Morgunblaðið - 16.03.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBIAÐID, SUNNUDAGLfR 16. MARZ 1986
Nýskipaður sendi-
herra Vatikansins
VÆNTANLEGUR var til lands-
ins nú um helgina nýskipaður
sendiherra Vatikansins á Norð-
urlöndum Henri Lemaitre erki-
biskup.
Engin nýrna-
veikihjá
Pólarlaxi
Henri er hér á miðri myndinni
ásamt kaþólskum kirkjuhöfðingjum
þeim John W. Gran Oslóarbiskup,
sem nú hefur látið af störfum og
Pau! Verschuren Finnlandsbiskup
(t.h.). Myndin hér til hægri var tekin
á biskuparáðsfundi Norðurlanda í
síðasta mánuði. Erindi Lemaitre
erkibiskups og sendiherrans er að
afhend forseta íslands embættis-
bréf sitt. Hann mun væntanlega
hafa nokkra daga viðtöl hérlendis.
- segir Finnbogi Kjeld
„ÞAÐ er engin nýrnaveiki hjá
Pólarlaxi. Það varð vart smitun-
ar i 25 fiskum í haust og hrogn-
um úr þeim öllum eytt. Við
komum því í veg fyrir útbreiðslu
veikinnar með þessu,“ sagði
Finnbogi Kjeld, stjórnarformað-
ur Pólarlax, í samtali við Morg-
unblaðið.
„Að eigin frumkvæði tókum við
upp þá nýbreytni að láta rannsaka
hjá okkur hvern einasta klakfísk til
að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúk-
dóma með hrognum. Af 1.059 físk-
um, sem rannsakaðir voru, fundust
merki um smitun í 25 og þar sem
við höldum hrognum aðskildum
eftir fískum reyndist auðvelt að
eyða hugsanlega smituðum hrogn-
um,“ sagði Finnbogi.
Dregið hefur
úr áhuga
á stækkun
- segir forsætisráðherra
STEINGRÍMUR Hermannsson
forsætisráðherra átti nýlega
viðræður við forsvarsmenn
Alusuisse í Sviss, vegna hugsan-
legrar stækkunar á álverinu í
Straumsvík með þátttöku Kin-
veija.
Að sögn Steingríms er ekki að
vænta endanlegrar ákvörðunar um
stækkun álversins á næstunni. „Ég
hef það á tilfínningunni að það verði
töf á stækkuninni," sagði Stein-
grímur. Mikil óvissa ríkir vegna
breytinga á aðalstjórn Alusuisse og
verða engar ákvarðanir teknar fyrr
en þær eru til lyktar leiddar. Þá
hefur heimsmarkaðsverð á áli ekki
hækkað og hefur fyrirtækið neyðst
til að loka verksmiðjum í Bandaríkj-
unum af þeim sökum.
„Þetta hefur dregið úr áhuga
fyrirtækisins á stækkun álbræðsl-
unnar en þeir taka fram að ál-
bræðslan hér á landi sé ein þeirra
sem álitlegust er þegar til lengri
tíma er litið og vafalaust góður
kostur að stækka hana,“ sagði
Steingrímur. Engin svör hafa borist
frá Kínveijum ennþá en Dr. Miiller
sem er ráðgjafi fyrirtækisins í áliðn-
aði er þar staddur um þessar
mundir.
Stuðningur við
NATO ánægjuefni
í TILEFNI af nýafstaðinni þjóð-
aratkvæðagreiðslu á Spáni hefur
utanríkisráðherra sent kveðju tíl
Francisco Fernándes Ordonez
utanríkisráðherra:
„Stuðningur spænsku þjóðarinn-
ar við áframhaldandi aðild Spánar
að Atlantshafsbandalaginu er mikið
ánægjuefni og uppörvun bandalag-
inu í ómetanlegum störfum þess að
varðveislu friðar, frelsis og lýðræð-
is.
Ég bið yður að veita viðtöku
einlægustu ámaðaróskum.
MatthiasÁ *'
BOÐ
á IBM PC kyimingu
IBM býður til námsstefnu 18.—20. mars nk. Kynnt verður íiotkun IBM PC einmennings-
tölvunnar. Daglega verða haldnir 3 fyrirlestrar sem hefjast allir kl. 14:30. Að loknu kaffi-
hléi er sýning eða kynning á verkefnum en dagskránni lýkur kl. 17. Væntanlegir þátttak-
endur eru beðnir að skrá sig í síma 68 73 73. Þátttaka er ókeypis.
PC I LITLUM FYRIRTÆKJUM
Kristján Óli Hjaltason,
frkv.stj., Iðnbúð 2, Garðabæ.
PC í STÓRUM FYRIRTÆKJUM
Kjartan Ólafsson, forstöðumaður
skipulagssviðs hjá Skeljungi.
PC I FRAMLEIÐSLU-
FYRIRTÆKJUM
Gunnar Ingimundarson,
viðskiptafræðingur, FÍI.
18. MARS
PC FYRIR RITSMIÐI
Björn Vignir Sigurpálsson,
blaðamaður á Morgunblaðinu.
19. MARS
PC í SKÓLUM
Anna Kristjánsdóttir,
lektor við KHl.
20. MARS
PC í BÖNKUM
Magnús Pálsson, forstöðumaður
markaðssviðs hjá Iðnaðarbankanum.
PC VIÐ RANNSÓKNIR OG
GAGNAVINNSLU
Dr. Þorsteinn Hannesson og
Björgvin S. Jónsson,efnafræðingur,
íslenska járnblendifélaginu.
PC FYRIR VERKFRÆÐINGA
OG TÆKNIFRÆÐINGA
Ólafur Bjarnason,
verkfræðingur, VST.
PC HJÁ bæjarfélögum
Bjarni Þór Einarsson, bæjar-
tæknifræðingur á Húsavík.
ÍSLENSK ÞEKKING-ALÞJÓÐLEG TÆKNI
Skaftahlið 24 • 105 Reykjavík • Sími 27700