Morgunblaðið - 15.03.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. MARZ1986
„Frægðrn
skiptir ekki
mestu máli“
— sögðu þær Hanne Krogh og
Elisabet Andreasson, eða Bobbysocks
„Við hittumst fyrst í söngvakeppni í Belgíu þar sem ég keppti fyrir
Noreg en Elisabet fyrir Svíþjóð. Nú, Sviþjóð vann svo ég hugsaði
með mér ef þú getur ekki sigrað þá, gakktu tii liðs við þá,“ sagði
Hanne Krogh, annar meðlimur Bobbysocks, á blaðamannafundi sem
þær stöllur efndu til á Hótel Loftleiðum á föstudaginn.
Bobbysocks á Hótel Loftleiðum í gær. Elisabet Andreasson t.h. og Hanne Krogh.
Morgunblaðið/RAX
Elisbet Andreasson og Hanne
Krogh voru hinar hressustu, þær
tóku lagið og göntuðust við blaða-
menn. Þær sögðust hafa hlakkað
mikið til að koma til íslands og
ætluðu að skreppa á Broadway á
föstudagskvöldið og fara svo að
versla á laugardaginn því þær höfðu
frétt að tískufatnaður væri miklu
ódýrari hér en t.d. í Noregi. Ekki
höfðu þær enn heyrt íslensku lögin
í söngvakeppninni en sögðust vera
mjög spenntar. Bobbysocks koma
fram í beinni útsendingu sjónvarps-
ins í kvöld þegar sigurlagið í
söngvakeppninni verður valið. Þar
syngja þær lögin La det svinge,
Midnight Rocks og nýtt lag, Wait-
ing for the Moming.
„Líf okkar hefur lítið breyst frá
því að við unnum í Euorovision-
keppninni í fyrra," sagði Elisabet.
„Að vísu vinnum við miklu meira
núna.“ Og Hanne bætti við: „Dúett-
inn var ekki stofnaður með Euorovi-
sion í huga. Við höfðum báðar
sungið lengi og byrjuðum löngu
áður en Bobbysocks varð til árið
1984. Markmiðið var að halda því
áfram en hafa Bobbysocks sem
tómstundagaman. Það breyttist svo
eins og kunnugt er.
Það er ekki frægðin sem hefur
skipt okkur mestu máli eftir að við
unnum í keppninni. Mestu máli
skiptir að nú höfum við tækifæri
til að vinna með bestu hljóðfæra-
leikurum sem völ er á, við það sem
okkur þykir skemmtilegast. Það er
að syngja opinberlega — hafa
áheyrendur fyrir framan okkur."
Bobbysocks hafa ferðast víða um
Evrópu, til Ástralíu og Sovétríkj-
anna. Áuk þess hafa þær sungið
mikið í heimalöndum sínum Noregi
og Svíþjóð. Þrátt fyrir að brátt taka
aðrir sigurvegarar í Euorovision við
af þeim er ýmislegt á döfinni hjá
þeim á næstunni. I apríl munu þær
koma fram í sjónvarpi í Englandi,
Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi og
gera tvö myndbönd. Þær fara til
Bergen í maí til þess að vera við-
staddar Eurovision-keppnina og í
júní er fyrirhugað að fara í tónleika-
ferðalag. Hanne sagðist vonast til
að komast í frí í júlí, enda hafa þær
aðeins tekið viku frí frá keppninni
í fyrra, og þá fóru þær saman!
Frá því í október á síðasta ári
hafa Hanne og Elisabet unnið við
að gera stóra plötu. Platan kemur
væntanlega á markað í apríl, en
þegar hefur verið gefin út lítil plata
með tveimur laganna í Noregi.
Lagið Waiting for the Moming er
komið í 1. sæti á norska vinsælda-
listanum.
Hanne og Elisabet sögðust von-
ast til að^geta komið einhvem tíma
aftur til Islands og hafa þá hljóm-
sveitina með.
Mun sjónvarpið
sýna myndina
um Sakharov?
MAGNÚS Erlendsson lagði í gær fram bókun á fundi útvarpsráðs
þess efnis að sjónvarpið gerði gangskör að því að sýna heimildarkvik-
myndina um Andrei Sakarov og konu hans Yelenu Bonner, en kvik-
mynd þessi var gerð árið 1984.
Bókun Magnúsar Erlendssonar er svohljóðandi:
„Ég leyfi mér að fara þess á leit myndbandaleigum hér á landi.
að Sjónvarpið geri að því gangskör Undirritaður telur nauðsynlegt
að fá nú þegar til sýningar heimild- að almenningur á íslandi, sem býr
armynd um sovéska Nóbelsverð- við allt það frelsi sem lýðræðisþjóð-
launahafann og eðlisfræðinginn Dr. félögin veita þegnum sínum, fái að
Andrei Sakarov og konu hans kynnast þeim ofsóknum sem bar-
Yelenu Bonner. Vitað er að heim- áttumenn mannréttinda verða að
ildarmynd þessi sem framleidd var þola í Mekka kommúnismanns —
árið 1984 hefur verið til leigu á Sovétríkjunum."
Seltjarnarnes:
Lægsta útsvars-
prósentan 9,6%
í FRAMHALDI af óskum ríkis-
stjórnarinnar í kjölfar kjara-
samninga um að sveitarfélög
lækki útsvar, svo og gjaldskrá
hitaveitna og gjöld dagvistar-
stofnana, hefur bæjarstjóm Sel-
tjarnarness tekið ákvörðun um
lækkun útsvars. Er útsvarið á
Seltjarnarnesi lækkað úr 10% i
9,6%, sem mun vera lægsta út-
svarsprósenta á landinu.
Bæjarstjóm Seltjamamess hefur
einnig ákveðið að gjaldskrá hita-
veitu Seltjamamess lækki nú um
7% og dagheimila- og leikskólagjöld
lækki um 5%.
—-----
DAIHATSU
Sýning
frákl.1-5
Allir gæðabílarnirfrá Daihatsu.
Daihatsuumboðið s. 685870- 681733