Morgunblaðið - 19.04.1986, Page 17
stokka hér upp spilin. Sumir halda
því fram, að eðlilegast væri, að
útgerð og fiskvinnsla væru algjör-
lega aðskilin. Þau eru það ekki' í
dag og því munum við ekki breyta.
Það hníga að því jafnsterk eða e.t.v.
sterkari rök, að eðliiegra sé, að
fiskvinnslan eigi útgerðina. Þar sem
þannig háttar er bráðnauðsynlegt,
að menn komi sér saman um að
semja þannig um kjör sjómanna,
að fulltrúar sama aðila þurfi ekki
að sitja sitt hvoru megin við borðið.
Það er vel unnt að tiyggja sjó-
mönnum eðlileg kjör með öðrum
hætti. Það er sjómönnum örugglega
ekkert kappsmál að senda fiskinn
óunninn úr landi. Þeir vilja aðeins
reyna að tryggja sér sem hæstar
tekjur en eru vafalaust því fegnast-
ir, að það megi skapa þjóðinni sem
hæstar tekjur um leið. Að þessu
sameiginlega markmiði hlýtur ís-
land sf. að stefna.
Þá á jafnframt að vera fyllilega
eðlilegt, að við séum með fisk-
vinnslufyrirtæki, sem engin skip
eiga og skip, sem eru í eigu allt
annarra aðila en fiskvinnslunnar.
Um þau fyrirtæki verður einfald-
lega að gilda það, að fiskkaupand-
inn þarf að kaupa og fískseljandinn
að selja þann físk, sem hvor um sig
vill kaupa og selja. Við getum leyst
það með frjálsum fískmarkaði eða
með því fyrirkomulagi, sem í gildi
hefur verið á undanförnum árum,
en tímans vegna ætla ég ekki að
ræða um það hér og nú, það er
tæknilegt útfærsluatriði.
Aðalatriðið er, að það gengur
ekki, að við afhendum aðeins hluta
af þjóðinni yfirráðarétt yfír auðlind-
um þjóðarinnar allrar, án þess að
því fylgi miklar skyldur. Við þurfum
öll að hafa lífsviðurværi okkar af
þeim.
I skjóli verndartolla
Ég vil varpa fram einni spurn-
ingu til. Þegar fískveiðilögsagan
var margsinnis stækkuð, var það
aðalkeppikeflið, að sjá til þess, að
útlendingar og þá um leið erlent
fjármagn teygði ekki klærnar inn
í landhelgina. Við ætluðum sjálfir
að veiða og vinna okkar afla.
Finnst nokkrum koma til greina
að hleypa erlendum skipum hér inn
í landhelgina? En er svo ýkja mikill
munur á því að hafa hér í land-
helginni erlend skip, sem veiða fyrir
erlendan markað eða íslensk skip,
sem gera það sömuleiðis? í hvorugu
tilfellinu kemur fískurinn til vinnslu
á íslandi og í báðum tilfellum eru
skipin að útvega hráefni fyrir físk-
markaðina erlendis, sem þar að
auki eru í beinni samkeppni við ís-
lendinga sjálfa.
Munurinn er að sjálfsögðu sá,
að það er íslensk áhöfn á íslenska
skipinu og hún hefur af því tekjur
að selja fiskinn erlendis enda þótt
skipið skili engum afla á land til
frekari vinnslu hérlendis. Ef við
erum orðnir svona frjálslyndir á
annað borð, að vilja sigla með stór-
an hluta af aflanum okkar óunninn
á erlendan markað með ærnum
tilkostnaði þó, væri þá ekki alveg
athugandi að bjóða aflann út.
Mér segir svo hugur um, að
margir fískiskipaeigendur í löndun-
um í kringum okkur, sem mjög
vantar fískimið, myndu vilja borga
vel fyrir þann rétt að mega veiða
nokkur þúsund tonn af þorski hér
í íslenskri landhelgi. Hugsanlegt
væri, að þeir væru tilbúnir að borga
meira en nemur þeim tekjum, sem
íslenska þjóðarbúið hefur af sam-
svarandi veiðum og sölu íslenskra
skipa, sem sérhæfa sig í því að
veiða fyrir erlendan markað.
Að tala um þetta í alvöru myndi
sjálfsagt kallast landráð, en ég bið
menn að staldra aðeins við og íhuga
málið. Ég undirstrika að heldur kýs
ég, að við reynum að búa svo að
sjávarútvegi okkar, að hann standi
sig fullkomlega í samkeppni við
sjávarútveg annarra þjóða, en hall-
ist ekki þar á aðra hliðina og taki
að sér hráefnisöflun fyrir fisk-
vinnslu landanna í kringum okkur,
sem í skjóli verndartolla hvetja til
innflutnings á óunninni vöru.
Ég vil enn undirstrika það, sem
ég sagði hér fyrr, að hér er um að
ræða svo mikilvægt mál, að það
þýðir ekkert annað en að tala af
fullri hreinskilni. Við ætlum að lifa
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL1986
á auðlindunum okkar. Við höfum
hingað til talið okkur gera það best
með því að veiða fískinn og vinna
hér á landi og höfum lagt í það
ærinn tilkostnað bæði með bygging-
um stórkostlegra mannvirkja hér á
landi og með öflugu söluneti fyrir
íslenskar afurðir erlendis.
Bandaríkin — mikil-
vægasti markaðurinn
Það er sjálfsagt að minna menn
á, að fyrir aðeins rúmu ári, var
sáralítil sala á ferskum físki til
Evrópu og reyndar var Evrópu-
markaðurinn slakur yfírleitt. Því
réðu að mestu innbyrðis hlutföll
gengis mismunandi mynta. Að
breyttu gengi dollarans lítur dæmið
verr út fyrir Bandaríkin um sinn,
en skammsýnin má ekki sitja í
fyrirrúmi.
Víða erlendis eigum við íslend-
ingar gífurlegar eignir í markaðs-
þekkingu og viðskiptavild (good-
will). íslenskur fískur, hvort heldur
er saltaður eða frystur, er alþekkt
gæðavara, sem kaupendur eru til-
búnir að greiða hæsta verð fyrir.
Ef við lítum á frystinguna sér-
staklega skulum við ekki gleyma
því, að Bandaríkin hafa í áratugi
verið mikilvægasti markaður fyrir
íslenskar fískafurðir. Verð á ís-
lenskum físki hefur aldrei verið jafn
hátt þar eins og nú. Það væri óbæt-
anlegur skaði, ef við misstum það
forskot, sem við höfum þar. Menn
verða að skilja mikilvægi langtíma-
markmiða í viðskiptum af þessu
tagi. Forráðamenn Islands sf. verða
líka að hugsa um morgundaginn.
Það myndu allir alvöru „business-
men“ gera.
En Evrópa heillar, og Evrópa er
vissulega mjög góður og vaxandi
markaður. Tímabundinn aflabrest-
ur í Norðursjó og við Noreg hefur
um sinn gjörbreytt markaðsstöð-
unni, seljendum í hag. Mest munar
þó um breytingar á gengi. Væri
hlutfall gengis dollara og sterlings-
punds það sama og fyrir rúmu ári,
sæjum við nánast engan útflutning
á ferskum físki til Bretlands. Flýt-
um okkur hægt og dæmum ekki
markaði úr leik, hvað þá heldur
heilar atvinnugreinar, af nokkurra
missera sveiflum einum saman.
Framtíð íslensks sjávarútvegs
byggir á því, að við nýtum allar
okkar auðlindir á sem skynsamleg-
astan hátt, þar með talið vinnsluna,
þá þekkingu sem býr í fiskvinnslu-
fólki, sölunet okkar erlendis og það
orðspor, sem íslenskur fískur hefur
á sér þar. Látum ekki þetta stórgall-
aða kvótakerfí eyðileggja fyrir
okkur þann árangur, sem við höfum
byggt upp í áratugi.
Ferskur fiskur — nýtt
verkefni fyrir frystihús
Ég ætla þá hér í öðru lagi að
Ijalla stuttlega um fiskvinnsluna og
markaðina sameiginlega.
Það hafa orðið mjög. miklar
breytingar á undanförnum árum í
flutningatækni og nýjum geymslu-
aðferðum fyrir matvæli. Enginn
vafí er á því, að áfram mun verða
aukning á útflutningi á ferskum
físki á næstu árum. Við þurfum að
stefna að frekari vinnslu hans hér-
lendis. Tollmúrar hindra nú eðlileg-
an framgang þess til stórs hluta
Evrópu. Þeim múrum þurfum við
að ryðja úr vegi.
Samhliða aukningu á ferskum
físki, vonandi í flökum eða neyt-
endaumbúðum, munum við sjá enn
frekari aukningu frystra og salt-
aðra afurða, sem íslenskt sérmennt-
að fiskvinnslufólk mun framleiða
hér á landi. Aðrar nýjungar munu
einnig sjá dagsins ljós og eru sumar
þeirra sambland af hvoru tveggja.
Ég hef svo oft rætt um það, hve
sterk neysluhefð á saltfiski er, að
ég ætla ekki að íjölyrða um það
hér, en ræða mest um ferskan og
frystan físk, en nefna aðeins „örfá
dærni" um það, hvað kann að vera
á döfinni.
Raddir heyrast um, að frysting
sé jafnvel að verða úrelt og ferskur
fískur sé það, sem koma skal. Það
er og hefur ávallt verið mikil eftir-
spurn eftir „ferskum“ mat og fískur
er þar engin undantekning. Fryst-
ing er góð aðferð við að vernda
ferskleika físksins.
Aukin áhersla á útflutning á
ferskum físki hlýtur að skapa frysti-
húsunum nýtt verkefni, náskylt
þeim, sem þau sinna í dag. Við
hljótum að keppa að því að fullvinna
sem mest af þeim ferska físki, sem
á markað fer og notum til þess
vinnslurásimar í húsunum allt að
frystitækjunum. En fyrst þarf að
fá breytingu á tollum í markaðs-
löndunum.
Mikil og góð þróun hefur orðið
á undanfömum missemm í mat-
vælaiðnaði yfírleitt og hefur fryst-
ingin stöðugt aukið sinn hlut í þeirri
þróun, jafnt á hráefnisstigi sem og
í fullunnum vÖmm, jafnvel beint í
örbylgjuofninn.
Stöðugur vöxtur er í þætti veit-
ingahúsa við að fæða þjóðir hins
vestræna heims. Ár frá ári eykst
sá fjöldi, sem kýs að borða úti, eins
og það er kallað, og nú er mikill
uppgangur víða á Vesturlöndum í
þeirri þjónustu, sem felst í að elda
úti og senda tilbúinn mat heim.
Stöðugt færist í vöxt, að fjöl-
skyldan sé fjarri heimilinu við vinnu
og í skóla mestan hluta dags, en
dveljist á hinn bóginn meira heima
í frístundum en áður var. Tilkoma
tölvuneta, myndbandavæðingar og
gervihnattsjónvarps virðist auka
heimafrístundir meira en fyrir fáum
ámm var spáð. Við þessar aðstæður
virðist komast í tísku að láta senda
sér mat heim.
Þarna er á ferðinni markaður,
sem er og verður mjög kröfuharður
um gæði og þjónustu. Markaður,
sem við eigum að sinna. Þetta em
veitingahús, sem munu leggja alla
áherslu á gott hráefni, sem einfalt
er og ömggt að geyma og sem
ávallt verður til á lager. Það má
leysa á ýmsa vegu.
Uppþýðing . frystrar matvöm
hefur lengi viðgengist, án þess að
mikið væri um það talað á matvæla-
mörkuðum. Nýjar aðferðir em að
þróast í þessa vem. Hér gæti verið
um að ræða bestu aðferð til að
varðveita eiginleika „ferskfísks",
sem í sjónmáli er.
Geislun matvæla er stöðugt verið
að þróa. Svo virðist, sem einungis
eigi eftir að sannfæra almenning
um, að geislaður matur sé ekki
hættulegur. Það kann þó að verða
tímafrekt. Enn er einnig eftir að
finna hagkvæmustu leiðir til að
geisla og jafnframt að þróa umbúðir
og huga að heppilegri langtíma-
geymsluaðferð fyrir þannig tilbúna
vöm, sennilega frystingu. Gæti
verið nærri.
Stundarhagsmunir
mega ekki villa
okkur sýn
Svona mætti að sjálfsögðu áfram
telja lengi enn og við hljótum að
leggja á það megináherslu að halda
því forskoti, sem við Islendingar
höfum á flestum mörkuðum, þar
sem við emm þekktir fyrir góða
vöm, vandaðar nýjungar og áreið-
anleika í viðskiptum. Það gefur
okkur hærra verð og traustari við-
skiptasambönd.
Við eigum ekki að leggja vopn í
hendur andstæðinga okkar, sem
veija sinn eigin iðnað með tollum,
nema þá að við ætlum að taka að
okkur það hlutverk að afla þeim
hráefnis og hverfa frá þeirri full-
vinnslustefnu, sem hér hefur ríkt
um áratuga skeið. Látum ekki
stundarhagsmuni villa okkur sýn.
Við höfum á ýmsa vegu torveldað
okkar eigin árangur og getum víða
bætt úr því.
Við þurfum breytta vinnulöggjöf
og sveigjanlegri vinnutíma til að
ná sem mestum verðbætum úr því
hráefni, sem við höfum til umráða
og sem hæstum tekjum fyrir okkar
vörur.
Við þurfum meira markaðsmeð-
vitaða verðlagningu hráefnisins eða
hreinan fískmarkað.
Við verðum að borga fiskvinnslu-
fólki hærri laun til að geta fullnýtt
fjárfestinguna, sem í fískvinnslu-
húsunum liggur. Þar fara hagsmun-
ir einnig tvímælalaust saman. Fleira
fólk til starfa í fískvinnslunni mun
skila betri afkomu hjá fiskvinnslu-
fyrirtækjunum, sem aftur geta
greitt hærri laun og skapað enn
betri vinnsluaðstöðu.
Við þurfum að sjá stóraukna
tæknivæðingu og mikla sjálfvirkni.
Ymislegt er þegar í sjónmáli á því
sviði umfram það, sem við þekktum
til skamms tíma.
Við auknar útflutningstekjur
munum við sjá aukna verðmæta-
sköpun og fleiri atvinnutækifæri.
Við munum sjá nýjar stuðnings-
greinar eins og örtölvuiðnaðinn og
líftækni hafa meiri og meiri áhrif
og jafnvel skipta sköpum um
vinnsluaðferðir.
Við munum sjá breytta nýtingu
á sumum fiskstofnum, sem nú virð-
ist erfítt að sjá framtíð fyrir.
Við munum sjá nýja markaði
vaxa, enda þótt núverandi aðal-
markaðir okkar munu áfram verða
kjölfestan til frambúðar.
Við munum á næstu misserum
eiga heldur auðveldan aðgang að
flestum mörkuðum vegna lítils
framboðs, en það mun aukast innan
fárra ára. Þá verðum við að vera
tilbúnir að mæta harðnandi sam-
keppni og treysta á góð viðskipta-
sambönd.
Allar vinnslugreinar, sem við
þekkjum í dag, munu halda velli
og uppgangur verður áfram í sölt-
un, frystingu og ferskum afurðum
og nýjar greinar sjá dagsins ljós.
Við verðum að leggja minna og
minna upp úr magntölum, en huga
í vaxandi mæli að verðmæti.
Við eigum að hvetja alla, smáa
og stóra, til að kalla fram nýjungar,
hvern á sínu sviði og hjálpa þeim
við að gera það besta úr þeim.
Enda þótt rekstur sjávarútvegs-
ins í heild sé erfíður, eru þó gjör-
breyttar aðstæður til að takast á
við vandann eftir síðustu kjara-
samninga og sjóðakerfisbreytingar.
Okkur hef ur borið
af leið
Að lokum þetta. Ég vil leggja
17
áherslu á, að ég er mjög bjartsýnn
á framtíð sjávarútvegs á íslandi
vegna þess, að ég er bjartsýnn á
framtíð íslands sf. og þar mun sjáv-
arútvegurinn verða í fararbroddi
enn um langan aldur.
Hins vegar tel ég, að okkur hafi
borið nokkuð af leið. Eins og ég
hef reynt að benda á, höfum við
búið við um alllangt skeið, jafnvægi
um einhver viðkvæmustu skipti
fjármuna, sem fara fram meðal
þessarar þjóðar.
Okkur var mikill vandi á höndum,
þegar takmarka þurfti sókn í fiski-
stofnana okkar. Engin ein leið var
góð, en einhveija þeirra varð að
fara.
Sú, sem farin var, hefur að mínu
mati ekki reynst vel. Þó sleppt sé
öllum vangaveltum um misnotkun
þeirra réttinda, sem útvegsmenn
og sjómenn fengu við þessa gerð,
þá bendir ýmislegt til þess, að sú
hagkvæmni, sem nást átti með
þessu kerfi, skili sér ekki sem
skyldi.
Aðalgallinn er hins vegar sá, að
þeir sem réttindin fengu, hafa ekki
þær skyldur að tryggja að aflinn
skili sem mestu í heild fyrir þjóðar-
búið og landsmenn alla.
Ég tel að tími sé til kominn að
reyna nýjar leiðir, en geri mér grein
fyrir því, eins og ég sagði hér að
framan, að engin leið er algóð, og
ég mun ekki leysa málið hér og nú.
Frjáls fískmarkaður myndi sjálf-
sagt talsverðu breyta, en skilyrði
til þess, að hann fái notið sín er,
að kvótinn verði lagður niður, en
þó verður að takmarka sóknina með
einhveijum hætti svo sem eins og
gert var áður með skrapdagakerfi
eða annarri líkri úfærslu, sem tæki
af það misrétti. sem nú er við líði.
Ónnur leið væri, að kvótanum
væri skipt á vinnslustöðvar, sem
síðan semdu við aðra útgerðarmenn
eða áhafnir eigin skipa um að ná
í þann afla, sem þeir hefðu fengið
úthlutað, á sem hagkvæmastan
hátt. Þeir myndu síðan frysta
aflann eða salta eða flytja hann
ferskan á erlendan markað, unninn
eða óunninn, allt eftir því sem mest
gefur í aðra hönd. Þessi leið tel ég,
að myndi skila þjóðarbúinu mestu
í bráð og lengd, en er jafnframt
viðkvæm í framkvæmd eins og sú,
sem við höfum í dag.
Hvaða leið sem við förum þá er
það skylda okkar, þessarar fá-
mennu þjóðar sem aðeins á þessa
einu auðlind, sem nokkuð kveður
að, að tryggja, að við náum sem
hæstum heildarágóða út úr rekstri
íslands sf.
Það gerum við einungis með
styrkri yfirstjórn, þar sem allir hafa
jafnan rétt og landsmenn eru hvatt-
ir til að vinna saman að sameigin-
legum hagsmunum þeirra allra og
stefna saman að betri framtíð sjáv-
arútvegsins á ísland.
Á þann hátt mun öllum starfs-
mönnum íslands sf. best farnast,
bæði þeim sem vinna við sjávarút-
veg og öllum öðrum.
Nýtt líf selur tæki sín
til kvikmyndagerðar
„ÉG HEF ekkert að gera við
þessi tæki á næstu mánuðum og
því ákvað ég að selja þau,“ sagði
Þráinn Bertelsson forsvarsmað-
tir Kvikmyndafélagsins Nýs lífs
í samtali við Morgunblaðið, er
hann var spurður hvers vegna
Nýtt líf hefði auglýst fjölda
tækja til kvikmyndagerðar til
sölu.
Þráinn sagði að það væri ekki
þar með sagt að hann væri að
leggja upp laupana, enda nýbúinn
að fá tveggja milljón króna styrk
til að undirbúa gerð myndarinnar
Góðir Islendingar. „Ég ætla að ljúka
undirbúningi myndarinnar og von-
ast síðan til að fá framleiðslustyrk
til þess að Ijúka við gerð hennar
næst þegar úthlutað verður úr
Kvikmyndasjóði," sagði hann. „Ég
er einnig að undirbúa samstarfs-
verkefni með Þjóðveijum. Það var
sýnd mynd eftir mig í þýska sjón-
varpinu og eftir það var ég beðinn
um að skrifa handrit. Þetta hefur
síðan þróast þannig að verið er að
athuga hvort hægt sé að gera
myndina í sameiningu."
Þráinn sagðist ekki sjá eftir
þessum tækjum, þetta væru dauðir
hlutir. Hann sagðist vona að hann
gæti fengið tæki sem þessi leigð
þegar hann þyrfti á því að halda.
Hins vegar sæi hann eftir sam-
starfsfólki sínu sem nú væri að
snúa sér að störfum annars staðar.
„Ég vonast til að geta haldið
áfram í kvikmyndagerðinni enn um
hríð. Ég verð þó að l'aga reksturinn
að þeim veruleika sem kvikmynda-
gerð býr við hér á landi. Sú stefna
sem ég hef barist fyrir, að fyrirtæki
þyrftu að vera í stöðugum rekstri
til að hér gæti sprottið upp alvöru
kvikmyndagerð, á ekki upp á pall-
borðið hjá þeim sem hefur verið
falið að úthluta peningum frá rík-
inu. Þetta er kannski ósigur í or-
ustu, en stríðið er ekki búið.“
Þráinn. sagði að lokum að hann
hafí þegar fengið margar fyrir-
spurnir um tækin. Hann sagði að
það væri grundvallaratriði að tæki
þessi færu ekki úr landi. Þannig
gætu þau áfram komið þeim sem
stunda kvikmyndagerð á Islandi að
gagni, þó ekki stæði hann sjálfur á
bak við þau.