Morgunblaðið - 15.03.1986, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15.MARZ1986
Bj örg-unarsveitarmenn
taka á móti eiturefnum
í DAG verða félagar björgun-
arsveita Slysavarnafélagsins á
bensínstöðvum og taka á móti
ýmsum efnum sem fólk vill losa
sig við af heimilum sinum og
geta valdið slysum á börnum.
Að sögn Sigmars B. Hauksson-
ar upplýsingafulltrúa Slysa-
varnafélagsins verður tekið á
móti öllum efnum svo sem
gömlum lyfjum, leysiefnum,
þvottaefnum, olíum margs
konar, gömlum snyrtilyfjum,
ilmvötnum og þess háttar, en
öll þessi efni geta valdið eitrun-
um hjá börnum ef þau eru tekin
inn. Sagðist Sigmar vona að
fólk notfærði sér þetta, margir
eru í vandræðum með að losa
sig við þessi efni, en með sam-
eiginlegu átaki, og með því að
fjarlægja sem mest af efnum úr
heimahúsum sem fólk er hætt
að nota, er hægt að fækka
slysum í heimahúsum til mikilla
muna.
Björgunarsveitarmenn á einni bensínstöðinni. Morgunbiaaið/Ámi Sæberg
Herferð gegn slysum í heimahúsum:
Listaverkahappdrætti Víðistaðakirkju:
Dregið um 32 listaverk
á sumardaginn fyrsta
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnar-
firði hefur verið i byggingu síðan
1981 og er stefnt að þvi að vigja
hana á árinu 1987. Viðistaðasöfn-
uður hefur fengið inni i Hrafn-
istu i Hafnarfirði, en sú aðstaða
er orðin of lítil og kemur það
niður á safnaðarstarfinu. Til þess
að hraða kirkj ubyggingunm
hefur m.a. verið efnt til lista
verkahappdrættis til fjáröflunar
Vinningamir í listaverkahapp-
drættinu eru 32 listaverk sem flest
em gefín af listamönnunum sjálf-
um. Þetta em olíumálverk, vatns-
litamyndir, tússteikningar, leirverk
o.fl. Allir vinningamir í happdrætt-
inu verða til sýnis í Hafnarborg
dagana 15.—23. mars. og þar verða
happdrættismiðar til sölu. Dregið
verður í happdrættinu á sumardag-
inn fyrsta. (Frétiatílkyimiiigr)
Frumsymng í Regnboganum:
Trú, von og kærleikur
KVIKMYNDIN „Trú, von og
kærleikur*1 eftir danska leik-
stjórann Bille August verður
frumsýnd í Regnboganum í dag
og verður leikstjórinn viðstaddur
frumsýninguna. Myndin hefur
slegið aðsóknarmet í Danmörku,
þegar hefur yfir milljón manns
séð hana.
Kvikmyndin fjallar um fjögur
ungmenni sem lenda hvert um sig
og saman í mikilli lífsreynslu og em
þar af leiðandi rifin burt úr gleði
og áhyggjuleysi æskunnar. Leik-
stjórinn, Bille August, segir kvik-
myndina hafa orðið til út frá þörf
fyrir að segja frá gagnstæðu illgim-
innar og valdabaráttunnar sem lýst
var í kvikmyndinni Zappa, sem
hann leikstýrði og sýnd var í Regn-
boganum 1984. „Myndin fjallar
fyrst og fremst um ástina, ást milli
foreldra og bama, ást með og án
skilyrða, kynferðislega ást, og þó
öllu fremur náungakærleikann. Um
upplifun ástarinnar, einföldustu og
endingarbestu leið mannsins frá
ótta og einmanaleika."
Kvikmyndin verður fmmsýnd í
A-sal Regnbogans kl. 14.
^ Frá einu af námskeiðum verkstjómarfræðslunnar.
Konur við stjórnvöl
MIKIÐ hefur borið á alls kyns
veikindum hjá íbúum Reykjavík-
urborgar að undanförnu.
Samkvæmt skýrslum læknavakt-
arinnar vikuna 1.—8. mars greind-
ust 40 manns með inflúensu, 55
með vírussjúkdóma, 51 með kvef,
bronkítis og barkabólgu, 54 með
kvef og eymabólgu, 47 með háls-
bólgu, 6 með skarlatsótt, 15 með
lungnabólgu, 5 með hettusótt og 7
- imeð hlaupabólu og 4 með iðrakvef.
Heimir Bjamason aðstoðarborg-
arlæknir sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þessar skýrslur bentu
til þess að veikindi væru nú eitthvað
meiri í borginni en í meðallagi og
bæri mest á inflúensu og kvefí.
Siguijón Pjeldsted skólastjóri
Hólabrekkuskóla sagði að nokkuð
hefði orðið vart við veikindi í skólan-
um. Hann sagði að við skólann
væru 60 kennarar og hefðu mest
5—6 verið veikir í einu. Ekki var
unnt að fá forfallakennslu þar sem
forfallakennarar lágu veikir sjálfír.
* Á mánudaginn þurfti til dæmis að
senda þrjá bekki heim. Hann sagði
að erfíðara væri að átta sig á hvort
meira hefði verið um veikindi hjá
bömunum en venjulega enda væru
1.140 böm í skólanum og því alltaf
eitthvað um forföll.
Bjöm Jónsson skólastjóri Haga-
skóla sagði að dálítið væri um for-
Töll vegna veikinda í skólanum.
Verkstjórnarfræðslan efnir í
dag, laugardaginn 15. mars, til
ráðstefnunnar Konur við stjóm-
völinn, um hvernig má fá fleiri
konur til stjómunarstarfa á ýms-
um sviðum atvinnulifsins, hvað
hvetur þær eða hindrar. Ráð-
stefnan er ætluð öllum, sem
* áhuga hafa á að ræða þessi mál
og stuðla þannig að fjölbreyttari
skiptingu starfa milli kynjanna,
en eins og oft var bent á á sl.
ári í lok Kvennaáratugar er
kyngreining starfa ein af orsök-
um lakari stöðu kvenna á vinnu-
markaði.
Af þeim 1.418 verkstjómm, sem
útskrifast hafa af námskeiðum
Verkstjómarftæðslunnar frá upp-
hafí, em konur aðeins 88. Þessa
vikuna stendur yfír nýjung hjá
Verkstjómarfræðslunni, námskeið í
stjómun þar sem sérstaklega er
tekið tillit til aðstæðna kvenna og
m.a. ijallað um viðhorf og fordóma
Slæmt heilsu-
far borgarbúa
starfsmanna og stjómenda til
kvenna í stjómunarstörfum. Þetta
námskeið er viðleitni af hálfu Verk-
stjómarftæðslunnar til að reyna að
breyta myndinni.
Ráðstefnan Konur við stjómvöl-
inn er haldin í lok þessa námskeiðs.
Þar verður fjallað um verkaskipt-
ingu á vinnumarkaði, stöðuna í
dag, 6 stjómendur úr hópi kvenna
lýsa viðhorfum sínum til stjómunar
og viðhorfum starfsmanna til þeirra
og Valgerður Bjamadóttir bæjar-
fulltrúi á Akureyri segir frá sam-
norrænu verkefni um kyngreindan
vinnumarkað, en hún stjómar fram-
kvæmd þess á íslandi. Lýst verður
niðurstöðum í hópverkefhi nám-
skeiðsins um hindranir og fordóma
gegn þátttöku kvenna í stjómun
og að lokum gerð samantekt á
umræðum á ráðsteftiunni.
Ráðstefnan verður haldin í húsa-
kynnum Iðntæknistofnunar íslands,
sem Verkstjómarfræðslan heyrir
undir, á Keldnaholti við Vestur-
landsveg. Hún hefst kl. 13.30 og
stendurtil kl. 18.
(Fréttatílkyiming)
HorgunbUðið/RAX
Klarinettleikararnir Armann Helgason, Jón Aðalsteinn Þorgeirsson, Kjartan Óskarsson, Óskar
Ingólfsson og Sigrún J. Snorradóttir.
Mozart-tónleikar í Hallgrímskirkju:
Næturljóð fyrir söng-
raddir og bassetthorn
LISTVINAFÉLAG Hallgrímskirkju heldur tónleika með verkum
eftir W.A. Mozart nk. sunnudagskvöld. Flutt verður kammertón-
list, kvintettar fyrir bassetthorn og klarinett, noktúmur fyrir
söngraddir og bassetthora og kirkjusónötur fyrir orgel og
strengjahljóðfæri.
Hörður Áskelsson formaður
Listvinafélags Hallgrímskirkju
sagði í samtali við blaðið að nýtt
10 radda orgel Hallgrímskirkju
myndi hljóma í fyrsta sinn á
þessum tónleikum. „Þetta er mjög
vandað og hljómfagurt danskt
orgel, sem við höfum keyþt til að
hafa hér til bráðabirgða, orgelið
var sett upp í desember sl. og á
að þjóna okkur þar við flytjum í
stóru kirkjuna, og verður einnig
notað þar í fyrstu, það verður allt
of lítið fyrir þá kirlq'u, en það
tekur um tvö og hálft ár að smíða
nægilega stórt orgel fyrir kirkj-
una.“
Á tónleikunum verður eingöngu
leikin tónlist eftir Mozart, „tónlist-
in spannar mjög stórt tímabil í
hans annars stuttu ævi, mörg
þeirra nokkuð óvenjuleg verk, sem
sjaldan heyrast". Hörður sagði að
leikið væri á hljóðfæri sem Mozart
hefði notað mikið í tónsmíðum
sínum, svo sem bassetthom, á
þessum tónleikum er leikið á þijú
slík hom samtímis. Flytjendur eru
Marta Halldórsdóttir, sópran, El-
ísabet Waage, mezzosópran,
Halldór Vilhelmsson, bassi, klar-
inettleikaramir Ármann Helga-
son, Jón Aðalsteinn Þorgeirsson,
Kjartan Óskarsson, Óskar Ing-
ólfsson og Sigurður I. Snorrason,
Hörður Áskelsson orgelleikari og
strengjaleikarar úr Sinfóníu-
hljómsveit íslands.
Hörður var spurður hvort verk
Mozarts væm í tísku um þessar
mundir. „Já, það er óhætt að segja
það, þetta em áreiðanlega áhrif
I gegnum Amadeus-æðið sem kom
í kjölfar kvikmyndarinnar. “
Tónleikamir hefjast kl. 20.30
og aðgöngumiðar seldir við inn-
ganginn.
Lísa í Undralandi frum-
sýnd í Kvennó í kvöld
LEIKFÉLAG Kvennaskólans í
Reykjavík framsýnir leikritið
Lísu í Undralandi í Kvennaskól-
anum í kvöld klukkan 20.30.
Alls taka um 18 manns þátt í
sýningunni. Allt em þetta nemend-
ur í Kvennaskólanum nema tveir
meðlimir hljómsveitarinnar sem
flytur tónlistina í leikritinu. Með
aðalhlutverk fara Vala Steinunn
Guðmundsdóttir, Halla J. Magnús-
dóttir, Ágústa Skúladóttir, Bima
Halldórsdóttir, _Níls Helgi Nílsson,
Margrét Lind Ólafsdóttir og Anna
Vigdís Gísladóttir. Leikstjóri er
Ásdís Skúladóttir en leikmynd og
búningar em unnir í sameiningu
af leikhópnum. Höfundur handrits
er Klaus Hagemp.
Eins og áður er getið er fmmsýn-
ingin í kvöld og em fyrirhugaðar
að minnsta kosti 6 sýningar á verk-
inu. Þetta er þriðja árið sem Leik-
félag Kvennaskólans í Reykjavík
starfar.
IflKFÉtAG KVENMASKÓUNS IREYKIAVÍK
Hófunduf handrtts: - Ltól&tiórf:
Klnus Hagerup SkiilatUntík
SÍMNGARSttOUR KVENNASKÓUNN í REYKJftílK