Morgunblaðið - 16.03.1986, Blaðsíða 55
Fiskeldi á
Suðurnesjum:
Framleiðslu-
verðmætið
4 milljarðar
árið 2007
Vogum, 12. mars
ÁÆTLANIR sem hafa verið
gerðar um fiskeldi á Suðumesj-
um gera ráð fyrir að framleiðslu-
verðmæti fiskeldisstöðva árið
2007 verði fjórir milljarðar
króna. Til samanburðar hefur
framleiðsluverðmæti sjávaraf-
urða á Suðumesjum undan farin
ár verið 3,5—4 milljarðar kr.
Það eru áætlanir 10 fiskeldis-
stöðva, sem miðað er við í áætlun-
inni. Fimm hafa þegar hafíð starf-
semi, það eru íslandslax, Eldi og
Fiskeldi Grindavíkur öll í Grindavík.
Sjóeldi í Höfnum og Vogalax í
Vogum. Aðrar fímm stöðvar eru til
athugunar, það eru Atlantslax,
Sjávargull og ISNO í Grindavík.
Fiskeldi við Kistu í Hafnahreppi og
Lindalax á Vatnsleysuströnd.
Áætlanimar gera ráð fyrir að
framleiðslan verði 20.000 tonn af
eldisfíski árið 2007, og þegar gert
er ráð fyrir að skilaverð til fískeldis-
stöðvanna verði kr. 200 á kíló er
framleiðsluverðmætið 4 milljarðar
kr. Framleiðsla sjávarútvegs hefur
verið á sama verðlagi 3,5—4 millj-
arðar kr. en að magni til miklu
meira eða 45.000—60.000 tonn,
eftir því hve mikil loðnubræðsla er
á svæðinu.
Þessi atvinnugrein hefur mikla
þörf fyrir kalt vatn, og er búist við
því að stöðvamar þurfí 5000 1/mín
eftir tuttugu ár, en þær áætlanir
gera ráð fyrir töluverðum spamaði
í vatnstöku. Þá er gert ráð fyrir
að fískeldisstöðvamar veiti 400
manns atvinnu.
E.G.
Félagsmiðstöðin
í Vesturbænum:
Hlaut nafnið
Frostaskjól
NAFNIÐ „Frostaskjól“ varð
hlutskarpast í samkeppni um
nafngift á nýju félagsmiðstöðina
i KR-heimilinu í Vesturbænum,
sem opnuð var í febrúar síðast-
liðnum.
Efnt var til samkeppni um nafn-
gift meðal nemenda Hagaskóla og
varð „Frostaskjól" fyrir valinu, en
hugmynd að nafninu átti Guðmund-
ur Már Ingimarsson, nemandi í 7.
bekk. Verðlaun vom ársskírteini,
sem gildir sem aðgöngumiði að allri
starfsemi félagsmiðstöðvarinnar
árið 1986 og málsverður fyrir tvo
í boði veitingahússins Amarhóls.
í Frostaskjóli er aðstaða til
margvíslegrar félagsstárfsemi. Stór
samkomusalur, kaffítería og að-
staða til kennslu- og fundahalds.
Möguleikar era á útleigu til ein-
staklinga, fyrirtækja og félagasam-
taka.
Starfsemi er þegar komin á
nokkuð skrið en aðaláhersla er lögð
á starf með unglingum. Þannig era
opin hús mánudags- og miðviku-
dagskvöld frá kl. 20—23 og diskó-
tek á föstudagskvöldum fyrir ungl-
inga. Á laugardögum er húsið opið
fyrir alla aldurshópa frá kl. 13—19.
(Úr fréttatilkynningij.)
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1986
Vvi r.: 'UO t». WUilUHHHT
55
Lífið um
borð í loðnu-
skipunum
EINHVERRI aflasælustu
loðnuvertíð í sögu íslenzks sjáv-
arútvegs er nú að ljúka. Frá
því í ágúst hafa íslenzku skipin
landað um einni milljón lesta
heima og erlendis og bræðslan
og þjónustan við flotann hefur
lífgað verulega upp á tilveru
og athafnalíf fólks í sjávar-
plássum landsins. Þessi vertíð
hefur verið stórslysalaus enda
veður óvenju hagstæð sjómönn-
um og sem dæmi um það má
nefna, að einu skiptin, sem
skipin hafa lent í ís og ísingu,
voru þegar þau sigldu með afla
sinn til Danmerkur. Á þessum
mánuðum eru loðnuskipin nán-
ast heimili áhafna og þar ber
kannski fleira á góma en land-
krabbarnir gera sér í hugar-
lund. Meðfylgjandi myndir Jóns
Páls Ásgeirssonar, skipverja á
Eldborgu frá Hafnarfirði,
bregða nokkru ljósi á lífið um
borð þessa mánuði og tala skýr-
ar en einföld orð.
Þegar loðnan er þétt fá menn
oft köst í hinar risastóru nætur.
Það mun þó fátítt að menn nái
950 lestum í einu, en það var
stærsta kast vertíðarinnar hjá
skipveijum á Eldborgini.
Þessi borpall er ekki á Islandsmiðum. Hann er í Norðursjó og við hann er gamall brezkur
togari, líklega Iandhelgisbrjótur, nú sem aðstoðarskip.
Á loðnuveiðum kemur oft fyrir að skipin fá f síðasta kastinu
meir en þau geta tekið og í stað þess að láta kvikindið fara aftur
miðla menn því á milli sin. Hér fá Eldborgarmenn afla hjá Jóni
Kjartanssyni SU, en þetta hlutverk skipanna hefur einnig verið
á hinn veginn.
PÓSTSENDUM UM LAND ALLT
SÍMI17801
- STAKIR JAKKAR - BUXUR - PILS - FRAKKAR - KÁPUR - JAKKAFÖT - DRAGTIR - HANSKAR - GRIFLUR -