Morgunblaðið - 19.04.1986, Page 54

Morgunblaðið - 19.04.1986, Page 54
MORGUNgLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. APRÍL1986 54 >■■. Danmörk: w íþróttir helgarinnar: Island og Noregur Ný klukka í höllinni á Akureyri Akureyri. NÝ KLUKKA var á dögunum sett upp í íþrótta- höllinni á Akureyri, og var myndin tekin eftir að þaö var gert. Gnœfir hún nú yfir íþróttaœsk- unni sem œfir í húsinu eins og sjá má. Miklar tafir urðu á komu klukkunnai ti! landsins - en ; nú geta íþróttaáhugamenn í bænurr andað létt- ar. Hingað til hefur verið notast við lítinn og fremur óskemmtilegan tímamæli þannig að erfitt hefur verið fyrir leikmenn og áhorfendur að greina hve mikið er eftir af leiktímanum - en nú heyrir það sem sagt sögunnitil. Gladsaxe/HG vann fyrri leikinn Frá Gunnari Gunnarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins (Danmörku. GLADSAXE/HG sigraði Helsingör með 22 mörkum með 21 í fyrri úrslitaleik bikarkeppninnar í handknattleik hér í Danmörku. Leikurinn sem var leikinn á heimavelli Gladsaxe þótti fremur lélegur, mikið um vitleysur á báða bóga. Gladsaxe vai yfir mest allan leikinn og var staðan í hálfleik 12:11 fyrir heimamenn. Skorup var markahæstur hjá Gladsaxe með 9 mörk og hjá Hels- ingör skoraði Flemming Hansen sjö mörk. Seinni leikurinn fer fram í Helsingör á sunnudaginn. Morgunblaðiö/Bjarni 9 Það verður örugglega hart barist í síðustuJeikjum Evrópukeppninn- ar í körfuknattleik í Höllinni í dag. Mynd þessi er tekin í leik íslands og Skotlands. leika til úrslita í dag LOKALEIKIRNIR í Evrópukeppn- inni í körfuknattleik fara fram í Laugardalshöll í dag. Fyrst leika l'rland og Portúgal kl. 13.45. og síðan verður úrslitaleikur móts- ins þegar íslendingar mæta Norðmönnum og hefst hann kl. 15.30. Sigurvegarar í mótinu tryggja sér sæti í B-riðli keppn- innar sem fram fer í Belgíu á næstunni. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt mót er haldið hér á landi í karla- flokki. Undirbúningur að þessu móti hófst á síðasta ári og hefur staðið nær óslitin síðan. Mótið hefur farið vel fram í alla staði og framkvæmdin til fyrirmyndar. Svo er bara að hvetja áhorfendur til að mæta í Laugardalshöll í dag og hvetja landann til sigur gegn Norðmönnum. Blak Hið áralega hraðmót öldunga- liða í blaki, „Höfrungasnerra" fer fram í fjórða sinn í íþróttahúsi Hagaskóla og hefst í dag, laugar- dag kl. 12.00. Átta lið af suðvestur- horninu verða með að þessu sinni. Gert er ráð fyrir að úrslitaleikur mótsins hefjist kl. 17.30. Knattspyrna Einn leikur fer fram í Reykjavík- Hensonbúningar á Wembley Altrincham semur við Henson SEM kunnugt er leikur enska 1. ieildarliðið Aston Villa í íslensk- im búningum frá Henson. í gær iekk Halldór Einarsson frá samn- ngi við utandeildarliðið Altrinc- jam og mun liðið leika í Henson iúningum í úrslitaleik bikar- eppni áhugamannaliða (FA Jhallenge Trophy) sem fram fer '1 á Wembley í maí. „Við höfum átt viðræður við nokkur ensk lið um að þau leiki í búningum frá okkur og verði jafn- framt umboðsmenn fyrirtækisins á viðkomandi svæðum. Það er því gífurlega sterkt að hafa gert samn- ing við Altrincham, því þó um áhugamannalið sé að ræða, þá leikur það á Wembley og fær því mikla umfjöllun bæði í blöðum og sjónvarpi og betri auglýsingu er ekki hægt að fá," sagði Halldór Einarsson, í samtali við Morgun- blaðið í gær. I leikskrá Aston Villa sl. laugar- dag, er þess getið að knattspyrnu- skór framleiddir í Brasilíu komi á markað í Englandi með Henson- merkinu. Aðspurður sagði Halldór að þeir hefðu umboð fyrir þessa skó, en ekki hefði enn verið tekin ákvörðun um markaðssetningu þeirra í Englandi. • Ekki vantar stflinn hjá Hall- dóri. Jafnvægið í lagi og augun á knettinum eins og hjá atvinnu- manni. En hádegisverðarfundir hafa haft sfn áhrif. urmótinu í knattspyrnu á sunnu- dagskvöld. Þá eigast við ÍR og Vík- ingur og hefst leikurinn á gerfigras- inu í Laugardal kl. 20.30. íslandsmót fatlaðra íslandsmót fatlaðra í boccia, bogfimi, borðtennis, sundi og lyft- ingum verður haldið í Sundhöll Reykjavíkur og íþróttahúsi Selja- skóla um helgina. Alls eru um 190 íþróttamenn frá 14 félögum skráð- ir til leiks á mótinu. Koma þeir úr röðum hreyfihamlaðra, blindra og sjónskertra, þroskaheftra og heyrnarlausra. íþróttasamband fatlaðra hvetur alla þá sem áhuga hafa á að kynnast starfsemi sam- bandsins að koma og fylgjast með spennandi keppni. Aðgangur er ókeypis. Borðtennis Spörtumótið í borðtennis fer fram í KR-heimilinu á morgun, sunnudag og hefst kl. 15.30. Mótið er punktamót og jafnframt hið síð- asta fyrir íslandsmótið. Sportvöru- verslunin Sparta gefur öll verðlaun á mótinu. I mótinu taka þátt allir sterkustu borðtennismenn lands- ins. Knattspyrnu- ferli Danans Bastrups lokið Frá Gunnari Gunnarssyni, fréttaritara Morgunbla&sins (Danmörku. SLITIÐ liðband í hné stoppar að öllum líkindum knattspyrnuferil danska knattspyrnumannsins, Lars Bastrup. Bastrup, sem er 31 árs og leikið hefur að undan- förnu með 1. deildarliðinu Ikast og hefur áður gert garðinn fræg- an með Hamburger í Þýskalandi og danska landsliðinu, meiddist illa á miðvikudag í fyrri undanúr- slitaleik bikarkeppninnar gegn KB. Lars Bastrup var markakóngur 1. deildar á síðasta ári í Danmörku. Hann þurfti að yfirgefa leikvöllinn eftir 30 mínutur og á að gangast undir skurðaðgerð í næstu viku. Þetta kostar að Bastrup verður frá knattspyrnu í sex til níu mánuði. Hann segir um þetta atvik:„Eftir svona langt hlé reikna ég ekki með að byrja aftur. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég verð fyrir meiðslum og ég veit hversu erfitt það er að byrja aftur. Eins og staðan er í dag er mínum ferli sem knattspyrnu- manni lokið." • Lars Bastrup i búningi HSV. Haukuryngstur Í20 km hlaupinu VIÐ SÖGÐUM frá því í fimmtu- dagsblaðinu að Ingvar B. Hilm- arsson, 12 ára, hafi verið yngsti þátttakandinn í 20 km hlaupi Iðnaðarbankans. Þetta mun ekki vera rétt þar sem Haukur Páls- son, sem er aðeins 11 ára, hljóp þessa vegalengd einnig og var sá yngsti. Haukur hefur ekki lagt stund á íþróttir og er þetta afrek hans því mjög gott, þó hann hafi komið síð- astur í mark. Hann var mjög eftir sig eftir hlaupið og gat ekki farið í skólann á mánudaginn. Hann er nú allur að braggast og ætlar að æfa fyrir næsta Iðnaðarbanka- hlaup. Haukur ætlaði sér að keppa í 10 km hlaupinu en þar sem hann missti af strætisvagni fyrir hlaupið, ákvað hann að hlaupa bara 20 km. Hann var 2:39.04 klukkstundir á leiðinni, gott afrek hjá svo ungum dreng.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.