Morgunblaðið - 19.04.1986, Síða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRIL1986
Langholtskórinn og íslenska hþ'ómsveitin á æfingu.
og skemmtilegur kór. Viðfangs-
efnin eru yfirleitt mjög áhugaverð
og félagsskapurinn er frábær.
Ég hef verið nokkuð í popptón-
list, en þetta er ekkert síðra.
Messías er alveg stórkostlegt
verk. Ég söng það árið 1977 með
Passíukómum á Akureyri. Orat-
órían er gríðarlega mikil og stór,
en mér líkar betur og betur við
hana eftir því sem ég verð eldri.
Því oftar sem ég heyri Messías
því betur skil ég hann. Messías
er stórkostlegt samspil radda. I
verkinu eru stórfallegir kórar og
aríur sem flestir ættu að þekkja.
Mér finnst ég þekkja þetta mjög
vel og var ekki mjög lengi að átta
mig á verkinu."
„Þetta er tíunda árið mitt í
kómum. Nei, ég er ekki aldurs-
forsetinn, sá sem lengst hefur
sungið með Langholtskómum
hefur sungið í um 14 ár. Þetta
er því mjög ungur kór. Fyrir
nokkrum ámm, þegar meðalaldur
í íslenskum kórum var 50 ár, þá
var meðalaldurinn í Langholt-
skórnum 25 ár, en síðan hafa
kórar í landinu yngt talsvert upp
hjá sér,“ sagði Guðmundur Gunn-
arsson, formaður kórs Langholts-
kirkju.
„Starfsemi kórsins er í nokkuð
föstum skorðum. Æfingar era
reglulega tvisvar í viku og skiptir
engu máli þótt tónleikar séu í
nánd. Við reynum að skipuleggja
æfíngamar þannig, að öllum
undirbúningi sé lokið nokkra fyrir
tónleikana án þess að þurfa að
fjölga æfíngum.
„Ég veit að mönnum þykir mjög
gaman að syngja í kómum. Fólk
fínnur sig sem mikilvægt tannhjól
í stórri vél. Þetta er virkileg lífs-
fylling. Kórstarfíð er ekki ósvipað
fótboltakeppni, nema það er bann-
að að sóla og einstaklingsfram-
takið á ekki við nema samkvæmt
vel skipulögðu plani.“
„Þetta er alveg rétt," segir
Sigurlaug. „Það kemur alltaf fyrir
að menn koma þreyttir á æfíngu,
en það er segin saga, hressingin
er slík að flestir koma endumærð-
irafæfíngu."
„Það er raunveraleg heilsubót
að syngja. Ein góð æfing er á við
það að hlaupa ianga vegalengd,“
segir Guðmundur.
„Og svo er það félagsskapurinn
sem er mjög góður. Sumir koma
beinlínis í kórinn til að kynnast
góðu fólki. Ég hafði heyrt að fé-
lagsandinn væri mjög góður í
kórnum og það réði nokkra um
að ég gekk í hann,“ sagði Ema.
„Stundum fínnst fólki ekki nóg
sungið. Sumir hafa tekið sig
saman og myndað litla kóra innan
kórsins. Þannig var með „Stjúp-
bræður" sem nutu talsverðra vin-
sælda fyrir nokkram áram.
Ég og nokkrar vinkonur mínar
bytjuðum að æfa saman ýmis lög
og komum fram á vísnakvöldum
og árshátíðum í vetur. Þetta datt
nú upp fyrir þegar ein flutti af
landi brott.“
„Það era býsna margir sem
lesa nótur eða skilja nótur í kóm-
um. Ég hef til dæmis aldrei lært
að lesa nótur, en get nú nýtt mér
þær mjög vel,“ sagði Guðmundur.
„Ég lærði fyrst nótnalestur
þegar ég söng í Passíukómum á
Akureyri,“ sagði Erna, en hún er
tónmenntakennari.
„Ég hef lært nótnalestur en hef
tapað nokkra niður vegna æfínga-
leysis. Til Messíasar þekkti ég
ekki nema af plötu,“ segir Sigur-
laug.
„Það var nokkuð sérstakt að
riij'a upp Messías. Við byijuðum
á því að setja plötu á fóninn og
lesa um leið verkið á bók. Þetta
var aldeilis frábær stund. Það er
ekki hægt að gleyma svona verki.
Af og til raku menn upp til handa
og fóta, þegar þeir mundu eftir
einstökum köflum; ég man eftir
þessu, og svo sungu menn með,“
segir Guðmundur.
„Messías gerir kröfur til
söngvaranna, en þó öðravísi kröf-
ur en önnur verk. Verkið syngst
létt saman, verður áreynslulaust,
án þess að minnka kröfumar.
Ég veit að Messías eftir Hándel
mun falla fólki vel í geð. Þetta
er fallegasta og þekktasta kórverk
í heimi og í því er mikill söngur."
Bílageymsla undir
Austurvelli:
Hugmyndin
vel fram-
kvæmanleg
Segir Þorvaldur S.
Þorvaldsson forstöðu-
maður Borgarskipulags
„MÉR LÍST ágætlega á þessa
hugmynd og held að hún sé vel
framkvæmanleg,“ sagði Þor-
valdur S. Þorvaldsson, forstöðu-
maður borgarskipulags, er hann
var inntur álits á hugmynd, sem
fram hefur komið um bílastæði
undir Austurvelli í miðborg
Reykjavíkur.
Hugmyndin er sett fram i grein
eftir Birgi Pál Jónsson og Leó E.
Löve, sem birt var í Morgunblaðinu
á laugardag. Þar telja höfundar að
■* vel gæti farið á því að „fela“ 100
til 200 bíla undir Austurvelli. Yfír-
borðið gæti verið óbreytt með öllu,
nema hvað völlurinn yrði stækkaður
sem útivistarsvæði þar sem engin
umferð þyrfti að verða um Vallar-
stræti og Thorvaldsensstræti.
Þorvaldur sagði að bflageymsla
undir Austurvelli væri síst verri
kostur, en á þeim stöðum sem þegar
hefðu verið ákveðnir og til dæmis
væri nú unnið að gerð bflageymslu
undir Suðurgötu 7, sem lægi í svip-
aðri hæð og Austurvöllur. „Þetta
er góð hugmynd, því þetta liggur
eins vel við Kvosinni og hugsast
getur," sagði Þorvaldur. Hann sagði
að hugmyndin hefði að vísu ekki
verið rædd að neinu marki innan
Borgarskipulags, en væntanlega
yrði málið kannað í framhaldi af
þessari grein þeirra Birgis Páls
Jónssonar og Leó Löve, enda væri
nú unnið að könnun á öllum hugsan-
legum möguleikum á bflastæðum í
Kvosinni.
itoob\^rir
e\|VC^ l, a° \ tóSS'4 ^ oooj
lllÞ^ i ww*'VitS; »«?,
roV«da'
Jr______-—- stúlkurn K.aUritius 1
á e^nnl \
wr s
ODDI HF.