Morgunblaðið - 19.04.1986, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 19.04.1986, Qupperneq 26
26 MQRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL1986 Fundur kaþólskra biskupa og ANC: Hvetja kaþólikka til að andæfa að- skilnaðar stefnunni Lusaka, Zambíu, og Jóhannesarborg, NEFND á vegum kaþólskra biskupa í Suður-Afriku lauk á miðvikudag viðræðum við full- trúa skæruliðahreyfingar Afr- íska þjóðarráðsins, ANC. Að loknum viðræðunum var gefin út sameiginleg yfirlýsing, þar sem kaþólikkar voru hvattir til Ítalía: Fannburður í Dólómíta- fjöllum Boizano, Ítalíu. AP. GRÍÐARMIKINN snjó setti niður i Dólómítafjöllunum í norðvesturhluta Ítalíu í gær, og er slíkt óvenjulegt á þess- um tima árs. Um 50 sm jafnfallinn snjór þakti fjöllin fyrir ofan 1200 metra hæðarlínu í Cotina D’Ampezzo-héraði og Val Gard- ena. Nokkur fjallaskörð, þar á meðal Gardena, Pordoi, Sella, Tonale og Falzarego, lokuðust fyrir umferð vegna hættu á snjóflóðum, að sögn lögreglunn- ar. Á sléttum Norður-Ítalíu rigndi óhemjumikið og hiti var óvenjulítill, eða milli þijár og átta gráður. Suður-Afríku. AP. að andæfa aðskilnaðarstefnu stjórnvalda. Biskupamir fimm, sem sæti áttu í nefndinni, sneru heim til Suður- Afríku síðdegis á miðvikudag eftir þriggja daga viðræðulotu í aðal- stöðvum ANC í Luzaka. í viðræð- unum höfnuðu þeir að styðja beit- ingu ofbeldis í skæruliðabarátt- unni. Aftur á móti sagði í sameigin- legu yfírlýsingunni, að kaþólsku kirkjunni í Suður-Afríku bæri að hvetja áhangendur sína til að beita sérgegn aðskilnaðarstefnunni. Forseti ANC, Oliver Tambo, kvað viðræðumar hafa verið „mjög uppörvandi" og sagðist vonast til, að biskuparnir kæmu skoðunum ANC á framfæri við söfnuði sína. í gær léttu stjómvöld banni af bókinni „Vitnisburður Steve Biko - Sjálfsvitund svertingja í Suður- Afríku" eftir blökkumannaleið- togann Steve Biko, sem lést í gæsluvarðhaldi árið 1977. Sérstök endurskoðunamefnd á vegum stjómamefndar útgáfu- mála úrskurðaði, að bókin væri „ekki óæskileg". Karl ogDíana íAusturríki Þessi mynd er tekin fyrir skömmu, er Karl Bretaprins og eiginkona hans, Diana prinsessa, voru í opinberri heimsókn í Austurríki. Þama eru þau stödd á forsetaskrifstofunni í Vín ásamt Hermu Kirchschlaeger forsetafrú. Hjartaígræðsla í Gautaborg: Tvö hjörtu slá í briósti ungs Svía Sokkhólmi. AP. TVÖ mannshjörtu slógu í takt í bijósti hins 33ja ára gamla bíl- stjóra, Leif Karlsson, eftir að hann hafði gengist undir hjarta- ígræðsluaðgerð á Sahlgrenska Bretland: Myrtu Líbýu- menn gíslana? London, AP. ÞAÐ er „full ástæða til að ætla“, að tveir bresku gíslanna, sem voru myrtir í Líbanon, hafi verið „í höndum Líbýumanna", sagði sir Geoffrey Howe, utanríkisráð- herra Breta, í yfirlýsingu, sem ráðuneyti hans lét frá sér fara í gær. „Um nokkum tíma höfum við haft fyrir þvi áreiðanlegar sannanir, að Líbýumenn hafí átt þátt í að ræna bresku kennurunum Leigh Douglas og Philip Padfíeld og að þeir hafí sjálfír haldið þeim föngun- um. Hér er um að ræða hluta af þeim sönnunum, sem við höfum fyrir hinni ríkisreknu glæpa- og hryðjuverkastarfsemi í Líbýu," sagði Howe í yfírlýsingunni. Arabísk samtök, sem styðja Khadafy, Líbýuleiðtoga, segjast hafa myrt mennina í hefndarskyni fyrir árás Bandaríkjamanna á Líbýu og voru líkin skilin eftir á þjóðvegi í fjöllunum austur af Beirut. LÍK eins Bretanna þriggja, esm verið höfðu i gíslingu í Líbanon og fundust síðan myrtir í fjöllun- um austur af Beirút. Hér er um að ræða Leigh Döuglas, 34 ára gamlan stjórnmálafræðing, sem var kennari við Ameriska háskól- ann í Beirút. sjúkrahúsinu í Gautaborg á fimmtudag. Þetta er fyrsta að- gerð sinnar tegundar i Svíþjóð. 'í frétt frá sjúkrahúsinu sagði, að ígrædda hjartað létti nú undir með veikburða hjarta sjúklingsins. Blaðafulltrúi spítalans, Ann- Christine Andersson, sagði í út- varpsviðtali, að hjartaskurðlæknir- inn, Goran William-Olsson, hefði ákveðið að skilja hjarta sjúklingsins eftir á sínum stað, svo að það starf- aði jafnfram ígrædda hjartanu, sem var of lítið fyrir hjartaþegann. Það var stórkostlegt að sjá nýja hjartað tengt hinu gamla og fara að slá í takt við það,“ sagði Anders- son. Blaðafulltrúinn sagði, að sam- bærilegar aðgerðir hefðu verið framkvæmdar í öðrum löndum, og einkum hefði hjartaskurðlæknirinn Christiaan Bamard í Suður-Afríku gert margar slíkar á áttunda ára- tugnum. Andersson sagði, að Karlsson Iiði vel eftir atvikum og hefði sömu möguleika á að ná sér og eftir hefðbundna hjartaígræðslu. Sjúkl- ingurinn hafði fjórum sinnum feng- ið hjartaáfall og var búinn að vera á biðlista eftir hjarta frá því í jan- úarmánuði. Þetta er í fjórða sinn, sem hjarta- ígræðsla er framkvæmd á Sahl- grenska sjúkrahúsinu. I fyrra var sett gervihjarta í mann á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi, en sjúkl- ingurinn lést skömmu síðar. Sovétríkin: Andófsbræður fá að flytjast úr landi AP/Símamynd Vínarborg, AP. BRÆÐURNIR Grigory og Isai Goldstein, kunnir sovézkir and- ófsmenn, komu til Vínarborgar í morgun frá Sovétríkjunum ásamt fjölskyldum sínum. Lauk Júgóslavía: Artukovic kveðst aldrei hafa heyrt um srasklefa Zacreb. AP. Zagreb. AP. ANDRIJA Artukovic, sem sak- aður er um stríðglæpi í Júgo- slavíu, varði á fimmtudag tilvist fangabúða i Króatíu, leppríki nasista i siðari heimsstyrjöld. Mörg hundruð þúsund manns voru myrtar í þessum fanga- búðum. Hinn 86 ára gamli innanríkis-, leppstjómarinnar í Króatíu sagði að það hlyti að hafa verið þörf fyrir fangabúðimar, „hafí þær verið til“. Artukovic kvaðst aðeins hafa heyrt um tvær þeirra fanga- búða, sem getið var á sk.rá sækj- anda málsins gegn honum. Sækjandi málsins sagði að verið hefðu rúmlega þijátíu fangabúðir dóms-; og kirkjumálaxáðherra í Króatíu og þar hefðu rúmlega sjö hundruð þúsund gyðingar, serbar og sígaunar verið myrtir á grimmiiegan hátt. Aðspurður um gasklefa svaraði Artukovic: „Þetta er fyrsta sinni, sem ég heyri um slíkt á ævinni." „Ég tók aldrei þátt í að taka fólk af lífí,“ sagði hann og hélt því fram að hlutverk sitt sem ráð- herr^L hefði verið fólgið í að senda út herlið til að koma á friði þegar andspymuhreyfíngin hafði ýtt undir óánægju og óróa meðal þjóðarinnar. Artukovic var spurð- ur herflokkamir hefðu framfylgt skipunum hans: „Já, það orð fór af mér að mínum tiliögum væri framfylgt." þar með 15 ára baráttu þeirra fyrir því að fá að fara úr landi. Bræðumir em gyðingar og vom búsettir í Tíflis, höfuðborg Grúsíu. Árið 1977 stofnuðu þeir samtök til að fylgjast með framgangi mann- réttindamála í Sovétríkjunum og hvort Sovétmenn stæðu við þau heit, sem þeir hefðu gefíð með aðild sinni að alþjóðasamþykktum um þau efni. Árið 1971 sóttu bræðumir um leyfí til að fá að flytjast frá Sovét- ríkjunum, en ítrekuðum óskum þeirra hefur jafnan verið synjað. Þeim var tjáð skömmu fyrir brott- förina að það væri fyrir atbeina Edwards Kennedy, öldungadeildar- manns frá Bandaríkjunum, að þeir fengju að fara úr landi. Kennedy tók mál þeirra sérstaklega upp við sovézka ráðamenn er hann heim- sótti Sovétríkin í febrúar sl. Bræðumir, sem eru um fímm- tugt, eru báðir eðlis- og tölfræðing- ar. Grigory var eitt sinn dæmdur til eins árs þrælkunar í vinnubúðum fyrir að vinna ekki fyrir lifíbrauði. Báðir hafa margsinnis verið teknir höndum og vista,ðir í fangelsi fyrir andóf sitt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.