Morgunblaðið - 22.02.1986, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR1986
Fiskikerin:
• 5 stærðir: 310 I, 5801,
6601, 760 log 10001.
• 2 verðflokkar
Notkunarsvið:
Smábátar, landróðrar-
bátar, humarbátar,
gámaflutningar,
saltfiskvinnsla og ýmiss
konar önnur vinnsla.
Vörupallarnir:
• 3 stærðir:
80 sm x 120 sm,
100 sm x 120 sm,
og „togarapallur",
89smx 108,5 sm,
sérhannaður fyrir 70 I
og 90 I fiskikassa.
Aðrar framleiðsluvörur
okkar:
Flotbryggjur, tunnur,
tankar, brúsar fyrir
matvælaiðnað og
einangrunarplast.
•Viðgerðarþjónusta.
Vesturvör 27, Kópavogl
Sfml: 91-46966
Saknað er
16 sjómanna
Greenok, Skotlandi, 21. febrúar. AP.
SEXTÁN manna er sakanð
eftir að franskur togari fórst á
Norður-Atlandshafi snemma á
föstudag. Togarinn, Arctic sem
gerður var út frá Dieppe, fórst
um 570 km vestur af eynni Lewis
sem er við vesturströnd Skot-
lands. Lík eins skipverja af tog-
aranum hefur fundist. Maður fór
fyrir borð á öðrum frönskum
togara sem tók þátt í björgunar-
aðgerðum og hefur lík hans
einnig fundist.
Níu mönnum af áhöfn togarans
Arcitc hefur verið var bjargað en
ekki er vitað hvort aðrir skipveijar
komust í björgunarbáta. Togarinn
var á veiðum ásamt 10 öðrum
frönskum togurum er slysið varð.
Illviðri er á þessu slóðum en ekki
er þó ljóst hvað varð þess valdandi
að togarinn sökk.
Leyland-verksmiðjurnar:
Tilboðfrest-
ur til 4. marz
London, 20. febrúar. AP.
BREZKA stjórnin ákvað í dag
að veita frest til 4. marz nk. til
að skila kauptilboðum í bifreiða-
verksmiðju British Leyland.
Meðal fyrirtækja sem áhuga hafa
á kaupunum eru bandarisku bíla-
verksmiðjurnar General Motors.
Paul Channon, iðnaðar- og verzl-
unarráðherra, skýrði þinginu frá
þvi að ýmis brezk fyrirtæki, sem
framleitt hafa bílhluta fýrir British
Leyland, séu hljmnt því að verk-
smiðjumar verði seldar General
Motors. Hann sagði engan aðila
hafa sýnt verksmiðjunum jafn
mikinn áhuga og General Motors.
General Motors hefur átt i við-
ræðum við British Leyland í níu
mánuði um hugsanleg kaup á verk-
smiðjunum.
VARA
HLUTIR
STARTARAR OG
R
í eftirtaldar japanskar
bifreiðategundir:
MITSUBISHI, SUBARU,
TOYOTA, MAZDA,
DATSUN/NISSAN,
SUZUKI. DAIHATSU,
HONDA.
NIPPARTS á íslandi
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
- ' • ■ :• , . .
• ■
Áframhaldandi óeirðir á Indlandi AP/Ljósmynd
Nýju Delhí, 21. febrúar. AP.
HERINN var kallaður út í annað sinn í Kashmír til
að stilla til friðar milli ófriðarseggja múhameðstrúar-
manna og Hindúa og búist var við frekari átökum
í dag á bænadegi múhameðstrúarmanna í ýmsum
ríkjum á Indlandi. Talið er að 27 manns hafi látið
lífið í óeirðunum til þessa og að minnsta kosti 500
manns særst. Ófriðaraldan hófst er fomt musteri
Hindúa, helgað æðsta guði þeirra Rama, var opnað
á nýjan leik í ríkinu Uttar Pradesh. Múhameðstrúar-
menn hafa líka helgi á þessum stað og segja að
musterið sé moska, guðshús múhameðstrúarmanna.
Óeirðir hafa verið í sjö ríkjum Indlands ef ekki fleir-
um vegna þessa. Á myndinni sést lögregla í Nýju
Delhí lemja á múhameðstrúarmanni, sem mótmælti
opnun mustersins.
Heimsókn Honeckers
verðiu* síðar á árinu
Bonn, 21. febrúar. AP.
ERICH Honecker, forseti Austur-Þýskalands, mun fara í sína marg-
boðuðu ferð til Vestur-Þýskalands einhvem tima eftir að þingi
austur-þýska kommúnistaflokksins lýkur en það verður haldið í
apríl. Skýrði forseti austur-þýska þingsins svo frá í dag.
Horst Sindermann, forseti aust-
ur-þýska þingsins, sem verið hefur
gestur vestur-þýskra jafnaðar-
manna í þijá daga, sagði á blaða-
mannafundi í dag, að Erich Honec-
ker, forseti og leiðtogi austur-þýska
kommúnistaflokksins, ætlaði að
koma í opinbera heimsókn til Vest-
ur-Þýskadands en af henni gæti þó
ekki orðið fyrr en að loknu flokks-
þinginu í apríl. Vestur-þýskum
embættismönnum finnst líklegast,
að heimsóknin verði ekki fyrr en
um eða eftir mitt ár. Honecker
hafði hug á að koma til Vestur-
Þýskalands í september árið 1984
en þá settu Sovétmenn honum stól-
inn fyrir dymar.
Sindermann, sem er sjötugur að
aldri, verður í Vestur-Þýskalandi í
Qóra daga og er hann háttsettastur
austur-þýskra embættismanna,
sem til landsins hafa komið. Þótt
hann sé formlega gestur jafnaðar-
manna hefur hann hitt að máli
Kohl, kanslara, Philipp Jenninger,
forseta sambandsþingsins, og leið-
toga allra stjómmálaflokka á þingi.
í sameiginlegri tilkynnningu gest-
gjafanna og gestsins segir, að
Austur-Þjóðveijar vilji vinna að
auknum mannréttindum og auð-
velda ferðalög milli þýsku ríkjanna.
Eins og nú háttar er Austur-
Þjóðveijum ekki leyft að fara til
annarra landa nema þeir séu komnir
á eftirlaun og jafnvel þá verða þeir
að fara slyppir og snauðir, fá aðeins
að hafa með sér í farareyri sem
svarar til 500 kr. ísl. Er þá ætlast
til, að betur megandi ættingjar
þeirra í Vestur-Þýskalandi ali önn
fyrir þeim.
Svíþjóð:
Bágborínn fjárhagur
á mörgum heimilum
Stokkhómi, 20. febrúar. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
FJARHAGUR um 700 þúsund
sænskara heimila er lakari en svo
að hann dugi til lágmarks fram-
færslu og annar eins fjöldi býr
við svo kröpp kjör að hann er
rétt á mörkum lágmarksfram-
færslu. Þessar upplýsingar koma
fram í nýrri könnun sem sem
sænska hagstofan hefur látið
gera og náði til 8.000 heimila í
Svíþjóð.
Skást virðst afkoman vera hjá
einstaklingum sem ekki hafa böm
á sínu framfæri. Einn fjölmennasti
hópurinn meðal hinna fátæku em
fjölskyldur með þijú böm eða fleiri.
Lágmarksframfærsla, í þessari
könnun, var miðuð við sömu upp-
hæð og greiðslur tiyggingabóta,
sem meira en hálf milljón Svía
þiggur á hveiju ári. Þó hljóta ekki
allir tiyggingabætur sem eru undir
telqumörkunum.
Framfærslumörkin miðast við 42
þúsund sænskar krónur fyrir ein-
staklinga, 60 þús. skr. fyrir bam-
laust fólk í sambúð, 70 þús. skr.
fyrir einstæða foreldra, 82 þúsund
skr. fyrir fjölskyldur með eitt bam
og 102 þús. skr. fyrir fjölskyldur
með tvö böm.
Könnunin leiðir í ljós að bamlaust
fólk í sambúð hefur bestan fjárhag,
og hlutu aðeins fáir einstalingar úr
þessum hópi tryygingabætur á síð-
asta ári. Niðurstöður könnunarinar
benda til þess að 1,4 milljónir
sænskra heimila eigi í fjárhagserf-
iðleikum.
Kína:
Rússneski flugræn-
inginn ákærður
Peking', 21. febrúar. AP.
FLUGRÆNINGI sovésku far-
þegaflugvélarinnar sem lenti á
hjambreiðu í Norður-Kína í des-
ember mun verða leiddur fyrir
rétt í Kina ákærður um flugrán,
að sögn kínverska utanríkisráðu-
neytisins. Flugræningin var að-
stoðarflugmaður vélarinnar.
í tilkynningu kínverska utanrík-
isráðuneytisins segir að flugvélinni
hafi verið flogið aftur til Sovétríkj-
anna og með henni hafi farið þeir
42 farþegar sem um borð voru
ásamt áhöfninni. Flugvélin, An-
tonov-24, var í innaniandsflugi yfir
Síberíu þegar flugræningin sneri
henni til Kína.