Morgunblaðið - 22.02.1986, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR1986
Öldruðum fjölgar
um 95% næstu þrjá-
tíu og fjögur árin
— en þjóðinni í heild um 13%
FÓLKI yfir sjötugt mun
fjölga um 95% næstu þrjátíu
og fjögur árin á sama tíma
og íslensku þjóðinni mun
aðeins fjölga um 13% ef að
líkum lætur. Þetta kom fram
í ræðu Ragnhildar Helga-
dóttur heilbrigðisráðherra á
fjölmennri ráðstefnu um
stofnanaþjónustu aldraðra á
Stór-Reykjavíkursvæðinu,
sem Öldrunarfræðafélag Is-
lands efndi til í Domus
Medica í gær.
inni myndi fjölga um aðeins
13%,“ sagði heilbrigðisráðherra.
„Þetta segir okkur að bregðast
þarf við í tíma með nýjum úrræð-
um fyrir aldraða. Vissulega von-
umst við til, að framfarir í heil-
brigðisþjónustu og sérstaklega
heilsuvemd muni tryggja þessari
öldruðu sveit hreysti í svo ríkum
mæli, að hlutfallslega færri en
nú þyrftu á stofnanavist að
halda," sagði Ragnhildur Helga-
dóttir.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra í
ræðustóli á ráðstefnu Öldrunarfræðafélags íslands um stofnanaþjón-
ustu aldraðra á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Fyrir miðju er Sigurveig
H. Sigurðardóttir yfirfélagsráðgjafi, sem var fundarstjóri, og lengst
til hægri er Ársæll Jónsson, formaður Öldrunarfræðafélagsins.
B-álma Borgarspítalans:
33 milljóna
niðurskurður
FRAMKVÆMDIR við B-álmu
Borgarspítalans á þessu ári
verða miklu minni en gert var
ráð fyrir. Hafði Borgarspítalinn
farið fram á 37 milljónir en á
fjárlögum eru aðeins ætlaðar 3
milljónir til B-álmu og rúmlega
‘/2 milljón kemur frá borginni,
sagði Gunnar Sigurðsson yfir-
læknir lyflæknisdeildar Borg-
arspitalans á ráðstefnu Öldr-
unarfræðafélagsins um stofn-
anaþjónustu aldraðra.
Fyrirhugað var að ljúka fyrstu
hæð sem átti að hýsa sjúkraþjálfun
og iðrjuþjálfun. Þá var gert ráð fyrir
að ljúka fjórðu hæð byggingarinnar
þar sem á að vera aðstaða fyrir
bæklunarlækningar aldraðra.
Einnig er ljóst, að ekki er unnt
að taka í notkun fleiri hæðir í
B-álmunni fyrr en komnar eru lyft-
ur í húsið og skiptiborð spítalans
er þegar of lítið.
í ræðu Ragnhildar kom fram,
að samkvæmt upplýsingum hag-
stofustjóra væru nú á Islandi um
16.900 manns yfír sjötugt. Árið
2000 væri líklegt, að sjötugir og
eldri yrðu um 22.000, „en eftir
34 ár eða árið 2020 verði í þess-
um hópi 32.100 manns. Sam-
kvæmt því hefði þá fólki yfír
sjötugt fjölgað um 95% frá því
sem nú er á sama tíma og þjóð-
Dagvistun aldraðra á
einkaheimilum athugandi
segir Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðisráðherra
RAGNHILDUR Helgadótt-
ir heilbrigðisráðherra
varpaði fram þeirri hug-
mynd í ræðu, sem hún hélt
i gær í Domus Medica á
ráðstefnu um stofnana-
þjónustu aldraðra á Stór-
Reykjavíkursvæðinu, að
einkaheimili tækju að sér
dagvistun aldraðra að ein-
hveiju leyti.
Ragnhildur sagði, að það vekti
bjartsýni, að Reykjavíkurborg
hefði ákveðið að tvöfalda framlög
til málefna aldraðra. „Dagvistun
hefur orðið vinsælt úrræði til að
gera öldruðum kleift að búa
lengur í heimahúsum," sagði
heilbrigðisráðherra. „Þörfínni
fyrir dagvistun er þó hvergi
nærri fullnægt. Mætti e.t.v.
hugsa sér nýja leið líkt og farin
var í dagvistun bama, er dag-
mæðrakerfíð kom til sögunnar.
Væri hægt að kanna möguleika
á skipulagningu á samstarfí hins
opinbera og einkaheimila, sem
gott húsrými og áhuga hafa til
að veita öldruðum dagskjól."
Ragnhildur sagði, að dagvist-
un í heimahúsum kynni að kalla
á námskeið fyrir aðstoðarfólk á
slíkum heimjlum. Hér væri að
vísu um sveitarstjómarverkefni
að ræða, en þó væri ljóst, að
vanda aldraðra yrði að leysa í
samvinnu ríkis, sveitarfélaga og
ekki síst einkaaðila. „Ég mun
biðja formenn félagsmálaráða á
Stór-Reykjavíkursvæðinu að
koma á næstunni til skrafs og
ráðagerða um þessar hugmynd-
ir,“ sagði félagsmálaráðherra í
ræðu sinni.
Áfangi í samningaviðræðum ASÍ og vinnuveitenda:
Lífeyrissj óðirnir borgi
helming niðurfærslunnar
Hugmyndir um að 630 milljóna verði aflað með banka-
skatti, auknum eignaskatti og niðurskurði til vegamála
TALSVERT miðaði í samkomu-
lagsátt um ýmis veigamikil
atriði í samningum ASÍ, VSÍ
og Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna i fyrrinótt.
Samkomulag hefur tekist um
lifeyrismál - þar sem eitt
meginefnið er að á næstu fjór-
um árum verði í jafn mörgum
áföngum farið að borga í lífeyr-
issjóðina af öllum launum — og
samkomulag um húsnæðismál
og fjármögnun lífeyrissjóðanna
á húsnæðislánakerfinu mun
vera skammt undan. Það sam-
komulag verða lífeyrissjóðirn-
ir, hver fyrir sig, að staðfesta
með aðild. AUvel þokaði í átt
til samkomulags um niður-
færsluleiðina svokölluðu, þ.e.
nákvæmri útfærslu á hvernig á
að koma verðbólgunni niður í
6-7% á árinu. Margt er þó óleyst
í samningaviðræðunum —
stærst af þvi er kauptrygging
og beinar launahækkanir. Um
þau atriði og fleiri átti að takast
á fundi, sem hófst kl. 19 i
gærkvöld. Rétt er að undir-
strika, að ekki verður gengið
frá neinum einstökum liðum
fyrr en heildarsamkomulag
hefur tekist.
„Ríkisstjórnar-
víxillinn“
Miklar umræður og mikil vinna
hefur verið lögð í „víxil ríkisstjóm-
arinnar" - tillögur til ríkisstjóm-
arinnar um niðurskurð í ríkis-
rekstrinum og hvemig megi fjár-
magna þær skattalækkanir, sem
samkomulags er leitað um. Gert
er ráð fyrir, samkvæmt upplýsing-
um, sem Morgunblaðið heftir aflað
sér, að „niðurfærsluleið" ASÍ og
vinnuveitenda kosti um 1.250
milljónir króna. Meðal þess, sem
helst hefur verið rætt um að hægt
væri að skera niður, og ætti að
skila sér fljótt og vel til launafólks
í landinu, er lækkun tekjuskatts,
útsvars, vaxta, bensínverðs, opin-
berrar þjónustu, verðjöfnunar-
gjalds á rafmagni, tolla af heimil-
istækjum, hjólbörðum og bílum
og fleiri vöruflokka.
40% álag á eignaskatt?
Hugmyndin er að lífeyrissjóð-
imir fjármagni helming þessara
aðgerða. Til að borga það sem
upp á vantar, þ.e. 620-630 millj-
ónir, hafa komið fram tillögur um
200 milljón króna niðurskurð
vegaframkvæmda, 40% álag á
eignaskatt, sem ætti að gefa um
330 milljónir og 7,5% launaskatt
á banka, lögfræðiþjónustu og
endurskoðunarþjónustu. Slíkur
skattur er talinn geta skilað um
100 milljónum króna og myndu
bankamir væntanlega þurfa að
taka á sig um 70% þeirrar upp-
hæðar. Ekki hafði í upphafí funda
í gærkvöld tekist samkomulag um
þessi atriði og ekki útséð um hver
niðurstaðan yrði.
„Tímamótasamþykkt“
um húsnæðismál
Nokkrar breytingar voru gerð-
ar á tillögum undimefndar um
húsnæðismálin, sem löng umræða
og talsverður meiningarmunur
varð um í samninganefnd ASÍ í
fyrrinótt og aðfaranótt fímmtu-
dagsins. Þegar fundi lauk á átt-
unda tímanum í gærmorgun vom
menn sammála um að skammt
væri í að samkomulag tækist.
Einn samningamanna lýsti sam-
komulagsdrögunum, sem lágu þá
fyrir, sem „tímamótasamþykkt".
Hún gengur út á, eins og sagði
frá í blaðinu í gær, að lánaréttur
úr opinbera kerfinu verður háður
framlagi lífeyrissjóðs viðkomandi
lántakanda. Miðað verður við, að
lífeyrissjóðimir veiji hið minnsta .
20% af ráðstöfunarfé sínu til
kaupa á skuldabréfum bygginga-
sjóðanna og að hámarkið verði
55%. Með þessu móti er ætlunin,
að þeir, sem byggja í fyrsta sinn,
fái 700.000 krónur til 2,1 milljónir
(eftir framlagi lífeyrissjóðs við-
komandi) í húsbyggingalán og að
þeir, sem kaupa í fyrsta sinn, fái
70% af samsvarandi upphæðum.
Lánin verði veitt til 40 ára og er
áskilið í samkomulagsdrögum
ASÍ og samtaka atvinnurekenda,
að vextir verði aldrei hærri en
3,5%. Þegar í hlut eiga hjón, sem
eru hvort í sínum lífeyrissjóði,
ræður meðaltal framlags líféyris-
sjóða þeirra hvert húsnæðislánið
verður, skv. upplýsingum blaðs-
ins.
Húsnæðisaf sláttur
og- neyðaraðstoð
Jafnframt er gert ráð fyrir að
nú þegar verði 300 milljónum
króna varið til aðstoðar við þá,
sem lent hafa í greiðsluerfiðleik-
um eða greiðsluþroti vegna hús-
næðiskaupa. Þessrupphæð kemur
til viðbótar við þær 200 milljónir,
sem áður höfðu verið settar í slíka
„neyðaraðstoð". Einnig er í sam-
komulagsdrögunum gert ráð fyrir
að frá og með þessu ári verði
þeim, er byggja í fyrsta sinn,
veittur sérstakur húsnæðisafslátt-
ur í stað vaxtafrádráttar með
þaki, eins og nú er. Sá frádráttur
er hugsaður til 10 ára og dregst
frá sköttum og getur jafnvel verið
útborganlegur. Fyrir þá, sem
þegar hafa byggt, á að vera val
á milli hins venjulega vaxtafrá-
dráttar og húsnæðisafsláttarins.
Ekki liggur fyrir hve mikill hús-
næðisafslátturinn gæti orðið.
Afdrif hugmynda vinnuveit-
enda um launagreiðslur í veik-
inda- og slysatilfellum verða
væntanlega þau, að samningsaðil-
ar setja á laggimar nefnd, sem
falið verður að gera ítarlegar til-
lögur um framtíðartilhögun og
hugsanlegar breytingar á gildandi
fyrirkomulagi. Samningamenn
urðu fljótt sammála um, að hér
væri á ferðinni stærra mál og
flóknara en svo, að hægt væri að
afgreiða það á þeim tíma, sem
þeir telja sig hafa til stefnu í
þessum samningaviðræðum.
Búvara hækki ekki
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins er einhugur með samninga-
mönnum beggja fylkinga um að
búvöruverð megi ekki hækka.
Lagt hefur verið til að búvömverð
hækki ekki fyrr en 1. júní næst-
komandi og síðan ekki um meira
en 2% í hvert sinn eftir það á
þessu ári, þ.e. 1. september og
1. desember. Bent er á í tillögum,
sem vora til umfjöllunar í samn-
inganefndunum, að nota mætti
hluta útflutningsbóta til að greiða
fyrir óbreyttu búvöraverði.