Morgunblaðið - 19.04.1986, Síða 33

Morgunblaðið - 19.04.1986, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL1986 33 AÐALFUNDUR MS-félags Is- lands haldinn 17. aprii 1986 skorar á hæstvirta ríkisstjórn Islands að endurskoða ákvörðun sína um eftirgjöf aðflutnings- gjald bifreiða frá 9. apríl, segir í frétt frá MS-félagi íslands. Upphæð sú er fatlaðir fá nú eftirgefna hefur lækkað stórlega eða um allt að 85%. Auk þess bendum við á að eldri bifreiðir hafa lækkað í endursölu um nærri 50%. . Með þessari ákvörðun sinni hefur ríkisstjórnin: a) Fallið frá markmiðum fyrri ríkisstjórna um að létta fötl- uðum bílakaup, og auðvelda þeim þannig þátttöku í at- vinnu- og félagslífí. b) Mismunað fötluðum gróflega samanborið við aðra launþega INNLENT Póstmannafélag íslands: MS-félagið óskar nið- urfellingar söluskatts af bifreiðum til fatlaðra landsins eftir nýgerða kjara- samninga. MS-félag Islands harmar þessa ákvörðun ríkisstjómar Islands, og leggur eindregið til að söluskattur verði felldur niður af bifreiðum til fatlaðra. en þá munu þeir njóta sömu kjarabóta og aðrir. Ráðstefna um réttindi kvenna Framkvæmdanefnd um launa- mál kvenna gengst fyrir ráð- stefnu um réttindamál kvenna í dag, laugardag, frá kl. 13.00 til 17.00 í Sóknarsal, Skipholti 50, Reykjavík. Ráðstefna þessi er ætluð konum í stjómum og samninganefndum félaga innan ASÍ, BSRB, BHMR og SÍB en er opin öllum konum, sem áhuga hafa á þátttöku. A ráðstefnunni verður gerður samanburður á nokkmm réttinda- atriðum í kjarasamningum, fulltrú- ar ASÍ, BSRB, BHMR og SÍB flytja erindi, fyrirspumum verður svarað og henni lýkur á almennum umræð- um. Þátttökugjald er 150 krónur og í því eru innifaldar veitingar. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Kona f ormaður í fyrsta sinn Launamálin brýnasta verkefnið Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, afhendir einum skátanna forsetamerkið. Átján dróttskátar fengn forsetamerki FORSETAMERKI Bandalags ís- lenskra skáta var afhent við há- tíðlega athöfn í Bessastaðakirkju sunnudaginn 13. apríl sl. Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands og verndari skátahreyfingarinnar afhenti alls 18 dróttskátum merkið. Forsetamerkið er æðsta verk- efnamerki sem íslenskir skátar geta unnið að. Þeir skátar sem það hljóta hafa allir starfað ötullega innan skátahreyfingarinnar og hlotið úr starfi sínu dýrmæta alhliða reynslu í félagsstörfum, útilífi og stjómun. Að athöfninni í Bessastaðakirkju lokinni bauð forsetinn skátum og öðmm gestum til móttöku á Bessa- stöðum. Eftirtaldir skátar hlutu forseta- merkið 1986: Hlíf Sturludóttir, Hmnd Birgis- dóttir, Hulda Guðmundsdóttir, Páll Línberg Sigurðsson, Ragnheiður Jóna Armannsdóttir, Hugrún Rúnarsdóttir, Ragnheiður Linda Skúladóttir, Stefán Gunnarsson, Ásgeir Hreiðarsson, Ásgeir Guð- mundsson, Þóra Víkingsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Erla Jóhannesdóttir, Þorgerður Aðalgeirsdóttir, Anna Sigrún Rafnsdóttir, Svala Bjöms- dóttir, Sveinbjörg Jónsdóttir op V algerður Halldórsdóttir. Nokkrir af íslensku þátttakendum sýningarinnar. Frá vinstri eru Valdís Bjamadóttir, Hróbjartur Hróbjartsson, Gunnar Guðnason, Sigurður Björgúlfsson og Richard Briem. „Straumar í nor- rænni byggingarlist“ Sýning arkitekta í Norræna húsinu Sýningin „Straumar í nor- rænni byggingarlist“ er heiti sýningar sem opnar í dag kl. 16.00 í Norræna húsinu. Galleríið SKALA í Kaupmannahöfn stend- ur að uppsetningu sýningarinn- ar, en sýning þessi hefur farið um öll Norðurlöndin. Hún opnaði í SKALA í ágúst sl. Tildrög sýningarinnar vom þau að á undanförnum ámm hafa mikl- ar breytingar átt sér stað bæði í hugmyndafræði og hönnun í al- þjóðlegri byggingarlist og þótti því þörf á að Norðurlöndin tækju ákveðnari afstöðu til þessara nýju strauma, að sögn Valdísar Bjama- dóttur arkitekts. Sýningin er um leið möguleiki á norrænum samskiptum á sviði fag- legrar reynslu sem ætti að vera til styrktar fyrir fagið í heild og þar með auka samvinnu á vegum bygg- ingarlistar og menningarmála. Þetta er í fyrsta skipti sem Norðurlöndin sameinast um að halda slíka sýningu og meðal þátt- takenda em margir af fremstu arkitektum Norðurlanda. Af Islands hálfu taka þátt í sýningunni Guð- mundur Jónsson, Valdís Bjama- dóttir, Hróbjartur Hróbjartsson, Sigurður Björgúlfsson, Richard Briem, Dagný Helgadóttir, Guðni Pálsson, Gunnar Guðnason, Oli Hertervig, Ragnar Gunnarsson og Jóhannes Þórðarson. Sýningin stendur aðeins til 28. apríl og er opin virka daga kl. 16.00 til 22.00 og um helgar kl. 14.00 til 22.00. JENNÝ Jakobsdóttir var kjörin formaður Póstmanna- félags Islands 15. apríl sl., fyrst kvenna í sögu félagsins, sem var stofnað 1919. Nú silja sex konur og einn karl í stjórn Póstmannafélagsins. Morg- unblaðið spurði Jenný, hver væru brýnustu verkefni hennar sem formanns. „Það er mikið starf sem liggur fýrir. Félagið er stórt, 800 manns, og félagarnir láglaunafólk, 80% em konur. Því er brýnt að bæta kjör þeirra. Við emm í lægri kantinum, jafnvel þótt miðað sé við aðra ríkis- starfsmenn. Ég get nefnt sem dæmi, að póstburðarmaður hefur um 19.000 krónur í byijunarlaun og getur hæst komist í 26.000 eftir 18 ára starf og sér hver maður, að það er ekki eftirsóknarvert. Póststörf vom mikils metin hér aður fyrr og menn sóttu í þau. Matið á þeim virðist hafa breyst í tímans rás og nú er svo komið að fólk flýr unnvörpum úr stéttinni, þaulvant og sérmenntað til þessara starfa í 2—4 ára póstskólanum okkar, og við sjáum ekki fram á að fá annað í staðinn vegna þess hve launin em lág. Þessu þarf að breyta. Áð launamálunum frátöldum get ég nefnt þátttöku okkar í norrænu samstarfi; við teljum okkur geta lært mikið af nágrönnum okkar og sótt til þeirra reynslu um ýmis innri mál. Það má geta þess að fyrsta norræna póstmannamótið verður haldið hérlendis á næsta ári og töluvert mikið starf að undirbúa það,“ sagði Jenný Jakobsdóttir að lokum. Tónlistarfélagið: Ellen Lang og William Lewis halda tónleika í DAG munu Ellen Lang, sópran- söngkona, og William Lewis, píanóleikari, halda tónleika i Austurbæjarbiói á vegum Tón- listarfélagsins kl. 14.30. Ellen Lang er ung söngkona, sem hefur sungið jöfnum höndum óper- ur, kammermúsík og á einsöngstón- leikum, og auk þess tekið þátt í uppfærslum á söngleikjum. Efnisskrá hennar á laugardag endurspeglar þessa fjölhæfni, því þá syngur hún lög eftir Schubert, Rossini, Liszt og Samuel Barber, og auk þess þijú lög eftir Jerome Kem og lag eftir Lee Hoiby — The Serpent — sem var upphaflega samið fyrir Leontyne Price. Nokkrir aukamiðar verða til sölu á venjulegum sölustöðum og við innganginn. Úr fréttatilkynningu. Þjóðarátak gegn krabbameini: Um 23 millj. RÚMAR 23 milljónir hafa nú safnast til Krabbameinsfélags- ins. Mestur hlutinn safnaðist um síðustu helgi, er gengið var í hús. Fyrirtækjasöfnun er í fullum gangi og er algengt að fyrirtæki gefi nokkra tugi þúsunda í söfn- unina, allt að 100 þúsundum. Geirlaugar Ottósdóttur starfs- hafa safnast manns Þjóðarátaks gegn krabba- meini sagði að ekki yrði Ijóst fyrr en seinni hluta næstu viku hve mikið hefði safnast, fyrirtækin hefðu verið mjög rausnarleg, Iðnað- arbankinn og Skrifstofuvélar hefðu gefið 100 þúsund hvorttil söfnunar- innar og Sólning hf. 50 þúsund.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.