Morgunblaðið - 16.03.1986, Qupperneq 36
rs
~'36
0861 SHAM .31 HU0AGUVIV1U8 .aiOAJÍTOUOflGM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16.MARZ1986
KALT BORÐ
ALLS KONAR POTTRÉTTIR
SMURT BRAUÐ
BRAUÐTERTUR
OG ALLAN ANNAN VSSLUMAT
Þið pantið matinn. Meðan fermingin fer fram erum við önnum
kafnir við að útbúa veisluna og höfum allt til reiðu þegar
fjölskyldan kemur úr kirkjunni.
LÁTIÐ OKKUR UM MATSELDINA.
Upplýsingar og pantanir í síma 666910
Míchael Holroyd
Marjfarct Drabble
Margaret Drabble og Michael
Holroyd til Reykjavíkur
HINN frægi brezki rithöfundur
Margaret Drabble kemur til
Reykjavfkur nú um helgina i
boði heimspekideildar Háskóla
íslands og & vegum British
CounsO. Margaret Drabble mun
flytja tvo fyrirlestra um bók-
menntir i Háskólanum, hinn
fyrri á miðvikudagskvöld og
hinn síðari laugardaginn 22.
marz. í för með henni er eigin-
maður hennar, Michael Holroyd,
sem er þekktur ævisagnahöf-
undur og bókmenntagagnrýn-
andi, og mun hann flytja fyrir-
lestra samtímis þeim sem fyrr
ergetið.
Skáldsögur Margaret Drabble
hafa margar hveijar náð miklum
vinsældum víða um lönd og má þar
t.d. nefna „A Summer Birdcage",
„The Ice Age“ og „The Millstone"
en eftir þeirri sögu var gerð kvik-
myndin „A Touch of Love“. Marg-
aret Drabble er einnig kunn fyrir
bókmenntagagnrýni sína en nýlega
kom út endurskoðuð útgáfa á hinu
þekkta uppsláttarriti Oxford
Companion of English Literature
og ritstýrði hún því verki. Þessi
endurskoðaða útgáfa hefur hiotið
frábæra dóma og bókmenntagagn-
rýnendur stórblaða austanhafs og
vestan hafs lokið upp einum munni
um að ritið sé hreinræktað
skemmtilestrarefni.
Margaret Drabble fæddist í
Sheffield 1939 en stundaði nám f
Jórvfk og Cambridge. Að loknu
háskólaprófi f ensku sneri hún sér
að leiklist og starfaði um tíma með
Royal Shakespeare Company í
Stratford við Avon. Leiklistarferl-
inum lauk þó þegar hún giftist árið
1960 og eignaðist fyrsta bamið
sitt af þremur f hjónabandi sem
lauk með skilnaði árið 1972, en árið
1982 giftist hún Michael Holroyd.
Alls hafa komið út 14 skáldsögur
eftir Margaret Drabble og eru flest-
ar þeirra fáanlegar sem kiljur.
Systir hennar, Antonia Susan
Byatt, er einnig frægur rithöfundur
og hefur m.a. skrifað skáldsöguna
The Virgin in the Garden.
Margaret Drabble er í hópi vin-
sælustu höfunda „alvarlegra" bók-
mennta f Bretlandi um þessar
mundir. Bækur hennar
miklu leyti um þann vanda sem
vestrænar nútfmakonur standa
frammi fyrir er þær leitast við að
uppfylla kröfur sem flölskyldulíf
gerir til þeirra um leið og þær
sækjast eftir lífsfyllingu á öðrum
vettvangi.
Margaret Drabble hefur látið
þau orð falla að hún álfti rit sfn
ekki flokkast undir „kvennabók-
menntir" í algengum skilningi þess
orðs.