Morgunblaðið - 16.03.1986, Síða 29

Morgunblaðið - 16.03.1986, Síða 29
9861SHAM .81 HUDAaUVIKU3 .aiQ/uiaWJOflÖM MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR16. MARZ 1986 8S 29 FLUGLEIDIR WALCHSEE kr. 21.859/ WALCHSEE ER NÝR SUMARSTAÐUR FLUGLEIÐA í AUSTURRÍKI Walchsee er lítið tírólskt þorp í Austurríki, örskammt frá landamærum Vestur-Þýskalands. Nafn sitt dregur þorpið af stóru og fallegu stöðuvatni sem það stendur við. I Walchsee eiga stórar og smáar fjölskyldur sæla daga. Þeir sem leita hvíldar og endurnæringar geta slakað á í rólegu og þægilegu umhverfi. Fyrir þá athafnasömu eru næg verkefni. Vatnið er skemmtilegur leikvangur og í þorpinu eru m.a. tennisvellir, keilu- og minigolfvellir. Þá er tilvalið að leigja bíl og heimsækja Salzburg, Innsbruck eða Munchen. Aðeins 400 km eru til Vínarborg- ar og 450 km til Feneyja á Ítalíu. Flugleiðir bjóða farþegum sínum ýmsa möguleika í gistingu, á íbúðahótelum og gistihúsum. Flogið er í beinu áætlunarflugi til Salzborgar, þar sem rútur og bílaleigubílar bíða farþeganna. Fararstjóri í Walchsee er Rudi Knapp. * Miðað við verðtímabilið 3. júlí til 21. ágúst 1986. Verð fyrir einstakling, miðaö við 2 í íbúð á ibúðahótelinu llgerttof I 2 vikúr, og flug báðar leiðir. kr. 23.568.-* NÝR SÆLUREITUR Á LANDAKORTINU Flugleiðir kynna nýjan sumarstað í Vestur-Þýskalandi: Dorint-sumarhúsaþorpið við Biersdorf, nálægt Bitburg í Suður-Eifelhéraði. Umhverfið er fallegt og friðsælt. Sumarhúsin standa í skógivaxinni hlíð og er gott útsýni þaðan yfir vatnið Stausee. Bátaleiga er við vatnið og hægt er að læra á seglbretti. Sumarhúsagestir geta farið í minigolf, leikið tennis innanhúss og utan, synt í stórri sundlaug og skroppið í gufubað á eftir. Þarna eru auk þess tveir fyrsta flokks veitingastaðir, bar, diskótek og keilusalur. I boði eru íbúðir og 2 herbergja sumarhús. öll húsakynni eru nýleg og vönduð. Farþegar á leið til Biersdorf fljúga til Luxemborgar, en þaðan er innan við klukkustundar akstur til Biersdorf. Hægt er að velja á milli þess að fara með rútu eða leigja bíl. Við mælum með síðari kostinum, því það gefur sumarleyfinu meira gildi. Frá Biersdorf er stutt að fara til borga eins og Brussel, Kölnar, Frankfurt, Mainz og Strassborgar. Þá er örskammt niður í Móseldalinn. íslenskur fararstjóri er til aðstoðar og skipuleggur skoðunarferðir. * Miðað við verðtímabilið 15. maí til 21. júní 1986. Verð fyrir einstakling, miðað við 2 í íbúð í 2 vikur, og flug báðar leiðir. Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur. Söluskrifstofan Lækjargötu sími 27477, Hótel Esju sími 685011, Álfabakka 10 sími 79500. Upplýsingasími: 25100 FLUGLEIDIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.