Morgunblaðið - 19.04.1986, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. APRÍL1986
23
Akranes:
Sjávarréttagerðin hf.
kynnir starfsemi sína
Akranesi.
Sjávarréttagerðin hf. á
Akranesi hélt kynningu á
starfsemi sinni fyrir skömmu,
en fyrirtækið framleiðir ýms-
ar afurðir úr tijónukrabba og
beitukóng. Fyrirtækið bauð
gestum til hádegisverðar í
hinum nýja veitingasal Still-
holts á Garðabraut 2. Gestum
Kristján Einarsson framkvæmdastjóri í ræðustól.
var boðið upp á fjögurra rétta
máltíð sem jafnframt var
kynning á framleiðslu fyrir-
tækisins en Stillholt hefur að
undanförnu haft þessa rétti á
matseðli sínum. Meðal gesta
var sjávarútvegsráðherra,
Halldór Asgrímsson, yfir-
menn þess fyrirtækis sem
framieiðir vélar sem Sjávar-
réttagerðin notar, bæjar-
stjórn Akraness og fleiri. Að
loknum hádegisverði var gest-
um boðið að skoða húsakynni
og vélakost fyrirtækisins.
Undir borðum voru haldnar
margar ræður og m.a. rakti
Kristján Einarsson fram-
kvæmdastjóri Sjávarréttagerð-
arinnar sögu fyrirtækis síns og
kom þar margt fróðlegt fram
um uppbyggingu þess sem ekki
hefur gengið átakalaust þó
skilningur ráðamanna hafi strax
verið mikill. Halldór Asgrímsson
sjávarútvegsráðherra flutti
ávarp, ræddi hann ýmsa erfið-
leika sem steðja að sjávarút-
vegnum um þessar mundir og á
slíkum tímum væru menn oft
jákvæðari fyrir nýjum hug-
myndum þegar þær væru kynnt-
ar. Svo hefði verið í sjávarút-
vegsráðuneytinu þegar settar
voru fram hugmyndir um stofn-
un Sjávarréttagerðarinnar.
Halldór sagði að enn væri um
tilraunaframleiðslu í þessari
vinnslu og því væri erfitt að
segja hvað þetta gæti gefið af
sér en sagði þó fulla ástæðu til
að kanna alla möguleika í þess-
um veiðum, að því leyti væri
þetta hliðstætt við þann tíma
þegar humar- og rækjuveiðar
voru að hefjast hér við land. í
dag skila þær veiðar stórum fjár-
munum til þjóðarbúsins, sagði
ráðherra, og árnaði hinu nýja
fyrirtæki allra heilla og hvatti
heimamenn til að standa vel við
bakið á þessu nýja fyrirtæki.
Guðjón Guðmundsson forseti
bæjarstjómar Akraness fagnaði
tilkomu þessa fyrirtækis og
sagði það ánægjulegt þegar
undirmenn stofnuðu ný atvinnu-
fyrirtæki og hefði atvinnuástand
á Akranesi batnað mikið með
tilkomu nokkurra fyrirtækja að
undanförnu. Guðjón minntist á
þær breytingar sem orðið hafa
á sjávarréttagerð á undanföm-
um ámm og sagði sína kynslóð
aðallega hafa alist upp við að
borða ýsu og skötu og svo lúðu
til hátíðabrigða. Allt annað kall-
aðist skítfiskur og var hent, en
í dag væru þetta dýmstu réttir
á veitingahúsum. Guðjón ámaði
fyrirtækinu allra heilla í framtíð-
inni.
Ljóst er að þeir Sjávarrétta-
gerðarmenn hafa unnið mikið
brautryðjendastarf og er
óskandi að það eflist og dafni
því greinilegt er að þessar
krabbaveiðar og ýmsar veiðar á
skel er óplægður akur hér við
land og því ber að stuðla að
því að ungir áhugasamir at-
hafnamenn fái allan þann stuðn-
ing opinberra aðila sem framast
er unnt.
J.G.
Guðjón Guðmundsson forseti bæjarstjórnar og Guðmundur Vésteinsson bæjarfull-
trúi ræða málin.
Ingimundur Sigurpálsson bæjarstjóri á Akranesi að taU við Gunnar Sigurðsson úti-
bússtjóra og Kristján Sveinsson tryggingarfulitrúa.
Orlofsnefnd Bandalags Háskólamanna:
Samningar tókust
um Kölnarferðir
á 8.200 krónur
SAMNINGAR hafa tekist milli
orlofsnefndar Bandalags Há-
skólamanna og Arnarflugs um
flugfargjöld til Kölnar í sumar,
fargjaldið kostar 8.200 án flug-
vallarskatts. Þá hefur nefndin
samið við ferðaskrifstofuna Pól-
aris um ferðir til Kaupmanna-
hafnar, London, Lúxemborgar
og New York fyrir félagsmenn
og fjölskyldur þeirra. Ennfrem-
ur býður ferðaskrifstofan félags-
mönnum BHM sérsamning á
ferðum til Mallorca í sumar.
Þrjár tveggja vikna ferðir verða
farnar til Kölnar i sumar, farið
verður 8. júlí, 24. júlí og 7. ágúst.
Enginn bamaafsláttur er veittur,
en börn yngri en 2 ára greiða
aðeins ferðatryggingu, 850 krónur.
Frestur til að kaupa farseðlana er
til 29. apríl og eiga þeir að greiðast
á skrifstofu BHM Lágmúla 7.
Félagsmenn BHM geta valið milli
sex ferða til Kaupmannahafnar á
vegum ferðaskrifstofunnar Pólaris
í sumar, sex ferða til Lúxemborgar,
fímm ferða til London, og Qögurra
ferða til New York. Fargjald til
Kaupmannahafnar er 11.500,
10.500 kostar að fara til London,
10.300 til Lúxemborgar og 15.500
til New York. Þessi fargjöld em
m.a. afrakstur starfs orlofsnefndar
BHM, sem tók til starfa sl. haust,
en verkefni hennar var að ná samn-
ingum um hagstæðar utanlands-
ferðir fyrir félagsmenn og útvega
aðra orlofsaðstöðu. í nefndinni sitja
Guðný Jónsdóttir, Frank Halldórs-
son, Birgir Guðjónsson, Jafet S.
Ólafsson og Þóra Kristín Jónsdóttir.
Framsóknarvist
Framsóknarvist verður haldin
sunnudaginn 20. apríl að Hótel
Hofi kl. 14.00
Veitt verða þrenn verðlaun karla
og kvenna.
Stutt ávarp flytur Alfreð Þor-
steinsson, formaður FR.
Framsóknarfélag Reykjavíkur.