Morgunblaðið - 19.04.1986, Síða 50

Morgunblaðið - 19.04.1986, Síða 50
50--------------------—.....- ........ MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. APRÍL1986 ,, Hcinn hefur síöÁmgi. \>ö~ rruxrlröS cJí Sk'ip sé c& siglo. ó- facxnn-" áster... o ... að skilja skap- gerðhennar. TM Reg. U.S. Pat. Ofl.—all rights reserved c1985 Los Angeles Times Syndicate Það er giftingardagurinn ykkar HÖGNIHREKKVÍSI Sóun o g hneyksli Alltaf heyrir maður nú eitthvað nýtt. 5 milljónir eiga að fara í handboltalið. Ég vona að þingmenn hugsi sig vel um áður en þeir samþykkja svona fjáraustur. Auðvitað þarf rík- isstjórnin að leggja þessa upphæð á skattgreiðendur. Að hugsa sér að veita fimm milljónum til þess eins að horfa á menn henda bolta á milli sín. Það er mjög asnalegt, svo ekki sé nú meira sagt. Þegar haft er í huga að lægst launuðu stéttir landsins þurfa að þræla nótt sem dag, og ná heldur ekki endum saman, þá er svona sóun hneyksli. Ég hefi heyrt marga segja að þeir, sem flytja þetta frum- varp, þurfí ekki að hugsa til þing- setu í framtíðinni. Ég hef ekki á móti líkamsrækt, en hana á ekki að styrkja svona með fjármagni frá því opinbera. Ef menn handa að þetta sé land- kynning, þá væri nær að huga að Vigdísi forseta og Hólmfríði fegurð- ardrottningu. Það er landkynning sem um munar. En það er nóg við þessa peninga að gera og þeir eiga að fara til líkn- armála eða heilbrigðismála. Þar er þörf fyrir þá. Ofan á þetta bætist svo sú fátækt sem er í þessu landi. Það kom í ljós í Kastljósi á dögunum að hjón sögðust þurfa að lifa á 10 þús. á nánuði með tvö böm. Það kom líka í ljós hjá prestinum að hjónaskilnað- ir hefðu færst í aukana og m.a.s. hefðu sjálfsvíg aukist mjög og fjár- hagsvandræði yllu því að langmestu leyti. Væri nú ekki nær að hjálpa þessu fólki heldur en veija fimm milljón- um til þessara mála, þó ég hafi ekkert sérstaklega á móti íþróttum, en þær þarf að styrkja með öðrum hætti. Jóhann Þórólfsson Þessir hringdu . Oryggis- læsingar á heimilum Tveir aðilar hafa haft samband við Velvakanda vegna fyrirspumar móður um öryggisskápa á heimil- um. Jóhanna Vigdís Hjalta- dóttir hjá versluninni Moth- ercare sagði að þar fengjust bæði sérstakir læstir lyfja- skápar og hlífar fyrir elda- vélar eins og þær sem móðir minntist á. Að sögn Agnars Kárason- ar hjá versluninni BYKO fást þar sérstakar læsingar sem festar eru á skápa. Þær kosta 145 krónur, þijár í pakka. Páfagaukur fannst við Kópavogsskóla Síðastliðinn miðvikudag fannst páfagaukur við Kópavogsskóla. Hann er ljósblár og er eigandi beðinn að hafa samband í síma 45806. Víkverji skrifar að er súrt í brotið að þurfa að sætta sig við að kaupa svikna vöru af því enginn virðist þess umkominn að taka í taumana. Hér er auðvitað átt við „nautakjötið" sem nú kemur uppúr dúmum að er víst sjaldnast af nauti. Kjöt- vinnslumaður hefur staðfest það í sjónvarpinu (og vandséð hvers- vegna hann skyldi vera að skrökva þessu að okkur, blessaður maður- inn) og kjötkaupmaður er búinn að lýsa yfir á prenti að hann botni bara ekkert í þessum hamagangi af jafnómerkilegu tilefni. Sá góði maður reyndi að vísu ekki að halda því fram að Búkolla gamla væri tuddi en staðhæfði aftur á móti að kjötið af henni væri slíkt afbragð að það væri bara síst lakara en væri hún tuddi. Og svo hafa for- kólfar bænda fómað höndum og reytt af sér megnið af hárlubbanum og hrópað hver um annað þveran að þetta væri aldeilis agalegt; og látið það duga. Við höfum verið að nudda í Kananum síðustu misserin að hann keypti af okkur nautakjöt einkan- lega; varla verður það honum samt hvatning til viðskiptanna ef hann hefur nú fyrir því orð vísustu manna að hann geti rétt eins átt von á að finna júgur í krásunum. Ennfremur ber það vott um vítavert fálæti hve hljóðlát kaupmannastéttin hefur verið í öllum þessum gauragangi. Annaðhvort er þetta góður og gegn viðskiptamáti eða hann er það ekki, og viðskiptavinimir eiga rétt á því að stéttin sem hér er í sviðsljósinu tjái sig um þetta. Þögn fer að verða sama og samþykki senn hvað líður og samtökum kaupmanna ber því að taka af skarið. XXX Bílgreinasambandið er óánægt með tollanna á bifreiðavara- hlutum. Verðlækkunin á bílunum er góðra gjalda verð, segja talsmenn þess, en aldeilis afleitt að láta vara- hlutina sitja eftir ef svo mætti orða það. Það sýnist enda augljóst að ein afleiðingin hljóti að verða heil- mikil sóun á verðmætum. Það er verið að fæla menn frá því að hanga í gömlu bílunum sínum, beinlínis verið að ýta undir menn að vippa þeim bara á haugana. Það gefur augaleið að ef vara- hlutur í slarkfæran bíl kostar jafn- vel allt uppí þriðjunginn af glænýj- um bíl af ódýrari gerðunum, þá er það mönnum lítil hvatning til nýtni; og svo hlýtur enn að rýrna verðið á gamla grána sem eigandinn hafði samt verið að hugga sig við fyrir fáeinum vikum að ætti talsverðan sprett í sér ennþá. Víkveiji hélt að hann hefði gripið þá glóðvolga hjá útvarpinu og sjónvarpinu á dögunum, þegar þeir voru að segja glímufréttir og sögðu um glímukónginn að hann hefði lagt alla „viðfangsmenn" sína. Vík- veiji kom af Ijöllum og hafði aldrei heyrt orðið og fann það að auki hvorki í Blöndal né Orðabók Menn- ingarsjóðs. En þeir hjá Orðabók Háskólans áttu það í fórum sínum. Það sýnist hefja flakk sitt uppúr aldamótum, og er svo að skjóta upp kollinum annað slagið uppeftir öldinni. Skák og mát hjá viðfangsmönn- um Víkveija hjá ríkisútvarpinu. Á hinn bóginn er það víst ósvikið nýyrði sem kom fram í fyrirsögn á áróðursgrein í einu dagblaðanna fyrir fáeinum dögum. Manneskjan sem þar stýrði penna sýnist hafa verið að þreifa eftir orði yfir hug- takið „military confrontation“ og lætur vaða með „hernaðarand- spæni". En fæðist svona samsetn- ingur ekki andvana? XXX • • Orlát kona upplýsti í blaðaviðtali daginn eftir Ameríkureisu Hermanns Björgvinssonar að hún hefði lánað honum nokkrar þúsund- ir þýskra marka í farareyri. Ér það framhleypni að spyija hvort nokkuð hafi verið minnst á vexti?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.