Morgunblaðið - 15.03.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. MARZ 1986
23
lceland 86
í nýjum íslandsbæklingi er mikil áhersla lögð á að kynna hina sér-
stöku náttúrufegurð á Islandi.
stendur sem hæst í vor, enda margt
þar að skoða, svo sem á Suðumesj-
um, Vestfjörðum og víðar.
ísland í sviðsljosinu
Að lokum Jóhann, hefur ísland
ekki verið mikið í sviðsljósinu
upp á síðkastið, eftir að Hólm-
fríður Karlsdóttir var kjörin
Ungfrú Heimurí London í nóv-
ember, sællar minningar?
— Jú vissulega, Island hefur
verið mikið í fjölmiðlunum á undan-
fömum mánuðum. Jón Páll var hér
talsvert í fréttum eftir að hann
vann titilinn sterkasti maður heims
og Hólmfríður sló í gegn í fegurðar-
keppninni í nóvember. Hún heillaði
alla með framkomu sinni í keppn-
inni og í sjónvarpsþáttum að keppni
lokinni. Hún hefur verið mikil og
góð auglýsing fyrir ísland.
Ymislegt annað hefur verið gert
til að vekja athygli á Islandi og
því sem landið býður uppá. Áður
hef ég nefnt fyrirlestra fyrir ferða-
skrifstofufólk, sjóstangaveiðimenn
pg fuglaskoðara. Við höfum haldið
íslandskynningar og sýningar og í
mars fór Einar Benediktsson sendi-
herra í opinbera heimsókn til Birm-
ingham. Þar var haldin sýning og
boðið í móttöku í samráði við íslenzk
fyrirtæki, þar á meðal Flugleiðir.
21.—23. mars verður íslenzk helgi
í Brighton. Einar Benediktsson
sendihera fer þngað í opinbea heim-
sókn, íslenzk fyrirtæki verða með
móttöku og kynningu, boðið verður
upp á íslenzkan mat, sem Hilmar
B. Jónsson matreiðslumeistari mun
annast af alkunnrí snilld og Magnús
Magnússon heldur fyrirlestur. ís-
lenzka helgin mun að mestu leyti
fara fram á þekktu hóteli í Brigh-
ton, Old Ship. Loks er þess að geta
að vinabæjatengsl verða staðfest
þessa helgi milli Brighton og Kefla-
víkur og mun Tómas Tómasson
forseti bæjarstjórnar Keflavíkur og
kona hans verða viðstödd athöfnina.
Loks vil ég geta þess að sjón-
varpsstöðin TVS, sem er á suður-
strönd Englands, mun sýna hálfrar
klukkustundar sjónvarpsþátt á
besta tíma 7. apríl eða klukkan
6.30. Þessi mynd var tekin á sjó-
stangaveiði mótinu í Keflavík í
fyrrahaust og inn í þáttinn er bætt
viðtölum við Hólmfríði Karlsdóttur
og Jón Pál Sigmarsson. Talið er að
3—4 milljónir manna muni sjá þátt-
inn, en á þessu svæði búa flestir
sjóstangaveiðimenn í Bretlandi.
— Mitt aðaláhugamál, segir Jó-
hann, er að benda fólki á íslenzka
náttúru. Hún er það merkilegasta
og dýrmætasta sem við getum boðið
uppá. Ef fólkið nýtur ferðarinnar
til fullnustu höfum við eignast
gangandi sendiherra fyrir ísland.
- SS.
Hver var ad tala um
ad tölvuvæðing væri dýr?
Ef þér hefur fundist of dýrt að tölvuvæða fyrirtækið,
komdu þá og skoðaðu STAR-pakkann.
Á SÖLUSÝNINGU AÐ LÁGMÚLA 5,3. HÆÐ
UM HELGINA 15.-16. MARS.
Tilboð nr. 1.
STAR PC-tölva, Microline 182
prentari, Quantum-hugbúnað-
ur frá Víkurhugbúnaði með
fjárhags- og viðskiptamanna-
bókhaldi, lagerkerfi, sölukerfi
með útprentun á nótur, víxla,
verðlista, gíróseðla o.fl, o.fl.
Staðgr. 107.650
Tilboð nr. 2
STAR XT-tölva með 20 MB
harðdiski, Microline 182 prent-
ari, Quantum-hugbúnaður frá
Víkurhugbúnaði með fjárhags-
og viðskiptamannabókhaldi,
lagerkerfí, sölukerfí með út-
prentun á nótur, víxla, verð-
lista, gíróseðla o.fl.
Staðgr. 154.500
STAR PC/XT og Quantum-hugbúnaður
HUÓMAR VEL EKKI SATT? EN SJÓN ER SÖGU RÍKARI
MÆTTU Á SÝNINGUNA!
7ZÍ pr fjölkaup hf. Víkurhuabúnadur sf.
Lágmúla 5, 3. h. sími 688T 93
Falleg
fermingargjöf
Sveppalampar
Póstsendum
KOSTAlBODA
■--------- -— .
Bankastræti 10, sfrni 13122.
Garðakaupum Garðabæ, sfrni 651812.