Morgunblaðið - 16.03.1986, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR16. MARZ1986
ÞINGBREF
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Islenskur útflutningur:
Tæplega 30%
tíl Bandaríkj anna
Könnun á fríverslunarsamningi
viö Bandaríkin?
Ekkert eitt riki kaupir jafn-
mikið af útflutningsframleiðslu
okkar og Bandaríkin. Þangað fór
tæplega þriðjungur hennar árið
1984, eða 29%. Þessi útflutningur
gaf okkur tæpa sjö milljarða ís-
lenzkra króna í gjaldeyri. Á sama
tima fluttum við inn frá Banda-
ríkjunum vörur fyrir rúmlega
1.800 m.kr. Viðskiptajöfnuður
okkar er því verulega hagstæður
þegar Bandaríkin eiga í hlut, eða
góðir fímm milljarðir króna
þetta ár. Viðskiptajöfnuður okk-
ar við umheiminn var hinsvegar
óhagstæður um rúma þijá millj-
arða króna 1984. Viðskiptajöfn-
uður okkar við bræðraþjóðir
okkar á Norðurlöndum er mjög
óhagstæður, eða sem svarar
5.200 m.kr. samtals greint ár.
Það er tvennt sem ræður, öðru
fremur, lífskjörum á ísiandi:
1) Þau heildarverðmæti, sem til
verða hveiju sinni í þjóðarbú-
skapnum, 2) Þau viðskiptakjör
við umheiminn, sem við verðum
að sæta. Það er þvi eðlilegt að
tillaga Gunnars G. Schram um
„könnum á gerð fríverzlunar-
samnings við Bandaríkin" fái
nokkra umfjöllun hér i þinghréfí.
Markaðsstaðan í
Bandaríkjunum
Sem fyrr segir flytjum við tæp-
lega þriðjung útflutningsfram-
leiðslu okkar, einkum frystan fisk,
til Bandaríkjanna. Flutningsmaður
tillögu þeirrar, sem hér er um fjall-
að, taldi sterkar líkur standa til,
að hægt verði að stórauka sölu ís-
lenzks iðnvamings í Bandarflqun-
um á komandi árum. Þar fæst einna
hæst verð fyrir slíkar vörur, en
verð- og gæðasamkeppni er þó mjög
hörð.
Könnun á gerð fríverzlunarsamn-
ings við Bandaríkin stefnir fyrst og
fremst að því að kanna möguleika
á lækkun eða niðurfellingu tolla til
að styrkja markaðsstöðu íslenzkrar
framleiðslu. Fleira gæti hangið á
spítunni. Bandarískar vörur myndu
væntanlega lækka hér í verði.
Möguleikar gætu skapast á sam-
vinnu íslenzkra og erlendra fyrir-
tækja um framleiðslu hér á landi
til útflutnings, bæði til Bandaríkj-
anna og Evrópu. Viðskiptatengsl
og efnahagssamvinna landanna
myndi vaxa að mun.
Framangreint er efnislega haft
eftir flutningsmanni tillögunnar.
Fríverzlunarsamningar
Bandaríkjanna
Það kom fram í máli Matthíasar
Bjamasonar, viðskiptaráðherra, í
umræðu um þetta þingmál, að
reynsla íslendinga af aðild að Frí-
verzlunarsamtökum Evrópu, EFTA,
væri góð. Sama megi segja um frí-
verzlunarsamninga við Evrópu-
bandalagið og tollalækkanir á ís-
lenzkum útflutningsvörum í öðrum
löndum á vegum GATT, m.a. tolla-
lækkunum á íslenzkum útflutnings-
vömm í Bandaríkjunum í kjölfar
Tókýóviðræðna 1973-1979.
Bandaríkin hafa gert „fríverzlun-
arsamninga" við nokkur smáríki á
Karíbahafssvæðinu (1983). Þar er
þó nánast um einhliða þróunarað-
stoð (ívilnanir) við þessi ríki að
ræða með því að opna framleiðslu
þeirra greiðari leið á bandarískan
markað.
Ráðherra sagði Bandaríkin hafa
gert fríverzlunarsamning við ísrael
(1985). Hann er byggður á afnámi
tolla og viðskiptahafta á nánast
öllum viðskiptum landanna. Heimilt
er þó að halda magntakmörkunum
á búvömm, svo og innflutnings-
gjöldum en ekki tollum. Sumir tollar
vóm afnumdir strax en aðrir í
áföngum. Þá em þar ákveðnar sér-
reglur, m.a. varðandi óhagstæðan
greiðslujöfnuð og óhindraðan að-
gang að opinbemm útboðum, en
síðastnefnda atriðið gengur lengra
en reglur GATT. Þá er stefnt að
því að létta hömlum af þjónustuvið-
skiptum en það er sérstakt áhuga-
mál Bandaríkjamanna.
Ráðherrann ræddi og um óform-
legar viðræður Kanadamanna og
Bandaríkjamanna um gerð fríverzl-
unarsamnings. Samkvæmt nýjustu
upplýsingum, sagði hann, „mun nú
standa á Kanadastjóm til þess að
unnt sé að hefja könnunarviðræður
íbráð".
Tollar á íslenzkar vörur
í Bandaríkjunum
Orðrétt sagði viðskiptaráðherra:
„Athugun á útflutningi okkar til
Bandaríkjanna sýnir að helztu út-
flutningsvömr okkar em að mestu
tollfijálsar þar. Þannig er enginn
tollur á frystri fískblokk, frystri
rækju, frystum humri, frystum
hörpudiski, þorskalýsi og niðursoð-
inni reyktri sfld. Heilfrystur og ísað-
ur fiskur er og tollfrjáls nema karfi;
0,5 senta tollur er lagður á pundið.
Tollur af frystum flökum er 1,875
sent á pund fyrir fyrstu 15 milljón
pundin og kemur sá toilur til að
gilda um allt innflutningsmagnið
frá og með 1978. Þessi magntollur
svarar því til 1,25% verðtolli. Hins-
vegar em tollar á ullarvömm frá
15-20% ásamt magngjaldi frá 2-31
sent á pundið. Tollur á ullarlopa
og ullarband er samt 9%.“
Ráðherra taldi tolla ekki „sér-
stakan Þránd í Götu aukinna við-
skipta við Bandaríkin. Einna helzt
er bent á að allháir tollar séu á
Kjartan Tómas
son — Minning
Fæddur 11. desember 1899
Dáinn 9. mars 1986
Kjartan Tómasson var fæddur í
Framnesi í Holtum, Rangárvalla-
sýslu, hann fluttist síðan ungur að
árum ásamt foreldmm sínum að
Árbæjarhjáleigu, sem er í sömu
sýslu. Foreldrar Kjartans vom Tóm-
as Halldórsson frá Rauðalæk,
Rangárvallasýslu, og Vigdís Vig-
fúsdóttir frá Þingdal í Ölfusi. Kjart-
an var næstelstur ellefu systkina
en eldri systir hans lést á fyrsta
ári, þannig að hann var elstur þeirra
tíu eftirlifandi. Kjartan fór snemma
að stunda vinnu og sótti sjó á
Reykjanes og var níu vertíðir í
Vestmannaeyjum. Árið 1929 tók
hann ökupróf í Vestmannaeyjum
og ári síðar meirabifreiðastjórapróf
í Reykjavík. Hóf hann þá hin ýmsu
störf tengd akstri og vann á „Litlu-
bílastöðinni" í Reykjavík, ók hann
meðal annars á Alþingishátíðina
1930 á Þingvöllum. Hann var einnig
í mjólkurflutningum á Kjalames,
útkeyrslu stundaði hann í bakaríi
Jóns heitins Guðmundssonar. Á
þeim ámm átti Kjartan við alvarleg
veikindi að stríða og reyndist Jón
honum og fjölskyldu hans frábær-
lega vel og mundi hann það og gat
þess oft. Arið 1935 gekk Kjartan
að eiga eftirlifandi eiginkonu sína,
Lilju Ólafsdóttur frá Vík í Mýrdal.
Bjuggu þau fyrstu ár sín í Reykja-
vík við Laugaveg. Árið 1946 keyptu
þau sér lítið hús í Kópavogi, sem
þau byggðu sjálf við og stækkuðu,
einnig ræktuðu þau lóðina við húsið
sem var þá mjög stór. Bám húsið
og lóðin ávallt merki um snyrti-
mennsku þeirra hjóna. Kjartan og
Lilja eignuðust Qórar dætur, Ragn-
heiði sem lést ung, Kristínu sem
er gift Gunnari Högnasyni vélvirkja
og eiga þau þijú böm, Ragnhildi
sem gift er Hilmi Þorvarðarsyni
sjómanni og eiga þau tvo syni og
Katrínu sem lést ung. Andlát þeirra
Ragnheiðar og Katrínar mótaði
djúp sár hjá þeim hjónum Kjartani
og Lilju. Kjartan var mjög guð-
hræddur maður og kenndi bömum
sínum guðsorð fyrir svefninn á
kvöldin. Böm Kjartans vom þó
fleiri, hann var mjög bamgóður og
tóku þau hjónin að sér dótturson
sinn, son Kristínar, og ólu hann upp
frá eins árs aldri; er það Guðmundur
Ingi Ingason sem giftur er Maríu
Kristínu Ingvarsdóttur og eiga þau
tvo syni. Kallaði Guðmundur þau
alltaf pabba og mömmu og reyndust
þau honum sem bestu foreldrar og
á hann góðar minningar frá þeim
ámm er pabbi hans tók hann með
sér hvert sem hann fór. Rósa systir
Lilju bjó á heimili þeirra með dóttur
sína, Maríu, til sex ára aldurs og
kallaði hún ávallt Kjartan pabba
sinn, María er gift Þóri Haukssyni,
búa þau á Neskaupstað og eiga
fjögur böm.
Enginn getur hugsað sér betri
foreldra en Lilju og Kjartan.
Fimmtugur hóf Kjartan störf hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur og
starfaði þar meðan þróttur hans
entist, alls um tuttugu og sex ár.
Lét hann af störfum fyrir um níu
ámm síðan. Vann hann þar við jám-
smíðar í „Smiðjunni" og var hann
talinn góður verkmaður, enda var
þar sérstaklega samhentur hópur
manna og eignaðist hann þar sína
bestu vini og vinnufélaga.
Kjartan átti við langvarandi
hjartasjúkdóm að stríða og síðast í
október á síðasta ári fékk hann
áfall og var lagður inn á Landspítal-
ann. Komst hann heim nokkm síðar
og vildi þá komast inn á Hjúkr-
unarheimilið Sunnuhlíð í Kópavogi.
Eftir áramót fór hann síðan þangað,
en eftir stutta dvöl þar fékk hann
annað áfall og náði sér aldrei eftir
það og lést hann þar að morgni
sunnudagsins 9. mars sl. í Sunnu-
hlíð hlaut hann slíka umönnun
góða, að ekki verður lýst með orðum
hve starfsfólkið þar vann gott starf
og hugsaði vel um gamla manninn
sem var þar að enda sína sfðustu
lffdaga langrar ævi.
Mamma er nú orðin ein í húsinu
þeirra á Skjólbraut 11 í Kópavogi,
en eftir lifir í hjörtum okkar minn-
ingin um góðan pabba.
Ég enda þessa grein með bæn
sem hann kenndi mér sem bami:
Nú er ég klæddur og kominn á ról,
Kristur Jesús veri mitt skjól,
í guðsóttanum gefðu mér
að ganga í dag, svo líki þér.
(MJoch.)
Því að svo elskaði guð heiminn, að
hann gaf son sinn eingetinn, til
þess að hver, sem á hann trúir,
glatist ekki heldur hafi eilíft líf. (J.
guðspj.)
Guðmundur Ingi Ingason
Þá er komið að kveðjustundinni,
að óska elskulegum bróður og mág
fararheilla. Hans verður sárt sakn-
að, létta lundin og glaðværðin, sem
honum var svo eðlislæg, er ekki
mörgum gefin.
Kjartan Tómasson fæddist 11.
desember árið 1900 og var því
orðinn aldraður og farinn að heilsu
og kröftum er hann lést, 9. marz
sl. Hann var sonur hjónanna Tóm-
asar Halldórssonar og Vigdísar
Vigfúsdóttur og ólst upp í hópi 11
systkina í Árbæjarhjáleigu í Holtum
á Rangárvöllum. Móðir þeirra missti
heilsuna, er hún ól yngsta bam sitt,
Vigfús, og tók þá elsta systirin,
Elín, að sér umönnun heimilisins
og ól yngri systkini sín upp. Móðir
þeirra var rúmliggjandi sjúklingur
árum saman, en systkinin héldu
heimili saman langt fram á fullorð-
insár eða allt þar til þau tóku að
festa ráð sitt, en Elín giftist ekki
og var því höfuð fjölskyldunnar og
hafði móður sína hjá sér að auki,
þar til hún lést.
Fyrir nærri sextíu árum, þegar
kreppa var hér og erfitt um atvinnu
og húsnæði, komum við til Reykja-
víkur með elstu dóttur okkar, þá
ungbarn. Við komum á áfangastað,
sem var lítil íbúð Elínar þar sem
hún bjó með sjúkri móður sinni og
bræðrunum Vigfúsi og Kjartani.
Okkur var tekið opnum örmum og
okkur búin hvíla eins og ekkert
væri sjálfsagðara þó húsrými væri
lítið. Litla telpan var óróleg ‘eftir
ferðalagið og tók Kjartan hana þá
umsvifalaust að sér og lét hana
sofa fyrir ofan sig. Þar róaðist hún
strax, því þannig lag hafði Kjartan
alla tíð á bömum, enda elskuðu þau
hann og dáðu og hændust umsvifa-
laust að honum. Reyndar voru
bræður hans allir þannig innrættir
og böm okkar hlökkuðu ávallt til
að hitta þá. Á þessum löngu liðnu
kreppuámm, er við vomm ung, var
lífið ekki neinn dans á rósum. Erfitt
var um lífsbjörgina og flestir áttu
nóg með sig og sína. Þó var þessi
systkinahópur alltaf eins og bjarg,
alltaf var hægt að leita til þeirra
ef á bjátaði, hjartarýmið var mikið
og alltaf var hægt að hliðra til og
lofa manni að vera. Seint gleymist
sú fórnfysi og verður aldrei full-
þökkuð, er Kjartan og kona hans,
Lilja Ólafsdóttir, buðu okkur að
flytjast inn til sín um óákveðinn
tíma, er húsnæði okkar skemmdist
í eldsvoða. Þama dvöldumst við
t
NANNA TULINÍUS
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri 12. þm. Útförin fer
fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 18. þm. kl. 13.30.
Tómas Steingrímsson,
Leifur Tómasson, Erla Elísdóttir,
Ragna T. Pedersen, Erik Pedersen,
börn og barnabörn.
t
Eiginmaöur minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR SVEINSSON,
Sogavegi 146,
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju, mánudaginn 17. mars kl.
13.30.
Þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á Bú-
staöakirkju.
Liija Júlfusdóttir,
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Ásdfs Ólafsdóttir, Þorvaldur Lúðvfksson,
Kristján Ólafsson, Árný Þórðardóttir,
Skarphéðinn Njálsson, Anna Margrót Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.