Morgunblaðið - 19.04.1986, Side 41
MORGtTNíBI Aí)IÍ>; •LAWGARI)AGUR1«.'XPRÍE'Í98G
41
Ljósmyndarar við uppsetningu mynda í Listasafni ASÍ.
Lj ósmyndaraf élag íslands
heldur ljósmyndasamkeppni
Sigurður Rúnar Bergdal Óskarsson,
Hafnargötu 17.
Stefán Jóhann Arngrímsson,
Suðurgötu 12.
Ferming í Hvalsneskirkju
sunnudaginn 20. apríl kl. 14.
Alda Gísladóttir,
Norður-Flankastöðum.
Andrea Bára Árnadóttir,
Holtsgötu 25.
Gyða Björk Guðjónsdóttir,
Ásabraut 10.
María Kristín Óskarsdóttir,
Ásabraut 5.
Ólafur Þór Ólafsson,
Brekkustíg 7.
Ragnar Víðir Reynisson,
Bjarmalandi 10.
Siguijón Ólafsson,
Brekkustíg 10.
Vilbogi Magnús Einarsson,
Hjallagötu 2.
Þórður Pálrhi Jónsson,
Vallargötu 26.
Fermingarbörn í Garðapresta-
kalli á Akranesi sunnudaginn 20.
apríl kl. 10.30. Prestur sr. Björn
Jónsson.
Ágúst Guðmundsson,
Deildartúni 9.
Guðmundur Steinar Jónsson,
Heiðarbraut 49.
Hafsteinn Víðir GunnarsSön,
Brekkubraut 2.
Hallgrímur Guðmundsson,
Vesturgötu 70.
Ilallvarður Jónsson,
Bjarkargrund 37.
Hans Júlíus Þórðarson,
Jörundarholti 34.
Hjálmar Rögnvaldsson,
Vallholti 17.
Óskar Georg Jónsson,
Jörundarholti 132.
Pétur Atli Lárusson,
Heiðarbraut61.
Alda Þöll Viktorsdóttir,
Furugrund 40.
Elín Björk Davíðsdóttir,
Víðigrund 12.
Helga María Hallgrímsdóttir,
Deildartúni 3.
Helga Helgadóttir,
Bjarkargrund 3.
Herdís Valbjörnsdóttir,
Skagabraut 38.
Hróðný Njarðardóttir,
Furugrund 20.
Indíana Unnarsdóttir,
Höfðabraut 2.
Jóhanna Lilja Hjörleifsdóttir,
Furugrund 13.
Júlíana Omarsdóttir,
Skólabraut 37.
Kristín Guðbjörg Sigurvinsdóttir,
Esjuvöllum 15.
Sigríður Holgadóttir,
Garðabraut 8.
ÞóraJónsdóttir,
Suðurgötu 32.
Fermingarbörn í Garðapresta-
kalli á Akranesi sunnudaginn 20.
apríl kl. 14.00. Prestur sr. Björn
Jónsson.
Jón Þór Þórðarson,
Dalbraut 15.
Karl Rúnar Lilliendahl,
Einigrund 9.
Kristinn Hallur Sveinsson,
Vesturgötu 73.
Leifur Ingi Óskarsson,
Sunnubraut 5.
Leiknir Sigbjömsson,
Skagabraut 35.
Orri Harðarson,
Vogabraut 12.
Rannveig Jóna Haraldsdóttir,
Stillholti 4.
Rannveig Hólm Jónasdóttir,
Furugrund 38.
Sólbjörg Hlöðversdóttir,
Akurgerði 13.
Sigríður Árnadóttir,
Stillholti 11.
Sunna Björk Þórarinsdóttir,
Akurgerði 15.
Sylvía Björg Guðmundsdóttir,
Suðurgötu 19.
í tilefni af 60 ára afmæli Ljós-
myndarafélags íslands verður
haldin Ijósmyndasamkeppni
meðal félagsmanna og nema
þeirra.
Sýning á myndunum fer fram í
Listasafni ASÍ við Grensásveg og
stendur hún til 4. maí. Sýningin
verður opnuð kl. 15.00 og verður
framvegis opin virka daga kl. 16.00
til 20.00 og um helgar kl. 14.00 til
22.00.
Innrásin sem
aldrei var gerð
Úr A Chorus Line.
Dag’ur í leikhúsinu
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnbogfinn. Innrásin — (In-
vasion USA) ☆
Leikstjóri James Zito. Framleið-
endur Golan-Globus. Handrit
Chuck Norris og James Bmner,
byggt á söguþræði Aarons Norris
og Bmners. Kvikmyndataka Joao
Femandez. Tónlist Jay
Chattaway. Aðalhlutverk Chuck
Norris, Richard Lynch, Melissa
Prophet, Alexander Zale. Banda-
rísk frá Cannon. 1985.107 mín.
Fmmsýning þessarar áróðurs-
myndar, (eða hvað sem á að
flokka þennan samsetning undir),
kemur upp á kaldhæðnislegum
tíma, þegar herraríkið sjálft hefur
tekið að sér alheimslöggæslu og
stofnað heimsfriðnum í voða.
ímyndað innrásarbrambolt Rússa
í myndinni verður næsta fáfengi-
legt í samanburði.
í þessum kapítula myndbálks-
ins um einsmannsherdeildina
Norris, fæst hann við að bijóta á
bak aftur ísmeygilega innrás
Rússa á meginlandi N—Ameríku.
Minna má nú gagn gera.
Með Innrásinni hefur Chuck
Norris og hugmyndasmiðum hans
hrakað talsvert frá Code Of Sil-
ence, og styrkir það gmn vom
um að þessi getulitli leikari verði
aldrei meira en músarrindill á
tjaldinu við hliðina á karlljónunum
Eastwood, Stallone, Schwarzen-
egger og co. (T.d. tók Rambo inn
80 millj. dala á síðasta ári í USA,
Rocky IV 60, Pale Rider 21,
Commando 17, á meðan Inn-
rásin komst yfir tæpar 7. Heimild
Variety.) Er þetta í rauninni vitn-
isburður um óbijálaða dómgreind
metnaðarfullra handritshöfunda
og framleiðenda vestan hafsins.
En leikleysan er ekki versti
þáttur ínnrásarinnar, enda
skiptir leikurinn ekki miklu máli
í slíkum myndum, heldur móður-
sýkislegur efnisþráðurinn sem
lýsir þankagangi ofsóknarbijá-
læðinga. Hér hefur þeim loksins
tekist að skapa hana, rússagrýl-
una, sem fær jafnvel heilsuhraust-
ustu góðvini Bandaríkjanna til að
fá óbragð í munninn.
Fastir liðir einsog venjulega í
bálknum; leikur og handrit ekki
eyrisvirði en bardagasenur lífleg-
ar og margar hveijar vel útfærð-
ar.
Chuck Norrís, gaddfreðin og
getulítil ímynd bandarískrar
karlmennsku. Að öllum Iikind-
um sjáum við hann næst í Trí-
polí.
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Bióhöllin sýnir: A Chorus
Line. Stjömugjöf: ☆ ☆ '/2
Framleiðendur: Cy Feuer og
Ernes Martin. Höfundur dansa:
Jeffrey Hornaday. Tónlist:
Marvin Hamlisch. Myndataka:
Ronnie Taylor. Leikstjórí: Ric-
hard Attenborough.
Það er löngu kunn saga úr
Hollywood að ef leikstjóri hefur
slegið í gegn með metsölumynd
þar vestra, standa honum allar
dyr opnar. Það er slegist um slíka
menn og þeir geta valið úr til-
boðum. Þannig var það með Sir
Richard Attenborough og Gandhi.
Eftir Gandhi biðu menn með
óþreyju eftir að fá að vita hvaða
mynd Sir Richard tæki fyrir næst.
mesta lagi sem snöggar augna-
gotur, magaveikislegar munn-
viprur eða ört tittlingadráp,
(augna-), undir hápunktum dram-
ans. Samtölin klippt og skorin og
snúast gjarnan uppí innihaldslítil
rifrildi. Hetjan klökknar helst ekki
fyrr en ástvinurinn er allur.
Hin hlið myndarinnar — Rocky
á hjólhesti — er vel kvikmynduð,
galíinn er sá að maður veit fyrir
fimmtíu myndum síðan hver sig-
urlaunin hlýtur. Ægifegurð Col-
orado og Klettafjallanna er besti
hluti myndarinnar, landslagið jafn
tilkomumikið og hinn ameríski
draum-blandaði mannlegi þáttur
ervæminnogrýr.
Hann hafði svosem ekki leikstýrt
mörgum myndum um ævina en
þær sem hann hafði gert voru
risastórar í sniðum með úrvalsliði
leikara eins og A Bridge Too Far
og svo auðvitað Gandhi sem hafði
tekið hann 20 ár að koma frá sér.
Menn bjuggust við einni stór-
myndinni enn.
Því vakti það nokkra athygli
þegar fréttist að Sir Richard væri
farinn af stað með að leikstýra
söngleik, sem slegið hefði í gegn
á Broadway næstum 10 árum
áður. Sir Richard, sem er breskari
en verkföll var tekinn til við söng-
leik sem er amerískari en Frelsis-
styttan. Andstæðumar gátu ekki
meiri verið fyrir utan að Sir Ric-
hard hafði aldrei áður fengist
neitt við söngleiki ef frá er talin
myndin O, þetta er indælt stríð,
sem er ekki samanburðarhæf við
A Chorus Line. Það hafði verið
rætt um að Adrian Lyne (Flash-
dance) gerði söngleikinn og jafn-
vel fleiri Bandaríkjamenn en Att-
enborough var í tísku.
Og honum tekst bærilega að
komast frá sínu eins og sagt er.
Söngleikurinn var frumsýndur á
Broadway veturinn 1975 til 1976
og náði strax miklum vinsældum.
En hann var orðinn talsvert
gamall þegar tekið var til við að
kvikmynda hann og aldurinn
minnir stundum á sig. Gömlu
stefin um hina hörðu samkeppni
dansaranna, kynvillu, vandamál
heimafyrir, hinn kröfuharða leik-
stjóra og annað þess háttar eiga
sér varla jafnsterkan hljómgrunh
ogfyrir 10 árum.
Sögusviðið er þröngt, tímasetn-
ingin stutt. Sagan gerist á einum
degi í leikhúsi og mestallur leikur-
inn fer fram uppá sviði. Þar er
sögð saga fólksins sem komið er
til að fá pláss í dansflokki. Það
eru margir tilkallaðir en fáir út-
valdir og á meðan á slagnum
stendur fáum við að vita um óskir
dansaranna og þrár, vonbrigði og
innri baráttu þeirra. Og úti í
myrkum salnum situr guð almátt-
ugur. Zack (Michael Douglas) er
leikstjórinn sem velur dansarana.
Hann stýrir örlögum þeirra, er
óhikandi, miskunnarlaus maður í
leit að fullkomnun.
Aðeins þeir bestu komast af í
þessum heimi og hinir síðustu
verða fyrstir og fyrstu síðastir.
„Hvað tekur við hjá ykkur þegar
þið eruð hætt að geta dansað?"
spyr Zack. „Lífið“, er svarið.
Michael Douglas hefur fest sig
í einni ákveðinni rullu í gegnum
árin. Hann er reiði ungi maðurinn
eða var það þangað til hann
sleppti af sér beislinu og hellti sér
út í ævintýramennskuna í mynd-
unum Ævintýrasteinninn og Níl-
arsteinninn. í millitíðinni tókst
honum þó að skella sér í sitt gamla
gerfi. Douglas er takmarkaður
leikari og ungi reiði maðurinn á
einkar vel við hann af einhveijum
ástæðum. Og þess vegna er hann
tilvalinn í hlutverk Zacks. Hann
er kaldur og fráhrindandi og ef
hann hefur einhveijar fínni tilfínn-
ingar týnast þær í leit hans að
hinum fullkomnu dönsurum.
Það eru fá samtöl í myndinni.
Tónlistin og dansamir eru látnir
tala sínu máli. Það er einn megin-
galli á kvikmyndatökunni að
dansaramir em alltof oft aðeins
sýndir fyrir ofan mitti í dansatrið-
um. Það er svolítið sem Adrian
Lyne hefði aldrei leyft sér. Hvað
þá Bob Fosse.
Rocky á hjólhesti
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Fram til sigurs — Amerícan
Flyers ☆
Leikstjóri John Badham. Aðal-
hlutverk Kevin Costner, David
Grant, Rae Dawn Chong. Banda-
rísk. WarnerBros. 1985.
Skrýtið hliðarskref hjá mistæk-
um, en oft eftirtektarverðum
(Blue Thunder, War Games,
Saturday Night Fever) leik-
stjóra.
í stuttu máli fjallar Fram til
sigurs um tvo bræður sem misst
hafa föður sinn úr ættgengum
æðasjúkdómi. Læknismenntaður
eldri bróðirinn veit að hann á
skammt ólifað vegna sama kvilla
og vill fá úr því skorið hvort sá
yngri á sömu örlög yfírvofandi.
Myndin fjallar þó ekki síður um
gríðarlega reiðhjólakeppni en í
þeirri íþrótt eru þeir bræður báðir
hinir liðtækustu.
Þessi nýjasta mynd Badhams
er hvorki fugl né fiskur. Samband
bræðranna nær aldrei þeirri hjart-
næmu stemmningu sem því er
ætlað hjá áhorfendum. Einkum
sökum þess yfírborðskennda til-
fínningalífs sem oft hijáir banda-
rískar myndir. Það lýsir sér í