Morgunblaðið - 19.04.1986, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. APRÍL1986
27
Ríkarður enn
eftir Thor
Vilhjálmsson
Mikið varð ég feginn grein séra
Kolbeins Þorleifssonar vegna sýn-
ingar Þjóðleikhússins á Ríkarði III
eftir Shakespeare.
Sannast sagna var ég farinn að
hafa áhyggjur af því að margir
myndu fara á mis við mikilvæga
reynslu og tímabæra hugvekju af
dýrri list vegna ýmissa skamm-
sýnna skrifa eftir frumsýninguna.
Skal játað að tómlátt tal í ræðu
bæði og riti vakti mér ekki óþreyju
að sjá þessa sýningu, og heyra.
Þó varð af því fyrir fáum dögum
þegar önnur hollari áhrif komu til.
Mér fellur illa þegar verið er að
gera ýmsum þeim sem mæltu í móti
sýningunni annarlegar hvatir þegar
þeir fundu að leikstjóminni með
sínum rökum; sem óþarft er að
tortryggja, eða gera almenningi
tortryggileg. Hinsvegar harma ég
að þeir virðast sumir ekki hafa áttað
sig á því hvað fyrir honum vakti
né skynjað áhrifsmátt þessarar
djúpseilnu sýningar, þar sem vits-
munir réðu ferð, og hollusta við
skáldið sem er samtíða hverri kyn-
slóð sem er borin í heiminn. Og
hvarflaði að mér þegar ég hafði séð
sýninguna þakklátum huga og
minntist þeirra skrifa og þrasins
sem leiddi af að einhveijum hefði
farið svo sem segir í sígildri bók
að sjáandi sæju þeir ekki og heyr-
andi heyrðu þeir ekki.
Að mínu viti er ekki nauðsynlegt
að hafa leiðsögn séra Kolbeins til
að njóta þessarar sýningar með
tiltækum skilningarvitum. En sízt
er það lakara að hafa lesið grein
hans til að efla skilning, sem vitur-
lega hugvekju. Þótt þar standi
margt sem freistandi væri að ræða
verður það ekki að sinni, einkum
vegna annríkis. Læt við það sitja
að benda á hana þeim sem yfír
hefur sézt í blaðinu í morgun, 16.
apríl.
Eg vil þakka með séra Kolbeini
þá hollustu og skilningsþrá sem
kemur fram í flutningi textans hjá
ölium sem tóku þátt í sýningunni.
Til hvers væri að leika Shakespeare
væri ekki reynt að láta hvert orð
ná eyra og auga okkar gistivina
ieikhússins.
Ég man dæmi þess að á því hafí
orðið misbrestur í fyrri sýningum
verka Shakespeares hér. Þar hafa
stundum orðið ískyggileg umferðar-
slys fyrir skort á gát, jafnvel flaust-
ur og írafár og orðið stundum að
gönuhlaupi, þar sem menn hafa
ölvast svo af íþróttatækni að hefur
gleymzt til hvers hún væri og hverju
bæri að þjóna. Og skildi þannig
með því sem hvort þarfnast hins:
list og tækni; sem ræður hvort listin
rætist, nær máli, eða hrekkur á glæ.
Ég man dæmi úr þessu húsi þess
að leikarar ryddu úr sér ræðum
frá Shakespeare af flæðandi
mælsku, og streymdi svo hratt að
varla greindist orð í þeim ruðningi,
ellegar busluðu lafmóðir af til-
þrifamiklum kollsteypum eða helj-
arstökkum að textinn fór meira eða
minna fyrir garða, og fyrirgangur-
inn svo æstur að leikurinn glataði
meiningu, og það þótt gestur hefði
sig allan við að leita texta uppi í
glaumnum. Stundum hefur farið
líkt og þegar á að skjóta flugeldum,
Thor Vilhjálmsson
„Jafnframt því sem ég
óska Helga og öðrum
snjöllum leikurum okk-
ar sem vinna stór afrek
til hamingju, vil ég óska
öllum sem standa að
þessari sýningu heilla.
Þar virðist hver maður
vita hvers vegua hann
er þar.“
en geigar svo ekki tekst flaugin á
loft heldur hendist skurrandi eftir
götunni eða grundinni.
Veizlan sem nú býðst í Þjóðleik-
húsinu er öll byggð á aðdráttum
frá Shakespeare. Þangað eru öll
föngin sótt til að skapa magnaða
og tímabæra hugvekju um þann
heim sem við byggjum, þá lævi sem
Intemational Hotel and
Tourism Training Institutes Ltd.
Spennandi starf í alþjóð-
legum og sívaxandi iðnaði
HÓTELSTJÓRNUNAR-
NÁM í SVISS
IHTTI býður 2 valkosti:
• ÞRIGGJA ÁRA FULLT NÁM í HÓTELSTJÓRNUN.
PRÓFSKÍRTEINI í LOK NÁMS
fyrir námsfólk sem uppfyllir inntökuprófskröfur í háskóla. Námið
hefst mánudaginn 6. október 1986. Námskostnaður 22.000
svissneskir frankar — á ári, fæði og húsnæði innifalið.
•4 ’/2 ÁRS ÁFANGANÁM í HÓTELREKSTRI. PRÓF-
SKÍRTEINI í LOK NÁMS
fyrir starfsfólk í hóteliðnaði. Þeir sem hafa viðurkennda starfs-
hæfileika á sérsviðum geta lokiö þessu sveigjanlega námi á
skemmri tíma.
Námið hefst á mánudegi 6. október 1986, eða mánudegi 5.
janúar 1987, eða mánudegi 16. mars 1987. Námskostnaður
8.000 svissneskir frankar fyrir fyrstu 3 áfangana, fæði og húsnæði
innifalið.
Kennsla fer fram á ensku.
Skrifið eftir bækling til:
IHTTI, International Hotel and
Tourism Training Institutes Ltd.
P.O.Box 95, CH-4006 Basel/
Switzerland.
getur grandað okkur öllum, núorð-
ið.
Ég vísa enn til séra Kolbeins,
þegar maður kemur að því að meta
hve hugvitsamlega sviðsbúnaðurinn
er ortur, magnaður í einfaldleika,
þótt sýnist fábreytni. Ég vil bæta
því við að mér sýnist farsælt mið
hafí verið tekið af málverki á End-
urreisnaröldinni ítölsku, í litum bún-
inga og fönsun þeirra klasa sem
eru myndaðir með röðun leikaranna
eða niðurskipan á sviðinu, og allir
virkir í senn. Og þótti þeim sem
sjáandi ekki sáu vera kyrrstætt; og
kvörtuðu sáran. Stórsnjallar kyrr-
myndir úr orustu mögnuðu í hugan-
um heift bardagans og ógn, og fá-
nýti alls þegar mest gekk á; leiddu
jafnvel hug að því sem Prédikarinn
segin Allt er hégómi og eftirsókn
eftir vindi. Svo maður fari ekki að
kyija lokaræðu og uppgjör Mak-
beðs. Það sýndist væri innblásið á
skyggna myndvísu af ítalska endur-
reisnartíðarsnillingnum Uccello í
Flórenz; stærðfræðingi og málara
sem raunar dó örsnauður og horfinn
öllum heillum á fátækrahæli, svo
sem verða stundum örlög snillinga.
Jafnframt því sem ég óska Helga
og öðrum snjöllum leikurum okkar
sem vinna stór afrek til hamingju
vil ég óska öllum sem standa að
þessari sýningu heilla. Þar virðist
hver maður á sviðinu vita hvers
vegna hann er þar. Ailt er byggt á
hugsun. Að reyna að skilja. Og
skapað með leik og flutningi text-
ans, sem kemur að innan magnað
andrúmsloft, og okkur sýndur
ormagarður, þar sem enginn er
annars bróðir. Og kannski er ekkert
hlutverk smátt. Enda er miðja
heimsins í okkur öllum, hveiju fyrir
sig.
En spyija mætti sisona: Hveijum
sé mest að þakka svo markviss
sýning?
Má ég minnast á sjálfan leikstjór-
ann. Þótt útlendur sé. Og þakka
þó ekki væri nema fyrir mig.
Þýðingarafrek Helga Hálfdanar-
sonar væri efni í aðra grein, og á
sinn þátt í að gera veizluna góða
og minnisverða.
I þessu frétti ég að örfáar sýning-
ar séu eftir, og Shakespeare þar
með fallinn í Reykjavík. Það væri
mikil hneisa og stórslys.
Höfundur erþjóðkunnur
rithöfundur.
FiliDi
CASA
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 20
SÍMI13530
og það sem meira er, sumarsendingin aí
FENDI- gaminu var að koma frá Flórens. Allir
sterku og heitu litirnirvoru með.
ARS
g gerum
okkur auðvitað
dagamun.
Bjóðum viðskiptavinum
okkar
Kristal bómullargarn
Brus-up, burstaða ullin
Dusty bómullargarn
Hjerteopus bómullargarn
Hjertesolo bómullargarn
Kattens superwash alull
íslenski lopinn
Nýjartölur— nýir litir.
Komið og gerið ykkur dagamun líka og finnið breyskjuna af prjónat-
ískunni á Ítalíu í búðinni í litla dökka húsinu á Skólavörðustígnum.
Opið laugardaga frá kl. 10—14.