Morgunblaðið - 16.03.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SU.NNUD^.GUR 16. MARZ 1986
HUGVEKJA
Boðun Maríu
Óskar Jónsson
María var ung fátæk meyja af
ætt Davíðs konungs, hún var
föstnuð trésmiðnum Jósef, sem
einnig var af ætt Davíðs.
Engillinn Gabríel var sendur
frá Guði með sérstakan boðskap
til Maríu. Hann átti að boða komu
Frelsarans.
Syndin hefur heijað á mann-
kynið allt frá dögum Adams og
Evu, en Guð í kærleika sínum gaf
mönnunum fyrirheit og það mörg,
um komu Frelsarans fæddan af
meyju. „Því að svo elskaði Guð
heiminn, að hann gaf son sinn
eingetinn, til þess að hver, sem á
hann trúir, glatist ekki, heldur
hafi eilíft líf.“
Engillinn kom til Maríu og
sagði: „Heil vert þú, sem nýtur
náðar Guðs. Drottinn er með þér.“
María varð hrædd og hugleiddi,
hvílík þessi kveðja væri. Engillinn
sagði við hana: „Óttast þú eigi,
María, því að þú hefur fundið náð
hjá Guði. Þú munt þunguð verða
og son ala, og þú skalt láta hann
heita Jesúm." María undraðist og
sagði: „Hvemig má þetta verða,
þar eð ég hef ekki karlmanns
kennt?" Engillinn sagði við hana:
„Heilagur andi mun koma yfir þig
og kraftur hins hæsta mun yfír-
skyggja þig. Fyrir því mun bamið
verða kallað heilagt, sonur Guðs.
Guði er enginn hlutur um megn.“
Gegnum aldimar hafa bæði
lærðir og leikir velt vöngum yfir
þessum algerlega einstæða at-
burði. Til að sannfæra Maríu sagði
Engillinn henni frá Elísabetu, er
einnig var orðin þunguð að syni
í elli sinni. María trúði og sagði:
„Sjá, ég er ambátt Drottins. Verði
mér eftir orðum þínum.“
Engillinn vitraðist einnig Jósef
í draumi og sagði: „Jósef, sonur
Davíðs, óttastu ekki að taka til
þín Maríu, heitkonu þína. Bamið
sem hún gengur með, er af heilög-
um anda. Hún mun son ala, og
hann skaltu láta heita Jesúm því
hann mun frelsa lýð sinn frá
syndum þeirra." Matt. 1,21.
Syndin útilokaði Adam og Evu
frá Eden og syndin útilokar okkur
frá himnaríkissælu, ef Jesús fær
ekki að komast að í lífi okkar.
Allir hafa syndgað og skortir
Guðs dýrð, og þeir réttlætast af
náð hans, fyrir endurlausnina sem
er í Kristi Jesú, segir höfundur
Rómveijabréfsins.
„Óttast þú ekki, María, því að
I
„Syndin útilokaði Adam og Evu frá Eden
og syndin útilokar okkur frá himnaríkis-
sælu, ef Jesús fær ekki að komast að í
lífi okkar.“ _ . . „ T.. , oc
Guðspjall, Lúkas 1,26—51.
þú hefur fundið náð hjá Guði.“
Náðin er Guðs gjöf og stendur
öllum til boða. Postulinn Páll
segir: „Því að náð Guðs hefur
opinberast til sáluhjálpar öllum
mönnum." Eitt vers úr sálmi sem
við syngjum um náð og miskunn
Guðs er þannig:
Já, dásöm er náð þ(n og dag sérhvem ný,
ó, Drottinn, (skaut þitt vér flýjum.
Vér hræðast ei þurfiim í hælinu því,
er hörmunga dimmir af skýjum.
María gladdist og fagnaði
meðan hún beið þess að Frelsarinn
fæddist. Hún söng lofsöngva og
sagði: „Önd mín miklar Drottin,
og andi minn gleðst í Guði, frels-
ara mínum, því að mikla hluti
hefur hinn voldugi við miggjört."
Þeir sem trúa á Jesúm og hafa
hlotið hjálpræði hans hafa einnig
ástæðu til að fagna og gleðjast.
Lofsöngurinn hljómar frá mörg-
um sem áður voru í mikilli synda-
neyð og örvæntingu en Jesús
hafði snúið bölvun í blessun.
Ekkert gat fengið Pál og Sílas til
að þegja þegar þeim var varpað
í fangelsið í Filippi. Þeir sungu
lofsöngva, þrátt fyrir sársaukann
eftir svipuhöggin. Hver var
ástæðan? Jú, Jesús var kominn inn
í líf þeirra og var þeim nálægnr.
Fangavörðurinn, sem ætlaði að
fyrirfara sér, öðlaðist trúna. á
Jesúm og fagnaði með heimafólki
sínu.
Það er dýrðlegt að geta sagt
með Maríu mey: „Frelsari minn.“
Því að Frelsarinn vill gjöra mikla
hluti fyrir einn og sérhvern.
Úr sumar-
dölum
Komin er út ljóðabókin Úr
sumardölum, eftir Ólafíu Guð-
rúnu Magnúsdóttur frá Skallhóli.
Erlendur Jónsson sem skrifar
ritdóm um bókina segir um eitt
kvæði sem heitir „Hvíti dauði“
að það sé ekki að ófyrirsynju sem
hún gerir þann vágest að yrkis-
efni, svo mjög sem hann hjó
skörð í raðir kynslóðar skáld-
konunnar.
Ef einhver ágóði verður af sölu
bókarinnar á hann að fara til
Sambands íslenskra berklasjúkl-
inga til minningar um Ólafíu Guð-
rúnu Magnúsdóttur. Það var hennar
æðsta hugsjón að styrkja og styéja
samtök berklasjúklinga, segir í
frétt, sem blaðinu hefur borist.
Opid: Manud. -fimmtud. 9-19
föstud. 9-17 og sunnud. 13-1 6.
ÞEKKJNG OG ÖRYGGI I FYRIRRÚMI
Álftamýri — Raðhús
Vorum að fá í einkasölu 192 fm raðh. á tveimur hæðum
með innb. bílsk. Neðri hæð: Forstofa, gestasnyrting,
hol, stofur (arinn), eldh. þvottah. og búr. Efri hæð: 4
svefnherb., fataherb., baðherb., sjónvarpsstofa, stórar
suðursvalir. Verð 5500 þús.
44 KAUPÞING HF
Húsi vorslunarinnar
r 6B 69 SS
29555
Opið kl. 1-3
Kambsvegur
Vorum að fá í sölu 160 fm stórglæsilega íþúð á 1. hæð
ásamt 30 fm bílskúr. Mjög gott útsýni og vandaðar
innr. Ákv. sala. Eignaskipti möguleg.
fcsteign&saUn
EIGNANAUST*^:
Bótstoóarhlið 6 — 105 Raykjavfk — Simar 29555
Hrólfur Hjaltason, víðsklptafrasöingur
-29558.
Solumcnn: Siqurdur D.igb/.irtsson H.illur P.ill Jonsson Baldvin Hafstcinsson logtr
FJARFESTINGARFEIÁGIÐ
Genqióidag
16. MARS 1986
Veðskuldabréf - verðtryggð IVeðskuldabréf - óverðtr.l
Lónst. 2 afb. áári Nafn- vextir HLV Sötugengl m.v. mlsm. ávöxtunar- Lánst. 1 atb. áárl Sölugengi m/v. miam. nafnvextl
kröfu 20% HLV 15%
12% 14% 16% 1 ár 90 89 86
1 ór 4% 95 93 92 2ár 82 78 77
2ár 4% 91 90 88 3ár 76 70 70
3ór 5% 90 87 85 4 ár 68 62 62
4ár 5% 88 84 82 5ár 63 56 57
5 ár 5% 85 82 78 KJARABRÉF
6 ár 5% 83 79 76
7 ár 5% 81 77 73 | Gengi pr. 14/3 1986 = 1,518
8ár 5% 79 75 71 Nafnverð Söluverð
9ár 5% 78 73 68 — —
10ár 5% 76 71 66 5.000 7.590
50.000 75.900
Skráð sölugengi
á verðbréfaþingi
í sfðustu viku
Flokkur
1979 -2
1985-1A
Sðlugengl
1.281,20
148,62
Óskum eftir
spariskírteinum
í umboðssölu
Þetta stendur á
bak við
kjarabréf
í dag
VERDTRYGGD
SJÁLFSSKULDARÁBYRGÐARBRÉF
8,6%
ÓVERDTRYGGÐ BRÉF
2%
RÍKISSKULDABRÉF
32,3%
Endursala kjarabréfa tekur
aðeins örfáa daga. Sölulaun
eru 2%, þau sömu og af
öðrum verðbréfum.
VERÐTRYGGÐ VEDSKULDABRÉF
47,8%
BANKAÁBYRGÐARBRÉF
5,6%
SVEITA- EDA RÍKISÁB YRGDARBRÉF
3,7%
■
■
UERÐBREFAMARKAOURINN
fjármál þín - sergrein okkar
Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. S (91) 28566, S (91) 28506 símsvari allan sólarhringinn