Morgunblaðið - 22.02.1986, Page 27

Morgunblaðið - 22.02.1986, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR1986 saman þegar rigndi á okkur í tvö sumur í röð. Því svo þegar vel áraði og bændur fóru að rétta úr kútnum, þá fá þeir hnefahögg í andlitið." Einnig ræddu margir um að illt væri að refsa stéttvísum bændum sem hefðu farið að tilmælum bænda- samtakanna og væru búnir að draga saman framleiðsluna á undanfömum árum. Offjárfesting í landbúnaði Þórólfur Sveinsson, bóndi á Ferju- bakka II í Borgarhreppi, sagði að „allt frumkvæði í þessum málum í dag kæmi úr hinum ýmsu héruðum landsins, stjóm Stéttarsambands bænda hefði ekki farið fyrir í þessum málum, heldur frekar hottað á eftir hjörðinni." Þórólfur sagði: „Það að þessi umræða er komin svona mikið inn í fjölmiðlana sýnir einfaldlega að fréttamenn eru starfi sínu vaxnir. Þeir skynja að það er eitthvað að gerast öðruvísi en það hefur gert áður. Nú er það alvaran sem blasir við. Stjömvöld standa frammi fyrir þeirri spumingu innan skamms hvort að halda eigi byggð í landinu eða láta það ráðast hvort hún helst." Þórólfur sagði að grunnur vanda- málsins í mjólkurframleiðslunni í dag væri einfaldlega offlárfesting í landbúnaði. „Það eru fleiri að reyna að lifa á þessari framleiðslu en hafa þar lífsmöguleika. Málið er svona óskaplega einfalt," sagði hann. Jóhannes Magnús Þórðarson í Krossnesi sagði að það hefði mátt taka tillit til þeirra bænda sem hefðu aðrar tekjur en af landbúnaði. „Það er ekkert talað um það á hverju þeir eigi að lifa sem verða að hætta f landbúnaði, eða hvað eigi að gera fyrir þá. Ekki getum við gert ráð fyrir því að þeir fari sömu leið og bústofninn. Eða er það?,“ spurði Jóhannes Magnús. Ólafur Egilsson á Hundastapa ræddi um nauðsyn þess að koma mjólkurvörum inn í skólana og leggja áherslu á hollustu mjólkur- vara í allri kynningu. Ennfremur sagði Ólafur: „það eru 25 þúsund manns eða jafnvel fleiri í skólakerf- inu á Reylqavíkursvæðinu. Ef mjólk- in kæmist inn í alla skólana gæti þessi hópur verið búinn að drekka um 10 þúsund lítra um klukkan 10 ámorgnana." Þorkell Fjeldsted í Feijukoti sagði að bændur yrðu að vera vakandi fyrir nýjum möguleikum til tekjuöfl- unar. Nefndi hann leigu á landi undir sumarbústaði í því sambandi og benti á dæmi úr Svínadalnum þar sem sumir væru búnir að leigja land undir 30 til 40 bústaði. Lagði hann til að mjólkurframleiðsla yrði lögð niður á ríkisbúum annars staðar en á Hvanneyri. Taldi hann að samtals væri framleidd um ein milljón lítra hjá ríkisbúunum í landinu. Benti hann viðstöddum þingmönnum á að þeir þyrftu að huga að því að þessi Morgunblaðið/Theodór Þórðarson „Eignm við að fara sömu leið og bústofninn?“ — spurðieinn fundarmanna Þétt setinn bekkurinn á bændafundinum i Valfelli. Fjölmennur fundur hjá Mýramönnum í Valfelli: Borgarnesi, 20. febrúar. Búnaðarsamband Borgarfjarð- ar efndi til fundar með mjólkur- framleiðendum í Mýrasýslu i fé- lagsheimilinu Valfelli miðviku- dagskvöldið 19. febrúar kl. 21.00. Var fundurinn vel sóttur og stóð fram á nótt, var fundi slitið um kl. 02.00. Fyrr um daginn hafði Búnaðarsambandið staðið fyrir samskonar fundi í Logalandi í Reykholtsdal og kvöldið áður í Heiðarskóla, Leirársveit. A meðal fundarmanna voru þingmenn Vesturlands, Davíð Aðalsteinsson, Eiður Guðnason, Friðjón Þórðar- son og Skúli Alexandersson. Ræddu þeir persónulega við bændur f fundarhléi og á eftir fundinum en tóku ekki til máls úr ræðustól. „Eitthvað varð að gera“ Frummælandi á fundinum var Guðmundur Stefánsson hagfræðing- ur bændasamtakanna. Sagði Guð- mundur í upphafi: „Svæðabúmarkið hefur haft gífurlega mikil áhrif í þjóðfélaginu undanfarna daga og vikur. Umræðan hefur aukist veru- lega og er orðin miklu beinskeyttari og skýrari. Vandamálin eru því orðin mönnum Ijósari en áður var. Það er því flestum orðið ljóst að þetta verð- Þórólfur Svemsson á Feijubakka f ræðustóli og Bjarni Guðráðsson Nesi, formaður Búnaðarsambands Borgarfjarðar. ur ekki rætt öllu lengur eingöngu, það þarf að gera eitthvað líka." Sagði Guðmundur að menn ræddu mikið um þessa dagana að fækka þyrfti bændum um helming, og ef færi fram sem horfði þá væri ljóst að bændum þyrfti að fækka, (það væri alveg ljóst mál) hvort sem það væri um helming eða ekki. Fór Guðmundur síðan ítarlega í gegnum reglugerðina um stjóm mjólkurframleiðslunnar og útskýrði hana með ýmsum dæmum. Tók málflutningur frummælandans um hálfan annan klukkutíma. Þá las fundarstjóri upp þær sam- þykktir sem gerðar voru á fundunum í Heiðarskóla og Logalandi og opnaði síðan umræður um þær og fram- söguerindi Guðmundar Stefánsson- ar. Tóku margir til máls. Voru margir fundarmenn sammála um að óstjóm hefði ríkt í stjómun mjólkur- framleiðlsunnar á undanfömum árum. Þá var rætt um hve bagalegt hefði verið að fá reglugerðina um fullvirðisréttinn svona seint. Voru margir á því að í reglugerðinni hefði átt að taka tillit til veðurfars vestan- lands undanfarin þijú sumur. Eins og Þorkell Guðbrandsson frá Mel í Hraunhreppi sagði: „Við erum látnir gjalda þess að framleiðslan dróst samdráttur í mjólkurframleiðslunni kæmi niður á fleirum en bændum og nefndi sem dæmi starfsmenn hinna ýmsu kaupfélaga, grasköggla- verksmiðja og Áburðarverksmiðj- unnar. Sagði Þorkell að sér litist vel á þá hugmynd að bændur gætu leigt eða selt búmark sitt til annarra bænda. Kúrekastæll á Jóni Helgasyni Ingimundur Grétarsson á Leiru- læk sagði að sér virtist að Stéttar- samband bænda væri orðið .ónýtt fyrirbæri. Kvaðst hann lýsa allri ábyrgð á hendur stjómvöldum um það hvemig komið væri fyrir stétt- vísum bændum sem hefðu dregið saman en verið svo hegnt fyrir með niðurskurði á fullvirðisrétti. Taldi hann að þurft hefði að lágmarki 5 . ára aðlögunartímabil til að láta þessa reglugerð taka gildi. „Mér hefur stundum fundist vera kúrekastæll á Jóni Helgasyni og öðrum stjóm- völdum. Það virðist vera stefnan hjá þeim: „Skjóttu fyrst og spurðu svo.“ Pétur Diðriksson á Helgavatni sagði að það væri alveg með ólíkind- um hvað stjórnvöld væru búin að klúðra þessum málum. Búið væri að leyfa mikla uppbyggingu á mörgum jörðum en svo væri mönnum bannað að nýta þessar byggingar til mjólk- urframleiðslu. Pétur tilkynnti fund- armönnum það að Félag kúabænda í Mýrasýslu yrði stofnað eftir eina viku. Kvaðst hann ætla að stuðla. __ að stofnun þess en það væri ljóst^ að hann gengi strax úr þessu félagi ef þar væri farið að ræða um að ákveðinn landshluti framleiddi mjólkina frekar en aðrir. „Komið verði í veg fyrir byggðaröskun“ í lok fundarins voru samþykktir samhljóða nokkrar tillögur. I fyrstu ályktunni er tekið undir kröfur um auknar niðurgreiðslur á nautgripa- ^ og sauðfjárafurðum. Seinagangi við setningu reglugerðar um stjómun mjólkurframleiðsunnar var harðlega mótmælt, og þess krafist að reglu- gerð fyrir næsta verðlagsár yrði birt eigj síðar en á vordögum. í þriðju ályktuninni segir að í framhaldi af stjómaraðgerðum í landbúnaði þurfi að gera hliðarráð- stafanir til að koma í veg fyrir stór- fellda byggðaröskun. Meðal annars létta greiðslubyrði skuldugra bænda við Stofnlánadeild landbúnaðarins og taka upp tekjutryggingu með beinum greiðslum til bænda á meðan þessi aðlögun varir. „Skorar fundur- inn á stjómvöld og Stéttarsamband bænda að vinna að þessum málum með þá staðreynd í huga að hag- ^ kvæmast er fyrir þjóðfélagið að bændur þurfí ekki að hrökklast frá eignum sínum og atvinnu," segir orðrétt í ályktuninni. - TKÞ I 1007. MEIRI LÝSING OSRAM HALOGEN perur lýsa 100/-meira en venjulegar perur og endast tvöfalt lengur. s § OSRAM fæst á bensínstöðvum Hinn velupplýsti maður er með peruna í lagi OSRAM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.