Morgunblaðið - 16.03.1986, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1986
49* 4
j atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Hagvangurhf
- SÉRHÆFÐ RÁÐNINGARRJÓNUSTA
BVGGÐ Á GAGNKVÆMUM TRÚNAÐI
Verslunarstjóri (10)
Fyrirtækið er þekkt snyrtivöruverslun í
Reykjavík.
Starfssvið: Verslunarstjórn, sölu- og af-
greiðslustörf, erlend og innlend innkaup, o.fl.
Við leitum að manni á aldrinum 30-40 ára
sem hefur þekkingu á snyrtivörum og reynslu
af sölu- og afgreiðslustörfum. Snyrtifræði-
menntun æskileg.
SÖLUMAÐUR (8)
Fyrirtækið er lyfjainnflutningfyrirtæki í
Reykjavík.
Við leitum að lyfjafræðingi, lífefnafræðingi,
BS.- hjúkrunarfræðingi eða dýralækni.
AFGREiÐSLUMAÐUR (9)
Fyrirtækið er byggingamarkaður í Reykjavík.
Við leitum að röskum og snyrtilegum manni,
sem getur haf ið störf strax.
Reynsla af afgreiðslustörfum og þekking á
byggingavörum og verkfærum æskileg.
SÖLUMAÐUR (370)
Fyrirtækið er þekkt ferðaskrifstofa í Reykja-
vík.
Starfssvið: Sala farseðla, o.fl.
Við leitum að manni með reynslu af farseðla-
útgáfu, löngun og getu til að starfa sjálfstætt
að spennandi verkefnum.
Stundvísi og fáguðframkoma nauðsynleg.
RITARI (367)
Fyrirtækið er þekkt innflutningfyrirtæki í
Reykjavik.
Starfssvið: Toll- og verðútreikningur, rit-
vinnsla, bréfaskriftir, telex, pantanir, o.fl.
Við leitum að ritara sem hefur mjög góða
verslunarmenntun, reynslu af ofangreindu
starfssviði og er tilbúinn í mikla og krefjandi
vinnu á góðum launum.
RITARI (363)
Fyrirtækið er þjónustufyrirtæki í Reykjavík.
Starfssvið: Upplýsingaþjónusta og almenn
afgreiðslustörf við viðskiptavini fyrirtækisins.
Við leitum að ritara með nokkurra ára starfs-
reynslu sem hefur ánægju af mannlegum
samskiptum, er töluglöggur og hefur áhuga
á starfa hjá nýlegu og ört vaxandi fyrirtæki.
Vinsamlegast sendið umsóknir á eyðublöð-
um sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar númeri viðkomandi starfs.
AFGREIÐSLUMAÐUR (371)
Fyrirtækið er gleraugnaverslunin Linsan í
Reykjavík.
Við leitum að manni sem hefur góða al-
menna menntun, er samviskusamur og til-
búinn að gegna sérhæfðu afgreiðslustarfi.
Góð laun. Framtíðarstarf. Vinnutími sam-
komulag. Umsóknarfresturtil 19/3'86.
Vinsmlegast sendið umsóknir á eyðublöðum
sem liggja frammi á skrifstofu okkar merktar
númeri viðkomandi starfs.
Hagvangur hf
RÁÐNINGARPJÓNUSTA
GRENSÁSVEGI J3, 108 REYKJAVÍK
SÍMAR: 83666
Kjötiðnaðarmenn
Óskum eftir að ráða kjötiðnaðarmann í
ábyrgðastarf. Einnig kjötiðnaðarmenn eða
menn vana kjötskurði í almenn störf.
Nánari upplýsingar hjá verkstjóra.
Kjötiðnaðarstöð
Sambandsins
I< ÍRKJUSANDl SÍMI 686366
Fulltrúi á
lögfræðiskrifstofu
Óskað er að ráða löglærðan fulltrúa á lög-
fræðiskrifstofu í miðborg Reykjavíkur. Starfið
felst í öllum almennum lögfræðistörfum.
Launakjör eftir samkomulagi. Leitað er að
kraftmiklum, áreiðanlegum, hugmyndaríkum
lögfræðingi, sem getur starfað sjálfstætt.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
helst eigi síðar en 1. maí nk.
Umsóknir ásamt upplýsingum og meðmæl-
um sendist augl.deild Mbl. merktar:
„Löglærður fulltrúi — 2573“ eigi síðar en 25.
mars nk.
NLFI Hveragerði
óskar eftir að ráða sjúkraliða nú þegar, einnig
hjúkrunarfræðinga til sumarafleysinga eða eftir
frekara samkomulagi. Húsnæði á staðnum.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í símum
99-4432 eða 99-4201.
Umboðs-/dreifingar-
aðili óskast
til að selja og dreifa færanlega vinnupalla
úrál. y
Fyrirtækið er eitt af þeim stærstu í heimi á
sviði hönnunar, framleiðslu, sölu, leigu og
þjónustu á færanlegum vinnupöllum, með
meira en 40 ára starfsreynslu að baki.
Vinnupallarnir hafa verið á íslenskum mark-
aði í nokkur ár en nú leitum við að nýjum
umboðsmanni til að viðhalda vexti í sölu.
Einnig kemur til greina að setja upp lager
með leigu á pöllunum.
Þeir sem hafa áhuga sendið inn umsóknir á
ensku til augl.deildar Mbl. merktar: „U — 029“.
Starf f mötuneyti
Ráðskona óskast í hálft starf frá 1. apríl.
Vita- og hafnarmálaskrifstofan,
Seljavegi32, Reykjavík, sími27733.
Hárgreiðslusveinn
óskast strax.
Upplýsingar í símum 46703 og 15631.
Sölumaður
Vaxandi fyrirtæki í matvælaiðnaði staðsett á
Stór-Reykjavíkursvæðinu óskar að ráða sölu-
mann vegna markaðssetningar á nýjum
framleiðsluvörum þess.
Við leitum að áhugasamri konu eða manni,
reynsla er ekki áskilin.
Æskilegur aldur á bilinu 30-45 ára.
Góð vinnuaðstaða.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum ósk-
ast sendar undirrituðum.
Hilmar Sigurðsson, viðskiptafræðingur,
Pósthólf 195, 270 Varmá, Mosfellssveit.
Sjúkrahús Skagfirð-
inga — Sauðárkróki
auglýsireftir:
Sjúkraþjálfa frá 01.06.86.
Röntgentækni, Ijósmæðrum, hjúkrunar-
fræðingum, meinatæknum og sjúkraliðum
til sumarafleysinga.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist til skrifstofu
hjúkrunarforstjóra fyrir 21. mars nk.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 95-5270.
Þrítugur, fjölhæfur
og leita eftir góðri
vinnu
Ég hef unnið mikið í verslun og við kjöt-
vinnslu og er menntaður kjötiðnaðarmaður.
Nú er ég deildarstjóri í kjötvinnslu í kaup-
félagi og hef hug á að færa mig um set.
Margt kemur til greina. Ef þú hefur áhuga á
starfskröftum mínum sendu þá fyrirspurn til
auglýsingadeildar Morgunblaðsins merkta:
„F — 3357“.
sjúkraþjálfara
Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara óskast hálfan
daginn á Endurhæfingarstöð Kolbrúnar Bol-
holti 6. Upplýsingar í síma 32814 eftir kl.
20.00 á kvöldin.
Lögfræðingur
óskast
Samband íslenskra myndlistarmanna óskar
eftir að komast í samband við lögfræðing til
tímabundinna verkefna með sérþekkingu á
höfundarréttarmálum. Nánari upplýsingar í
símum 11346 og 82647.
Auglýsingateiknari
Óskum eftir að ráða vanan auglýsingateikn-
ara strax. Bjóðum upp á skemmtilega vinnu- i
aðstöðu og fjölbreytt verkefni. Góð laun í
boði fyrir góðan teiknara.
Upplýsingar aðeins veittar á staðnum. Al-
gjörum trúnaði heitið.
Auglýsingastofan Nýtt útlit hf.
Síðumúla 11.
Útstillingar
Vantar starfskraft til að annast útstillingar í
nokkrum verslunum.
Þarf að geta byrjað sem fyrst.
Uppl. á skrifstofu Karnabæjar, sími45800.
Sjúkraþjálfarar
Þrjá sjúkraþjálfara vantar í sumarafleysingar
á Hultafors, Hálsucenter, 50 km frá Gauta-
’borg, Svíþjóð.
Einn sjúkraþjálfara þarf fyrir hvert eftirtalinna
tímabila:
9. júní -1. ágúst
16. júní-8. ágúst.
30. júní - 15. eða 31. ágúst.
Upplýsingar í síma 91-13899 (milli kl. 13.00-
16.00). Hafið samband við: Svein B. Johans-
en, Hultafors, 51700 Wollebygd, Sverige,
SÍmi 90-46-33-95080.
Aðstoðarmaður
i
I
f