Morgunblaðið - 15.03.1986, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. MARZ 1986
15
BORGARTUNI 31
SÍMI29191.
EROBIKK FLOKKAR:
A) I. Byrjendur „í eldri
kantinum"
B) II- Byrjendur „í yngri
kantinum"
C) III. Miðlungs erfiði
D) IV. Erfiðir tímar
E) Púl. Erfiðir tfmar fyrir
topp íþróttafólk
F) Svitatfmar. Erfiðir tím-
ar, mikill sviti
G) Barnshafandi konur og
konur með börn á
brjósti
H) Offitusjúklingar
I) íþróttafélög — Afsláttur
J) Aldraðir — Verð 10OO
kr. pr. mánuð /
Kennarar
Olof Palme
Við andlát Olofs Palme hafa
sannast hin gömlu vísdómsorð, að
enginn veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur. Eins og títt er um
mikilmenni á sviði stjómmála var
hann umdeildur í lifanda lífí. Svo
stórbrotinn var hann, að allir
þekktu til hans og höfðu skoðanir
á honum, störfum hans og stefnu.
Þegar hann, boðberi friðar og
frelsis, féll fyrir kúlu launmorðingja
á götu í höfuðborg sinni, kom það
sem reiðarslag yfír sænsku þjóðina.
Raunar var það ekki síður reiðar-
slag fyrir hinar norrænu þjóðimar,
og loks fyrir svo til allar þjóðir, þar
sem hann eða orðspor hans höfðu
komið og boðskapur hans var kunn-
ur. Sorg sænsku þjóðarinnar var
djúp og sár. Synir og dætur norð-
ursins táruðust á torgum úti.
Olof Palme hefur þegar sess í
sögu okkar tíma. Hans mun verða
minnst sem hins djarfa baráttu-
manns fyrir friði og mannréttind-
um, sem hljóp til vamar, þegar
valdatafl og vopnaskak tróðu á lífí
og örlögum lítilmagnans. Hans mun
einnig verða minnst sem oddvita
þeirrar sænsku alþýðuhreyfingar,
sem hefur á nokkrum áratugum
skapað fíjálst velferðarríki, er vart
á sinn líka. Sá þáttur einn skapar
honum stöðu í sænskri og norrænni
sögu.
Menn, sem eru til fomstu valdir,
hafa oft mörg andlit, ekki síst
stjómmálamenn, sem heyja baráttu
Heinrich
Böll í tíma-
riti MM
„Fyrsta hefti Tímarits Máls og
menningar á þessu ári er að hluta
helgað þýska Nóbelsverðlaunahöf-
undinum Heinrich Böll sem dó í
fyrra. Halldór Guðmundsson skrifar
grein um hann, birt er siðasta langa
viðtalið sem tekið var við hann,
„Frelsið þverr dag frá degi“, og
löng smásaga í þýðingu Guðmundar
Georgssonar. Sagan heitir Ekki
aðeins á jólunum og er ein af bestu
smásögum Böll, fyndin og hvöss
ádeila á velferðarsamfélagið," segir
ífréttfráMM.
„Stefán Hörður Grímsson leggur
tvö ný ljóð til þessa heftis og Vil-
borg Dagbjartsdóttir á athyglis-
verða grein um ljóðið Söknuð eftir
Jóhann Jónsson. Hún bendir á
tengsl þess við sjálfsævisögulegt
kvæði Gests Pálssonar, Árin líða,
og fléttar örlög þessara tveggja
skálda skemmtilega saman.
Af öðm efni í Tímaritinu má
nefna minningargrein Stefáns
Karlssonar handritafræðings um
Jón Helgason prófessor, hina frægu
ræðu Sigurðar A. Magnússonar við
styrkveitingu Ríkisútvarpsins á
gamlársdag, svar Ástráðs Eysteins-
sonar við greinum Einars Kárason-
ar og Sigfúsar Daðasonar um þýð-
ingar og umfjöllun Dagnýjar Krist-
jánsdóttur um Kvennamál og
kvennamenningu. Tvær greinar
varða fomsögumar, Goðgá Hjalta
Skeggjasonar eftir Asgrím Al-
bertsson, og „Milliganga“, um fé-
lagslegar rætur Islendinga-
sagna, eftir Jesse L. Byock.
Einnig er athyglisverð grein um
Mótun nýja Kína eftir Ragnar
Baldursson.
Auk Stefáns Harðar eiga ljóð í
heftinu þau Magnús Skúlason,
David Radavich, Carolyn Forché,
bandaríska blökkukonan Nikki
Giovanni, fínnska verðlaunaskáidið
Bo Carpelan og Ezra Pound.
Ritdómar em um Ydd Þórarins
Eldjám, Við gluggann eftir Fríðu
Sigurðardóttur og Um sálina eftir
Aristoteles.
Tímarit Máls og menningar er
128 bls., unnið í Prentsmiðjunni
Odda hf. Hilmar Þ. Helgason hann-
aði kápu.“
EROBIKK
Olof Palme
sína á leiksviði landsmála í augsýn
almennings. Olof Palme var engin
undantekning hvað þetta snerti.
Margir þekktu hann aðeins sem
hinn harða og stolta baráttumann
í ræðustól eða sjónvarpi. Aðrir
þekktu persónulega ljúfan og hóg-
væran dreng, skemmtilegan og
aðlaðandi.
íslendingar hafa syrgt Olof
Palme fyrir allt það, sem hér hefur
verið nefnt. Þeir syrgja einnig sér-
stakan vin og aðdáanda íslands og
sér í lagi íslenskrar menningar.
Hann hafði oft heimsótt okkur síð-
ustu áratugi og átti marga vini á
íslandi. Þegar á reyndi í meiri hátt-
ar þjóðmálum kom þessi vinátta1'
hans og þekking á íslenskum hög-
um okkur oft vel. Það vita þeir, sem
nærri hafa staðið.
Þijú þúsund og fjögur hundmð
íslendingar, sem búa hér í landi og
njóta gistivináttu sænsku þjóðar-
innar, taka fullan þátt í sorg hennar
og votta flölskyldu Olofs Palme,
flokki hans og sænsku þjóðinni
allri, dýpstu samúð.
Benedikt Gröndal, sendi-
herra í Stokkhólmi.
Flokkar við
allra hæfi,
mánaðarkort,
2 mán., 3
mán., 6 mán.,
stakirtímar.
Mark Wilson,
Ágústa Kristjáns,
HildigunnurJohnson
Sigurlaug Guðmundsd.
Ágústa Johnson,
Jónína Benediktsd.
Pallur fyrir kennarann svo allir sjái
Heilsan í öndvegi
Góð baðaðstaða
Góð gufuböð
Stórog góðursalur
Frábær tónlist í
Bose 901
HAMRABORG 3, SÍMI. 42011, KÓPAVOGI
i/iinu
Opið í dag
til kl.
j
I