Morgunblaðið - 22.02.1986, Síða 48
EOT NORT AliS SnMR
m
rti
v
V7S4
ómissandi
LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR1986
VERÐ f LAUSASÖLU 40 KR.
Ráðstefna um stofnana-
þjónustu aldraðra:
Nær 2.000
bíða stofn-
anavistar
NÆR tvö þúsund einstakl-
ingar bíða eftir vist á stofn-
unum aldraðra hér á landi.
Þetta kom fram í erindi
Vilborgar Ingólfsdóttur
hjúkrunarfræðings á ráð-
stefnu um stofnanaþjónustu
aldraðra á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu. Ráðstefnan var
haldin í Reykjavík í gær á
vegum Öldrunarfræðafé-
lagsíslands.
Vilborg sagði, að könnun, sem
heilbrigðisráðherra fól landlækn-
isembættinu að standa fyrir, hafí
leitt í ljós, að á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu séu 1.434 einstaklingar
á biðlista stofnana fyrir aldraða.
Þar af bíði rúmlega 1.100 eftir
vistiými en tæplega 300 eftir
hjúkrunar- og sjúkrarými.
Á sjötta hundrað manns bíða
eftir vist á stofnunum fyrir aldr-
aða úti á landsbyggðinni.
í setningarræðu Arsæls Jóns-
sonar formanns Öldrunarfræðafé-
lags íslands kom fram, að stofn-
anaþjónusta hérlendis væri talin
meiri en t.d. annars staðar á
Norðurlöndum.
Sjá fréttir af ráðstefnunni
á bls. 4.
Morgunblaðið/RAX
KONUDAGURINN ER Á MORGUN
í dag er Þorraþræll og á morgun er konudagurinn og þá ■ upplýsingar að leita þyrfti allt til 1965 eftir jafn hlýjum
munu karlmenn samkvæmt venju gefa kvenfólkinu fagra I febrúar en þá voru hlýindin svo afgerandi að mikið þarf til
blómvendi. Síðari hluti þorra, sem nú er að kveðja, hefur I að slá það met. „Þorrinn hefur verið með betra móti þegar
verið mjög góður um allt land. Á veðurstofunni fengust þær | áheildinaer litið,“ sagði Trausti Jónsson veðurfræðingur.
Frá slysstað á Sauðárkróksbraut f gær. MorKunbiaðifl/Kín Jónsson
Sauðárkrókur:
Tveir slösuðust í
hörðum árekstri
Ungxir piltur fluttur til Reykjavíkur í flugvél
Sauðárkróki, 21. janúar.
RÉTT fyrir klukkan 15 f dag
varð mjög harður árekstur á
Sauðárkróksbraut hjá bænum
Bergstöðum þegar fólksbifreið
ók aftan á kyrrstæða skólarútu.
Tveir menn voru í fólksbifreið-
inni og slösuðust þeir báðir, eink-
um farþeginn, 15 ára gamall pilt-
ur. Þeir voru fluttir í skyndi á
Sjúkrahúsið á Sauðárkróki þar
sem gert var að sárum þeirra.
Pilturinn reyndist svo mikið slas-
aður að flytja varð hann til
Reykjavíkur laust fyrir klukkan
18 með flugvél frá Flugfélagi
Norðurlands. Læknir fylgdi hon-
um suður. Ökumaðurinn er á
sjúkrahúsinu hér en ekki tókst að
afla frétta af líðan hans.
Skólarútan var að skila farþega
þegar fólksbifreiðin skall aftan á
hana. Enginn, sem var í skólarút-
unni slasaðist, en nokkrar
skemmdir urðu á rútunni. Fólks-
bifreiðin mun vera ónýt. Ökuskil-
yrði voru ágæt, bjart veður og
auður vegur.
- Kári.
Tekist á um kaup og kauptryggingu í nótt:
Úrslit ráðin í samn-
ingunum um helgina?
TALIÐ var lfklegt í gærkvöld
að um helgina yrði reynt tíl
þrautar að ná samkomulagi í
kjaradeilum ASÍ og BSRB við
vinnuveitendur og ríkið. Á
áhrifamönnum var að heyra,
að reynt yrði að láta samnings-
gerð þessara aðila fylgjast
nokkuð að. Þegar samninga-
fundur ASÍ og samtaka at-
vinnurekenda hófst upp úr
kvöldmat í gær var ætlun
samningamanna að snúa sér að
meginmálum flestra venjulegra
kjarasamninga: kauphækkun-
um og kauptryggingu. Gert var
ráð fyrir að sá fundur myndi
standa fram undir morgun.
Önnur ágreiningsefni ASÍ og
vinnuveitenda voru að talsverðu
leyti frá — en háð því að samkomu-
lag takist um deilumálin í heild og
tillögur til ríkisstjórnarinnar um
leiðir til að reka verðbólgu niður í
6-7% á árinu. Viðræðunefndir
BSRB og ríkisins voru á fundum í
allan gærdag án þess að til stór-
vægilegra tíðinda drægi. 50 manna
samninganefnd BSRB hefur verið
boðuð til fundar kl. 16 í dag. Talið
var að sá fundur gæti orðið langur.
Aldrei varð úr í fyrrinótt að BSRB
fengi tilboð frá ríkinu eins og búist
varvið.
Á fundi samningamanna ASÍ og
vinnuveitenda í fyrrinótt miðaði
talsvert áfram um ýmis stórmál,
sem gríðarleg vinna hefur verið lögð
í undanfamar vikur. Samkomulag
hefur tekist um lífeyrismál og í
gærkvöld var í sjónmáli samkomu-
lag um húsnæðismál og flármögnun
húsnæðislánakerfisins. Enn var
ýmislegt ófrágengið um sameigin-
Landbúnaðarráðherra hefur ný-
lega samþykkt uppgjörsreglur fyrir
búvörur á síðasta verðlagsári. Verð-
ur afurðaverðið skert samtals um
36 milljónir og leggur framleiðslu-
ráð til að þetta verðskerðingarfé
verði notað til að lækka smjörverðið
um tíma og fer jafnframt fram á
að kjamfóðursjóður greiði 30 millj-
ónir og ríkissjóður 35 milljónir til
legar tillögur til ríkisstjómarinnar
um niðurskurð og lækkun Qöl-
margra útgjaldaliða launafólks en
sumir samningamanna töldu að
meginlínur í þeim efnum væru
veralega famar að skýrast.
-Sjá ennfremur frétt um
samningamálin á bls.4.
að standa undir útsölunni. í þessu
sambandi er vitnað til samkomulags
bænda og ríkisins um uppgjör
birgða búvara við lok síðasta verð-
lagsárs, sem gert var samhliða bú-
vörusamningunum í lok ágúst.
Sjá „Afurðaverðið
skert um 36 milljónir
kr.“ á blaðsíðu 17.
50% afsláttur
á smjörútsölu?
FRAMLEIÐSLURÁÐ landbúnaðarins hefur lagt til áð sett verði
á smjörútsala til að létta á birgðum mjólkurvara frá síðasta
verðlagsári. Lagt er til að hvert kíló af smjöri verði lækkað
um 200 krónur, en það er nærri helmingslækkun, og að seld
verði um 500 tonn. Núverandi útsöluverð er 410,20 krónur og
verði af útsölunni mun smjörið fara niður í um 210 krónur.
Stefnt er að þvi að útsalan geti hafist um næstu mánaðamót.