Morgunblaðið - 15.03.1986, Side 56
LAUGARDAGUR15. MARZ 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Evrópuflug Flugleiða:
Hækkun á far-
-gjöldum 1. apríl
Verðbreytíngar mismunandi vegna
breytínga á fargjaldakerfinu
VERÐ breytist á fargjöldum Flugleiða til Evrópu þann
1. aprfl næstkomandi. Sum fargjöldin hækka en önnur
lækka og meta Flugleiðir verðbreytinguna sem 3%
meðalhækkun. Lægstu fjargjöld hækka í mörgum tilvik-
um mun meira, því gerðar eru verulegar breytingar á
fargjaldakerfinu. Apex-fargjöld eru felld niður til
margra borga og tekin upp svokölluð Pex-fargjöld.
Sæmundur Guðvinsson frétta-
^^fulltrúi Flugleiða segir að venja sé
að breyta fargjöldunum þann 1.
apríl, en nú yrðu breytingamar rót-
tækari en oft áður. Almennt kæmu
Pex-fargjöld í staðinn fyrir Apex
sem lægstu fargjöld og með því
móti væri losað verulega um þau
skilyrði sem þessum lágu fargjöld-
um fylgdu. Pex-fargjaldið þyrfti
ekki að bóka og greiða með 2 vikna
fyrirvara eins og var með Apex og
er það heldur ekki bundið við
ákveðna daga eins og Apex var
bundið við. Hin svokallaða sunnu-
■■^dagsregia væri eftir sem áður kvöð
á þessum fargjöldum, það er að fólk
þurfi að vera erlendis aðfaranótt
sunnudags. Þá væri gildistími mið-
ans takmarkaður við einn mánuð.
Eftir 1. apríl verða algeng far-
gjöld sem hér segir, báðar leiðir í
öllum tilvikum, en án flugvallar-
skatts sem er 750 krónur. Pex-
fargjald til Kaupmannahafnar verð-
ur 15.840 kr. Er það hækkun um
1.190 kr., eða 8,1%, frá ódýrasta
Apex-fargjaldi í dag sem er 14.650
kr. Aftur á móti munu unglingafar-
gjöld til Kaupmannahafnar lækka
úr 14.660 kr. í 14.370 kr., eða um
2%.
Til Lúxemborgar verður tekið
'upp nýtt Pex-fargjald, 13.350 kr.
Lægsta Apex-fargjald er nú 13.950
kr. og lækkar því fargjaldið þangað
um 4,3%.
Pex-fargiald til London verður
14.390 kr., og hækkar úr 13.170
kr. sem nú er lægsta Apex-fargjald-
ið, eða um 9,2%.
Pex til Stokkhólms verður 18.460
kr. Lægsta Apex er nú 17.070 krón-
ur, og er hækkunin því 1.390 krón-
ur, eða 8,1%. Aftur á móti lækkar
fargjaldið til Helsinki. Þangað verð-
ur tekið upp nýtt Apex-fargjald,
21.640 kr. Apex þangað er nú
27.070 kr. og er lækkunin því 5.430
krónur, eða um 20%.
Pex-fargjald til Frankfurt verður
17.660 kr., sem er sama fargjald
og er þangað í dag. Boðið verður
nýtt vor og haust Pex-fargjald á
14.580 kr., sem er 17,4% ódýrara
en Pex-fargjaldið á öðrum tfmum
árs.
MorgunblaðM/RAX
Lögreglan fjarlægir bíla sem lagt er ólöglega
Það getur verið freistandi að skjótast í búð og skilja bílinn sem snöggvast eftir og þá er kannski
ekki alltaf gætt að þvi að honum sé löglega lagt. Freistingin er þeim mun meiri ef veður er slæmt,
en í gær var snjómugga talsverð. En lögreglan líður ekkert slikt, a.m.k. ekki í Bankastræti, þar
sem þessi bill stóð ólöglega. Slæmt getur verið að standa frakkalaus i bylnum og bfliiiin á bak og
burt þegar erindinu í verzluninni er lokið.
0
Ovíst hvort af söngvakeppninni verður í kvöld:
Aðgerðir tæknimanna
trufla útvarp og síma
MIKIL óvissa var í gærkvöldi um
óraskaða starfsemi Ríkisútvarps-
ins, meðal annars hvort yrði af
beinni útsendingu á söngva-
keppni sjónvarpsins i kvöld eftir
að tugir rafeindavirkja i þjón-
ustu Ríkisútvarpsins og Pósts og
sima ákváðu að hætta störfum i
kjölfar frétta af úrskurði Félags-
dóms um ólögmæti verkfalls
þeirra, sem boðað hafði verið
frá sfðustu áramótum. Útsending
rásar 2 féll niður í gærkvöldi af
þessum sökum en útlit var fvrir
að tæknimenn, sem ekki eru í
Sveinafélagi rafeindavirkja,
myndu annast útsendingar i dag.
Af sömu ástæðu var útlit fyrir
Steingrímur Hermannsson á miðstjómarfundi Framsóknarflokksins:
„Framsóknarmenn hefji
*nýja sókn í þéttbýli“
„Megnm aldrei halda fram hlut strjálbýlis á kostnað
þéttbýlis,“ sagði forsætísráðherra
STEINGRÍMUR Hermannsson, forsætisráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, sagði í ræðu á aðalfundi miðstjórnar flokksins i
gær, að hann hefði áhyggjur af því að Framsóknarflokkurinn í heild
brygðist ekki rétt við þeim miklu breytingum, sem orðið hefðu á
íslensku þjóðlifi á undanförnum árum, og þeim öru breytingum sem
r— ^Jframundan væru.
„Við eigum að ræða um breyting-
amar, óskir fólksins og kröfur, með
opnu og jákvæðu hugarfari. Við
verðum að heQa nýja og sterka sókn
í þéttbýlinu. Við megum aldrei
halda fram hlut stijálbýlis á kostnað
þéttbýlisins," sagði forsætisráð-
herra. Hann hvatti til aukinnar
ifcpátttöku ungs fólks og kvenna f
starfi Framsóknarflokksins og
sagði að hinir eldri ættu að víkja
svo hinir yngri kæmust til áhrifa.
„Konum ber meiri aðild að forystu-
sveit. Eftir næstu þingkosningar
skulu þær verða nokkrar í þingliði
flokksins," sagði hann ennfremur.
Forsætisráðherra taldi kjara-
samningana á dögunum marka ein
mestu tímamót, sem orðið hefðu í
íslensku efnahagslífi, og lagði
áherslu á að þar hefði verið fylgt
stefnu Framsóknarflokksins, en
samstaða innan ríkisstjóminnar
hefði þó ráðið úrslitum um að
samningar tókust.
Steingrímur Hermannsson
kvaðst vonast til þess að raunvextir
lækkuðu fljótlega, en um lækkun
þeirra gilti þó, að hægara væri um
að tala, en í að komast. Hann
sagði, að hann væri því fylgjandi
að innlend fyrirtæki fengju að taka
lán erlendis á eigin ábyrgð. Það
myndi verða til þess að draga úr
þrýstingi á innlendan peningamark-
að og stuðla að lækkun vaxta.
Sjánánar ábls. 31.
að útsendingar rásar 1 yrðu
ótruflaðar en framleiðsla á inn-
lendu efni mun væntanlega
liggja niðri. Sömuleiðis gæti svo
farið, að allar nýframkvssmdir í
vegum Pósts og síma falli niður
þar til lausn er fundin á deilunni.
Rúmlega 120 rafeindavirlqar f
opinberri þjónustu, sem jafnframt
em f Sveinafélagi rafeindavirkja,
sögðu upp frá og með sfðustu ára-
mótum samhliða því, sem félagið
boðaði verkfall hjá Ríkisútvarpinu
og Pósti og síma. Ríkisvaldið taldi
verkfallið ólöglegt og var gert
samkomulag við Sveinafélagið um
að Félagsdómur yrði fenginn til að
úrskurða um lögmæti þess. Sá dóm-
ur féll í fyrrakvöld.
Á félagsfundi í Sveinafélagi raf-
eindavirkja í gær var samþykkt að
félagið drægi til baka tilmæli til
félagsmanna í þjónustu Pósts og
síma og Rfkisútvarpsins um að
fresta því að láta uppsagnimar
koma til framkvæmda. Jafnframt
var skorað á stjómvöld „að virða
félagafrelsið og láta af ögmnum
við stétt rafeindavirkja og ganga
tafarlaust til viðræðna við félagið",
eins og það var orðað.
í Sveinafélagi rafvirlqa em nærri
400 félagar, þar af liðlega 150 hjá
ríkinu. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins telja rafeindavirlqar að
með því að ganga úr BSRB og láta
Rafiðnaðarsambandið fara með
samningsrétt sinn muni þeir geta
hækkað gmnntaxta sína um
16—20%, eða um 6—6 launafiokka.
Á félagsfundinum í gær vom um
80 rafeindavirkjar og vom flestir
þeirra staðráðnir í að hætta störfum
að sögn Helga R. Gunnarssonar,
starfsmanns Sveinafélags rafeinda-
virkja. Hann lagði áherslu á, að hér
vseri ekki um að rseða skipulagðar
aðgerðir af hálfú félagsins, heldur
tæki hver einstakur rafeindavirki
eigin ákvörðun. „Ég held að flestir
þessara manna séu tilbúnir að taka
endurráðningu hjá sínum stofnun-
um — en þá samkvæmt samningum
Sveinafélags rafeindavirkja," sagði
hann.
í fréttatilkynningu frá Sveinafé-
laginu eftir félagsfundinn í gær-
kvöld segir m.a., að verkfallið, sem
ágreiningur var um, sé nú úr sög-
unni og mönnum sé því fijálst að
hætta störfum. „Félagafrélsi er
tryggt í stjómarskrá landsins,"
segir í tilkynningunni. „Það er stað-
fastur vilji rafeindavirkja að sam-
einast í eitt fagfélag, Sveinafélag
rafeindavirkja. Þetta stjómar-
skrárákvæði er ekki viðurkennt af
ríkisvaldinu og um það snýst deil-
an.“
Indriði H. Þorláksson, formaður
samninganefndar ríkisins, sagði í
gærkvöldi að af hálfu ríkisvaldsins
væri enn litið svo á, að uppsagnimar
væm ólöglegar og að meirihluti
Félagsdóms hefði fallist á það sjón-
armið. „Mér sýnist að þetta sé
einhverskonar óðagot og bráðræði
— þessar aðgerðir koma á óvart,“
sagði hann. „Ég ræddi við fulltrúa
sveinafélagsins í dag og þá var
ákveðið að ræða saman síðdegis á
mánudaginn þegar forsendur dóms-
ins lægju fyrir. Til hvaða niðurstöðu
þær viðræður leiða veit ég ekkert
um.“