Morgunblaðið - 16.03.1986, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR16. MARZ1986
Magnaðar ljósmyndir
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Stundum fara miklir listvið-
burðir framhjá okkur fyrir óskilj-
anleg slys eða lítinn og fálm-
kenndan undirbúning. Þetta at-
riði að undirbúa sýningar á
skipulegan hátt hefur aldrei
verið sterka hliðin á þeim, er
hafa þann starfa með höndum,
því að iðulega má vísa til mein-
legra vankanta, sem ekki verður
bætt úr.
Ég er vel minnugur enskrar
sýningar nútímalistar, er gisti
landið fyrir margt löngu, en var
að miklum hluta til í geymsium
Þjóðminjasafnsins. Nokkrar
myndanna voru að vísu á sér-
stakri sýningu í Bogasal, en það
var einungis hluti þess, er fyrir
hendi var, af hinni stórmerkilegu
sýningu.
Ég var svo lánsamur að sjá
myndimar í kjallarageymslunni,
svo að ég get hér trútt um talað,
og það var samdóma álit félaga
minna, er með mér voru, að
þessar myndir hefðu átt að gista
sali Listasafnsins — hanga uppi
allar með tölu.
Fyrir skömmu iauk sýningu á
u.þ.b. 140 ljósmyndum eftir
Georg Oddner á Lousianasafn-
inu í Humlebæk. Sýningin vakti
svo mikla athygli, að hún var
framlengd um þijár vikur og
hafði þá staðið yfir í nær tvo
mánuði.
Svo sem kunnugt er, þá er
Lousianasafnið í Humlebæk eitt
fegursta safn á Norðurlöndum
og sýningarrými þess annálað
um víða veröld, svo að ekki er í
kot vísað, er menn fá settar upp
einkasýningar þar.
Georg Oddner er sænskur að
þjóðemi og á að baki litríkan lífs-
feril og um margt mjög óvenju-
legan — var t.d. trommuleikari
í jasshljómsveit, áður en hann
söðlaði yfir í ljósmyndun. Síðan
hafa engin bönd haldið honum
og hann hefur ferðast vítt og
breitt um jarðkringluna og tekið
myndir jafnframt ótal öðmm
tiltektum á sviði ljósmyndatækn-
innar, m.a. starfað við sjónvarp
og kvikmyndagerð.
Það vom myndir, er spönnuðu
þrjátíu ára feril Georgs Oddners,
sem til sýnis vom í Lousiana-
safninu, og komu þær allar hing-
að til lands. Sjálfur kom hann
hingað og valdi hluta myndanna
til sýnis í anddyri Norræna húss-
ins.
Sýningin hefur. verið lengi í
undirbúningi og er í formi far-
andsýningar, er mun fara víða
um Norðurlönd og m.a. gista
nokkur virt söfn og þekkta sýn-
ingarsali.
Hér er sýningunni af „lítillæti"
okkar skipað til sætis í anddyri
Norræna hússins, þar sem hún
nýtur sín hvergi nærri nógu vel
í heild sinni. Anddyrið var aldrei
ætlað til meiriháttar sýninga af
arkitekt hússins Alvari Aalto,
þótt það sé prýðilega fallið til
ýmis konar kynningarsýninga og
lítilla sérsýninga.
Einhvem veginn fínnst mér,
að áhugamönnum um ljósmynd-
un og myndlist yfirleitt sé hér
lítill greiði gerður, að ekki sé
fastar að orði kveðið, er sýning-
unni er valin þessi umgerð. Hún
hefði skilyrðislaust átt að vera
sett upp í heild sinni — hver
einasta mynd ásamt því að þýða
hefði átt sýningarskrána á ís-
lenzku — eða gera aðra og veg-
legri.
Þetta minnir nokkuð á, er
stórmerkri sýningu á grafík
Edvard Munch var valinn staður
í anddyrinu, og má það skiljan-
lega vera ein ástæða þess að
treglega mun ganga að fá sýn-
ingu á verkum hans á Listahátíð.
Minnist ég þess, að forstjóri
Munch-safnsins, Alf Böe, varð
nokkuð litverpur, er hann leit
staðsetningu sýningarinnar. Hér
hefur að mínu mati verið heldur
klaufalega staðið að málum, er
við fáum einungis að sjá hluta
sýningar þessa ágæta ljósmynd-
ara Georgs Oddners, sem hefur
verið vandlega upp byggð og
þannig samansett, að hún gæfi
sem gleggsta mynd af ferli hans
í þijá áratugi svo sem fyrr segir.
Skipuleg uppsetning jafn viða-
mikillar sýningar er útilokuð í
anddyrinu og margar myndimar
njóta sín engan veginn.
Hitt er augljóst, strax og
komið er inn í anddyrið, að Georg
Oddner er mikill ljósmyndari og
hreint frábær þegar honum tekst
best upp. Sláandi dæmi þess eru
hinar fímasterku myndir af hirð-
inum í Azarbenjan, Sovétríkjun-
um, og nautinu frá Logrono á
Spáni en þessar tvær myndir
blasa við gestinum stórar og
voldugar.
Það er eitthvað villt og ógn-
þmngið yfir myndinni af hirð-
ingjanum á hestinum er grípur
Albert Schweitzer (1954)
skoðandann heljartökum og fer
ekki svo auðveldlega úr sinninu
enda hefur sumum verið hugsað
til Gengis Kahn er þeir litu
myndina fyrst...
Báðar þessar myndir sækja
styrk sinn í stór form og ein-
faidleika auk þess að vera vel
byggðar upp og frábærlega
faglega unnar. Slíkar myndir em
styrkur gerandans hvar sem
hann ber niður og einkum kemur
þetta vel fram í mannamyndum
hvers konar og þá ekki síst
andlitsmyndum, sem margar
hveijar em skapgerðarmyndir út
í fíngurgóma. Það er einna líkast
sem maður þekki þessar persón-
ur um leið og myndimar em
skoðaðar því þær afhjúpa svo
margt úr sálarlífi viðkomandi.
Þær hafa bæði heila og hjarta
og sláandi em myndimar af
Albert Schweitzer, Collette og
Klaus Rifbjerg. Þetta er skjal-
festing augnabliksins og er gert
á þann hátt að maður verður sem
þátttakandi í löngu liðnu atviki
— tíminn stendur kyrr og óbifan-
legur og virðist hvorki eiga sér
fortíð né framtíð. Vera í senn
huglægur sem hlutlægur en þó
öðm fremur áþreifanlegur og
sígildur í skynrænum tjákrafti
sínum.
Það má lesa mikið úr þessum
myndum en réttast er að láta
skoðandann um það sjálfan því
þær hreyfa efalaust við margvís-
legum og ólíkum tilfinningum
allt eftir því hver í hlut á.
Meginmáii skiptir að hér er
um listviðburð að ræða, sem
flestir ættu að nálgast er unna
góðum ljósmyndum og myndlist
yfirleitt.
FÆRUMALUÍNÝJANBÚNING
FMRPÁSKA
JbreyUO&.^dt| \íta sem
ílÖ^herbeSko5ð Og ÞÚ
i Kóp»l . •„ „áska'.
MEÐ NÝIUSIU KÓPAUITUNUM
Efnt til Sólheima-
leika í haust
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt eftirfarandi fréttatilkynn-
ing frá Sólheimum i Grimsnesi:
„Reynir Pétur Ingvarsson,
göngugarpurinn sem gekk hringinn
í kring um landið sl. sumar til flár-
öflunar fyrir byggingu íþróttaleik-
húss á Sólheimum, býður öllum
fötluðum til íþróttamóts, „Sól-
heimaleikanna", í nýja húsinu
fyrstu helgina í semtember í haust.
í söfnunina hafði um áramót
borist kr. 8,500 þús., en söfnunarfé
er ennþá að berast. Auk beinna fjár-
framlaga og efnisgjafa hefur fyrir-
greiðsla einstaklinga og fyrirtækja
varðandi framkvæmdir verið eins-
dæmi.
Nokkurt fé vantar þó enn til að
Ijúka íþróttaleikhúsinu, en tekið
verður á móti framlögum í öllum
útibúum Landsbanka íslands. Þá
hefur það færst í vöxt að áheit
berist í söfnunina frá fólki sem
heitið hefur á Reyni í tengslum við
persónulega hagi sína, svo sem
próf, vinnuumsóknir, happadrætti,
veðurfar og aflasæld.
Framkvæmdum hefur miðað eftir
áætlun. Verið er að ljúka innrétt-
ingu vinnustofa í kjallara hússins
og verða þær teknar í notkun á
næstunni. Á efri hæð er unnið að
útboði á innréttingu (þróttasalar og
búningsklefa. Verður það verk
væntanlega unnið í vor og sumar.
„Sólheimaleikamir" verða haldn-
ir helgina 6.-7. september í haust.
Þeir heQast með íþróttamóti þar
sem keppt verður f sundi, bocchia
og borðtennis. Á sunnudeginum
verður Qöldaganga eða göngu-
keppni og geta þátttakendur valið
milli 24 km, 10 km og 5 km göngu.
Leikunum lýkur með skemmtun og
dansi.í nýja húsinu."