Morgunblaðið - 15.03.1986, Side 7
MQRGUNBLAflIÐ,LAfíGARJpAGUR^.MARZ 1986
J.
Gísli Sigurðsson: Portret af Helga Sæmundssyni.
Kjarvalsstaðir:
Síðasta sýning-
arhelgi hjá Gísla
SÝNING Gísla Sigurðssonar á
Kjarvalsstöðum hefur nú staðið
yfir í 2 vikur og fengið ágæta
aðsókn og viðtökur. Nú fer í
hönd síðasta sýningarhelgin, en
sýningunni hefur þó verið fram-
lengt um einn dag og endar hún
á mánudagskvöld.
Sýningin er í öllum vestursal
Kjarvalsstaða og samtals sýnir Gísli
þar 70 olíumálverk frá síðustil
tveimur árum. Það eru mestan part
myndir úr þjóðlífi og mannlífí al-
mennt, til dæmis frá skemmtunum
eins og þær tíðkuðust fyrir þremur
áratugum, en einnig eru manna-
myndir, þar á meðal myndin af
Helga Sæmundssyni sem hér sést.
Jónas Haralz
bankastjóri prédik-
ar í Dómkirkjunni
í MESSUNNI í Dómkirkjunni kl.
2 á morgun, sunnudaginn 16.
mars, prédikar Jónas Haralz
bankastjóri. Faðir hans, sr. Har-
aldur Níelsson, var um skeið
prestur við Dómkirkjuna, áður
en hann gerðist prófessor í guð-
fræði við Háskólann. í þessari
messu syngur Guðmundur Jóns-
son einsöng, „Friðarins Guð“
eftir þá Guðmund Guðmundsson
og Arna Thorsteinsson, og for-
eldrar fermingarbarna iesa
bænir og ritningartexta, en sr.
Þórir Stephensen þjónar fyrir
altari.
Eftir messu efnir kvenfélag safn-
aðarins, Kirkjunefnd kvenna Dóm-
kirkjunnar, til kaffísölu á Hótel
Loftleiðum í Víkingasal. Þar verður
einnig margskonar páskafondur á
boðstólum. Allur ágóði af kaffí- og
fondursölu rennur til greiðslu á
skuldum þeim, sem Dómkirkjan er
nú í, vegna orgelkaupa og viðgerðar
á kirkjunni á liðnu ári.
Þess er vænst, að Dómkirkjufólk
fjölmenni til kirkju og komi svo á
eftir í kaffíð á Loftleiðum til þess
að styðja við bakið á þeim, sem að
fjáöflun standa, fyrir þær farsælu
framkvæmdir, sem Dómkirkjan
naut sl. ár. Allir tónlistarmenn lofa
Fjársvikamálið:
hið nýja orgel, hljómburður hefur
batnað að mun og hinn aldni þjóðar-
helgidómur er nú stflhreinni og
fegurri en nokkru sinni fyrr. Hjálp-
umst öll að því að greiða þann
kostnað, sem þetta hefur skapað.
Strætisvagn fer frá kirkjunni
suður að Hótel Loftleiðum strax
eftir messu og til baka aftur um
eða fyrir kl. 4.30.
Þórir Stephensen.
Gæsluvarðhald framlengt
GÆSLUVARÐHALD yfir öðrum
mannanna, sem grunaðir eru um
milljónasvik, m.a. vegna fast-
eignaviðskipta, hefur verið
framlengt til 19. mars næstkom-
andi að kröfu Rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
Mennimir tveir voru úrskurðaðir
í þriggja vikna gæsluvarðhald hinn
20. febrúar síðastliðinn vegna gruns
um að hafa haft verulegt fé af fólki
með blekkingum. Þriggja vikna
gæsluvarðhaldið rann út á fímmtu-
daginn síðastliðinn og var þá annar
mannanna látinn laus, en talin var
ástæða til að framlengja gæslu-
varðhald hinstill9. mars næstkom-
andi vegna rannsóknarmálsins.
Fróðleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
Allir þeir sem gjöddu mig meÖ heimsókn sinni,
gjöfum, blómum ogskeytum á áttrœÖisafmœlis-
degi mínum þann 10. mars sendi ég mínar
bestu þakkir og kveöju.
LifiÖ heil.
Karl Eiríksson,
rafvélavirki,
BogahliÖ 17.
ViO FOCNUm
fi| m giaigauiM
rmMM mflffAwf
UFE mmU wmmm VH m
Iðnverk hf, byggingaþjónustan Nóatúni 17, hefur
flutt starfsemi sína í nýtt og glæsilegt húsnæði að
Hátúni 6a (Fönixhúsið). Af þessu tilefni höfum við
opið um helgina 15. og 16. mars og sýnum fram-
leiðsluvörur 12 íslenskra fyrirtækja í byggingariðn-
aði. Húsbyggjendum og húseigendum gefst
hér tækifæri til að kynna sér allt er þarf til
húsbygginga og innréttinga á einum og sama
staðnum.
Allar vörur
á verksmiðjuverði
Komið við um helgina og fáið upplýsingar
og ráðgjöf um verð og gæði íslenskrar
framleiðslu. Hafið teikningarnar með og
við leitum tilboða í alla byggingarþætti.
Gerum einnig bein tilboð í ýmsa verkþætti.
Ilerið velkomin
'síenskn,
tyrirtækia:
■ Rammihf
: Suðumes/a
■ Glerborghf
; f^tgerðSuðumes/a
- ™ss%an<,,M
* Loftorka hf
■ Haipah f
^StemuHarverks miðian h/f
IÐNVERK HF
Hátúni 6a- Sími: 25945-25930
BYGGINGAÞJÓNUSTA