Morgunblaðið - 16.03.1986, Page 37

Morgunblaðið - 16.03.1986, Page 37
1 JL MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1986 37 speki Umsjón: Gunnlaugur Guömundsson „Mig langar að biðja þig um upplýsingar um mitt stjömu- kort. Ég er fædd 23. 10. 1954 kl. 8.40 í Eyjum. í>að virðist ekki vera sama í hvaða blaði ég les stjömuspá, ég er yfirleitt ekki í sama merki. Stundum Vog og stundum Dreki. Að lokum, hvemig passar Hrútur inn í mína mynd. Með fyrirfram þökk.“ Svar: Þú hefur Sól og Rísandi merki í Vog, Tungl í Meyju, Merkúr og Venus í Sporðdreka og Mars í Vatnsbera. Þú ert því Vog, Sporðdreki, Meyja og Vatns- beri. / Vogarmerkinu Sólin var í Vogarmerkinu þegar þú fæddist. Þú telst því til Vogar þó Sól þín hafi líklega sterkan undirtón frá Sporð- drekamerkinu. SjálfstœÖ Sól í Vog táknar að þú ert i grundvallaratriðum hress og félagslynd. Þar sem Mars, Júp- íter, Uranus og Neptúnus tengjast Sólinni má segja að þú sért ekki dæmigerð Vog. Mars- og Júpítertengslin tákna að þú ert kraftmikil og eirðar- laus og þarft að vera á mikilli hreyfingu. Þú þarft að ferðast og víkka sjóndeildarhring þinn. Þú hefur þörf til að safna að þér þekkingu. Þessu fylgir hins vegar að þú þarft að varast óhóf. Úranus táknar síðan að þú vilt vera sjálfstæð og fara þínar eigin götur. Þú þolir illa vanabindingu og þarft sífellt að bijóta þig undan kröfum sem aðrir gera til þín til að öðlast frelsi. Þú ert því töluverður sjálfstæðis- og uppreisnarmað- ur í eðli þínu. Störf sem tengj- ast félagsmálum, en gefa þér kost á fjölbreytileika, sjálfstæði og hreyfingu, ættu að eiga vel við þig. Neptúnus á Sól táknar að þú ert einnig næm og draumlynd og hefur þörf fyrir að upphefja daglegt líf. Þú laðast t.d. að öllu sem er dular- fullt og órætt. Þessi staða er algeng hjá listafólki og sérstak- lega þeim sem fást við tónlist og dans. JarÖbundin Tungl í Meyju táknar að þú hefur í fari jarðbundna hlið og þú getur verið nákvæm og samviskusöm. Meyjarhliðin táknar einnig að þú ert sjálfs- gagnrýnin og haldin fullkomn- unarþörf. Þú þarft að gsgta þess að gera ekki of litið úr eigin hæfileikum og hindra þannig að þú náir þeim árangri sem þú getur vel náð. Kryfjandi Merkúr í Sporðdreka táknar að hugsun þín er dul og kryfjandi. Þú hefur þörf til að skyggnast undir yfirborðið og sjá, t.d. það sem býr að baki hugmyndum og hegðun manna. Þú ert því gædd rannsóknarhæfileikum. Öfgafull Venus í Sporðdreka táknar að þú ert misjöfn í mannlegum samskiptum. Þú hefur tilhneig- ingu til að vilja allt eða ekkert. Það getur birst þannig að þú ert ýmist áköf og lifandi, yfir þig ástfangin eða dul og lokar á tilfinningar þínar og einangr- arþig. Rakettur Vogir laðast oft að Hrútum. Hjónabandshús þitt er Hrútur og þar sem þú hefur sterkan Mars, Júpíter og Úranus, þ.e. vilt líf og ijör, ætti Hrúturinn að eiga vel við þig. Hins vegar er hætt við að á ýmsu geti gengið og að nokkrar rakettur fljúgi upp annað slagið. X-9 DYRAGLENS iHii;ii;;iiiiiiiii;iin;uii;iu;iiiiinm»;ii;i;;iii;iii;iiii;iiiiinnn;;n;iii;iiii;iiiniiiii;iii' ::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::.......................... iiiiiiiijliul LJÓSKA TOMMI OG JENNI f STÁÐÚ /niG SPAfífíA þessú/n bolta &eir \ FíZA/nAN / TÖ/HAi/i/ ^ ÉG SKAL sýuA yKKUfí \ rti/£eJU FKAfYiAN i HVEfíN.' / i//e> \ JV / /Y1ÁLU£>U/yþ / /CE/LU- 1 SP/LS' \ HULÚ.f FERDINAND ílte Tmmm 'ffj Q © 1986 Unlted Feature Syndlcate.lnc. -' -■ ■ • - ' ■ . : • . ■ SMÁFÓLK THAT'S A NICE ROCK UJALL VOU'RE BOILPING, LINU5... (Vhank yo'ÍT) POES IT KEEP THING5 IN OR P0E5 IT KEEP tuim/;/; niiT ? IT HA5N'T PECIPEP VET^ Tr Þetta er fallegur stein- Þakka þér fyrir. veggur, sem þú ert að hlaða, Lalli... Á hann að halda einhvenu Það hefur ekki verið inni eða einhverju úti? ákveðið enn sem komið er. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Allt sem brýtur í bága við venju- bundna hugsun er erfitt, þótt það sé í sjálfu sér einfalt. Þetta spil er talandi dæmi um þessa kenningu: Norður gefur; allir á hættu. Norður ♦ Á72 ¥KG94 ♦ 963 ♦ KD5 Vestur Austur ♦ G95 ♦ D104 ¥6 II V75 ^ ♦ AD74 ♦ 10852 ^ ♦ G10964 +^832 Suður ♦ K863 ♦ ÁD10832 ♦ KG ♦ 7 Vestur Norður Austur Suður — 1 lauf Pass 1 hjarta Pass 2 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Gegn fjórum hjörtum spilar vestur út laufgosa. Hvemig viltu spila? Eiginlega hefurðu fengið allt of miklar upplýsingar; sérð öll spilin og fékkst ákveðið hint í inngangsorðunum. Svo kannski finnst þér létt að dúkka fyrstad^ slaginn. En við borðið er slík spila- mennska ekki eins auðveld. Það að leggja „hónór á hónór“ er nánast hluti af eðli hvers spilara. Oftast sjá menn ekki fyrr en eftirá þegar rétt hefði verið að breyta út af þeirri reglu. Við sjáum að ef sagnhafi leggur kóng eða drottningu á laufgosann, drepur austur á ás og spilar tígli. Vömin tekur því strax þijá slagi og fær óhjá- kvæmilega einn í viðbót á spaða.T^' En ef lítið er sett í laufgosann hefur austur ekki eftii á að yfir- drepa til að spila tígli, því þá hverfa spaðataparamir heima opan ofan f laufhjónin. Og það er í góðu lagi að vestur sé inni á laufgosa, því seinna er hægt að tromsvína fyrir laufásinn og henda svo tígli niður f frílauf. Einfalt, en erfítt. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Undanfama mánuði hefur stað- ið yfir símskákakeppni á milli borga f Evrópu. Þessi staða kom upp í viðureign liða frá Maur de Fosses í Frakklandi og Essen í Þýzkalandi, sem hafði svart og áttileik. mw 1 m ixm ití ' Sem sjá má er svartur manni yfir, en staða hans virðist þó slæm vegna sóknarþunga hvítu mann- anna. T.d. má svartur ekki leika- 45 - Dxg3? 46. Hxc6 - Kd8 vegna 47. Da5+. Essenbúum tókst samt að finna vöm. 45. — Dc7!, 46. Hxc6 (Auðvitað ekki 46. Bxc7 - Bxa8) 46. - Dxc6 47. Dxb8+ - Kd7, 48. Da7+ - Ke6, 49. De3+ — Kf5. og þar sem svarti kóngurinn er kominn í skjól unnu Þjóðverjamir örugglega. *i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.