Morgunblaðið - 15.03.1986, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 15.03.1986, Qupperneq 7
MQRGUNBLAflIÐ,LAfíGARJpAGUR^.MARZ 1986 J. Gísli Sigurðsson: Portret af Helga Sæmundssyni. Kjarvalsstaðir: Síðasta sýning- arhelgi hjá Gísla SÝNING Gísla Sigurðssonar á Kjarvalsstöðum hefur nú staðið yfir í 2 vikur og fengið ágæta aðsókn og viðtökur. Nú fer í hönd síðasta sýningarhelgin, en sýningunni hefur þó verið fram- lengt um einn dag og endar hún á mánudagskvöld. Sýningin er í öllum vestursal Kjarvalsstaða og samtals sýnir Gísli þar 70 olíumálverk frá síðustil tveimur árum. Það eru mestan part myndir úr þjóðlífi og mannlífí al- mennt, til dæmis frá skemmtunum eins og þær tíðkuðust fyrir þremur áratugum, en einnig eru manna- myndir, þar á meðal myndin af Helga Sæmundssyni sem hér sést. Jónas Haralz bankastjóri prédik- ar í Dómkirkjunni í MESSUNNI í Dómkirkjunni kl. 2 á morgun, sunnudaginn 16. mars, prédikar Jónas Haralz bankastjóri. Faðir hans, sr. Har- aldur Níelsson, var um skeið prestur við Dómkirkjuna, áður en hann gerðist prófessor í guð- fræði við Háskólann. í þessari messu syngur Guðmundur Jóns- son einsöng, „Friðarins Guð“ eftir þá Guðmund Guðmundsson og Arna Thorsteinsson, og for- eldrar fermingarbarna iesa bænir og ritningartexta, en sr. Þórir Stephensen þjónar fyrir altari. Eftir messu efnir kvenfélag safn- aðarins, Kirkjunefnd kvenna Dóm- kirkjunnar, til kaffísölu á Hótel Loftleiðum í Víkingasal. Þar verður einnig margskonar páskafondur á boðstólum. Allur ágóði af kaffí- og fondursölu rennur til greiðslu á skuldum þeim, sem Dómkirkjan er nú í, vegna orgelkaupa og viðgerðar á kirkjunni á liðnu ári. Þess er vænst, að Dómkirkjufólk fjölmenni til kirkju og komi svo á eftir í kaffíð á Loftleiðum til þess að styðja við bakið á þeim, sem að fjáöflun standa, fyrir þær farsælu framkvæmdir, sem Dómkirkjan naut sl. ár. Allir tónlistarmenn lofa Fjársvikamálið: hið nýja orgel, hljómburður hefur batnað að mun og hinn aldni þjóðar- helgidómur er nú stflhreinni og fegurri en nokkru sinni fyrr. Hjálp- umst öll að því að greiða þann kostnað, sem þetta hefur skapað. Strætisvagn fer frá kirkjunni suður að Hótel Loftleiðum strax eftir messu og til baka aftur um eða fyrir kl. 4.30. Þórir Stephensen. Gæsluvarðhald framlengt GÆSLUVARÐHALD yfir öðrum mannanna, sem grunaðir eru um milljónasvik, m.a. vegna fast- eignaviðskipta, hefur verið framlengt til 19. mars næstkom- andi að kröfu Rannsóknarlög- reglu ríkisins. Mennimir tveir voru úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald hinn 20. febrúar síðastliðinn vegna gruns um að hafa haft verulegt fé af fólki með blekkingum. Þriggja vikna gæsluvarðhaldið rann út á fímmtu- daginn síðastliðinn og var þá annar mannanna látinn laus, en talin var ástæða til að framlengja gæslu- varðhald hinstill9. mars næstkom- andi vegna rannsóknarmálsins. Fróðleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! Allir þeir sem gjöddu mig meÖ heimsókn sinni, gjöfum, blómum ogskeytum á áttrœÖisafmœlis- degi mínum þann 10. mars sendi ég mínar bestu þakkir og kveöju. LifiÖ heil. Karl Eiríksson, rafvélavirki, BogahliÖ 17. ViO FOCNUm fi| m giaigauiM rmMM mflffAwf UFE mmU wmmm VH m Iðnverk hf, byggingaþjónustan Nóatúni 17, hefur flutt starfsemi sína í nýtt og glæsilegt húsnæði að Hátúni 6a (Fönixhúsið). Af þessu tilefni höfum við opið um helgina 15. og 16. mars og sýnum fram- leiðsluvörur 12 íslenskra fyrirtækja í byggingariðn- aði. Húsbyggjendum og húseigendum gefst hér tækifæri til að kynna sér allt er þarf til húsbygginga og innréttinga á einum og sama staðnum. Allar vörur á verksmiðjuverði Komið við um helgina og fáið upplýsingar og ráðgjöf um verð og gæði íslenskrar framleiðslu. Hafið teikningarnar með og við leitum tilboða í alla byggingarþætti. Gerum einnig bein tilboð í ýmsa verkþætti. Ilerið velkomin 'síenskn, tyrirtækia: ■ Rammihf : Suðumes/a ■ Glerborghf ; f^tgerðSuðumes/a - ™ss%an<,,M * Loftorka hf ■ Haipah f ^StemuHarverks miðian h/f IÐNVERK HF Hátúni 6a- Sími: 25945-25930 BYGGINGAÞJÓNUSTA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.