostnaðar, verði gert kleift með veralegum fjárframlögum úr Framleiðnisjóði að hætta búskap eða heíja annan búskap en hinn hefðbundna. 5. Ríkisstjóm íslands verði beðin um að heQa samninga eftir stjóm- málalegum leiðum við stjómvöld í Bandaríkjunum um kaup á öllum mjólkurafurðum á Keflavíkurflug- velli og um opnun á innflutnings- kvóta á ostum. Eins og kunnugt er fengum við mjög gott verð fyrir Óðalsost til Bandaríkjanna eða um 75% af grandvallarverði og ef við gætum opnað dyr til þeirrar verzl- unar á ný myndi það stórlega bæta þann vanda sem við er að etja í dag. 6. Sú aukning á sölu, sem framan- greindir þættir gætu stuðlað að, verði nýtt til rýmkunar á fram- leiðslurétti mjólkur á þessu og næsta verðlagsári, þannig að t.d. 5% umfram fullvirðismark verði greidd á 90% verði, 5 til 10% verði greidcl á 80% verði o.s.frv. 7. Ákvörðun smásöluálagningar á búvörar verði tekin upp að nýju þar sem hin fijálsa álagning hefur leitt til ómældrar hækkunar til neyt- enda. 8. Bændur verða að fá fram á þessu Alþingi lagaheimild fyrir lokun stéttarinnar. Með niðurlagningu Stoftilánadeildar landbúnaðarins yrði komið í veg fyrir þau mistök, sem hafa orðið síðustu ár, að leyfa uppbyggingu með lánum á jörðum, sem síðan hefur kallað á stóraukið búmark. Um tíma verður að stöðva alla búmarksaukningu í hvaða formi sem er og reyna þannig að nálgast á ný það að fullvirðisréttur í framleiðslu og búmark jarða fari saman. Höfundur er sóknarpreatur l Holti undir Eyjafjöllum og fuUtrúi i Stéttarsambandafundi bænda. H öfóar til fólksíöllum starfsgreinum! ÞVið EIGUM AFMÆLI V FÆRD GJÖFINA! Árið 1986 markar tímamót í sögu skoda á íslandi, því nú eru iiðin 40 ár f rá því fyrsti SKODA bíllinn kom til landsins. Af því ánægjulega tilef ni færa SKODA verksmiðjurnar okkur íslendingum veglega afmælisgjöf: 2 ára ábyrcð á öllum skoda bflum af 1986 afmælisárgerðinni. Það var árið 1946 sem fyrstu SKODA bilarnir komu til landsins. Síðan hafa þeir notið sivaxandl vinsælda, sem sést best á Dví að i f jölda ára hef ur markaðs- hlutfall SKODA hvergi veriö hærra í V-Evrópu en einmitt á islandi. Þetta atriði, ásamt pví að Jöfur hf. er eisti umboðsaðili skoda á vestur- löndum, hefur leltt til pess að viö höfum getaö boðið SKODA bilana á besta veröinu sem pekkist í v-Evrópu. Það er pvi ekki alveg að ástæöu- lausu að okkur íslendingum er færð pessi veglega afmælisgjöf. En paö er margt fleira en gott verö og 2 ára ábyrgð sem gera SKODA að bestu bilakaupunum. Líttu aðeins á kostina: SKODA er sterkur Hann er vel smíðaður, úr þykku stáli og með firnasterku lakki. Allir SKODA bilar eru seldir með 6 ára ryövarnar- ábyrgð. SKODA er sparneytirm Aö jafnaöi er eyðslan aðeins rúm- lega 7 lítrar/100 km og alveg niður i 4,88 litra/100 km i sparakstri. SKODA er rúmgöður Sætin eru vönduð og svo er bíllinn hár til lofts. Það fer þvi vel um þig i SKODA. SKODA er þægilegur i akstri Hann er með sjálfstæöa fjöðrun á öllum hjólum, aflhemla og tannstang- arstýri — svolítið sem þú færð venju- lega bara i mun dýrari bilum. Aldrei betri bili — aldrei betra verð og nú 2 ÁRA abyrgð i kaup- bæti! JOFUR HF NYBYLAVECI 2 • SIMI 42600 SIUNGT FYRIRTÆKl A STOÐUGRl UPPLEIÐ! •»o|*»Bu!*A|0n« '|*a »J?d

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.